Morgunblaðið - 12.12.1986, Qupperneq 64

Morgunblaðið - 12.12.1986, Qupperneq 64
í 64 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. DESEMBER 1986 Að selja — eða selja ekki eftír Kristínu A. Ólafsdóttur Á undanfomum árum hefur fólk í öllum stjómmálaflokkum lýst sig andvígt samþjöppun valds og mið- stýringar í þjóðfélaginu. Vilji til að dreifa valdi og færa ákvarðanatöku til þeirra sem málin varða sérstak- lega hefur orðið almennari. Stöðugt háværari umræða um sjálfstæði sveitarfélaga, 3ja stjómsýslustigið og atvinnulýðræði, er birtingarform þessarar þróunar. „Báknið burt" kvað við sterkum rómi í Sjálfstæðiflokknum fýrir fáum árum. Þetta slagorð átti að sögn flytjenda meðal annars að tjá ofangreinda pólitfk um valddreif- ingu. Ástæðan fyrir því að þessar raddir heyrast ekki að sinni er trú- lega sú að eigendur þeirra sitja nú margir á toppi báknsins ógurlega. „Kerfið kjurrt" er sá nýi söngur sem ýmsir þykjast heyra frá forystukór Sj álfstæðismanna. Nú hef ég í sjálfu sér ekkert á móti breyttri afstöðu Sjálfstæðis- manna til ríkisvaldsins. Sú heift út í allt sem heitir opinber afskifti og rekstur samrýmist auðvitað ekki viðhorfum vinstri manna. Það er Jr ánægjuefni ef fieiri Sjálfstæðis- menn hafa áttað sig á því að ríki og sveitarstjómir eiga að grípa inní frjáls og villt markaðslögmál sem aðeins taka mið af viðskiptum og gróða. Sú forsenda er nauðsynleg velferðarsamfélagi sem ætlar að virða jöfnuð milli manna einhvers. Af hinu hef ég meiri áhyggjur að allt tal Sjálfstæðismanna um valddreifingu og sjálfsstjóm er ómarktækt um ieið og þeir komast í valdastóla. Tilhneigingin að mylja | undir þann sterkasta og safna þráð- um í eina miðstýringarhönd leynir sér ekki. Gerðir og málflutningur borgarstjórans í Reykjavík síðustu fjögur árin hafa oftar en ekki stjómast af viðhorfínu: Borgin — það er ég. Og eftir að hafa hlustað á rök heilbrigðisráðherra fyrir sam- einingu Borgarspítala og ríkisspít- ala efast ég um að sá forystumaður Sjálfstæðisflokksins skilji hvað við er átt þegar talað er um kosti vald- dreifingar og nándar stjómenda og þess sem stjómað er. Borgin — það er ég! í nýjasta dæminu um miðstýring- aráráttu Sjálfstæðisflokksins tala 1 vinnubrögðin skýru máli um blindan valdhroka fólksins á toppi „bákns- ins“. „Borgin óskaði eftir kaupum ríkisins á Borgarspítalanum" upp- lýsti heilbrigðisráðherra á fjölmenn- um fundi sl. þriðjudag, en þar voru ásamt starfsmönnum spítalans þingmenn Reykjavíkur og borgar- fulltrúar. Þetta voru tíðindi fyrir fólkið sem Reykvíkingar kusu til að fara með stjómun borgarinnar. Þetta fólk hefur hvergi lýst yfír vilja sínum til að selja Borgarspítal- ann ef frá er talinn borgarfulltrúi Framsóknarflokksins. (Það var reyndar athyglisvert að Framsókn var eini flokkurinn sem ekki lýsti viðhorfum sínum á þessum fundi, vora þó þama bæði þingmenn og borgarfulltrúar.) Borgarfulltrúar hafa reyndar ekki verið spurðir hvort þeir vilji selja — ekki í borgar- stjóm — ekki í borgarráði — ekki í stjóm spítalans. Og ekki vora það Reykvíkingamir sem starfa á spítalanum sem báðu borgarstjór- ann að selja. Borgarstjórinn í Reykjavík ákvað upp á sitt eindæmi að hefla viðræð- ur við ríkisvaldið um sölu Borg- arspítalans. Ætlunin var að útbúa samning í kyrrþey og stilla síðan starfsfólki og stjómendum spítala og borgar frammi fyrir gerðum hlut. Dæmið gekk ekki upp. Fyrir- ætlunin spurðist út, viðbrögð létu ekki á sér standa og vora þvert á hugmyndir borgarstjóra. Lýðræðið reyndist ógnun við