Morgunblaðið - 12.12.1986, Side 79
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. DESEMBER 1986
79
Morgunblaðið/Árni Sæberg
• FH-ingar skora hór eitt marka sinna í gær en þær urðu að (áta í minni pokann fyrir Víkingum.
Víkingar mörðu sigur gegn
KA í eldfjörugum leik
VIKINGAR komust til Akureyrar í
gær til að leika við KAí 1. deild-
inni í handknattleik. Þeir lentu í
hinu mesta basli með heima-
menn en tókst þó að vinna 24:23
eftir að hafa verið tveimur mörk-
um, 9:11, undir í leikhléi. Leikur-
inn var spennandi og fjörugur
allan tímann og báðum liðum til
sóma að fara með slíkan leik með
sér í jólafríið sem nú er hafið hjá
1. deildinni.
Heimamenn hófu leikinn af mikl-
um krafti, nokkuð sem þeir hafa
ekki gert til þessa, og höfðu frum-
kvæðið lengst af í fyrri hálfleik.
Víkingar náðu að jafna 11:11 í
síðari hálfleik og aftur þegar stað-
an var 13:13.
Þeir skoruðu fjögur mörk í röð
án þess að KA tækist að skora
og breyttu stöðunni úr 13:12 í
13:16 og var þetta tvímælalaust
vendipunkturinn í leiknum. Eftir
þetta höfðu þeir forystu þó svo
hún yrði aldrei mjög mikil.
Er ein mínúta var til leiksloka
skoraði Guðmundur Guðmunds-
son úr KA 23. mark liðsins og
staðan þá orðin 23:24. Víkingar
hófu sókn en er 30 sekúndur voru
eftir var dæmdur ruðningur á þá.
KA menn brunuðu upp en gættu
þess ekki að kapp er best með
forsjá og glötuðu knettinum mjög
klaufalega. Víkingar héldu boltan-
um þar til 6 sekúndur voru eftir
en þá var það orðið of seint fyrir
KA til að jafna metin.
Guðmundur Guðmundsson hjá
Víkingum lék stórt hlutverk í gær
og Siggeir átti góðan leik. Finnur
kom í markið fyrir Kristján í síðari
hálfleik og stóð sig vel.
Hjá KA var Jón bestur og þeir
Friðjón og Eggert stóðu sig einnig
vel. Sá síðarnefndi er hreint ótrú-
lega öruggur í vítaköstum.
Mörk KA: Jón Kristjánsson 7, Eggert
Tryggvason 6/3, Friðjón Jónsson 5, Guð-
mundur Guðmundsson 3, Pótur Bjarna-
son 1, Hafþór Heimisson 1.
Mörk VlKINGS: Guðmundur Guðmunds-
son 6, Siggeir Magnússon 5, Karl Þráins-
son 5/2, Bjarki Sigurösson 3, Árni
Friðieifsson 3, Hilmar Sigurgislason 1,
Einar Jóhannesson 1.
AS/SUS
Víkingur hafði
betur íhörkuleik
VÍKINGUR mjakaði sér upp um
tvö sæti í 1. deild kvenna í hand-
knattleik i gærkvöldi er stúikurn-
ar unnu FH-inga í Höllinni með
19 mörkum gegn 17 í hörku-
spennandi leik þar sem hart var
barist. Staðan f leikhléi var 9:10
FH-ingum í vil og úrslitin réðust
ekki fyrr en á síðustu mínútunum.
Hafnfirðingar hófu leikinn vel og
komust í 3:1 en Víkingar náðu að
jafna og síðan var jafnt á flestum
tölum en FH-ingar þó alltaf fyrri
til að skora.
í síðari hálfleik náðu Víkingar
forystunni er staðan var 14:13 en
FH náði að jafna aftur áður en
Víkingur komst í 17:15. Nú tók FH
að leika maður á mann og tókst
að minnka muninn í 18:17 er 32
Staðan
Vikingur
FH
UBK
Valur
KA
Fram
KR
Stjarnan
Haukar
Ármann
9 7 1 1 201:191 15
9 6 1 2 228:196 13
8 6 1 1 179:168 13
9 5 1 3 229:199 11
9 4 1 4 199:210 9
8 4 0 4 188:172 8
9 4 0 5 179:202 8
7 3 1 3 176:176 7
9 2 0 7 188:222 4
9 0 0 9 179:220 0
Markahæstir eru:
Sigurjón Sigurðsson, Haukum 56
Karl Þráinsson, Víkingi 50
JúlíusJónasson, Val 46
KonráðOlavsson, KR 46
Hannes Leifsson, Stjörnunni 43
sekúndur voru eftir en þá náðu
Víkingar boltanum, brunuðu upp,
og skoruðu síðasta markið.
