Morgunblaðið - 12.12.1986, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 12.12.1986, Blaðsíða 44
44 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. DESEMBER 1986 Sala Borgarspítala rædd á Alþingi: Góð þjónusta með hóflegum kostnaði er markmiðið sagði heilbrigðisráðherra Það var ekki mín stefna né að mínu frumkvæði að hafin var umræða um kaup ríkisins á Borg- arspítala, sagði Ragnhildur Helgadóttir heilbrigðisráðherra á Alþingi i gær. Það var Reykjavíkurborg sem setti fram ósk um viðræður um þetta mál í tengslum við tiUögur um að færa Borgarspítalann af dag- gjaldakerfi á fjárlagakerfi, en ríkið greiðir þegar rúmlega 90% rekstrarkostnaðar sjúkrahúss- ins. Það sem að baki býr við- ræðna af þessu tagi er að leita leiða til samræmingar og ha- græðingar i rekstri sjúkrahúsa á höfuðborgarsvæðinu tíl að tryggja sem bezta þjónustu með sem hóflegustum kostnaði. Atök og neyðarfundir Svavar Gestsson (Abl.-Rvk.) beindi fyrirspumum til heilbrigðisráð- herra varðandi hugsanleg kaup ríkisins á Borgarspítala, sem mikil átök hafi staðið um innan Sjálfstæðis- flokks og verið tilefni margra neyðarfunda þar. Hér er gamalt bar- áttumál framsóknarmanna á ferð, sagði Svavar, sem borgarstjóri hefur nú gert að sínu. Svavar sagði Borgarspítalann ekki lakar rekinn en önnur sjúkrahús. Það væri hinsvegar mikilvægt að geta metið stöðuna í rekstri sjúkrastofn- ana á höfuðborgarsvæðinu út frá fleiru en einu rekstrarformi. Rekstur Borgarspítala væri og að hluta til sjálfstæðismál borgarinnar. Daggjaldakerfíð væri gengið sér til húðar en flutningur sjúkrahúsa yfír á fjárlög væri skref sem ekki væri hægt að stíga nema í samráði við hlutaðeigendur, stofnanir og starfsfólk. Málið hafi hinsvegar hlotið lítinn og lélegan undirbúning. Svavar krafði ráðherra upplýsinga um, hver væri stefna hans í þessu máli og næstu skref í framvindu þess. Sjúkrahús á f öst fjárlög Ragnhildur Helgadóttir heil- brigðisráðherra sagði m.a. að færsla sjúkrahúsa af daggjaldakerfi á flárlagakerfi eigi sér langa sögu. Upphaf hennar hafi raunar verið í heilbrigðisráðherratíð Svavars Gests- sonar, sem fært hafí Fjórðungs- sjúkrahúsið á Akureyri og Landaskotsspítalann í Reykjavík yfir á ijárlög. Síðan hafi þessi framvinda verið til umræðu og meðferðar. Ráðherra greindi frá skipan sérstakrar nefndar í janúarmánuði síðast liðnum, sem hún hafi haft frumkvæði um, í kjöl- far þess að fá þá frestað yfirfæslu sjúkrahúsa á fjóriög, sem yi með- ferðar var fyrir rúmu ári. Síðan hafi verið rækilega rætt við forstöðumenn allra sjúkrahúsa, sem hlut eiga að máli, svo rangt sé, að málið hafi ekki fengið góða athugun eða umfjöllun. Ráðherra sagði að meðalhallinn á sjúkrahúsum, sem ríkið kostaði rekst- ur á að öllu eða langmestu leyti, væri talinn 16% nú. Hallinn á fjár- lagasjúkrahúsum væri hinsvegar um 4,6%. Með færslu sjúkrahúsa yfir á §árlög væri stefnt að þvi að þau, sem rekstrareiningar, gerðu raunhæfari rekstraráætlanir, en verið hafi með daggjaldakerfi, og stuðla þannig að virkari rekstraraðhaldi, án þess að skerða þjónustu, en hér væri um mikla §ármuni að