Morgunblaðið - 12.12.1986, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. DESEMBER 1986
41
Steingrimur Hermannsson forsætisráðherra og formaður Framsóknarflokksins
talar á Austurvelli. Til vinstri er Þorsteinn Pálsson fjármálaráðherra og formað-
ur Sjálfstæðisflokksins.
Frá sýningu leikhópsins frá Bjarkarási
Morgunblaðið/Keli.
Skammdegisvaka fatlaðra:
Formönnum þingf lokka
afhent mótmælaskjöl
LANDSSAMTÖKIN Þroskahjálp og Öryrkjabandalag-
ið gengust í gær, 11. desember fyrir skammdegisvöku
á Hótel Borg. Vakan hófst með því að safnast var
saman á Austurvelli kl. 14, þar sem Arnþór Helgason
flutti ávarp og formönnum þingflokkanna voru af-
hent mótmælaskjöl. Var verið að mótmæla meðferð
Alþingis á málefnum fatlaðra.
Tilefni þess að skammdegis-
vakan var haldin, er að enn einu
sinni ætlar Alþingi að skerða
Framkvæmdasjóð fatiaðra. Þeg-
ar lög um málefni fatlaðra voru
sett árið 1973, var gert ráð fyrir
að Ríkissjóður sæi sjóðnum fyrir
ákveðnum fjárframlögum. Sú
upphæð ætti að ver, framreikn-
uð, um 150 milljónir króna. Gert
var ráð fyrir því að fjárframlag
þetta héldist óbreytt næstu fímm
árin og yrði notað til að gera
átak í uppbyggingu á málefnum
fatlaðra. Framkvæmdasjóðnum
er fyrst og fremst ætlað að fjár-
magna stofnframkvæmdir.
Aldrei hefur verið staðið við
ijárframlög ríkisins og Fjár-
málaráðuneytið hefur leikið
þann ljóta leik að taka megin-
hlutann af fé Erfðasjóðs, sem
ætlað er í Framkvæmdasjóð, og
ráðstafa því til annarra hluta.
Nú ber svo við að Fjármála-
ráðuneytið ætlar að skila öllu fé
úr Erfðasjóði í Framkvæmdasjóð
á næsta ári. Upphæðin nemur
um 48 milljónum króna. Aftur
á móti ætlar Alþingi aðeins að
verja 52 milljónum króna til
málefna fatlaðra og er það að-
eins um þriðjungur af því sem
Ríkissjóði ber að greiða, sam-
kvæmt lögum. Þessu vilja
samtökin mótmæla og var þetta
ástæðan fyrir Skammdegisvö-
kunni á Hótel Borg, auk þess
sem málefni fatlaðra voru kynnt
þar.
Allvíða er pottur brotinn í
málefnum fatlaðra og í viðtali
við Amþór Helgason, kom fram,
að þeir fatlaðir sem hafa ein-
göngu tekjur frá Trygginga-
stofnun Ríkisins, hafa ráðstöf-
unarfé sem er langt undir
fátæktarmörkum.
En þótt á móti blási, ríkti gleði
á Skammdegisvökunni. Eftir að
mótmæli höfðu verið afhent for-
mönnum stjómmálaflokkanna,
var haldið út á Hótel Borg í
kaffí og meðlæti og hófst þar
tveggja stunda löng dagskrá.
Jóhann Pétur Sveinsson ávarp-
aði gesti. Hann Iagði áherslu á
að þolinmæði og langlundargeð
fatlaðra og samtaka þeirra væri
á þrotum. Hann benti á að frá
árinu 1980 næmi skerðing á
framlögum ríkissjóðs til málefna
fatlaðra á verðlagi l.desember
274.5 milljónum króna.
Bubbi Morthens tók lagið, svo
og Bjartmar Guðlaugsson. Þá
var komið að hápunkti skamm-
degisvökunnar, en það var
leikhópurinn frá vinnuheimilinu
Bjarkarási sem flutti leikþátt.
Því næst flutti Eggert Jóhannes-
son, formaður Þroskahjálpar
ávarp um orð og efndir þing-
manna. Hann bað fólk þó að
minnast þess að þrátt fyrir allt
og allt hefði mikið áunnist, það
mikið að hægt væri að tala um
byltingu í málefnum fatlaðra á
ýmsum sviðum á liðnum árum.
Að lokum fluttu Gísli Helgason
og Herdís Hallvarðsdóttir létta
tónlist, áður en fundi var slitið.
Eftir fundinn var svo farin
blysför kringum Austurvöll.
Jóhann Pétur Sveinsson býður gesti velkomna til skammdegissvöku á Hótel Borg.
Á Austurvelli.
Gísli Helgason og Herdís Hallvarðsdóttir voru i hópi þeirra, sem
sungu á skammdegisvökunni.
Gestir á skammdegisvökunni voru margir og fleiri en svo, að
allir fengju sæti.