Morgunblaðið - 21.12.1986, Side 51
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. DESEMBER 1986
51
lega hafa þessi fyrirtækið og opnað
samsetningaverksmiðju fyrir dísel-
vélar, og stefnir í að þær verði
85-90% tyrknesk heimasmíði".
- Er það rétt að þið framleiðið
ykkar vín sjálfir og seljið einnig til
Frakklands, sem þekkt er fyrir sín
góðu vín?
„Já, vín hefur verið framleitt í
Tyrklandi í margar aldir. Eins og
þú veist var vín framleitt einna fyrst
í Litlu Asíu, sem nú er Tyrkland,
og hefur þessi heimshluti verið
vagga vínmenningar frá alda öðli.
Það er og rétt að við seljum vín til
Frakklands, svo mikið reyndar að
það er flutt þangað í tankskipum.
En tyrknesk vín eru sennilega lítt
þekkt á íslandi. Ég sendi sýnishorn,
nokkrar flöskur, til Afengisverzlun-
arinnar árið 1971 en fékk aldrei
nein viðbrögð þaðan“.
- Víkjum talinu að stjórnmálum.
Ymislegt hefur verið að gerast á
þeim vettvangi undanfarin ár í
Tyrklandi?
„Starfsemi stjómmálaflokka hef-
ur verið gefín ftjáls, tæpum sex
ámm eftir byltingu hersins 1980.
Ollum er heimilt að stofna stjóm-
málaflokk, nema kommúnistum.
Margir stjómmálaflokkar em nú
starfandi en segja má að þjóðin
hneigist til hægri. Fyrstu opnu
kosningamar frá byltingu hersins
vom sveitarstjómarkosningarnar í
marz sl. Sex flokkar buðu fram en
halda mætti því fram að úrslitin
sýndu að' Tyrkir séu hlynntastir
tveggja flokka kerfí. Flokkur Turg-
uts Ozal, forsætisráðherra, vann
yfírburðasigur. Hlaut hann meiri-
hluta í 52 af 67 stærstu borgum
landsins og í 785 borgum af 1430.
Hefur líklega enginn forsætisráð-
herra síðustu 20 árin staðið jafn
sterkt og Ozal.
Styrk sinn mun forsætisráðherr-
ann væntanlega nota til að hrinda
efnahagsáætlun sinni í fram-
kvæmd. Hefur hann fengið þingið
til að samþykkja ýms lög sem ætlað
er m. a. að draga úr skrifræðinu
og gera báknið skilvirkara, Iaða
erlent fjármagn að og stuðla að því
að efnahagslíf landsins byggi á lög-
málum hins frjálsa markaðskerfís.
I hinu síðasttalda felst mikil breyt-
ing því Tyrkir hafa búið við ríkisrek-
inn iðnað og vemdartolla í meira
en hálfa öld. Þá hefur Ozal aflétt
hömlum, sem var á innflutningi,
látið gengi tyrknesku lírannar fljóta
og aflað ríkissjóði tekna með sölu
hlutabréfa í ríkisfyrirtækjum,"
sagði Hamamcioglu.
Hamamcioglu sagði mikla grósku
í atvinnu- og efnahagslífí í Tyrk-
landi og tók m.a. sem dæmi
byggingu gríðarstórrar stíflu, sem
verið væri að reisa í hinu sögu-
fræga fljóti Efrat og safnám í
austurhluta landsins. Fullgerð yrði
hún fímmta stærsta stífla heimsins.
Hún væri þó aðeins ein margra
stíflna, sem væri verið að reisa í
suðausturhluta landsins, þar sem
unnið væri að því að beizla fallvötn-
in til orkuframleiðslu, áveitu og
flóðvama. Umfangsmikilli áætlun
þar að lútandi hefði nýlega verið
hrint í framkvæmd, en Tyrkir nýttu
nú aðeins um 30% þeirrar orku og
þeirra áveitumöguleika, sem í fall-
vötnum þeirra feldust. Ætlunin
væri að ljúka framkvæmdum á
næstu fjómmtil fimm ámm. Þegar
því væri lokið yrði „Mesópótamía
endurreist" á svæðinu.
Þá sagði Hamamcioglu að ferða-
mönnum til Tyrklands hefði fjölgað
ár frá ári. Fjöldi nýrra hótela væri
' byggingu og ættu bandarískar
hótelkeðjur aðild að smíði margra
þeirra, einkum í höfuðborginni og
á strandlengjunni beggja vegna
Hellusunds. Tekjur af ferðamönn-
um hefðu numið 1,2 milljarði
Bandaríkjadollara, eða sem svaraði
50 milljörðum ísl. kr., í fyrra. Gert
hefði verið ráð fyrir því að þær
yrðu tveir milljarðar dollara í ár,
en loftárás Bandaríkjamanna á
Líbýu og slysið í sovézka kjamorku-
verinu í Chemobyl hefðu gert að
verkum að vemlega færri ferða-
menn hefðu lagt leið sína til
Tyrklands í ár. Engu að síður verða
tekjurnar af þeim ekki undir millj-
arði dollara á þessu ári.
Auglýsendur
Auglýsingar í
Morgunblaðið
sunnudaginn 28.
desember þurfa
að berast aug-
lýsingadeild eigi
síðaren kl. 2
þriðjudaginn 23.
desember.
JttpriSPitttMstM^
athugið
Ertu búin að kaupa miða
í happdrætti SÁÁ?
Blessaður vertu ekki að
því!
Ég er búinn að borga minn
miða og staðan er víst
þannig núna að einn af
hverjum hundrað miðum
fær vinning.
Nei, happdrættið fær
ekkert. Bara þeir sem
kaupa miða.
Nei, alls engan. Þeir
draga út alla vinninga úr
greiddum miðum
eingöngu.
Til hádegis á aðfangadag.
Svo draga þau Hófí og Jón
Páll í beinni útsendingu á
rás 2 kl. 1 til 4 eftir hádegi
á gamlársdag.
Nei.
Nú?
En hirðir happdrættið þá
ekki afganginn af
vinningunum?
Fær SÁÁ þá engan
vinning?
Það er nú mikil áhætta
hjá þeim. Hve lengi er
hægt að borga?
Jæja, ég ætla að athuga
þetta. Hvenær lokar
bankinn í dag?