Baráttan er hörð í 1. deild
kvenna og greinilegt að allt getur
gerst þar til flautað verður til leiks-
loka í síðasta leiknum i vor.
Varnarleikur FH var ekki nógu
góður í leiknum í gær og varð það
,ásamt mikilli baráttu allra stúlkn-
anna í Víkingi, til þess að þær
náðu ekki að krækja sér í tvö dýr-
mæt stig í toppbaráttunni.
Mörk VÍKINGS: Jóna H. Bjarnadóttir 4_
Valdis Birgisdóttir 4, Eiríka Ásgrímsdóttir
4/1, Svava Baldvinsdóttir 3, Sigurrós
Björnsdóttir 2, Inga L. Þórisdóttir 2/1.
Mörk FH: Sigurborg Eyjólfsdóttir 5,
Kristin Pétursdóttir 4, Eva Baldursdóttir,
2, Inga Einarsdóttir 2, María Hreinsdóttir
2, Rut Baldursdóttir 2/1. —AS/KF
Staðan
Fram
FH
Stjarnan
KR
Víkingur
Valur
ÍBV
Ármann
8 7 0 1 172:143 12
7 5 0 2 145:107 10
8 5 0 3 187:141 10
8 4 1 3 147:148 9
8 4 0 4 153:141 8
8 3 1 4 162:144 7
6 1 0 5 77:130 2
7 0 0 7 103:193 0
Markahæstir eru:
Guöríöur Guðjónsdóttir, Fram 62
Erla Rafnsdóttir, Stjörnunni 57
MargrótTheodórsdóttir, Stjörnunni 55
Sigurbjörg Sigþórsdóttir, KR 50
Katrín Friðriksen, Val 41
FH-ingar vinna enn
FH-INGAR halda öðru sætinu
fram á næsta ár því þeir unnu
Framara í gærkvöldi í 1. deildinni
í handknattleik með 27 mörkum
gegn 25 er liðin léku í Laugardals-
höllinni. Staðan f leikhléi var
14:11 fyrir Fram.
FH-ingar minnkuðu muninn í
17:16 í síðari hálfleik en Fram náði
síðan fimm marka forystu 23:18
en það dugði þeim ekki. Þeir
brenndu af vítakasti og nokkur
dauðafæri fóru forgörðum.
Magnús Árnason stóð sig mjög
vel í marki FH og varði 17 skot í
leiknum.
Héðinn Gilsson var atkvæða-
mikill þó hann yrði að fara útaf á
fyrstu mínútunum og kæmi ekki
inná aftur fyrr en langt var liðið á
fyrri hálfleikinn og Gunnar Bein-
teinsson stóð sig mjög vel í síöari
hálfleik.
Mörk FRAM: Birgir Sigurðsson 8, Egill
Jóhannesson 6/2, Agnar Sigurðsson 5/2,
Hermann Björnsson 2, Per Skaarup 2, Jóm|
Árni Rúnarsson 1, Ragnar Hilmarsson 1.
Mörk FH: Héðinn Gilsson 6, Þorgils Óttar
Mathiesen 5, Óskar Ármannsson 5/2,
Gunnar Beinteinsson 4, Guðjón Árnason
3, Pétur Petersen 2, Stefán Kristjánsson
1, Óskar Helgason 1.
-sus
Ármenningar áttu ekki
möguleika gegn Blikum
sima
ÞJÓNUSTA
GREIÐ SLUKORTAÞ J ÓNUSTA
ÍSLENSKRA GETRAUNA
Hér eru leikirnir!
ÞAÐ er ekki hægt að segja að
handknattleikur sá er sást á fjöl-
um Laugardalshallar er Ármann
og Breiðablik léku í 1. deildinni í
gærkvöldi hafl verið glæsilegur.
Bæði liðin voru slök þó svo Blik-
arnir hafi verið miklu betri enda
unnu þeir með 25 mörkum gegn
17 eftir að hafa haft 10:8 yfir í
leikhléi.
Létt hjá Haukum
FRAM er eina liðið f úrvalsdeild-
inni í körfuknattleik sem ekki
hefur unnið leik til þessa. Haukar
áttu ekki í erfiðleikum með þá á
heimavelli sfnum f Hafnarfirði í
gærkvöldi. Lokatölur urðu, 77:55,
eftir að staðan f hálfleik hafði
verið 34:22 fyrir Hauka.
