Morgunblaðið - 12.12.1986, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. DESEMBER 1986
37
Strangri ritskoðun
komið á í S-Afríku
Glæpsamlegt að mótmæla frétta-
banninu með auðum dálkum
Jóhannesarborg, AP, Reuter.
SUÐUR-Afríkustjórn setti í gær ný lög um ritskoðun og er sam-
kvæmt þeim bannað að flylja fréttir af mótmælum gegn aðskilnað-
arstefnunni hvort heldur þau eru friðsamleg eða ekki. Hefur
ritskoðuninni verið mótmælt utanlands sem innan og þykir mörg-
um sem nú sé Suður-Afríka
alræðisríkjunum.
í ritskoðunarlögunum, sem P.
W. Botha, forseti, undirritaði, er
kveðið á um, að allar fréttir um
aðgerðir lögreglunnar, mótmæli
hvers konar, útifundi og fanga verði
að bera undir ritskoðunamefnd áð-
ur en þær fáist birtar. Þá er það
einnig glæpsamlegt að mótmæla
lögunum með því að skijja eftir
auða dálka í blöðunum. Utvarps-
fréttamenn verða að leggja fram
handrit að fréttum en sjónvarps-
fréttamenn sjálfar upptökumar.
Dagblöðin komu út óritskoðuð í
morgun og í flestum þeirra var rit-
skoðuninni harðlega mótmælt. „í
dag ætlar ríkisstjómin að setja
þetta land á bás með alræðisríkjun-
um,“ sagði í Business Day, óháðu
dagblaði í Jóhannesarborg. „Með
endanlega komin í flokk með
nýju lögunum ætlar ríkisstjómin að
banna allar fréttir, sem hún telur
óæskilegar." Samtök svartra
kvenna líktu lögunum við aðgerðir
Sovétmanna í Ungveijalandi árið
1956 og sagði í yfírlýsingu þeirra,
að með þeim hefði ríkisstjómin lýst
yfir allsheijarstríði gegn öllum
mannréttindum.
Stoffel van der Merwe, nýskipað-
ur yfírmaður upplýsingaskrifstof-
unnar, sem annast ritskoðunina,
sagði, að nýju lögin hefðu verið
nauðsynleg vegna þess, að þjóðin
hefði staðið andspænis „þrautskipu-
lagðri byltingarstarfsemi“. „Til-
gangurinn er ekki sá að koma á
alræði, heldur að treysta lýðræðið
í sessi," sagði hann.
V estur-Þýskaland:
Háttsettur embætt-
ismaður handtek-
inn fyrir njósnir
Bonn, AP, Reuter.
HÁTTSETTUR embættismaður í vestur-þýska varnarmálaráðuneyt-
inu hefur verið handtekinn og er hann grunaður um að hafa njósnað
fyrir Austur-Þjóðveija. Þá var fyrrum ritari á forsetaskrifstofunni
formlega ákærður í gær fyrir að hafa njósnað fyrir KGB, sovésku
leyniþjónustuna, allt frá árinu 1971.
I yfirlýsingu frá Kurt Rebmann,
alríkissaksóknara, sagði, að emb-
ættismaðurinn, sem var aðeins
nefndur Júrgen W., hefði verið
handtekinn sl. þriðjudag og að nú
væri verið að yfirheyra hann. Léki
grunur á, að hann hefði gengið
austur-þýsku leyniþjónustunni á
hönd þegar hann var staddur í Vín
í ágúst sl. en að ekki þætti líklegt,
að hann hefði haft tíma til að ljóstra
upp neinum leyndarmálum. Eftir
öðrum heimildum er haft, að maður-
inn heiti Júrgen Westphal og sé 48
ára gamall.
Leyniþjónustumenn í Bonn segja,
að Westphal hafi verið undir eftir-
liti síðan í júní en þá var hann í Vín
í Austurríki og hitti þar mann, sem
kvaðst heita Sternberg og vinna
fyrir bandarískt vopnasölufyrirtæki
í London. Sternberg bauðst til að
greiða Westphal 60.000 kr. ísl. á
mánuði fyrir „lítilsháttar ráðgjafar-
störf“ og á öðrum fundi þeirra í
ágúst fékk Westphal fyrstu greiðsl-
una. Westphal starfaði í þeirri deild
vamarmálaráðuneytisins, sem fór
með starfsmannahald og vopnabún-
að hersins.
