Morgunblaðið - 21.12.1986, Síða 42
42
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. DESEMBER 1986
Líkan af K-byggingu LandspStala.
Stöður fleiri en starfsfólk:
Vantar 200 hjúkrunarfræð-
inga og öllu fleiri sjúkraliða
ÞINGBRÉF
eftir STEFÁN FRIÐBJARNARSON
Þjónustustorf hverskonar
spanna hærra og hærra hlutfall
vinnandi fólks, hér sem annars-
staðar. Hlutfall þeirra er vinna
þjónustustörf af vinnandi fslend-
ingum óx um 134% á rúmlega
hálfum öðrum áratug
(1963-1979); úr 10.000 mannár-
um í 23.500 eða úr 14,8% f 23,3%
mannaflans - og hefur haldið
áfram að vaxa síðan. Mest var
aukningin á fyrrgreindu árabili f
heilbrigðisþjónustunni (1963:
1.656 mannár - 1979: 5.757
mannár) eða rúmlega þreföldun.
Engu að síður vantar til starfa
í dag rúmlega tvö hundruð hjúkr-
unarfræðinga í heimiluð störf
innan heilbrigðiskerfisins og öllu
fleiri sjúkraliða. Þessi vöntun á
starfsfólki í hjúkrunarstörf kom
til umræðu á Alþingi fyrr í þessum
mánuði. Þingbréf fjallar lítillega
um þetta efni í dag.
Vantar fjögnr hundr-
uð starfsmenn
Ragnhildur Helgadóttir, heil-
brigðisráðherra, sat fyrir svörum
um vöntun hjúkrunarfræðinga og
sjúkraliða til starfa í heilbrigðis-
kerfinu, 2. desember sl. Hún sagði
m.a.:
„Lauslega áætlað vantar í þær
stöður sem leyfi er fyrir rúmlega
200 hjúkrunarfræðinga og öllu
fleiri sjúkraliða. Þessar tölur eru
breytilegar frá einum mánuði til
annars".
Ráðherra sagði ennfremur:
Mikil hreyfing er á hjúkrunar-
fræðingum og sjúkraliðum í starfi.
Þeir hverfa frá um tíma, en koma
flestir til starfa á ný. Allmargir
eru við nám um lengri eða
skemmri tíma hér heima eða er-
lendis... “.
Ráðherra sagði að hjúkrunar-
fræðingar í fullu starfi væru um
680 en um 1000 í hlutastarfi.
Hlutfallslega fleiri sjúkraliðar (en
hjúkrunarfræðingar) eru í hluta-
störfum.
Þá kom fram í svari ráðherra
að af 340 heimiluðum störfum
hjúkrunarfræðinga á Landspítala
væru 308 stöður setnar, en rúm-
lega 20 hjúkrunarfræðingar hefðu
náms- eða barneignarleyfi. Fleiri
sjúkraliðar vóru hinsvegar í starfi
en stöðuheimildir segðu til, m.a.
vegna skorts á hjúkrunarfræðing-
um.
Á Borgarspítala vóru 204
stöðuheimildir hjúkrunarfræðinga
en setnar 179 stöður. Stöðuheim-
ildir sjúkraliða vóru 168 en setnar
stöður 134. Á Landakotsspítala
vóru stöðuheirnildir hjúkruna-
rfræðinga 110 en setnar stöður
108 og heimildir sjúkraliða 99 en
setnar stöður 87.
Ástæður vandans
Heilbrigðisráðherra var jafn-
framt spurður um hvaða ástæður
liggi að baki skorti á hjúkrunar-
fræðingum og sjúkraliðum. Hann
svaraði því efnislega til að sam-
virkandi ástæður væru nokkrar.
Ráðherra vitnaði m.a. til könnun-
ar sem Hjúkrunarfélag íslands
stóð að með styrk frá heilbrigðis-
ráðuneyti fyrir þremur árum.
