Morgunblaðið - 12.12.1986, Side 71
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. DESEMBER 1986
71
Morgunblaðið/Bjami
Liðsmenn STRAX, misábyrgir á svip. í hálfboga standa: Tómas Tómasson, Þórður Árnason, Val-
geir Guðjónsson og Jakob Magnússon. Fremst eru þau Egill Ólafsson og Ragnhildur
Gisladóttir, en hún höndlar gripinn. Á myndina vantar Ásgeir Óskarsson.
STRAX..
..í dag?
Fyrsta hljóm-
plata STRAXút
komin
Islendingar kannast velflestir við
hljómsveitina Stuðmenn, sem
skemmt hefur landsmönnum með
hljóðfæraslætti og söng mörg und-
anfarin ár.
Hljómsveitin er þó fræg víðar en í
á Islandi og má t.a.m. nefna Kína
í því sambandi, en hljómsveitin fór
einmitt í hljómleikaferð þangað á
árinu. Þar sem að hljómsveitarmeð-
limimir sáu fyrir að nafnið „Stuð-
rnenn" yrði Gulveijum þungt á
tungu tóku þeir það ráð að kalla
útflutningsdeiid sína STRAX, en
það nafn kunnu Kínverjar vel að
meta.
Stuðmenn sáu þó að ekki dygði
að leggja Austurlönd íjær ein að
fótum sér, svo hugað var að tónlist-
arútflutningi til Vesturlanda.
Meðan á Reykjavíkurfundinum stóð
gafst svo gott tækifæri til þess að
koma tónlistinni á framfæri og það
gerði okkar fólk enda. Minnast
menn eflaust lagsins „Moscow,
Moscow", sem Stuðmenn tóku upp
á hljóð- og myndband á mettíma,
og náði talsverðum vinsældum hér.
Á dögunum efndi STRAX til
samkvæmis á Hótel Borg, en þang-
að var boðið nokkrum vinum og
vandamönnum hljómsveitarmeð-
lima, auk blaðamanna. Var boðs-
gestum leyft að taka með sér besta
vin sinn og þeim boðnar piparkökur
og glögg að skandinavískum sið.
Var skrafað og skeggrætt um
ágæti fyrstu plötu STRAX, en til
samkvæmisins var boðað í tilefni
útgáfu hennar. STRAXmönnum er
óskað til hamingju með skífuna,
enda var ekki að heyra á gestum
að þeim líkaði hún verr en piparkök-
umar og jólaglöggið.
★ K51EML *
í kvöld
Frá Hippodrom í Kreml.
Ásta Sigurðardóttir og
Helena Jónsdóttir.
★ ★
Sjóliðar í jólafríi.
Jassballettskóli Báru.
Dansskóli Auðar Haralds.
Strandastrákar í sveppasveiflu.
Maggi frá World Class.
★ ★
Unglingadagskrá á laugardag kl. 16-19.
Kr. 150.-
Þýsk-ísl., — Boss — Stefáns blóm
*KHEML*
stofnað 13. des. 1985 = 1 árs.
Jólaglögg og huggulegheit.
SANNKÖLLUÐ
KRÁARSTEMMNING
Það er óhætt að fullyrða að fjör
verði í kvöld, því hljómsveitin
Kasínó spilar og syngur til kl. 3.00.
OPIÐ: í hádeginu alla daga kl: 11.30 - 15.
á kvöldin sunnudaga - fimmtudaga kl: 18-01.
og á föstudögum og laugardögum kl: 18-03.
Jólapakkakvöld
Jólapakkakvöldin okkar hafa notið mikilla
vinsælda undanfarin ár. Nú endurtökum við þau
laugardagskvöld og sunnudagskvöld.
Matseðill
Reyksoðin rjúpubringa með jólasalati
Nautakjötseyði Julienne með ostastöngum
Heilsteiktar nautalundir með Cognacsósu
skornar á silfurvagni.
Heimalagaður kiwiís í sykurkörfu
Kaffi og konfektkökur
Matseðillinn gildir sem happdrættismiði,
aðalvinningur er flugfarseðill til London
Víkingaskipið er sérstaklega skreytt.
Ingveldur Hjaltested syngur jólasálma við undirleik
Jónínu Gísiadóttur
Sigurður Guðmundsson leikur jólalög á píanó.
Stjórnandi kvöldsins er Hermann Ragnar Stefánsson.
Model samtökin kynna jólafatnað á alla
fjölskylduna, börn, unglinga og fullorðna.
Borðapantanir í síma 22322—22321 Verið velkomin
HQTEL LOFTLEIÐIR
FLUCLEIDA
' HÓTEL