Morgunblaðið - 12.12.1986, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. DESEMBER 1986
35
Þessa leiðtoga-
fundar verður
lengi minnzt
- seg-ir Guðmundur Magnússon, höfundur bókarinnar
Leiðtogafundurinn í Reykjavík
„Leynivopnið"
Áður en Mikhail Gorbachev scttist á valdastól í Kreml viröast leiðtogar
Sovétríkjanna hafa verið þeirrar skoðunar að eiginkonur þeirra ættu að láta
sem minnst á sér bera. Það var yfirteitt ekki skýrt frá því opinberlega hvort
þeir ættu konur eða bom. Nína, ciginkona Nikita Khrushchev, var á sinum
tíma undantekning frá þessu, en hún fylgdi manni sinum á ferðalögum er-
lendis. Nína var vinaleg að sjá og brosmild en þótti engin glæsikona. Um
konu Lconids Brezhnev var ekkert kunnugt en vitað er að hann átti dóttur.
Enginn vissi heldur hvort Yuri Andropov væri kvæntur fyrr en ekkjan birt-
ist við útför hans. Kona Konstantins Chemenko sást aðeins einu sinni opin-
beriega meðan hann var á lifi. Um Raisu, konu Gorbachevs, gegnir öðm
máli. Hún hefur ekki sýnt ncina hlédrægni og nýtur þess greinilega að láta
veita sér athygii þegar hún fylgiripanni sinum á fcrðalögum til Vesturlanda.
Sovéskir fjölmiðlar íjalla að vísu lítið um hana og að því leyti hefur hlutverk
eiginkonu leiðtoga Sov?tríkjanna ekkcrt breyst En blaðamenn og Ijósmynd-
arar á Vesturiöndum elta Raisu á röndum þegar tækifærí gefst. Hún er
glæsileg í framgöngu og óaðfinnanlega klædd dýmm vestrænum fatnaði frá
þekktum tískuhúsum. Fatnaðinn kaupir hún oft sjálf á utanlandsferðum og
framvisar þá American Exprcss greiðslukorti, sem almenningur í Sovétríkj-
unum hefur ekki leyfi til að nota.
Raisa fer ekki i launkofa með viöhorf sín og áhugamál. Hún er sjálfsömgg
menntakona sem spyr margs. cr viðlesin og virðist óvenju vel að sér um
marga hluti. Enginn vafi er á því að hún undirbýr ferðalög sin eriendis af
kostgæfni og kynnir sér fyrirfram það sem á vegi hennar á eftir aö verða.
Það er ein ástæðan fyrir þvi að dagskrá heimsókna hennar er að jafnaði
skipulögð með góðum fyrirvara. Einn þcirra scm gekk með henni um Þjóð-
minjasafniö í Reykjavík hafði á oröi: „Það var eins og hún hefði vitað það
áður cn hún kom hvað henni yrði sýnt.“
Koma Raisu Gorbachevu til Islands var engin tilviljun. Það er ekki
hégómagimd hennar sem ræður þvi að hún fylgir manni sínum á feröum
hans eriendis. Raisa heíur verið nefnd „leynivopn Gorbachevs" og þaö ekki
að ástæðulausu. Höfuökosturinn við hana í augum valdamanna í Kreml er
að hún getur fengið fólk til að horfa fram hjá veruleikanum i riki kommún
ismans. Þessi alúðlcga skartkona sem Ular svo mikið um frið og menningu
og faömar að sér böm samræmist ekki þeirri mynd sem Vesturiandabúai
gera sér af herrastéttinni í Sovétríkjunum. Meðan Raisa er í sviösljósi fjöl-
miðlanna em meiri líkur á þvi en dla að sovéskir andófsmenn hverfi i
skuggann.
Bandaríkjamenn heyrðu fyrst um Islandsför Raisu eftir að islcnska sjón-
varpið hafði flutt um hana frétt, sem höfð var eftir Steingrimi Hermanns-
syni, forsætisráðherra. Þcssi tiðindi vöktu litla hrifningu í' Bandaríkjunum,
49
„Leynivopnið“. Einn kafli bókarinnar fjallar um Raisu Gorbachevu og ber hann nafnið Leynivopnið.
„Leiðtogafundurinn í
Reykjavík er óneitanlega mesti
fréttaviðburður hér á landi fyrr
og siðar. Ég fylgdist náið með
þessum fundi og öllum undirbún-
ingi hans fyrir Morgunblaðið og
það var kannski ekki nema eðli-
legt framhald málsins, að ég
settist niður og skrifaði þessa
bók. Það má heita að það sé orð-
in hefð á Morgunblaðinu, þegar
miklir atburðir gerast, að blaða-
menn, sem þeim eru gagnkunn-
ugastir, greini frá þeim í
bókarformi. Ég nefni til dæmis
bækurnar um Skákeinvígið 1972
og Eyjagosið 1973,“ sagði Guð-
mundur Magnússon, blaðamað-
ur, sem tekið hefur saman bók
um fund Reagans og Gorbachevs
í Reykjavík í októbermánuði
síðast liðnum.
