Morgunblaðið - 12.12.1986, Qupperneq 33

Morgunblaðið - 12.12.1986, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. DESEMBER 1986 33 Guðmundur Kristinsson Læknir á skemmtiferðaskipi eftir Kerry Mitchell. Æsispennandi ástarsaga sem gerist að mestu leiti á meðal hefðarfólks á skemmtiferðaskipinu „Pacific Queen“ sem siglir á milli San Fransiskó og Honolulu. Gullfalleg ódýr bók. Verð kr. 975 með söluskatti. Bókaútgáfan Snæfell Álfaskeiði 58, Hafnarfirði, sími 51738. Kerry Mltcheli I ÆkNIP Á SKENIMTIFERÐASKIPI Guðmundur í Listveri Myndlist Valtýr Pétursson Eigandi Listvers á Seltjamarnes- inu heitir Guðmundur Kristinsson og er forláta innrammari, sem rek- ur gallerí með annarri hendi og innrammar með hinni. Þetta vissi maður, en að hann málaði eins og verkin sýna, vissi ég ekki. Þegar hann var með vinnustofu sína á Vesturgötunni, voru stundum krítarmyndir og vatnslitamyndir í glugga hans og maður leit svona á þetta og ekki meir, en nú hefur hann komið upp sýningu á fimm ára vinnu að myndlist í hinum nýju húsakynnum sínum á Seltjamar- nesinu, og nú geta allir séð að Guðmundi er fleira fært en að setja ramma um myndir. Það eru tæpar fimmtíu myndir á sýningu Guðmundar, og megnið af því eru pastel- og krítarmyndir, en nokkrar olíumyndir fá að fljóta með. Sannast mála mun vera, að pastel- og krítarmyndir Guðmundar eru sá efniviður, sem heldur þess- ari sýningu á floti, ef svo mætti að orði kveða. Olíumálverk hans eru of viðvaningsleg til þess að stand- ast samanburð vð pastelmyndir hans, sem margar eru nokkuð lipur- lega gerðar og sumar ágætar. Það er landslag og skip, hús og gróður, sem Guðmundur velur sér sem við- fangsefni að mestu leyti. Hann hefur auðsjáanlega mikla ánægju af myndgerð sinni, og því er hún sönn og upprunaleg, þótt deila megi um, hvort listrænt gildi sé í hæsta flokki. Þessar myndir Guð- mundar (pastel og krít) koma manni í gott skap, og þá er vissulega góð- um árangri náð. Listver hefur nú starfað um nokkum tíma, og hver sýningin hefur verið þar eftir aðra. Vil ég að lokum óska Guðmundi til ham- ingju með hinn ágæta sal og sýningu hans, sem mun standa enn um sinn. Vel gert af frístundamál- ara. Jóhann G. í Gerðubergi Jóhann G., poppari, söngvari, skáld og málari, hefur lagt land undir fót og haldið frá Lælq'ar- torgi, þar sem hann rak Listamið- stöðina, og sett upp sýningu á smámyndum sínum í Gerðubergi. Þama em yfir áttatíu myndir á veggjum, í litlum sal og á göngum og er sýningaraðstaða vægast sagt í lakasta flokki, og að mínum dómi hvergi við hæfi mynda Jó- hanns. Þetta er að vísu nokkuð misjöfn sýning hjá Jóhanni, en það finnast afar geðþekkar myndir hér og þar. Þegar bezt lætur, em þama afbragðs verk, rík í litnum og gerð af varfæmi, og vil ég nefna til sönnunar þessari fullyrðingu nr. 74, 29, 36 og 8. Allar þessar vatnslitamyndir em sérlega skemmtilega gerðar og minna á vel gerðar myndir í sama efni hjá Bretum, en þar standa þeir í fremstu röð. Jóhann hefur næma tilfinningu fyrir vissum þáttum i landslaginu, einkum og sér í lagi ná morgunlitirnir tökum á sköpun- argáfu þessa fjölhæfa manns. Allar em þessar myndir Jóhanns gerðar á léttan og nútímalegan hátt, og það fer heldur ekki milli mála, að nokkuð er tilviljunar- kennt á stundum, og er það miður. Jóhann G. leggur gjörva hönd á margt, og ég veit ekki, hvað er honum næst af þeim listgreinum, sem hann leggur stund á, en von- andi veit hann það sjálfur. Hvernig væri, ef hann einbeitti sér af öllum mætti að einhvetju því, sem hann hefur mestan hug á? Hver yrði árangur? Það væri fróðlegt að vita. Það er eins og áður segir afar Jóhann G. Jóhannsson misjöfn myndlist, sem er þama á veggjum, en það er snotur og snyrtilegur svipur á sýningu Jó- hanns í heild og maður fer úr Breiðholtinu fullviss um, að í Gerðubergi er hæfileikamaður á ferð. Það er svo önnur hlið á mál- inu, hvort Jóhanni G. hefur tekist að hemja þá guðs gjöf, sem kemur svo glöggt í ljós í beztu verkum þessarar sýningar. JAKE SPEED Þegar Maureen Winston hverfur sporlaust á ferðalagi í Evrópu, leitar systir hennar Margaret til einkaspæjarans Jake Speed og vinar hans Des Floyd. Þeir félegar komast að því að Maureen er fangi hvítra þrælasala í Buzoville í Afríku og þangað halda þeir ásamt brynvarða undrabílnum Harv. En eru Jake og Des alvöru menn eða skáldsagnapersónur? Spennandi, Qörug og fyndin mynd með John Hmt, Wayne Crawford, Dennis Christopher og Karen Kopkins. Leikstjóri er Andrew Lane og tónllstin er eftir Mark Snow, Mark Holden, Chris Farren, A. Bernstein o.fl. Myndin er tekin í Los Angel- es, París og Zimbabwe. Sýnd föstudag kl. 5, 7, 9 og 11. Bönnuð innan 10 ára. Hækkað verð. □□ DOLBY STEREO SIMI 18936 LIE NYTT SÍMANÚMERi 69-11-00 Auglýsingar22480 Aígreiðsla 83033
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.