tefla. Ráðherra sagði hinsvegar að það hafi ekki verðið sín stefna að ríkið keypti Borgarspítalann, þótt settur yrði á íjárlög. Viðræður um það efni hafi farið fram að frumkvæði Reykjavíkurborgar. Sér hafi hinsveg- ar þótt eðlilegt að kanna möguleika á samræmingu og hagræðingu sjúkrahúsarekstrar á höfuðborgar- svæðinu, hverra kostnaður væri að rúmum 90% greiddur af ríkinu. Það hafi og hingað til verið stefna Sjálf- stæðisflokksins að saman færu stjómunarleg- og fjármálaleg ábyrgð. AIMnCI ísland á 19. öld eftir Frank Ponzi listfræð- ing. Áannað hundrað mynda sem sumar hafa aldrei birst áður. Áðuróbirtardag- bækur úr íslandsferð- um tveggja prinsa. Á íslensku og ensku. Óskagjöf til vina er- lendis. Góð bók Frank Ponzi ' ÍSLAND Á 19. ÖLD lAðangrar og listamenn 19TH •NTURY ICELAND 1 rtvits and„ Odysseys Líkan af Borgarspítala eins og hann er fyrirhugaður. Hinsvegar væri eðlilegt, ef úr kaup- um yrði, að taka mið af röksemdum starfsfólks um að virða sjálfstæði Borgarspítalans innan þess ramma sem gildandi lög um ríkissjúkrahús settu. Kunningi selur kunningja Stefán Benediktsson (A-Rvk.) sagði óhjákvæmilegt að þetta mál yrði hluti af fjárlagaumræðu (í dag, fimmtudag) og nauðsynlegt að heil- brigðisráðherra væri viðstaddur þá umræðu. Hann sagði hér á ferð eina spilltasta aðgerð í stjómsýslunni ef kunningi seldi kunningja heilan spítala með manni og mús án þess að ráðgast við einn eða neinn. Framsókn með opnar dyr Páll Pétursson (F.-Nv.) sagði að Framsóknarflokkurinn lokaði ekki dyrum á yfirtöku ríkisins á Borg- arspítala, að því tilskyldu, að það sé liður í bættu skipulagi í heilbrigðis- kerfinu. Afstaða til málsins væri hinsvegar ekki fullmótuð. Hann sagði endurggreiðslu á útlögðum kostnaði Reykjavíkurborgar flókið mál, en yfirtaka á rektri væri annað. Mergur- inn málsin væri sá að hagsmunir sjúklinga, sem þyrftu á þjónustu sjúkrahússins að halda, væm tryggð- ir. Sjúkrahús á landsbyggð Hjörleifur Guttormsson (Abl,- Al.) las upp samþykkt Læknafélags Austurlands, hvar varað er við breyt- ingum á rekstrargrunni sjúkrahúsa á landsbyggðinni, sem ekki sé sýnt að leiði til nokkurs spamaðar (innskot: hér er væntanlega átt við yfirfærslu á íjárlög). Fresta beri þessari breyt- ingu unz ítarleg könnum hafi farið fram á kostum og göllum breytingar- innar. Hjörleifur sagði ekki gerlegt að greina á milli Borgarspítalamáls- ins og hliðstæðra mála fjölda sjúkra- húsa vítt um land. Andvígar og mótmælum Guðrún Agnarsdóttir (Kl.- Rvk.) lýsti Kvennalistakonur andvígar sölu Borgarspítlans. Hún sagði þær átelja þau vinnubrögð sem viðhöfð hafi verið í þessu máli. Ekkert hafi heldur komið fram er staðfesti fullyrðingar um hag- kvæmni eða hagræðingu við yfir- töku ríkisins á sjúkrahúsinu. Verkaskipting í lagi Guðrún Helgadóttir (Abl.-Rvk.) talaði um forkastanleg vinnubrögð og nauðsyn þess að skoða þetta mál ofan í kjölinn. Hún sagði verkaskipt- ingu milli Landspítala og Borgarspít- ala í góðu lagi. Kaupir ríkið sjúkrahús sveitarfélaga? Kolbrún Jónsdóttir (A.