einræðisvinnu- brögð þau sem Davíð Oddsson hefur fram að þessu komist upp með. Lifandi vinnustaðir Borgarstjórinn og aðrir valds- menn Sjálfstæðisflokksins verða að skilja að fyrirtækið Borgarspítali er vinnustaður lifandi fólks. Það sama átti reyndar við um Bæjarút- gerðina sálugu, þótt það gleymdist hér um árið. Þessir staðir væra harla lítils virði ef þetta fólk byggði þá ekki upp, setti ekki metnað sinn í störfin sem þar era unnin. Það hefur ekki leynt sér síðustu daga að starfsfólk Borgarspítalans er stolt af sínum vinnustað. Það lætur sig miklu varða hvers konar þjón- usta er veitt sjúklingum og krefst þess að spítalinn fái að þróast fag- lega eins og best verður á kosið. Til að svo megi verða telur starfs- fóikið nauðsynlegt að fulltrúar þess hafi áhrif á stjómun spítalans. Þau rök era valddreifingarsinnum ljós og vega þungt hjá öllum þeim sem mejna eitthvað með atvinnulýðræði. í núverandi stjóm spítalans hafa 2 fulltrúar starfsfólks atkvæðisrétt ásamt 3 pólitískum fulltrúum. Ef spítalinn væri seldur ríkinu færi hann að öllum líkindum undir stjómamefnd ríkisspítalanna. Öðravísi varð yfírmaður heilbrigðis- málar í landinu ekki skilinn á þriðjudagsfundinum. í þessari nefnd sitja 5 fulltrúar, kosnir eða skipaðir pólitískt, ásamt 2 starfs- mannafulltrúum. Hugsanlega yrði annar þeirra frá Borgarspítalanum. Það er því augljóst að áhrif starfs- fólks minnkuðu við slíka breytingu. Auk þess væri spítalinn kominn undir stjómunarapparat sem stýrði Kristín Á. Ólafsdóttir „Þessi rök eru sífellt endurtekin þrátt fyrir að fjárlagaf rumvarpið liggi óafgreitt á Al- þingi. Auðvitað er það í valdi þingmanna Sjálf- stæðisflokksins að koma í veg fyrir að Borgarspítalinn verði samþykktur á fjárlög- um ársins 1987. Ogþað myndu þeir eflaust gera ef vilji Davíðs Oddssonar að halda í spítalann væri einlæg- ur.“ geysilega umfangsmikilli starfsemi og réði yfír 4—5 þúsund starfs- mönnum. Á Borgarspítalanum vinna nú um 1.500 manns. I annan stað leggja starfsmenn áherslu á sjálfstæði spítalans með þeim rökum að faglegri þróun sé nauðsynlegt að hafa ákveðinn sam- anburð og samkeppni og nefna sem dæmi ólíkar leiðir sem famar era í geðlækningum á Borgarspítala og Landspítala. Hver vill selja? í stjóm sjúkrastofnana Reykjavíkurborgar hefur enginn óskað eftir að losna við spítalann. Stjómin hefur einróma mótmælt fyrirætlunum ríkisvaldsins um að setja spítalann á fjárlög og skorað á Alþingismenn og ráðherra að virða þær röksemdir sem fram er teflt. Um þetta hefur verið ein- hugur pólitísku fulltrúanna sem og starfsmanna. Borgarstjórinn í Reykjavík hefur rökstutt vilja sinn til að selja með því að segja „úr því að spítalinn fer á Qárlög". Þessi rök era sífellt end- urtekin þrátt fyrir að ijárlagafram- varpið liggi óafgreitt á Alþingi. Auðvitað er það í valdi þingmanna Sjálfstæðisfiokksins að koma í veg fyrir að Borgarspítalinn verði sam- þykktur á fjárlögum ársins 1987. Og það myndu þeir eflaust gera ef vilji Davíðs Oddssonar að halda í spítalann væri einlægur. Það er hins vegar margt sem bendir til þess að borgarstjórinn hafi fyrir löngu einsett sér að losna við þennan bagga sem honum fínnst Borgarspítalinn vera. Málflutning- urinn hefur verið þannig að tor- tryggni í garð spítalans hefur verið sáð um nokkurt skeið. Mikið er rætt um „halla" spítalans og þess ekki látið getið að rekstrarútkoma annarra daggjaldasjúkrahúsa hefur verið alveg sambærileg. Og ég er sannfærð um að flestir Reykvíking- ar halda að margumræddur „halli" spítalans hafi