Leikurinn var sá lakasti sem
undirritaður hefur séð í úrvals-
deildinni í vetur. Bæði liðin léku
illa og þá sérstaklega Fram, þar
stóö varla steinn yfir steini. Haukar
skoruðu fyrstu 9 stigin í leiknum
og komust Framarar ekki á blað
fyrr en eftir 4 mínútur. Minnsti
munurinn í fyrri hálfleik var 4 stig,
18:14.
Seinni hálfleikur var mun líflegri
en sá fyrri sérstaklega hjá Haukum
sem náðu fljótlega 20 stiga for-
skoti, 50:30, þegar sex mínútur
voru liðnar og héldu þeim mun út
leikinn.
Munurinn á þessum liðum var
full mikill svo leikurinn yrði
skemmtilegur og erfitt fyrir leik-
menn Hauka að einbeita sér gegn
liði eins og Fram. Barátta var lítil
sem engin og gerðu þeir aðeins
það sem þurfti til að vinna ieikinn.
Henning Henningsson var sá
eini í liði Hauka sem sýndi sitt rétta
andlit. Aðrir voru slakir. Hjá Fram
var Jóhannes Bjarnason eini Ijósi
punkturinn. Símon stóð einnig fyr-
ir sínu. Þorvaldur, sem hefur verið
stoö þeirra og stytta, lék nær allan
leikinn og skoraði ekki nema eina
körfu úr fjölmörgum tilraunum og
munar um minna.
Dómarar voru Bergur Steingrí-
msson og Jón Bender og dæmdu
þeir þokkalega.
Stlg HAUKA:Hennig Hennigsson 25,
Pálmar Sigurösson 15, Ólafur Rafnsson
15, (var Ásgrímsson 10, Bogi Hjálmtýsson
8 og Eyþór Árnason 4.
Stig FRAM: Símon Ólafsson 20, Johannes
Bjarnason 16, Ómar Þráinsson 6, Jón
Julíusson 5, Björn Magnússon 4 og Auð-
unn Elíasson og Þorvaldur Geirsson tvö
stig hvor. Vajo
Báðum liðum gekk erfiðlega að
finna réttu leiðina í netið framan
af leiknum og eftir 11 mínútna leik
var staðan 3:1 fyrir Blika. Mestur
varð munurinn 10:5 rétt fyrir leik-
hlé en Ármenningum tókst að
skora þrívegis án þess að UBK
tækist að svara fyrir sig.
Það vakti athygli að í fyrri hálf-
leik skoruðu Ármenningar öll átta
mörk sín úr hraðupphlaupum eða
úr hornunum. Af þeim 17 mörkum
sem þeir gerðu í leiknum skoruðu
þeir aðeins eitt mark með skoti
fyrir utan vörnina hjá Blikum.
Greinilegt að liðið vantar skyttu.
Vörn Blika var að vísu sterk í gær.
Hjá Blikum var Gðmundur
Hrafnkelsson sterkur í markinu og
einnig léku þeir Þórður, Björn og
Kristján vel í sókninni og Elvar stóð
fyrir sínu í vörninni. Hjá Ármanni
var Haukur einna atkvæðamestur
en hann náði að skora fjögur mörk
úr horninu í fyrri háleik en var síðan
færður út í þeim síðari. Einar
Naabye var einnig sterkur.
Mörfc ÁRMANNS: Einar Naabye 5, Hauk-
ur Haraldsson 5, Einar Ólafsson 2, Bragi
Sigurðsson 2, Óskar Ásmundsson 1,
Björgvin Bardal 1, Egill Steinþórsson 1.
Mörk UBK: Þórður Davíðsson 5, Björn
Jónsson 5/1, Aðalsteinn Jónsson 4, Kristj-
án Halldórsson 4, Svafar Magnússon 2,
Sigþór Jóhannesson 2, Elvar Erlingsson
2, Óddur Ingason 1.
-sus
1 * 2
1 Aston vma - Nian. uniteo 2 Luton - Everton 3 Man. City - West Ham
4 Newcastle - NOtt m FörðSl 5 Norwich - Arsenal 6 Q.P.R. - Charlton
7 Soutnampion - Covemry 8 Tottenham - Watford 9 Wirhbledon - Sheffield Wed.
10 BlacKburn - uianam 11 Plymouth - Derby 12 Sheffield Utd. - Portsmouth
Hringdu strax!
688-322
föstudaga kl. 9.00-17.00 laugardaga kl. 9.00-13.30
Aðalfundur
Aðalfundur knattspyrnudeildar Fram verður
haldinn í Framheimilinu við Safamýri föstu-
daginn 19. desember kl. 20.30.
Dagskrá samkvæmt fólagslögum.
Framarar! Fjölmennum á fundinn!
Knattspyrnudeild Fram