Morgunblaðið - 12.12.1986, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. DESEMBER 1986
45
Keramik
gallerý í
Skipagötunni
Leirkerasmiðirnir Margrét
Jónsdóttir og Henrik Peder-
sen, sem bæði hafa lokið námi
frá Kunsthanværkerskolen í
Kolding í Danmörku, hafa
opnað keramik gallery að
Skipagötu 13 á Akureyri. Þar
selja þau handgerða listmuni
og nytjalist. Þau hafa starf-
rækt leirkeraverkstæði á
Akureyri frá því í fyrra. Gall-
erýið verður opið til jóla. Það
verður opið kl. 13.00-19.00
alla virka daga, kl. 13.00-22.00
laugardaga en lokað á sunnu-
dögum. -M
Morgunblaðið/Skapti
Ein mynda Einars á sýningunni, úr Innbænum á Akureyri.
Einarsýnirí Útvegsbankanum
Einar Helgason, listmálari og íþróttakennari, hefur nýsett upp
málverkasýningu í Útvegsbankanum á Akureyri. Þar sýnir hann
14 vatnslitamyndir viðs vegar að af landinu. Sýningin stendur
yfir til áramóta.
Utgerðarfélag Akureyringa:
Býðst til að greiða
50 krónur fyrír 10%
afla úr hverri ferð
Dalvíkurbær selji
útfferðarhluti sína
ÚTGERÐARFÉLAG Akur-
eyringa hefur boðið sjó-
mönnum sínum að greiða 50
krónur fyrir 10% af lönduð-
um afla í hverri veiðiferð -
en það er meðalmarkaðs-
verð í Bretlandi. Skipverjar
þriggja skipa ÚA hafa feng-
ið tilboðið í hendur og eru
sáttir við það skv. heimildum
Morgunblaðsins.
Upphaf málsins er það, eins
og greint hefur verið frá hér í
blaðinu, að sjómenn rituðu for-
svarsmönnum ÚA bréf þar sem
spurst var fyrir um hvort til
stæði að selja hluta afla togara
félagsins utan í gámum. Fyrir-
spumin var til komin vegna
þess að sjómenn ÚA töldu
launakjör sín mun lakari en
manna á skipum sem seldu físk
í gámum til útlanda. Nefnd var
skipuð til að fínna lausn á mál-
inu og hefur hún komist að
fyirgreindri niðurstöðu.
í tilboði Útgerðarfélagsins
felst að það gildi frá 1. nóvem-
ber síðstliðnum og til áramóta,
fyrst í stað.
Greiði ÚA 50 krónur fyrir
10% afla úr hverri veiðiferð
kemur það út fyrir sjómenn eins
og 10% aflans sé fluttur út í
gámum og seldur þar. 60% aí
þessarri upphæð kemur til
skipta til sjómanna.
DaJvik.
SVO kann að fara að Dalvíkur-
bær selji eignarhlut sinn i
útgerðarfyrirtækjum á Dalvík. Á
fundi bæjarstjórnar sl. þriðju-
dagskvöld var samþykkt tillaga
þess efnis að beina því til bæjar-
ráðs að selja eignarhlut bæjarins
í Söltunarfélagi Dalvíkur og Út-
gerðarfélagi Dalvíkinga enda
fáist viðunandi verð og kaupend-
ur séu úr hópi heimaaðila.
Á bæjarstjómarfundinum lágu
fyrir tvær tillögur um sölu á eignar-
hlutum bæjarins í útgerðarfélögum.
Fyrri tillagan, sem tekin var fyrir
var flutt af fulltrúum Framsóknar-
flokksins, Valdimar Bragasyni og
Guðlaugu Bjömsdóttur, og fjallaði
um að Dalvíkurbær seldi eignarhlut
sinn í Söltunarfélagi Dalvíkur. Til-
lögu þeirra var vísað til bæjarráðs
með fimm atkvæðum, en tillaga
meirihluta bæjarstjómar, sem var
víðtækan og hljóðaði einnig upp á
sölu á Útgerðarfélagi Dalvíkinga,
var samþykkt með fímm atkvæðum
meirihlutans gegn tveimur atkvæð-
um minnihlutans.
