Morgunblaðið - 12.12.1986, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. DESEMBER 1986
33
Guðmundur Kristinsson
Læknir á
skemmtiferðaskipi
eftir Kerry Mitchell.
Æsispennandi ástarsaga sem gerist að mestu
leiti á meðal hefðarfólks á skemmtiferðaskipinu
„Pacific Queen“ sem siglir á milli San Fransiskó
og Honolulu.
Gullfalleg ódýr bók. Verð kr. 975 með söluskatti.
Bókaútgáfan Snæfell
Álfaskeiði 58, Hafnarfirði, sími 51738.
Kerry
Mltcheli
I ÆkNIP Á
SKENIMTIFERÐASKIPI
Guðmundur í Listveri
Myndlist
Valtýr Pétursson
Eigandi Listvers á Seltjamarnes-
inu heitir Guðmundur Kristinsson
og er forláta innrammari, sem rek-
ur gallerí með annarri hendi og
innrammar með hinni. Þetta vissi
maður, en að hann málaði eins og
verkin sýna, vissi ég ekki. Þegar
hann var með vinnustofu sína á
Vesturgötunni, voru stundum
krítarmyndir og vatnslitamyndir í
glugga hans og maður leit svona á
þetta og ekki meir, en nú hefur
hann komið upp sýningu á fimm
ára vinnu að myndlist í hinum nýju
húsakynnum sínum á Seltjamar-
nesinu, og nú geta allir séð að
Guðmundi er fleira fært en að setja
ramma um myndir.
Það eru tæpar fimmtíu myndir á
sýningu Guðmundar, og megnið af
því eru pastel- og krítarmyndir, en
nokkrar olíumyndir fá að fljóta
með. Sannast mála mun vera, að
pastel- og krítarmyndir Guðmundar
eru sá efniviður, sem heldur þess-
ari sýningu á floti, ef svo mætti
að orði kveða. Olíumálverk hans eru
of viðvaningsleg til þess að stand-
ast samanburð vð pastelmyndir
hans, sem margar eru nokkuð lipur-
lega gerðar og sumar ágætar. Það
er landslag og skip, hús og gróður,
sem Guðmundur velur sér sem við-
fangsefni að mestu leyti. Hann
hefur auðsjáanlega mikla ánægju
af myndgerð sinni, og því er hún
sönn og upprunaleg, þótt deila
megi um, hvort listrænt gildi sé í
hæsta flokki. Þessar myndir Guð-
mundar (pastel og krít) koma manni
í gott skap, og þá er vissulega góð-
um árangri náð.
Listver hefur nú starfað um
nokkum tíma, og hver sýningin
hefur verið þar eftir aðra. Vil ég
að lokum óska Guðmundi til ham-
ingju með hinn ágæta sal og
sýningu hans, sem mun standa enn
um sinn. Vel gert af frístundamál-
ara.
Jóhann G.
í Gerðubergi
Jóhann G., poppari, söngvari,
skáld og málari, hefur lagt land
undir fót og haldið frá Lælq'ar-
torgi, þar sem hann rak Listamið-
stöðina, og sett upp sýningu á
smámyndum sínum í Gerðubergi.
Þama em yfir áttatíu myndir á
veggjum, í litlum sal og á göngum
og er sýningaraðstaða vægast
sagt í lakasta flokki, og að mínum
dómi hvergi við hæfi mynda Jó-
hanns.
Þetta er að vísu nokkuð misjöfn
sýning hjá Jóhanni, en það finnast
afar geðþekkar myndir hér og
þar. Þegar bezt lætur, em þama
afbragðs verk, rík í litnum og
gerð af varfæmi, og vil ég nefna
til sönnunar þessari fullyrðingu
nr. 74, 29, 36 og 8. Allar þessar
vatnslitamyndir em sérlega
skemmtilega gerðar og minna á
vel gerðar myndir í sama efni hjá
Bretum, en þar standa þeir í
fremstu röð. Jóhann hefur næma
tilfinningu fyrir vissum þáttum i
landslaginu, einkum og sér í lagi
ná morgunlitirnir tökum á sköpun-
argáfu þessa fjölhæfa manns.
Allar em þessar myndir Jóhanns
gerðar á léttan og nútímalegan
hátt, og það fer heldur ekki milli
mála, að nokkuð er tilviljunar-
kennt á stundum, og er það miður.
Jóhann G. leggur gjörva hönd á
margt, og ég veit ekki, hvað er
honum næst af þeim listgreinum,
sem hann leggur stund á, en von-
andi veit hann það sjálfur. Hvernig
væri, ef hann einbeitti sér af öllum
mætti að einhvetju því, sem hann
hefur mestan hug á? Hver yrði
árangur? Það væri fróðlegt að vita.
Það er eins og áður segir afar
Jóhann G. Jóhannsson
misjöfn myndlist, sem er þama á
veggjum, en það er snotur og
snyrtilegur svipur á sýningu Jó-
hanns í heild og maður fer úr
Breiðholtinu fullviss um, að í
Gerðubergi er hæfileikamaður á
ferð. Það er svo önnur hlið á mál-
inu, hvort Jóhanni G. hefur tekist
að hemja þá guðs gjöf, sem kemur
svo glöggt í ljós í beztu verkum
þessarar sýningar.
JAKE SPEED
Þegar Maureen Winston hverfur sporlaust á ferðalagi í Evrópu,
leitar systir hennar Margaret til einkaspæjarans Jake Speed
og vinar hans Des Floyd.
Þeir félegar komast að því að Maureen er fangi hvítra þrælasala
í Buzoville í Afríku og þangað halda þeir ásamt brynvarða
undrabílnum Harv.
En eru Jake og Des alvöru menn eða skáldsagnapersónur?
Spennandi, Qörug og fyndin mynd með John Hmt, Wayne
Crawford, Dennis Christopher og Karen Kopkins.
Leikstjóri er Andrew Lane og tónllstin er eftir Mark Snow, Mark
Holden, Chris Farren, A. Bernstein o.fl. Myndin er tekin í Los Angel-
es, París og Zimbabwe.
Sýnd föstudag kl. 5, 7, 9 og 11.
Bönnuð innan 10 ára.
Hækkað verð.
□□
DOLBY STEREO
SIMI
18936
LIE NYTT
SÍMANÚMERi
69-11-00
Auglýsingar22480
Aígreiðsla 83033