Morgunblaðið - 12.12.1986, Blaðsíða 63
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. DESEMBER 1986
63
Jólavaka
í Hafnar-
fjarðar-
kírkju
HIN ÁRLEGA Jólavaka við kerta-
ljós verður haldin í Hafnarfjarð-
arkirkju 3. sunnudag í aðventu,
14. desember nk., og hefst hún
kl. 20.30.
Jólavakan er Hafnfirðingum svo
og öðrum sem hana sækja augljós
vottur um nánd og komu helgra jóla.
Líkt og áður verður nú mjög til henn-
ar vandað og þess gætt að efni
hennar sé öllum aðgengilegt og hæfí-
legt að lengd.
Ræðumaður kvöldsins verður
Guðrún Helgadóttir alþingismaður.
og flytjendur tónlistar upprennandi
listamenn, Guðný Ámadóttir altsöng-
kona, Gunnar Guðbjömsson tenór-
söngvari og Bjöm Davíð Kristjánsson
flautuleikari og svo kór Hafnarfjarð-
arkirkju undir stjóm Helga Braga-
sonar organista. Flytur kórinn m.a.
þijá nýja sálma eftir norska sálma-
skáldið Svein
Ellingsen og hefur hr. Sigurbjöm
Einarsson, biskup, þýtt einn þeirra
sérstaklega fyrir Jólavökuna.
Við lok vökunnar verður kveikt á
kertum þeim sem viðstaddir hafa
fengið við hendur. Gengur þá loginn
frá helgu altari til hvers og eins sem
tákn um það að sú friðar og Ijóssins
hátíð sem framundan er vill öllum
lýsa, skapa samkennd og vinarþel.
Megi enn sem fyrr flölmargir eiga
góða og uppbyggjandi stund á Jóla-
vöku í Hafnarfjarðarkirkju.
Gunnþór Ingason, sóknarprestur.
Kvennadeild
Fáks með bazar
í Austurstræti
KVENNADEILD Fáks verður
með jólabazar í Austurstræti á
morgun, laugardaginn 13. des-
ember. Meðal þess sem á boðstól-
um verður em sauðskinnsskór og
lopapeysur og teppi með merki
Landsmóts hestamanna sl. sumar.
Þama verður líka hægt að kaupa
kökur alls konar og til að aukja
jólabraginn kemur jólasveinninn í
heimsókn.
Rakarastofa Björns
Gíslasonar 15 ára
Selfossi.
BJÖRN I. Gislason hárskerameistari á Selfossi hélt upp á það 4. des-
ember síðastliðinn að 15 ár eru siðan hann hóf sjálfstæðan rekstur
rakarastofu á Selfossi. Viðskiptavinum og öðrum sem litu inn þennan
dag var boðið upp á gómsætar kökur í tilefni dagsins.
Rakarastofa Bjöms Gíslasonar á
rætur að rekja til ársins 1948 en
þá hóf faðir hans, Gísli Sigurðsson,
rekstur rakarastofu sinnar að
Kirkjuvegi 17 á Selfossi. Björn nam
hjá föður sínum og annaðist rekstur
stofu hans frá 1967 til þess er hann
hóf eigin rekstur og flutti stofuna
að Eyravegi 5.
Á rakarastofunni hjá Bimi eru
auk hans tveir starfsmenn að stað-
aldri ásamt einum til viðbótar þegar
álagstímar eru. Öll alhliða hársnyrti-
þjónusta er veitt á stofunni og þar
voru miklar annir á afmælisdaginn
enda jólaklippingin mikilvægur liður
í jólaundirbúningnum.
Það er oft margt spjallað á rak-
arastofum og þær verða rabbpunkt-
ur í hversdagsleikanum, þar sem
spurt er frétta um menn og mál-
efni. Stofan hjá Birni byggir á
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson.
Starfsfólk rakarastofu Björns Gíslasonar. F.v. Kjartan Björnsson,
Guðrún Edda Haraldsdóttir, Heiðdís Einarsdóttir og Björn Gíslason.
gömlum grunni hvað þetta varðar ýmislegt fjúka í stólnum þegar mik-
enda margir góðir fastakúnnar sem ið er að snúast í bæjar- eða þjóðlíf-
spanna litróf mannlífsins og láta inu. Sig. Jóns.
6i6ðraí^aapí>f
5leðundV a veittur et
V\aWa
inrvt
Vskarnlí
SPORTBÆR Selfossi SPORTVAL v/Hlemm
SPORTBÚÐ ÓSKARS Kenavík BIKARIIiri Skólavörðustíg
JÓM HALLDÓRSSOIi Dalvfk SPORTHÚSIÐ Akureyri
SPORTBÚÐIH Drafnarfelli MÚSIK & SPORT Hafnarfirði
SKÍÐALEIQAIi v/Umferðarmiðstöðlna SPORTHLAÐAIi ísanrði
Á MORGUN LAUGARDAG KYNNUM VIÐ
JÓLABAKSTUR
í NÝJU RAFHA BLÁSTURSELDAVÉLINNI.
JÓLABAKSTURSKYNNING
EINNIG KYNNUM VIÐ NOTKUN A
ZANUSSI ÖRBYLGJUOFNINUM.
OPIÐ FRÁ KL. 10.00 TIL 18.00
KAFFI OG PIPARKÖKUR
VERIÐ VELKOMIN
LÆKJARGOTU 22 HAFNARFIRÐI SÍMI: 50022