Morgunblaðið - 12.12.1986, Síða 64
í 64
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. DESEMBER 1986
Að selja — eða selja ekki
eftír Kristínu A.
Ólafsdóttur
Á undanfomum árum hefur fólk
í öllum stjómmálaflokkum lýst sig
andvígt samþjöppun valds og mið-
stýringar í þjóðfélaginu. Vilji til að
dreifa valdi og færa ákvarðanatöku
til þeirra sem málin varða sérstak-
lega hefur orðið almennari. Stöðugt
háværari umræða um sjálfstæði
sveitarfélaga, 3ja stjómsýslustigið
og atvinnulýðræði, er birtingarform
þessarar þróunar.
„Báknið burt" kvað við sterkum
rómi í Sjálfstæðiflokknum fýrir
fáum árum. Þetta slagorð átti að
sögn flytjenda meðal annars að tjá
ofangreinda pólitfk um valddreif-
ingu. Ástæðan fyrir því að þessar
raddir heyrast ekki að sinni er trú-
lega sú að eigendur þeirra sitja nú
margir á toppi báknsins ógurlega.
„Kerfið kjurrt" er sá nýi söngur sem
ýmsir þykjast heyra frá forystukór
Sj álfstæðismanna.
Nú hef ég í sjálfu sér ekkert á
móti breyttri afstöðu Sjálfstæðis-
manna til ríkisvaldsins. Sú heift út
í allt sem heitir opinber afskifti og
rekstur samrýmist auðvitað ekki
viðhorfum vinstri manna. Það er
Jr ánægjuefni ef fieiri Sjálfstæðis-
menn hafa áttað sig á því að ríki
og sveitarstjómir eiga að grípa inní
frjáls og villt markaðslögmál sem
aðeins taka mið af viðskiptum og
gróða. Sú forsenda er nauðsynleg
velferðarsamfélagi sem ætlar að
virða jöfnuð milli manna einhvers.
Af hinu hef ég meiri áhyggjur
að allt tal Sjálfstæðismanna um
valddreifingu og sjálfsstjóm er
ómarktækt um ieið og þeir komast
í valdastóla. Tilhneigingin að mylja
| undir þann sterkasta og safna þráð-
um í eina miðstýringarhönd leynir
sér ekki. Gerðir og málflutningur
borgarstjórans í Reykjavík síðustu
fjögur árin hafa oftar en ekki
stjómast af viðhorfínu: Borgin —
það er ég. Og eftir að hafa hlustað
á rök heilbrigðisráðherra fyrir sam-
einingu Borgarspítala og ríkisspít-
ala efast ég um að sá forystumaður
Sjálfstæðisflokksins skilji hvað við
er átt þegar talað er um kosti vald-
dreifingar og nándar stjómenda og
þess sem stjómað er.
Borgin — það er ég!
í nýjasta dæminu um miðstýring-
aráráttu Sjálfstæðisflokksins tala
1 vinnubrögðin skýru máli um blindan
valdhroka fólksins á toppi „bákns-
ins“. „Borgin óskaði eftir kaupum
ríkisins á Borgarspítalanum" upp-
lýsti heilbrigðisráðherra á fjölmenn-
um fundi sl. þriðjudag, en þar voru
ásamt starfsmönnum spítalans
þingmenn Reykjavíkur og borgar-
fulltrúar. Þetta voru tíðindi fyrir
fólkið sem Reykvíkingar kusu til
að fara með stjómun borgarinnar.
Þetta fólk hefur hvergi lýst yfír
vilja sínum til að selja Borgarspítal-
ann ef frá er talinn borgarfulltrúi
Framsóknarflokksins. (Það var
reyndar athyglisvert að Framsókn
var eini flokkurinn sem ekki lýsti
viðhorfum sínum á þessum fundi,
vora þó þama bæði þingmenn og
borgarfulltrúar.) Borgarfulltrúar
hafa reyndar ekki verið spurðir
hvort þeir vilji selja — ekki í borgar-
stjóm — ekki í borgarráði — ekki
í stjóm spítalans. Og ekki vora það
Reykvíkingamir sem starfa á
spítalanum sem báðu borgarstjór-
ann að selja.