Jafn háttsettur maður og West-
phal hefur ekki verið handtekinn í
Vestur-Þýskalandi frá því Hans
Joaehim Tiedge, yfírmaður gagnn-
jósnaþjónustunnar, flýði í fyrra til
Austur-Berlínar.
I gær voru birtar ákærur á hend-
ur Margarete Höke, fyrmm ritara
á forsetaskrifstofunum, en hún er
sökuð um að hafa njósnað fyrir
Sovétmenn frá 1971. Hafði hún
allan þennan tíma aðgang að leyni-
skjölum frá ýmsum ráðuneytum.
Tók hún m.a. við fyrirskipunum frá
hjónum, sem voru í gær dæmd í
sex ára fangelsi í Sviss fyrir njósn-
ir í þágu Austur-Þjóðverja. Hafa
þau búið í nokkur ár í Sviss undir
nafninu Húbner en vom handtekin
í ágúst í fyrra. Heitir maðurinn
réttu nafni Jan Valdislav Karmazin,
tékkneskur að þjóðemi, en konan
er austur-þýsk og heitir Rosemarie
Múller.
Hugheilarþakkir fceri ég öllum þeim sem heiÖr-
uöu mig á áttatíu ára afmœlisdegi mínum.
Sérstaklega þakka ég skátahreyfingunni, Sct
Georgs gildunum, hjálparsveitum skáta, Skáta-
búÖinni, KSÍ og knattspyrnufélaginu Þrótti.
Lifið heil.
Óskar Pétursson.
Kceru vinir fjcer og nœr.
Af alhug þakka ég öllum, sem glöddu mig á
70 ára afmcelisdegi mínum meÖ skeytum, bréf-
um, vísum og gjöfum.
Sérstakar þakkir fceri ég konu minni, börnum
og mökum þeirra, sem geröu mér daginn
ógleymanlegan.
GuÖ blessi ykkur öll.
Siguröur Ólafsson, söngvari.
Frá óeirðum í Höfðaborg. Suð-
ur-Afríkustjórn hefur nú sett
strangar reglur um að fréttir af
slikum viðburðum verði ritskoð-
aðar.
Ungir Sovétmenn reyna að
komast hiá herbiónustu
Moskvu, AP. U X "
UNGIR Sovétmenn þverskallast i auknum mæli við herkvaðningu,
að sögn málgagns sovézku stjórnarinnar, Izvestia. Alltof margir
reyna að komast hjá herþjónustu eða falla í læknisskoðun og tungu-
málaprófi.
Blaðið fjallar um ástandið í þess-
um efnum í Uzbekistan, nærri
afgönsku landamæmnum, en tengir
það ekki styijöldinni í Afganistan.
Embættismenn hafa sagt að frá því
Sovétmenn réðust inn í Afganistan
á jólunum 1979 hafi ungir menn
reynt í auknum mæli að komast
hjá herþjónustu. Samkvæmt
sovézkum lögum em allir karlmenn
á aldrinum 18-25 ára skyldugir að
gegna tveggja ára herþjónustu.
Að sögn Izvestia gerðist það ný-
lega í Tashkent, höfuðborg Uz-
bekistan, að 10 menn sinntu ekki
herkvaðningu á einum og sama
deginum. Var lögreglunni falið að
elta þá uppi. Blaðið sagði það æ
algengara að menn reyndu með
aðstoð áhrifaríkra foreldra eða
skyldmenna að komast hjá her-
þjónustu. Einnig væm íþróttafélög
fengin til að biðja um undanþágu
á þeirri forsendu að viðkomandi
væm ómissandi fyrir keppnislið við-
komandi félags.
Blaðið sagði að þeim fjölgaði
stöðugt sem dæmdir væm ófærir
til herþjónustu af heilsufarsástæð-
um.
I ST/eRð,r
S~XXL 5.<
128/140
]52/164