Morgunblaðið - 21.12.1986, Blaðsíða 40
40
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. DESEMBER 1986
Blómlegt
barnastarf í
Bústaðakirkju
Allt frá því í haust hafa
safnast yfir 100 börn á
hverjum sunnudagsmorgni
í barnaguðsþjónustu í Bú-
staðakirkju í Reykjavík.
Þar sem ég hafði haft
spurnir af þessu vinsæla
starfi í söfnuðinum stillti
ég vekjaraklukkuna
óvenju snemma síðastlið-
inn sunnudag til þess að
forvitnast um hvað þar
færi fram. Á leið í kirkju
sá ég böm drífa að úr öll-
um hliðargötum Smáíbúða-
hverfisins og margir
fullorðnir teymdu böm sín
þangað á snjóþotum.
Fyrir mér var þetta
óvenjuleg sjón. Starfið inn-
an kirkjudyra hlaut að
vera spennandi.
Snjóþotunum var stillt upp
við kirkjuvegginn, snjórinn
dustaður af yfírhöfnum og
skónum raðað snyrtilega við
innganginn. Börnin drógu gul-
ar vinnubækur upp úr pússi
sínu og gengu rakleitt að tveim-
ur samviskusömum stúlkum
sem sátu við borð og stimpluðu
stjömu í bækurnar en það var
staðfesting á mætingu. Um leið
fengu bömin nýjar myndir í
vinnubækumar. A hverri mynd
sem bömin áttu að lita sjálf var
valinn texti úr Biblíunni. A
einni mynd dagsins stóð: „Nafn
hans skal kallað ... friðar-
höfðingi." (Jes. 9:6).
Þegar allir höfðu fengið sér
sæti hófst fundurinn. Kennar-
amir Elín Anna Antonsdóttir
og Guðrún Ebba Ólafsdóttir
stjómuðu af mikilli röggsemi.
Kveikt var á þriðja aðventu-
kertinu. Það var mikið sungið
og þó greinilegt væri að það
gátu ekki allir lesið textann úr
söngbókinni kom það ekki að
sök því raulað var með.
Elín Anna bað nú öll bömin
að lyfta upp vinnublöðunum frá
síðasta sunndegi til þess að
skoða hversu fagurlega þau
væm unnin. Síðan talaði hún
um þann boðskap sem settur
var fram á nýju vinnublöðun-
um. Svo áhugavert þótti
bömunum efnið að þótt hljóð-
neminn hefði ekki verið notaður
hefði maður mátt heyra saum-
nál detta.
Guðrún Ebba kallaði síðan
alla upp sem höfðu átt afmæli
í vikunni og gaf þeim myndir.
Bömin vom mjög virk í guðs-
þjónustunni. Þau vom beðin um
að teikna eða lita Biblíumyndir
sem hengjast ættu upp í kirkj-
unni næsta sunnudag því
auglýst var að mikil Qölskyldu-
hátíð yrði í kirkjunni sunnudag-
BLESSUÐJÓL
Blessuð jól,
bjartari sól
leiftra frá Ijósanna stól,
hlusta nú, jörð, á hin himnesku Ijóð,
helgandi, blessandi synduga þjóð.
Guði sé dásemd og dýrð!
Hægt og hljótt,
heilaga nótt,
faðmar þú frelsandi drótt,
plantar Guðs lífsfræ um hávetrarhjarn,
himnesku smáljósi gleður hvert barn.
Friður um frelsandi jörð!
Jesúbarn!
Betlehemsrös,
dýrð sé þér, þjóðanna Ijós!
Ljúfustum bamsfaðmi, lausnari kær,
lykur þú jörðina, fagur og skær.
Guði sé vegsemd og vald!
(Matthías Jochumsson, 1876)
inn 21. desember kl. 14.00, þar
sem kór úr Breiðagerðisskóla
myndi syngja og böm úr Foss-
vogsskóla myndu sýna helgi-
leik. Þá gæfíst kirkjugestum
kostur á að skoða myndimar
þeirra.
Þegar þessari bamaguðs-
þjónustu var lokið héldu bömin
hvert til síns heima með til-
hlökkunarglampa jólanna í
„Leyfið börnunum að koma til mín og bannið þeim það ekki þvi slíkra er guðsríkið."
Kennararnir Guðrún Ebba Ólafsdóttir og Elín Anna Antonsdóttir
sjá um barnastarfið í Bústaðakirkju. Börnin sýna stolt vinnubæk-
ur sínar.
Allir fengu mætingarstjörnu í vinnubækumar og ný verkefnablöð
til úrlausnar.
augunum. Bráðum kæmu þau
blessuð jólin. En eftir sat ég.
Hvemig stendur á því að full-
orðin manneskja getur fengið
meira út úr einfaldri bama-
guðsþjónustu en á lestri mikilla,
háfleygra og vel gerðra guð-
fræðidoðranta?
Það að horfa á bamaskara
treysta og trúa hveiju orði sem
við hann er sagt gerir það að
verkum að maður hrindir frá
sér öllum efasemdum hinna
fullorðnu.
Eftir situr bamatrúin í stór-
kostlegum einfaldleik sínum. í
veröld þar sem allt snýst um
hverfulleika, stress og spennu
manna í millum er gott til þess
að vita að boðskapur Biblíunnar
stendur á traustum og óbifan-
legum grunni — ávallt óbreytt-
ur. „Því að svo elskaði Guð
heiminn að hann gaf son sinn
eingetinn til þess að hver sem
á hann trúir glatist ekki, heldur
hafí eilíft líf.“ (Jóh. 3:16).
Að hugsa sér hvað jólin em
nauðsynleg. Þau em eins og
tæki sem hristir upp í okkur
annað slagið. Hversu kaldrana-
leg sem við emm dags daglega
minna þau okkur á að til er
eitthvað sem heitir kærleiki og
friður og von mannkyns. Jesús
Kristur er í gær og í dag sá
sami og um aldir. Guð gefí
okkur öllum gleðileg jól.
A DROITINS i»n
Umsjón:
Séra Auður Eir Vilhjálmsdóttir
Ásdís Emilsdóttir
Séra Svavar A. Jónsson
„Hver sem ekki..
tekur á móti
guðsriki eins og
barn mun alls eigi
inn í það komast.“