Borgarstjórinn í Reykjavík ákvað
upp á sitt eindæmi að hefla viðræð-
ur við ríkisvaldið um sölu Borg-
arspítalans. Ætlunin var að útbúa
samning í kyrrþey og stilla síðan
starfsfólki og stjómendum spítala
og borgar frammi fyrir gerðum
hlut. Dæmið gekk ekki upp. Fyrir-
ætlunin spurðist út, viðbrögð létu
ekki á sér standa og vora þvert á
hugmyndir borgarstjóra. Lýðræðið
reyndist ógnun við einræðisvinnu-
brögð þau sem Davíð Oddsson hefur
fram að þessu komist upp með.
Lifandi vinnustaðir
Borgarstjórinn og aðrir valds-
menn Sjálfstæðisflokksins verða að
skilja að fyrirtækið Borgarspítali
er vinnustaður lifandi fólks. Það
sama átti reyndar við um Bæjarút-
gerðina sálugu, þótt það gleymdist
hér um árið. Þessir staðir væra
harla lítils virði ef þetta fólk byggði
þá ekki upp, setti ekki metnað sinn
í störfin sem þar era unnin. Það
hefur ekki leynt sér síðustu daga
að starfsfólk Borgarspítalans er
stolt af sínum vinnustað. Það lætur
sig miklu varða hvers konar þjón-
usta er veitt sjúklingum og krefst
þess að spítalinn fái að þróast fag-
lega eins og best verður á kosið.
Til að svo megi verða telur starfs-
fóikið nauðsynlegt að fulltrúar þess
hafi áhrif á stjómun spítalans. Þau
rök era valddreifingarsinnum ljós
og vega þungt hjá öllum þeim sem
mejna eitthvað með atvinnulýðræði.
í núverandi stjóm spítalans hafa
2 fulltrúar starfsfólks atkvæðisrétt
ásamt 3 pólitískum fulltrúum. Ef
spítalinn væri seldur ríkinu færi
hann að öllum líkindum undir
stjómamefnd ríkisspítalanna.
Öðravísi varð yfírmaður heilbrigðis-
málar í landinu ekki skilinn á
þriðjudagsfundinum. í þessari
nefnd sitja 5 fulltrúar, kosnir eða
skipaðir pólitískt, ásamt 2 starfs-
mannafulltrúum. Hugsanlega yrði
annar þeirra frá Borgarspítalanum.
Það er því augljóst að áhrif starfs-
fólks minnkuðu við slíka breytingu.
Auk þess væri spítalinn kominn
undir stjómunarapparat sem stýrði
Kristín Á. Ólafsdóttir
„Þessi rök eru sífellt
endurtekin þrátt fyrir
að fjárlagaf rumvarpið
liggi óafgreitt á Al-
þingi. Auðvitað er það
í valdi þingmanna Sjálf-
stæðisflokksins að
koma í veg fyrir að
Borgarspítalinn verði
samþykktur á fjárlög-
um ársins 1987. Ogþað
myndu þeir eflaust
gera ef vilji Davíðs
Oddssonar að halda í
spítalann væri einlæg-
ur.“
geysilega umfangsmikilli starfsemi
og réði yfír 4—5 þúsund starfs-
mönnum. Á Borgarspítalanum
vinna nú um 1.500 manns.
I annan stað leggja starfsmenn
áherslu á sjálfstæði spítalans með
þeim rökum að faglegri þróun sé
nauðsynlegt að hafa ákveðinn sam-
anburð og samkeppni og nefna sem
dæmi ólíkar leiðir sem famar era
í geðlækningum á Borgarspítala og
Landspítala.
Hver vill selja?
í stjóm sjúkrastofnana
Reykjavíkurborgar hefur enginn
óskað eftir að losna við spítalann.