verið greiddur úr borgarsjóði. Svo er alls ekki. Dag- gjaldanefnd hefur viðurkennt að svokallaður halli væri ekkert óeðli- legur og því greitt hann með ríkisfé og það með vöxtum. í aðdraganda þess að hugmyndir um sölu urðu kunnar, var birt skýrsla sem tveir embættismenn borgarinnar gerðu um Borgarspít- alann. Starfsmenn spítalans hafa margt við þá skýrslu að athuga og átelja vinnubrögð við gerð hennar harðlega. Benda þeir á að rökstuðn- ing vanti illilega þegar stórt er fullyrt um veika og óhagkvæma stjómun eða skort á ábyrgð starfs- manna. Á áðumefndum fundi með starfsfólki og pólitíkusum var heil- brigðisráðherra spurður um hag- kvæmnisrök fyrir því að færa spítalann undir stjóm ríkisspítala. Skýrslan var það sem hún nefndi! Að bjarga andlitum Mál þetta forklúðraðist í höndum forystumanna Sjálfstæðisflokksins. Ráðabraggið þoldi ekki dagsbirtuna og harkaleg viðbrögð starfsmanna og fleiri aðilja skaut flokknum skelk í bringu. Þegar þetta er skrifað heyrist manni að það eigi að reyna að bjarga andlitum borgarstjóra og ráðherra með því að selja og mynda svokallaða sjálfseignarstofnun. Ef af því verður fær borgarstjóri vilja sínum framgengt að „losa Reykvíkinga við“ Borgarspítalann. Ráðherra mun standa í skemmtileg- um kaupum: Við sem hluthafar í ríkissjóði endurgreiðum okkur eig- endum borgarsjóðs það sem við Reykvíkingar teljumst hafa greitt umfram það sem okkur bar sam- kvæmt lögum við uppbyggingu spítalans! Og líklega á eftir að koma í ljós að þær 600—700 milljónir sem nefndar hafa verið sem „kaupverð" koma aldrei í borgarsjóð, þótt slíkt hafi verið notað sem gulrót við út- breiðslu söluhugmyndarinnar. Eitthvað munu lífeyrissjóðsréttindi tilvonandi fyrrverandi borgarstarfs- manna kosta. Talan 300 milljónir hefur verið nefnd í þvi sambandi. Og „hallinn" á þessu ári verður líkiega nærri 250 milljónum. Fylgir hann ekki með í sölunni? Það verður erfítt fyrir heilbrigðis- ráðherra að rökstyðja „kaup“ okkar eigenda ríkissjóðs á Borgarspítalan- um ef tilgangurinn er ekki aukin hagkvæmni. Og ráðherrann er bú- inn að lýsa þeirri skoðun sinni að forsendur hagkvæmari rekstrar sé samhæfing í stjómun spítalanna í Reykjavík. Hinn lögfróði ráðherra sagði reyndar á áðurgreindum fundi að löguin samkvæmt hlyti spftali í eigu ríkisins að heyra undir stjóm- amefnd ríkisspítalanna. Það verður því fróðlegt að heyra hvemig heil- brigðisráðherra ætlar að vinda ofanaf þeirri hringavitleysu sem virðist í uppsiglingu ef miðað er við fyrri röksemdafærslur. Og hvaða rökum ætlar hún að beita þegar sjúkrahús víða um land verða boðin ríkinu til kaups? Borgarstjóri á svo eftir að útskýra breytt viðhorf sín til sjálfseignarstofnana, en á Bylgj- unni í dag, miðvikudag, hafði hann heldur litlar mætur á slíkum fyrir- bæram. Borgin áfram bakhjarl Það er vel skiljanlegt að starfs- fólk Borgarspítalans grípi hug- myndina um sjálfseignarstofnun fegins hendi sem valkost við að samei.iast ríkisspítölum. En ég ótt- ast að þama sé verið að búa til stundarfrið í Sjálfstæðisflokknum og bjarga andlitum forystumanna sem hlupu á sig og kunna ekki að viðurkenna mistök. Fyrir bragðið verði gengið frá málum í miklum flýti og vanhugsaðar ákvarðanir teknar sem erfitt verður að leið- rétta síðar. Hver ætlar t.d. að greiða væntanlegan „halla“ eftir að spítal- inn fer á fjárlög? Starfsmennimir? Eða kannski sjúklingamir? Fyrst og síðast er þetta spuming um gæði þeirrar heilbrigðisþjónustu sem boðið verður upp á og hvort áfram eigi að þjóna öllum jafnt, burtséð