Félag háskólamenntaðra hjúkr-
unarfræðinga hafi og staðið að
könnun á þessu efni á sl. ári, einn-
ig með styrk frá ráðuneytinu.
Báðar þessar kannanir leiddu til
svipaðrar niðurstöðu. Orsakir
vóru m.a. taldar.
1) Lág laun, 2) Óreglulegur
vinnutími, 3) Mikið vinnuálag, 4)
Skortur á barnagæzlu, 5) Vinnan
samræmdist illa heimilisstörfum.
Jafnftarlegar kannanir hafa
ekki fan'ð fram hvað sjúkraliða
varðar, sagði ráðherra, en eftir-
grennslan hefur þó leitt í ljós
svipaðar niðurstöður.
„Eins og mönnum er kunnugt",
sagði ráðherra, „er yfirgnæfandi
meiri hluti hjúkrunarfræðinga og
sjúkraliða konur sem þurfa að sjá
um heimilishald og bamauppeldi.
Margar hverfa frá starfi um
stundarsakir vegna ungra bama,
það er auðvitað einn þáttur skýr-
ingarinnar á því að þær em ekki
allar í starfí samtímis og sízt f
fullu starfi í sínu fagi, en aðrar
minnka við sig starf um skemmri
eða lengri tíma. Það mun vera
rúmlega 1% karlar í stétt hjúkr-
unarfræðinga og svipað hlutfall
meðal sjúkraliða".
Lokun deilda á
sjúkrahúsum
Ráðherra var og spurður um,
hvort þurft hafi að loka deildum
sjúkrahúsa, utan venjulegra sum-
arlokana, vegna skorts á hjúkr-
unarstarfsfólki. Ráðherra sagði
„að sjúkrahúsin í Reykjavík hafi
orðið að loka deildum eða draga
úr starfsemi um stundarsakir, en
minna hafi verið um slíkt úti á
landsbyggðinni. Á Landspitala
hafi endurhæfingardeild með 23
rúmum verið lokuð um nokkurra
mánaða skeið og í Borgarspítala
væm 26 rúm ekki í notkun (hand-
lækningadeild og öldmnardeild).
Þar er engin heil deild lokuð.
Fyrirspyijandi, Kristín Ást-
geirsdóttir (Kl.-Rvk.) sagði m.a.:
„Ég tek innilega undir það með
heilbrigðisráðherra, að ástæðan
fyrir stöðu þessara mála er fyrst
og fremst launamálin, vinnutím-
inn, skortur á bamagæzlu og sú
mikla ábyrgð sem fylgir þessum
störfum...
Ég þekki sjálf dæmi um tiltölu-
lega nýútskrifaðan hjúkmnar-
fræðing sem hætti starfí á
sjúkrahúsi og gerðist flugfreyja
og fékk þrisvar sinnum hærri laun
hjá Flugleiðum en í heilbrigðis-
kerfinu...", sagði þingmaðurinn.
Dregið hefur verið
í happdrætti
skíðadeildar KR.
Þessi númer hiutu vinnina:
1. vinningur 4789
2. vinningur 2634
3. vinningur 1532
4. vinningur 2042
5. vinningur 2289
6. vinningur 3541
7. vinningur 1044
8. vinningur 530
9. vinningur 2240
10. vinningur 2653
H.vinningur 170
12. vinningur 3575
13. vinningur 1536
14. vinningur 4007
15. vinningur 4427
16. vinningur 4899
17. vinningur 4162
18. vinningur 2418
19. vinningur 2779
20. vinningur 1681
21. vinningur 128
22. vinningur 2980
23. vinningur 3406
24. vinningur 5153
25. vinningur 3211
26. vinningur 710
27. vinningur 1306
28. vinningur 5540
29. vinningur 4069
30. vinningur 2601
Færanlega
fatahengið
HENTUG
JÓLAGJÖF
HF. OFNASMIÐJAN
HÁTEIGSVEGI 7. SÍMI: 21220.