Stjómin hefur einróma mótmælt
fyrirætlunum ríkisvaldsins um að
setja spítalann á fjárlög og skorað
á Alþingismenn og ráðherra að
virða þær röksemdir sem fram er
teflt. Um þetta hefur verið ein-
hugur pólitísku fulltrúanna sem og
starfsmanna.
Borgarstjórinn í Reykjavík hefur
rökstutt vilja sinn til að selja með
því að segja „úr því að spítalinn fer
á Qárlög". Þessi rök era sífellt end-
urtekin þrátt fyrir að ijárlagafram-
varpið liggi óafgreitt á Alþingi.
Auðvitað er það í valdi þingmanna
Sjálfstæðisfiokksins að koma í veg
fyrir að Borgarspítalinn verði sam-
þykktur á fjárlögum ársins 1987.
Og það myndu þeir eflaust gera ef
vilji Davíðs Oddssonar að halda í
spítalann væri einlægur.
Það er hins vegar margt sem
bendir til þess að borgarstjórinn
hafi fyrir löngu einsett sér að losna
við þennan bagga sem honum fínnst
Borgarspítalinn vera. Málflutning-
urinn hefur verið þannig að tor-
tryggni í garð spítalans hefur verið
sáð um nokkurt skeið. Mikið er
rætt um „halla" spítalans og þess
ekki látið getið að rekstrarútkoma
annarra daggjaldasjúkrahúsa hefur
verið alveg sambærileg. Og ég er
sannfærð um að flestir Reykvíking-
ar halda að margumræddur „halli"
spítalans hafi verið greiddur úr
borgarsjóði. Svo er alls ekki. Dag-
gjaldanefnd hefur viðurkennt að
svokallaður halli væri ekkert óeðli-
legur og því greitt hann með ríkisfé
og það með vöxtum.
í aðdraganda þess að hugmyndir
um sölu urðu kunnar, var birt
skýrsla sem tveir embættismenn
borgarinnar gerðu um Borgarspít-
alann. Starfsmenn spítalans hafa
margt við þá skýrslu að athuga og
átelja vinnubrögð við gerð hennar
harðlega. Benda þeir á að rökstuðn-
ing vanti illilega þegar stórt er
fullyrt um veika og óhagkvæma
stjómun eða skort á ábyrgð starfs-
manna. Á áðumefndum fundi með
starfsfólki og pólitíkusum var heil-
brigðisráðherra spurður um hag-
kvæmnisrök fyrir því að færa
spítalann undir stjóm ríkisspítala.
Skýrslan var það sem hún nefndi!
Að bjarga andlitum
Mál þetta forklúðraðist í höndum
forystumanna Sjálfstæðisflokksins.
Ráðabraggið þoldi ekki dagsbirtuna
og harkaleg viðbrögð starfsmanna
og fleiri aðilja skaut flokknum skelk
í bringu. Þegar þetta er skrifað
heyrist manni að það eigi að reyna
að bjarga andlitum borgarstjóra og
ráðherra með því að selja og mynda
svokallaða sjálfseignarstofnun.
Ef af því verður fær borgarstjóri
vilja sínum framgengt að „losa
Reykvíkinga við“ Borgarspítalann.
Ráðherra mun standa í skemmtileg-
um kaupum: Við sem hluthafar í
ríkissjóði endurgreiðum okkur eig-
endum borgarsjóðs það sem við
Reykvíkingar teljumst hafa greitt
umfram það sem okkur bar sam-
kvæmt lögum við uppbyggingu
spítalans! Og líklega á eftir að koma
í ljós að þær 600—700 milljónir sem
nefndar hafa verið sem „kaupverð"
koma aldrei í borgarsjóð, þótt slíkt
hafi verið notað sem gulrót við út-
breiðslu söluhugmyndarinnar.
Eitthvað munu lífeyrissjóðsréttindi
tilvonandi fyrrverandi borgarstarfs-
manna kosta. Talan 300 milljónir
hefur verið nefnd í þvi sambandi.