Mikil umræða hefur farið fram
á undanfömum ámm um aðild
bæjarins að útgerð og fískvinnslu
á Dalvík. Útgerðarfélag Dalvíkinga,
umræða að sameina útgerðar- og
fískvinnslufyrirtæki á staðnum í
eina heild. Var skipuð nefnd í þeim
tilgangi og óskað eftir viðraeðum
við Kaupfélag Eyfírðinga um þau
mál.
í haust fór stjórn Söltunarfélags
Dalvíkur fram á hlutafjáraukningu
í fyrirtækinu vegna rekstrarerfið-
leika dótturfyrirtækis þess, Upsa-
strandar hf., sem rekur togarann
Baldur. Söltunarfélag Dalvíkur er
í eigu Kaupfélags Eyfírðinga, sem
á 63% hlutafjár, og Dalvíkurbæjar,
sem á 34% hlutafjár, auk nokkurra
einstaklinga. Bæjaryfírvöld töldu
sig ekki geta orðið við þeirri ósk
vegna fjárhagsstöðu bæjarsjóðs og
höfnuðu jafnframt þeirri hugmynd
að raska eignahlutfalli í Söltunarfé-
lagi Dalvíkur með því að Kaupfélag
Eyfírðinga legði fram aukið hlutafé
í fyrirtækinu. Samþykkti bæjar-
stjóm þá að taka til endurskoðunar
aðild sína að útgerðar- og atvinnu-
rekstri. í beinu framhaldi af þessum
umræðum em áðumefndar tillögur
fram komnar.
Fréttaritarar
Aðalgeir og Viðar hf. verð-
ur Aðalgeir Finnsson hf.
Aðalgeir Finnsson og Viðai
Helgason stofnuðu Aðalgeir og
Viðar hf. á sínum tíma. Þeir ráku
einnig glerverksmiðjuna íspan.
Viðar lést fyrir nokkrum árum
og í sumar var fyrirtækjunum
skipt - fíölskylda Viðars tók við
íspan en Aðalgeir rekur nú bygg-
ingafyrirtækið.
í BYRJUN mánaðarins var
nafni byggingafyrirtækisins
Aðalgeir og Viðar hf. breytt
í Aðalgeir Finnsson hf. „Fyr-
irtækið ber áfram sama
nafnúmer og söluskatts-
númer sem fyrr og heimilis-
fang verður óbreytt,“ segir
í tilkynningu frá fyrirtæk-
inu.
220 milljónir króna hvíla á Stakf ellinu:
Að óbreyttu stefndi
í gjaldþrot hjá okkur
sem er í eigu Dalvíkurbæjar, Kaup- , _ , . f , , ,
féiags Eyfírðinga og Björgvins -segu* Gretar Fnðrtksson tramkvæmdastiora Utgerðarfelags Norður-Þmgeymga
Jónssonar, hefur frá stofnun rekið
tvö togskip. Skip félagsins hafa
lagt upp afla sinn samkvæmt sam-
þykktum félagsins hjá frystihúsi
Kaupfélags Eyfírðinga á Dalvík. Á
síðasta kjörtímabili kom upp sú
ÁÐUR EN ákvörðun var tekin
um að breyta „Þórsliafnartogar-
anum" Stakfellinu i frystiskip
voru reyndar aðrar leiðir til að
leysa vanda útgerðarinnar. Að
sögn Grétars Friðrikssonar,
framkvæmdastjóra Útgerðarfé-
lags Norður-Þingeyinga var
Hraðfrystihúsi Norður-Þingey-
inga og Jökli hf. á Raufarhöfn
Fiskiðjusamlag Húsavíkur:
Kaupir loðnu-
skipið Ljósfara RE
FISKIÐJUSAMLAG Húsavíkur
hefur keypt loðnubátinn Ljós-
fara RE, sem Barðinn gerir út.
