Morgunblaðið - 12.12.1986, Síða 70

Morgunblaðið - 12.12.1986, Síða 70
70 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. DESEMBER 1986 P fclk f fréttum Ekki tilað tala um, læknirgóður! Þessum hvutta virðist fullkunnugt um hvað í vændum er og ekki ber hann mikið traust til eiganda síns eða læknis. Enda kannski lítil ástæða til. Seppi verður þó að taka þessu eins og hveiju öðru hundsbiti, því að jafnvel hundar verða að vera bólusettir við þeim sóttum, sem jarð- linga hijá. — Já, þetta er hundalíf! Bob Darch við píanóið. Ragtime Bob á Fógetanum Unnendur góðrar ragtime-tón- listar þurfa ekki að leita langt til þess að geta notið hennar þessa dagana. Hingað til lands er nefni- lega kominn Bob Darch, en hann hefur ekki gert annað en að leika ragtime frá níu ára aldri. Bob er einn þeirra sem er trúr hinu „klassíska" ragtime, sem hæst reis á árunum 1897 til 1920. Þessi tónlistarstefna er samanbland suð- uramerískrar tónlistar, hiilbillys og dreifbýlistónlistar, með vænum slurk af negraáhrifum. Upphafs- maður ragtime er líkast til William Krell, en hann samdi „Mississippi Rag“ í mars, 1897. í september sama ár samdi Tom Turpin „Harlem Rag“, sem var fyrsta ragtime-lagið sem samið var af blámanni. Bróður- sonur hans, Gene Turpin, var einmitt kennari Bobs og kenndi honum alla réttu taktana. Hingað kom Bob eftir að hafa leikið um alla Danmörku og Færeyj- ar að auki, en heáðan heldur hann heim til Bandaríkjanna, þá til Ástr- alíu og loks til Bangkok. Enn er þó nægur tími til stefnu því að Bob mun leika á Fógetanum út desember. Pessi mynd var tekin á jólaskemmtun á Austurvelli fyrir nokkrum árum. ra3!?i[iraiTi?wt>?TT? IAGATHA CHRISTIE Dásamlegur dauoi [TjijjjMlífflQírí^ÆÍtTTattg ítTáfNlny íTT=n7Ti^ tökum allan timann Jól í „Gamla Miðbænum“ Samtökin „Gamli miðbærinn“ hyggjast standa fyrir ýmsum menningarviðburðum og uppákom- um fram að jólum. Hugtakið „Gamli miðbærinn“ er nú reyndar nokkuð teygjanlegt, því að í skilningi sam- takanna nær hann alla leið upp á Hlemm! En vissulega er ekki verra að hann stækki. Þessi dagskrá mun hefjast nú á laugardaginn og heldur áfram dag- inn eftir, sem og um næstu helgi og síðustu daga fyrir jól. Á vegum samtakanna verða margs konar við- burðir, svo sem söngur og hljóð- færasláttur, ljóðalestur, barna- skemmtanir og margt fleira. Verða hér raktir nokkrir dagskrárliðir: Á laugardag mun dagskráin hefj- ast klukkan tvö á Hlemmtorgi, en þá mun homakvintettinn Tónhirð- amir flytja nokkur jólalög með léttri sveiflu. Klukkan þijú munu Eiríkur Hauksson og Helga Möller kynna plötuna „Jól alla daga" við Lands- bankann á Laugavegi 7. — Á sama tíma mun hefjast bókmenntakynn- ing á Gauki á Stöng, þar sem lesið verður úr verkum eftirtaldra höf- unda: Fríðu Á. Sigurðardóttur, Gunnars Gunnlaugssonar, Kristjáns J. Gunnarssonar, Jónasar Svafár, Matthíasar Johannessens, Ólafs Jóhanns Ólafssonar og Sigmars B. Haukssonar. Á sunnudag fram hin hefð- bundna tendrun jólatrésins á Austurvelli, en það afhendir sendi- herra Noregs borgarbúum fyrir hönd Óslóarbúa. Lúðrasveit Reykjavíkur mun Ieika jólalög fyrir afhendinguna og á eftir verður jóla- sveinaskemmtun. Klukkan fimm heQast svo unglingatónleikar á Lækjartorgi og mun hljómsveitin Rauðir Fletir leika lög af nýút- kominni hljómskífu sinni. COSPER — Okkur hefur verið fyrirskipað að fækka starfsfólki.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.