-Ne.) taldi kaup ríkisins á Borgarspítala leiða það af sér að ríkið yrði að kaupa önnur sjúkrahús sveitarfélaga, vítt um land, ef eftir væri Ieitað. Hugsan- lega hefðu sveitarfélög áhuga á að tryggja sér flármuni á þessa leið, t.d. til nauðsynlegra framkvæmda. Miðstýringar- málflutningur Svavar Gestsson fagnaði þeim ummælum ráðherra að það væri ekki stefna hennar að kaupa Borgarspítla. Málflutningur hennar hafi að öðru leyti verið dæmigerðasti miðstýring- armálflutningur, sem fluttur hafi verið úr ræðustól þingsins. Reykjavík og grannbyggðir Ólafur Þ. Þórðarson (F.-Vf.) sagði Borgarspítala ekki þjóna Reykjavík- urborg einni heldur mörgum sveitar- félögum í næsta nágrenni höfuð- borgarinnar. Reykjavíkurborg stæði að þessu leyti undir þjónustu sem þessi nágrannasveitarfélög ættu með réttu að taka kostnaðarlegan þátt í. Stór-Reykjavíkursvæðið í heild ætt að standa undir hlut Reykjavíkur í rekstri Borgarspítalans. Það er ekki amalegt að reka sveitarfélag í skjóli borgarinnar og geta sótt margvíslega þjónustu á hennar kostnað. Öðru máli gegnir um sjúkrahús stijálbýlis- sveitarfélaga úti á landi. Þau þjóna nokkuð afmörkuðu svæði. Heilbr igði sst ofnun Islands Ragnhildur Helgadóttir ráðherra sagði gagnrýni Svavars Gestssonar koma úr hörðustu átt. í fyrsta lagi hafi það verið heilbrigðisráðherra úr Alþýðubandalagi (Magnús Kjartans- son), sem flutt hafi frumvarp um Heilbrigðisstofnun íslands, sem haft hafí að geyma dæmigert miðstýring- arsjónarmið í heilbrigðismálum. í annan stað hafi hann sjálfur sem heilbrigðisráðherra hafið færslu sjúkrahúsa af daggjaldakerfi yfir á fjárlög (Landakot og Fjórðungs- sjúkrahús Akureyrar). Annað mál sé að hún viti ekki betur en þau sjúkra- hús, sem flutt hafi verið á fjárlög, uni því þokkalega. Ráðherra ítrekaði að ekki væri óeðlilegt að ríkið vildi stuðla að sam- ræmingu og hagræðingu í heilbrigð- isþjónustu á höfuðborgarsvæðinu, sem það greiddi að meir en 90%, en sín skoðun væri sú, að sjúkrahús út um land ættu að lúta stjórnunarlega undir heimafólk. Ríkisspítalar lúti hinsvegar stjómunarlega undir stjómamefnd, sem kosin væri af þingkjömum fulltrúum á Alþingi. Samráð við starfsfólk Sigríður Dúna Kristmundsdóttir (Kl.-Rvk.) taldi fyrispurnaform þing- skapa ekki gefa nægan tíma til að ræða jafn viðamikið mál ofan í kjöl- inn. Hún sagði 75% af sjúklingum Borgarspítala vera Reykvíkinga. Halli á rekstri spítalans hefði ýmsar skýringar, m.a. rekstur dýrrar slysa- þjónustu í þágu höfuðborgarsvæðis- ins alls. Hún gagnrýndi harðlega að ekki hafi verið haft samráð við starfs- fólk Borgarspítalans um hugsanlega sölu hans. Vinnubrögð þá og nú Ragnhildur Helgadóttir gerði samanburð á vinnubrögðum þá Svav- ar Gestsson flutti Fjórðungssjúkra- hús Akureyrar og Landakotsspítala á fjárlög á sinni tíð og ráðgerðan flutning sjúkrahúsa nú, eftir ítarlegar viðræður við forsvarsmenn viðkom- andi stofnana. Þá hefðu forsvars- menn viðkomandi sjúkrahúsa ekki vitað um flutninginn fyrr en fjárlaga- frumvarp, sem fól hann í sér, var fram lagt. Það væri því ekki að furða þó honum færist gagnrýnin illa úr hendi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.