Skipið er rúmlega 270 tonn að
stærð og er kaupverðið 85 millj-
ónir króna - um 7 milljónum yfir
matsverði.
Ljósfari fer til Húsavíkur þegar
loðnuvertíðinni er lokið, líklega ein-
hvem tíma í febrúar.
Að sögn Tryggva Finnssonar,
framkvæmdastjóra Fiskiðjusam-
lagsins, fer skipið fyrst um sinn á
rækjuveiðar. „Eins og staðan er í
dag reikna ég með að skipið verði
gert út á rækju og loðnu en annars
verður alltaf að spila það eftir
möguleikum á hverjum tíma hvað
skipin gera,“ sagði Tryggvi í gær.
Ljósfari var byggður í Austur-
Þýskalandi 1965 en síðan lengdur
og yfirbyggður fjórum árum síðar.
Fiskiðjusamlag Húsavíkur á fyrir
helming í tveimur skipum, Júlíusi
Havsteen og Kolbeinsey. Tryggvi
sagði að Ljósfari yrði ekki rekinn
í neinum tengslum við þau skip -
„hann verður alveg óháður þeim
„bissness“,“ sagði hann. Fisldðju-
samlagið kaupir skipið en líklegast
er að fleiri standi að rekstri þess
þegar þar að kemur.
boðið að kaupa afla áfram og
greiða þá 15% yfir skráðu fis-
kverði. „JökuU tók þessu tilboði
en Hraðfrystihúsið á Þórshöfn
taldi sig ekki hafa stöðu til þess,“
sagði Grétar í samtali við Morg-
unblaðið í gær.
„Það var ákveðið í byijun júní
að fara út í fullvinnslu eftir að aðr-
ar leiðir höfðu verið reyndar þannig
að þessi ákvörðun þarf ekki að
koma mönnum neitt á óvart. En
við áttum bara einn kost eftir að
Hraðfrystihúsið hafði neitað að
greiða okkar 15% yfír fískverði fyi--
ir aflann. Við náum ekki endum
saman í rekstrinum og því urðum
við að gera þetta. Að óbreyttu
stefndi í gjaldþrot hjá okkur. Heild-
arskuldir sem hvíla á skipinu nú
eru 220 milljónir, þar af eru um
195 milljónir króna veðskuldir,"
sagði Grétar.
Veltuð þið fyrir ykkur hæt-
tunni á atvinnuleysi í landi ef
skipinu yrði breytt?
„Já, auðvitað var hugsað um
það. Eins og ég sagði gerðum við
fiskvinnslunni ákveðið boð. Hún
hefur gengið vei undanfarin ár á
meðan útgerðin hefur verið rekin
með tapi - hún hefur tekið á sig
olíuhækkun og kvótakerfi. Þetta
hefur að vísu verið skárra í ár vegna
olíulækkunar og gámaútflutnings."
Telur þú þá að Hraðfrystihús
Þórshafnar hafi bolmagn til að
greiða 15% ofan á fiskverðið?
„Ég tel að frystihúsið hafí stöðu
í það, já. Mér finnst það skiýtið að
annar fiskkaupandinn, Jökull hf. á
Raufarhöfn, treysti sér til þess en
hinn ekki.“
Stakfellið fer í slipp hjá Slipp-
stöðinni hf. á Akureyri 5. janúar.
Samkvæmt samningi Slippstöðvar-
innar og Útgerðarfélags Norður-
Þingeyinga á það að taka þijár
vikur að breyta því í frystiskip. Að
sögn Grétars er mikill hluti frysti-
búnaðarins þegar um borð - aðeins
smávægilegar breytingar þurfí í
rauninni til viðbótar. Reiknað er
með að breytingin sem gerð verður
á skipinu kosti 10 milljónir króna.
Eins og greint var frá í blaðinu
í gær á Kaupfélag Norður-Þingey-
inga 52% hlut f Stakfellinu, Hrað-
frystihúsið a Þórshöfn 23% og
Þórshafnarhreppur 23%. Þau 2%
sem eftir eru eru í eigu Svalbarðs-
eyrarhrepps.