Morgunblaðið - 12.12.1986, Page 38

Morgunblaðið - 12.12.1986, Page 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. DESEMBER 1986 Astralía: Leyniskjölin um MI5 verða ekki birt Sydney, AP., Reuter. DOMARI í Ástralíu hefur úr- skurðað, að brezka stjórnin þurfi ekki að birta leyniskjölin um gagnnjósnaþjónustuna MI5. Gerðist þetta eftir að lögmenn brezku stjórnarinnar og Peters Wright, fyrrum háttsetts starfs- manns í MI5, höfðu sætzt á málamiðlun til lausnar málinu. Brezka stjómin hefur stefnt að því að fá dómsúrskurð um, að útgáfa í Ástralíu á bókinni „Njósnaveiðari" eftir Wright verði stöðvuð. Haft var eftir Malcolm Tumbull, lögmanni Wrights, að með tilliti til þess, sem lögmaður stjórnarinnar hefði þegar greint frá efnislega úr leyniskjölun- um, þá myndi hann falla fiá kröfunni um, að leyniskjölin yrðu birt í heild. Dómarinn í málinu, Philip Pow- ell, hafði áður fyrirskipað brezku stjóminni að afhenda Tumbull leyniskjölin. Gerðist það 2. desem- ber sl. Brezka stjómin hugðist hins vegar áfrýja þeim úrskurði, en Theo Simos, lögmaður hennar, sagði í fyrradag, að eftir það, sem nú hefði gerzt í málinu, væri slík áfrýjun óþörf. Búlgarinn fær hæli í Tyrklandi Ankara, AP. Reuter BÚLGARSKI lyftingamaðurinn Neum Shalamanov, sem farið hefur huldu höfði í Ástralíu frá því á sunnudag, hefur verið boð- ið pólitískt hæli í Tyrklandi, að sögn talsmanns utanríkisráðu- neytisins í Ankara. Shalamanov er enn í felum og hyggst ekki gefa sig fram fyrr en búlgarska keppnisliðið og farar- stjórar em famir frá Ástralíu, en það verður ekki fyrr en á sunnudag. Shalamanov er sagður hafa ákveðið að verða eftir í Ástralíu til þess að komast hjá ofsóknum, sem tyrkneski minnihlutinn í Búlgaríu hefur mátt sæta. Hann hefur sjálfur orðið að sæta ofsóknum þrátt fyrir að vera heimsmetshafi í lyftingum og var m.a. neyddur til að breyta nafni sínu þannig að það félli að búlgörsku nafnakerfi. Shalamanov er 19 ára gamall. • g* x AP/Símamynd Geimfara fagnað Nemendur í Hutchinson grunnskólanum í Hemdon í Virginíuríki taka fagnandi á móti rússneska geimfaranum Vladimir Solouyer. Hópur sovézkra geimfara kom í gær í 12 daga kynnisferð til Bandaríkjanna. Munu þeir m.a. skoða stöðvar bandarísku geimvísindastofnunarinnar víðsvegar í Bandaríkjunum. Bandarískir geimfarar fóm fyrr á þessu í samskonar ferð til Sovétríkjanna. Elie Wiesel, friöarverölaunahafi Nóbels: Ætlar að nota verðlauna- féð í þáeru mannréttínda Ósló. AP. ^ BANDARÍSKI rithöfundurinn Elie Wiesel, sem lifið af vistina í útrýmingarbúðum nasista, tók í gær við fénu, sem fylgir úthlut- Góð bók Leiðtogafundurinn í Reykjavík eftir Guð- mund Magnússon. Umbúðir um fundinn, fréttamenn, fundurinn sjálfurog þau mál, sem tekin voru fyrir og deilt varum. Fjöldi mynda með íslenskum og enskum textum. Útdráttur í bókarlok á ensku. mmm Leiðtogafundunnn í Reykjavík eftir Guömund Magnusson .. lCEtANÖ OCtOBF-W’ * un friðarverðlauna Nóbels. Var það ávísun upp á tvær milljónir skr. eða sem svarar til 11,7 millj. isl. kr. „Eg hef aldrei séð jafn stóra ávísun," sagði friðarverðlaunahaf- inn