frá efnahag. Þeir sem kynnt hafa sér sögu Borgarspítalans sjá að uppbygging hans hefur notið góðs af baráttu fulltrúa Reykjavík- ur fyrir málefnum spítalans. Ég óttast að með því að missa borgina sem bakhjarl sé boðið heim hætt- unni á rýmandi fjárframlögum ríkisins og þar með iakarí þjónustu. Og að hægt og rólega verði siglt inn í miðstýringu þótt það heiti annað um stundarsakir. Borgar- stjóri er nauðbeygður til að bera söluna undir atkvæði í borgarstjóm. Reykvíkingar munu eiga sinn spítala, að minnsta kosti fram á næsta fimmtudag. Höfundur er borgarfulltrúi Al- þýðubandalags. Verðkönmm Neytendafélags Reykjavíkur og nágrennis: Mikill verðmunur á grænmeti Niðurstöður úr könnun Neyt- endafélags Reykjavíkur og nágrennis, sem gerð var 4. des. sl. VERÐKÖNNUN var gerð á veg- um Neytendafélags Reykjavíkur og nágTennis og aðildarfélaga ASÍ og BSRB á ýmsum daglegum neysluvörum þann 4. des. sl. Könnunin náði til níu verslana í pósthverfi 108 í Reykjavik. Mikill verðmunur er á milli versl- ana á grænmeti og er hann mestur á blómkáli, segir í frétt frá Neyt- endafélaginu. Þar sem það var dýrast kostaði það 124 krónur kg., en var ódýrast á 79 krónur kg. Verð- munurinn er 45 krónur, eða 57%. Næst mesti verðmunur var á gulróf- um. Þær vora dýrastar á 52,50 krónur kg., en ódýrastar á 34,70 kr. Verðmunurinn er 17,80 kr., eða 51,3%. Ein vörategund sem kanna átti verð á, Flóra ávaxtasulta, var ekki til í nokkurri þessara verslana. *j!L tSS- VERÐCÆSIA VERÐŒSIA. Vónite;undir Askjör Asgarói 22 Grensáskjör Grensásv.46 Griinsbær Efstal. 26 Hagkaup Skeifunni 15 Hólmgarður Hólmgarði 34 Kjöthöllin Háal.br.58 KRON Tunguvegi 19 SS Háal.br. 68 Stamýri Stanrýri Mismunur hæs Kr: vei; ta og lægsta ðs. %: HaUudkndúiót nvn 1 ke 268,00 272,00 305.00 250.00 295,00 290,00 249,00 ★ 56,00 22,5 Hnú I Aiegi i lofn.u/nb. 1 kt 1.134,00 1.134,00 1.090,00 1.013,00 * 1.092,50 1.134,00 1.013,00 * 1,134,00 1.128,00 121,00 11,9 Lamojsjcik i lotn.umb. 1 ke 1.231,00 1.231,00 1.231,00 1.231,00 1.231,00 1.231,00 1.231,00 0,00 0,0 MboUur. On 8201 105.70 qR.7n 90.80 ★ 108.90 101.05 106.00 102.70 106.60 18,10 20.0 FBÍbuðmfur Ora 800* 163,50 163,50 148,10 136,20 ★ 163,50 153,30' 159,00 154,10 160,00 27,30 20,0 Rrrfct uld. EnJs 1 kr 252.00 252,00 252,00 252.00 252,00 252,00 252,00 252,00 . 252,00 0,00 0,0 Goárzrur. nyjar 1 ke 90,00 112,50 82,80 87,00 102,00 81,00 * 97,50 84,0.0 31,50 5M Gabófur nvji/1 ke 49,00 52,50 34,70* 39,00 51,00 46,00 43,00 44,20 48,00 17,80 51,3 BkmkiJ rrvtt 1 kc 118,00 103,35 124,00 79,00 93,00 89,60 4b,0ö 75770 káiurkez. Frón vemul. 1 pk 70,70 69,90 70,65 60,50 ★ 70,70 70,65 69,00 64,00 69,10 10,20 16,9 Hoiukei. Bourtxxi vamllu i pk 57,25 56,00 ★ 57,30 1,30 2,3 Cornfiakes. KeUocs 37S e 112,90 112,20 101,20 96,20 ★ 108,00 111,65 109,00 101,90 16,70 17,4 AIBran. Kellon 131,60 122,50 128,90 107,80 ★ 123,70 122,00 112,00 23,80 22,1 Gmur baunir. Ora 450 e 37.60 38.70 , 37.60 29.90 ★ 37.60 ■34.85 36.50 ~ 32,90 34,00 8.80 29,4 Tómauou. Lbbvs 340 rr 44,90 45,20 40,90 35,90 ★ 45,20 45,15 44,00 39,30 44,50 9,30 25,9 Ámusulta Flora bl 500 e Bamain. Beeth avettir nut 27.6 e 23,50 21,85 20,40 * 21,65 21,50 21,45 3,10 Í73 Ippþv lofur. Hrtmol rr. 0.51 51,80 51,80 51,00 45,50 51,00 43,50 51,00 46,80 49,60 8,30 19,1 Handuoa. Lux 85 e 19.60 20.50 20-15 17,90 ★ 19.30 19.30 20.00 • 19,90 2,60 ÓHEIMILT er að birta samanlagt verð á ofangreindum vörutegundum i einstökum verslunum. 17. VERÐKÖNNUN B5RB NRON
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.