Og „hallinn" á þessu ári verður
líkiega nærri 250 milljónum. Fylgir
hann ekki með í sölunni?
Það verður erfítt fyrir heilbrigðis-
ráðherra að rökstyðja „kaup“ okkar
eigenda ríkissjóðs á Borgarspítalan-
um ef tilgangurinn er ekki aukin
hagkvæmni. Og ráðherrann er bú-
inn að lýsa þeirri skoðun sinni að
forsendur hagkvæmari rekstrar sé
samhæfing í stjómun spítalanna í
Reykjavík. Hinn lögfróði ráðherra
sagði reyndar á áðurgreindum fundi
að löguin samkvæmt hlyti spftali
í eigu ríkisins að heyra undir stjóm-
amefnd ríkisspítalanna. Það verður
því fróðlegt að heyra hvemig heil-
brigðisráðherra ætlar að vinda
ofanaf þeirri hringavitleysu sem
virðist í uppsiglingu ef miðað er við
fyrri röksemdafærslur. Og hvaða
rökum ætlar hún að beita þegar
sjúkrahús víða um land verða boðin
ríkinu til kaups? Borgarstjóri á svo
eftir að útskýra breytt viðhorf sín
til sjálfseignarstofnana, en á Bylgj-
unni í dag, miðvikudag, hafði hann
heldur litlar mætur á slíkum fyrir-
bæram.
Borgin áfram bakhjarl
Það er vel skiljanlegt að starfs-
fólk Borgarspítalans grípi hug-
myndina um sjálfseignarstofnun
fegins hendi sem valkost við að
samei.iast ríkisspítölum. En ég ótt-
ast að þama sé verið að búa til
stundarfrið í Sjálfstæðisflokknum
og bjarga andlitum forystumanna
sem hlupu á sig og kunna ekki að
viðurkenna mistök. Fyrir bragðið
verði gengið frá málum í miklum
flýti og vanhugsaðar ákvarðanir
teknar sem erfitt verður að leið-
rétta síðar. Hver ætlar t.d. að greiða
væntanlegan „halla“ eftir að spítal-
inn fer á fjárlög? Starfsmennimir?
Eða kannski sjúklingamir?
Fyrst og síðast er þetta spuming
um gæði þeirrar heilbrigðisþjónustu
sem boðið verður upp á og hvort
áfram eigi að þjóna öllum jafnt,
burtséð frá efnahag. Þeir sem kynnt
hafa sér sögu Borgarspítalans sjá
að uppbygging hans hefur notið
góðs af baráttu fulltrúa Reykjavík-
ur fyrir málefnum spítalans. Ég
óttast að með því að missa borgina
sem bakhjarl sé boðið heim hætt-
unni á rýmandi fjárframlögum
ríkisins og þar með iakarí þjónustu.
Og að hægt og rólega verði siglt
inn í miðstýringu þótt það heiti
annað um stundarsakir. Borgar-
stjóri er nauðbeygður til að bera
söluna undir atkvæði í borgarstjóm.
Reykvíkingar munu eiga sinn
spítala, að minnsta kosti fram á
næsta fimmtudag.
Höfundur er borgarfulltrúi Al-
þýðubandalags.
Verðkönmm Neytendafélags Reykjavíkur og nágrennis:
Mikill verðmunur á grænmeti
Niðurstöður úr könnun Neyt-
endafélags Reykjavíkur og
nágrennis, sem gerð var 4. des.
sl.
VERÐKÖNNUN var gerð á veg-
um Neytendafélags Reykjavíkur
og nágTennis og aðildarfélaga
ASÍ og BSRB á ýmsum daglegum
neysluvörum þann 4. des. sl.
Könnunin náði til níu verslana í
pósthverfi 108 í Reykjavik.
Mikill verðmunur er á milli versl-
ana á grænmeti og er hann mestur
á blómkáli, segir í frétt frá Neyt-
endafélaginu. Þar sem það var
dýrast kostaði það 124 krónur kg.,
en var ódýrast á 79 krónur kg. Verð-
munurinn er 45 krónur, eða 57%.
