Morgunblaðið - 12.12.1986, Qupperneq 53
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. DESEMBER 1986
53
Stjörnu-
speki
Umsjón: Gunnlaugur
Guðmundsson
„Kæri stjörnuspekingur! Ég
hef mikinn áhuga á að kom-
ast að sem flestu um sjálfan
mig, þar sem ég er helst til
ráðvilltur. 27.04. 1967 kl.
12.04 er minn tími. Hvemig
passar hann við 20.09. 1962
kl. 15.45? Með fyrirfram
þökk fyrir birtinguna."
Svar:
Þú hefur Sól og Miðhimin í
Nauti, Tungl í Bogmanni í
5. húsi, Merkúr í Hrút, Venus
í Tvíbura, Mars í Vog og
Ljón Rísandi.
EirÖarlaus
Ástæðan fyrir því að þú ert
ráðvilltur er líkast til sú að
þú hefur Tungl, Venus og
Úranus í spennuþríhyming.
Það táknar að þú ert eirðar-
laus og hefur þörf fyrir
fjölbreytileika og þolir ekki
stöðnun og vanabindingu.
Það kemur í veg fyrir að þú
festir þig í einu málefni.
Öryggi
Ofan á þetta kemur að þú
ert Naut. Nautið vill sjá
áþreifanlegan árangur gerða
sinna, vill skapa sér öryggi
og fást við uppbyggileg mál-
efni. Ljónshlið þín vill síðan
virðingu frá umhverfínu.
Engar ásakanir
Það æskilega í slíkri stöðu,
er í fyrsta lagi að gera sér
grein fyrir þessum ólíku þátt-
um og sætta sig við þá.
Mikilvægt er að þú ásakir
ekki sjálfan þig, eða farir að
telja þig á einhvem hátt
ómögulegan. Þú ert ágætur,
þarft einungis að fínna far-
veg fyrir orku þína. Um leið
og það gerist verður þú
ánægður.
Vandinn
Vandi þinn er hugsanlega sá
að þú einblínir um of á eitt
afmarkað nám eða svið sem
er það þröngt að þú tapar
áhuga eftir smá tíma. Lausn
gæti verið fólgin í viðhorfs-
breytingu, að þú gerir þér
grein fyrir því að eitt af-
markað svið á ekki við þig.
Fjöltœkniþjóðfélag
Kannski ættir þú að sætta
þig við eirðarleysi þitt og til-
hneigingu til að fara úr einu
í annað. Ná þér í menntun
sem gefur kost á breiðum
starfsvettvangi síðar meir.
Sem dæmi má nefna tungu-
málanám, það að taka
nokkra áfanga í viðskiptum,
fara erlendis og kynnast
menningu annarra þjóða,
læra fjölmiðlun, fara út á
hinn almenna vinnumarkað
og reyna að kynnast þjóð-
félaginu á sem fjölþættustum
gmnni. Þjóðfélagið í dag er
flókið og not eru fyrir per-
sónuleika sem hafa fjöl-
breytilega reynslu. Að lokum
í þessu sambandi: Þú ert
ennþá ungur og ættir því
ekki að flýta þér, vera róleg-
ur og sjá hvað setur. Það er
engin ástæða til þess að þú
festir þig niður. Ef þú þarft
að velja nám, athugaðu þá
fög sem eru lifandi, ekki of
langvarandi og gefa kost á
fjölbreytilegu starfí síðar.
Ósanngirni
Hvað varðar ósanngimi sem
þú nefnir í óbirtum kafla í
bréfínu, myndi ég athuga
hvað það er í hegðun þinni
sem kallar á þessa framkomu
hjá öðram. Fyrst og síðast
löðumst við að vinum sem
höfða til einhvers í eigin fari.
Ágœt saman
Kort ykkar era lík. Naut og
Meyja eiga vel saman og
sömuleiðis Tungl í Bogmanni
og Tvíbura. Þú ert hins vegar
of ungur og óráðinn til að
vera að binda þig. Eigi að
síður getur sambandið verið
ánægjulegt.
y-9
GRETTIR
TOMMI og jenni
UOSKA
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Breska brídskonan Rixi Mark-
us átti kost á tveimur svíningum
í eftirfarandi spili, en hafnaði
báðum.
Suður gefur; NS á hættu.
Norður ♦ ÁK7 ♦ G4 ♦ ÁK10985 ♦ 98
Vestur Austur
♦ 9843 ♦ G105
♦ K95 V10762
♦ D74 ♦ G632
♦ D32 ♦ 65 Suður ♦ D62 ♦ ÁD83 ♦ - ♦ ÁKG1074
Vestur Norður Austur Sudur
Vestur Norður Austur Suður
— — — 1 lauf
Pass ltígull Pass 1 hjarta
Pass 3 grönd Pass 61auf
Pass Pass Pass
Vestur hitti á besta útspil
vamarinnar, spaða.
Við sem sjáum öll spiiin vitum
að báðar svíningamar sem til
greina koma, í trompi og hjarta,
misheppnast. Flestir myndu þó
treysta á að önnur þeirra gengi
og byija á því að svína fyrir lauf-
drottninguna í öðram slag.
En ekki frú Markus. Hún tók
fyrsta slaginn í blindum, henti
hjörtum heima niður í ÁK í tígli
og trompaði tígul heima með
gosanum. Spiiaði síðan litlu laufí
á blindan!
Vestur stakk upp drotting-
unni og spilaði aftur spaða.
Markus tók slaginn heima á
drottningu, læddi sér inn á
laufníuna í blindum og fríaði
tígulinn með trompun. Tók los
síðasta tromp vesturs og átti
innkomu á spaða eftir í blindum
til að taka frítígul.
Hérna er kassi með
veizluhöttum sem þú
varst að biðja um ...
Vona að þú skemmtir þér
vel í kvöld
Það geri ég svo sannar-
lega...
Það er heil listgrein að
vera hrókur alls fagnað-
ar...
SKÁK
Umsjón Margeir
Pétursson
Á stórmótinu í Bugojno í
Júgóslavíu í vor kom þessi staða
upp í viðureign stórmeistaranna
Lajos Portisch, Ungveijalandi,
sem hafði hvítt og átti leik, og
Jan Timman, Hollandi.
39. Hc6! — De5 (Auðvitað er
39. — Bxc6 svarað með 40.
Rf5+, og eftir 39. — De7, 40.
Bxd5 vinnur hvítur peð. Timman
bregður því á það ráð að fóma :
drottningunni fyrir hrók og ridd-
ara) 40. Re6+! - De6+!, 41.
Hxe6 — Bxe6, 42. Dd4 og um
! siðir vann Portisch á liðsmunin-
um.
Þeir Portisch og Timman hafa
báðir þegið boð um að tefla á
stórmóti IBM í Reykjavík í febr-
úar.