Bókin Leiðtogafundurinn í
Reykjavík eftir Guðmund Magnús-
son, blaðamann, kom út í vikunni,
aðeins um tveimur mánuðum eftir
fundinn. Bókin er gefin út af Al-
menna bókafélaginu. Er hún um
100 blaðsíður að stærð og prýdd
tugum Ijósmynda, bæði svart/
hvítum og í lit. Henni fylgir út-
dráttur á ensku og myndatextar eru
bæði á ensku og íslenzku. í bókinni
er sagt frá aðdraganda fundarins,
undirbúningi hér á landi; hvemig
ísland lenti í brennidepli heims-
byggðarinnar; sagt er frá ágreiningi
stórveldanna um kjamorku????? leg-
ar um ýmsa þætti í sambandi við
fundinn og niðurstöður hans. Ég
held samt, að í bókinni sé vikið að
öllu því þýðingarmesta, sem nauð-
synlegt er að halda til haga.
Heimildir mínar fyrir því, sem í
bókinni stendur, eru ýmist byggðar
8-10% minni
sala getrauna-
seðla síðan lottó-
seðlar komu
til sögunnar
- segir Birna Einars-
dóttir, framkvæmda-
stjóri Getrauna
„SAMDRÁTTUR í sölu getraun-
aseðla hefur verið á bilinu 8-10%
síðan Lottóið hóf göngu sína fyr-
ir tveimur vikum,“ sagði Birna
Einarsdóttir, framkvæmdastjóri
Getrauna, í samtali við Morgun-
blaðið. íþróttasamband íslands
og Ungmennafélag íslands reka
bæði Lottóið og Getraunir, en
stjórnun hefur ekki verið sam-
ræmd á þessu tvennu, að sögn
Birnu.
„Lottóið ætti að auka tekjur þess-
ara hreyfinga, en samkeppnin
verður eflaust einhver á milli Lott-
ósins og Getrauna þrátt fyrir sömu
rekstraraðila. Við hjá Getraunum
ætlum til dæmis að fara að auka
auglýsingar nú í kjölfar Lóttósins,"
sagði Bima.
Hún bætti því þó við að nýja-
brumið væri enn á Lottóinu svo of
snemmt væri að spá nokkru í þessu
sambandi. „Sala getraunaseðlanna
er mjög sveiflukennd og sérstaklega
er erfitt að dæma um samdrátt nú
fyrir jólin þar sem sala getrauna-
seðla minnkar alltaf á þessum
árstíma og höfum við undanfarin
ár fellt úr jólavikuna. Hún verður
hinsvegar með í ár,“ sagði Bima.
á eigin reynslu og viðtölum eða
skrifum íslenzkra og erlendra blaða
og tímarita um fundinn. Ekkert
blað í heiminum íjallaðijafn ítarlega
um þennan fund og Morgunblaðið
og ég hafði mikla stoð af þeim frétt-
um og greinum, sem þar birtust.
Ég get heldur ekki látið hjá líða
að nefna þátt ljósmyndara blaðsins,
en nær allar myndimar í bókinni
em frá þeim komnar. Mig langar
líka til að nefna það í þessu við-
fangi, að dómur okkar Morgun-
blaðsmanna um niðurstöður
fundarins var eftir á að hyggja
miklu raunsærri en fyrstu dómar
erlendra íjölmiðla.
Það er mat mitt að þessa leið-
togafundar verði lengi minnzt.
Þrátt fyrir að viðræðumar hafi ekki
leitt til niðurstöðu, sem bæði Reag-
an og Gorbachev gátu sætt sig við
og skrifað undir á staðnum, gátu
þær af sér samstöðu um mestu af-
vopnun, sem sögur fara af á
kjamorkuöld. Hugmyndimar á
Höfðafundinum em enn til umræðu
og eftir því verður gengið að stór-
veldin standi við þær eins og
Reagan og Gorbachev hafa raunar
báðir heitið að gera. Sú staðrejmd
ein skapar forsendur fyrir ger-
breyttu sambandi stórveldanna og
betra andrúmslofti í heiminum.
Aróðursstríðið, sem háð hefur verið
eftir fundinn, breytir engu um þetta
mikilvæga atriði,“ sagði Guðmund-
ur Magnússon.
ANTOMMUR
STGR.
BÝÐUR EINHVER BETUR?
Umboðsmenn:
Bókaskemman Akranesi,
Kaupfélag Borgfiröinga,
Sería tsafiröi.
Kaupféiag Skagfiröinga Sauöórkróki,
KEA Akureyri,
Radíóröst Hafnarfiröi,
J.L. húsiö Reykjavík.
HUOMBÆR
HVERFISGÖTU 103 SÍMI 25999 Opið til kl. 16.00 í dag
Radíóver Húsavík,
Skógar Egilsstöðum,
Kaupfélag Héraösbúa Egilsstööum.
Myndbandaleiga Reyöarfjaröar,
Djúpiö Djúpavogi,
Búland Neskaupstaó
Hornabœr Hornafiröi,
Kaupfélag Rangœinga Hvolsvelli.
M.M.búöin Selfossi,
Rás Þorlókshöfn,
Rafeindaþjónusta Ómars Vestmannaeyjum,
Fataval Keflavík,