Morgunblaðið - 12.12.1986, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ, PÖSTUDAGUR 12. DESEMBER 1986
47
Albert Camus
E .......... llilTl
Utlending-
urinn eftir
Albert Camus
ÆSKAN hefur gefið út bókina
Útlendingurinn eftir Albert
Camus, sem hlaut bókmennta-
verðlaun Nóbels 1957.
Bjarni Benediktsson frá Hofteigi
þýddi.
Sagan segir frá skrifstofumann-
inum Mersol, sem verður manni að
bana, og réttarhöldum yfir honum.
í formálsorðum segir þýðandi meðal
annars:
„Stíl þeirrar sögu, sem hér birt-
ist, hefur verið líkt við fágað gler,
blikandi stál og önnur alskír efni.
Hinsvegar hefur vafist fyrir mönn-
um að túlka efni hennar til hlítar.
Hér verður þess ekki heldur freist-
að, en við lestur hennar mætti vera
nytsamlegt að hafa þetta í huga:
Sagan skiptist í tvo jafna hluta.
í hinum fyrri rekur Mersol skrif-
stofumaður stuttan kafla ævisögu
sinnar, án hlutdrægni og ástríðu.
það er einfaldur annáll viðburða. I
seinni hlutanum rekur hann þennan
kafla enn í meigingreinum; en nú
lýsir hann atburðum frá sjónarmiði
samborgara og réttvísi, þ.e. þjóð-
félagsins. Og sjá: Það sem í vitund
einstaklingsins Mersols er eðlilegt
og meinalaust háttemi, það er
glæpsamlegt atferli frá sjónarmiði
réttvísinnar, þjóðfélagsins. Sagan
var skrifuð árin 1939 og 1940. Þau
viðskipti þjóðfélags og einstaklings,
sem hér eru greind, kynnu öðrum
þræði að vera sniðin eftir viðureign
nasískrar réttvísi við menn og þjóð-
ir á þessum tíma. Sagan er af-
sprengi sinnar tíðar.“
Útlendingurinn er 100 blaðsíðna
kilja. Prentsmiðjan Oddi hf. vann
bókina og kápu teiknaði Almenna
auglýsingastofan/Anna Gunn-
laugsdóttir.
(Bókin var gefin út af Menning-
arsjóði 1961.)
Hveragerði:
Lúðrasveit Hvera-
gerðis með bingó
Morgunblaðið/Sigrún
Lúðrasveit Hveragerðis leikur fyrir bingógesti. Stjórnandi er Kristj-
án Ólafsson.
Áhuginn var mikill.
Hveragerði.
LÚÐRASVEIT Hveragerðis gekkst fyrir bingókvöldi nýlega í Hótel
Ljósbrá. Margir góðir vinningar voru þar á boðstólum. Aðalvinning-
urinn var utanlandsferð. Húsfyllir var á bingóinu og stjórnaði Þórður
Snæbjörnsson þvi af mikilli röggsemi.
annast Lúðrasveitina í fjögur ár og
hefur hún tekið miklum framförum
undir hans handleiðslu og eru sífellt
að fjölga félögum, eru nú um 40
börn og unglingar í sveitinni.
Á bingóinu lék Lúðrasveitin
nokkur lög, áður en leikurinn hófst
og í hléinu, við góðar undirtektir.
Hveragerðingar sýna í verki að
þeim er annt um Lúðrasveitina og
gáfu fyrirtæki í bænum alla vinn-
ingana fyrir bingóið. Aðalvinning-
urinn var gjöf frá Útsýn og Hótel
Örk, en hann hlaut lítill drengur
Björn Kristjánsson.
Kristján Ólafsson skólastjóri bað
mig fyrir góðar kveðjur og þakkir
til þessara velunnara Lúðrasveitar-
innar og allra þeirra sem mættu
og gerðu þetta kvöld ánægjulegt.
Sigrún.
Lúðrasveit Hveragerðis er ung
að árum, en hún mun halda upp á
10 ára afmæli sitt þann 3. febrúar
á komandi ári. Skólastjóri Tónlist-
arskólans, Kristján Ólafsson, hefur
Góð bók
Kristmn i Björgun —
Eldhuginn í sandinum
Skráð af Árna Johnsen
Leitin að gullskipinu,
björgun strandaðra skipa,
fiskirækt, dæling bygging-
arefnis úr sjó.
Bók full af fjöri og spennu
eins og líf þessa eldhuga.
KRISTINN
Arm Johnsen skróðt
Tilvaldar
jólagjafír
Fatastandarnir
vinsælu, 3 viðarlitir.
Kr. 2.500,-
Mikið úrval af speglum
á mjög hagstæðu verði.
Myndbandaskápar.
4 gerðir.
Símabekkir.
Verð frá kr. 7.500.-
VaUiúsgögn hf.,
Ármúla 8. Sími 82275.
smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar |
Hárgreiðslustofan Edda
Sólheimum 1.
Strípur 750 kr.
Sími 36775.
Dyrasímaþjónusta
Gestur rafvírkjam. — S. 19637.
Raflagnir — Viðgerðir
S.: 687199 og 75299
Ungt fólk með hlutverk
Almenn samkoma í Grensás-
kirkju í kvöld kl. 20.30. Ræðu-
maöur: Teo van der Weele fró
Hollandi. Allir velkomnir.
Frá Guðspeki-
fólaginu
Áskriftarsími
Ganglera er
39573.
Vegur pílagrímsins
[ kvöld kl. 21.00 Vegur pllagrlms-
ins. Upplestur Herdis Þorvalds-
dóttir leikkona.
Kynningaraðili
Hvaða starfandi sönghljómsveit
á Reykjavikursvæðinu eöa
skemmtikrafur hefur áhuga á að
kynna lag og Ijóð samið I tilefni
afmælis Reykjavikur, þar sem
minnst er Ingólfs, Skúla, Thors
Jensen, Hallgrímskirkju og
Hallgríms.
Áhugasamir leggi nafn og sima-
númer á auglýsingadeild Mbl.
fyrir 17. des. 1986 merkt: „Ekk-
ert atómljóð”.
I.O.O.F. 12 = 16812128'/! =
I.O.O.F. 1 = 16812128'/! =