Næst mesti verðmunur var á gulróf-
um. Þær vora dýrastar á 52,50
krónur kg., en ódýrastar á 34,70
kr. Verðmunurinn er 17,80 kr., eða
51,3%.
Ein vörategund sem kanna átti
verð á, Flóra ávaxtasulta, var ekki
til í nokkurri þessara verslana.
*j!L tSS- VERÐCÆSIA VERÐŒSIA.
Vónite;undir Askjör Asgarói 22 Grensáskjör Grensásv.46 Griinsbær Efstal. 26 Hagkaup Skeifunni 15 Hólmgarður Hólmgarði 34 Kjöthöllin Háal.br.58 KRON Tunguvegi 19 SS Háal.br. 68 Stamýri Stanrýri Mismunur hæs Kr: vei; ta og lægsta ðs. %:
HaUudkndúiót nvn 1 ke 268,00 272,00 305.00 250.00 295,00 290,00 249,00 ★ 56,00 22,5
Hnú I Aiegi i lofn.u/nb. 1 kt 1.134,00 1.134,00 1.090,00 1.013,00 * 1.092,50 1.134,00 1.013,00 * 1,134,00 1.128,00 121,00 11,9
Lamojsjcik i lotn.umb. 1 ke 1.231,00 1.231,00 1.231,00 1.231,00 1.231,00 1.231,00 1.231,00 0,00 0,0
MboUur. On 8201 105.70 qR.7n 90.80 ★ 108.90 101.05 106.00 102.70 106.60 18,10 20.0
FBÍbuðmfur Ora 800* 163,50 163,50 148,10 136,20 ★ 163,50 153,30' 159,00 154,10 160,00 27,30 20,0
Rrrfct uld. EnJs 1 kr 252.00 252,00 252,00 252.00 252,00 252,00 252,00 252,00 . 252,00 0,00 0,0
Goárzrur. nyjar 1 ke 90,00 112,50 82,80 87,00 102,00 81,00 * 97,50 84,0.0 31,50 5M
Gabófur nvji/1 ke 49,00 52,50 34,70* 39,00 51,00 46,00 43,00 44,20 48,00 17,80 51,3
BkmkiJ rrvtt 1 kc 118,00 103,35 124,00 79,00 93,00 89,60 4b,0ö 75770
káiurkez. Frón vemul. 1 pk 70,70 69,90 70,65 60,50 ★ 70,70 70,65 69,00 64,00 69,10 10,20 16,9
Hoiukei. Bourtxxi vamllu i pk 57,25 56,00 ★ 57,30 1,30 2,3
Cornfiakes. KeUocs 37S e 112,90 112,20 101,20 96,20 ★ 108,00 111,65 109,00 101,90 16,70 17,4
AIBran. Kellon 131,60 122,50 128,90 107,80 ★ 123,70 122,00 112,00 23,80 22,1
Gmur baunir. Ora 450 e 37.60 38.70 , 37.60 29.90 ★ 37.60 ■34.85 36.50 ~ 32,90 34,00 8.80 29,4
Tómauou. Lbbvs 340 rr 44,90 45,20 40,90 35,90 ★ 45,20 45,15 44,00 39,30 44,50 9,30 25,9
Ámusulta Flora bl 500 e
Bamain. Beeth avettir nut 27.6 e 23,50 21,85 20,40 * 21,65 21,50 21,45 3,10 Í73
Ippþv lofur. Hrtmol rr. 0.51 51,80 51,80 51,00 45,50 51,00 43,50 51,00 46,80 49,60 8,30 19,1
Handuoa. Lux 85 e 19.60 20.50 20-15 17,90 ★ 19.30 19.30 20.00 • 19,90 2,60
ÓHEIMILT er að birta samanlagt verð á
ofangreindum vörutegundum i einstökum
verslunum.
17. VERÐKÖNNUN
B5RB
NRON