um leið og hann fól konu sinni, Marion, að geyma hana en pening- ana kvaðst hann ætla að nota til að kosta ráðstefnur um mannrétt- indi. Annars vegar ráðstefnu „um og gegn hatri" og hins vegar ráð- stefhu heimspekinga, vísindamanna og baráttumanna fyrir mannrétt- indum í Hiroshima í Japan „til að komast að því hvað mennimir hafa lært af Hiroshima". í þakkarræðu sinni sagði Wiesel, að eftir ósigur nasismans hefðu menn látið sig dreyma um betrí heim og þá hefði engan órað fyrir því, að kynþáttamisrétti og ofstæki myndu aftur ná að sækja í sig veðr- ið. „Þá lét sig enginn dreyma um, að ríkisstjómir sviptu mann á borð við Lech Walesa ferðafrelsi fyrir það eitt, að hann vogaði sér að vera á öðm máli en þær. Og hann er ekki einn á báti,“ sagði Wiesel. „Ríkisstjómir til hægri og vinstri ganga miklu lengra og beita andófs- menn, rithöfunda, vísindamenn og menntamenn pyntingum og ofsókn- um. Hvemig er unnt að útskýra þennan sigur gleymskunnar,“ spurði Wiesel í ræðunni, sem hann kallaði „Orvæntingu og endurminn- ingu“. „Hvemig fáum við skýrt þá svívirðingu, sem kynþáttaaðskiln- aðurinn er, þá svívirðingu, sem hryðjuverkin em: gíslatökuna í Te- heran, fjöldamorðin í bænahúsinu í Istanbul, tilgangslaus manndrápin á strætum Parísarborgar. Allar sið- menntaðar þjóðir verða að gera hryðjuverkin útlæg, beijast gegn þeim og uppræta þau - ekki reyna að útskýra þau eða réttlæta. Dráp saklauss fólks og vamarlausra bama er ekki og verður aldrei hægt að réttlæta. Á stundum virðumst við ekkert geta gert til að koma í veg fyrir óréttlætið en sá tími má aldrei renna upp, að við látum það ógert að mótmæla," sagði Wiesel. Noregur: Sovézkur kafbátur flækt- ist í hlustunarvíra Osló, frá fréttarítara Morgunblaðsins, J. E. SOVÉZKUR kafbátur flæktist í hlustunarvíra í Noregshafi á svæðinu mOli Finnmerkur og Svalbarða. Eftir sólarhring tókst kafbátnum svo að losna af eiginn rammleik. Atburður þessi á að hafa gerzt í lok árs 1984 eða í byijun árs 1985. Skýrði blaðið Verdens Gang frá þessu á þriðjudag. Á kafbátur- inn að hafa verið þama í njósnaferð í þeim tilgangi að kortleggja hlust- unartæki á hafsbotni á þessum slóðum, er komið hafði verið fyrir á vegum Noregs eða NATO. Var tækjum þessum ætlað að fylgjast með öllum skipaferðum Sovét- manna frá Murmansk. Kafbáturinn fékk hlustunarvír- ana í skrúfu og stýri, þar sem hann Laure. var staddur fyrir utan norska land- helgi. Hann sendi síðan frá sér fjölda tilkynninga heim í kafbáta- lægið í Murmansk. Auðvelt var hins vegar að ná þessum orðsendingum frá hlustunarstöðvum í landi, sér í lagi frá Vardö, segir blaðið. Kunnur bandarískur sérfræðing- ur, Steven Miller, hefur staðfest þetta. Hann hefur heyrt um þetta mál við ýms tækifæri bæði í Banda- ríkjunum og Noregi. Norska vamarmálaráðuneytið hefur hins vegar ekki viljað staðfesta atburð- inn. Heldur Miller því fram, að ástæðan sé sú, að ráðuneytið vilji ekki gera það opinskátt, hvaða möguleikum það ráði yfir til að fylgjast með ferðum sovézkra kaf- báta.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.