Morgunblaðið - 31.12.1986, Page 19

Morgunblaðið - 31.12.1986, Page 19
Ingi Tryggvason Ingi Tryggvason formaður stétta- sambands bænda Veðurfar var landbúnaðinum hagstætt á árinu, góðviðra- samt og sæmilega gott öllum jarðargróða. Kalskemmdir voru iitl- ar, grasspretta í tæpu meðallagi og nýting heyja víðast góð. Uppskera garðávaxta var í góðu meðallagi og tiltölulega jöfn um landið. Framleiðsla Enn eru ekki fyrir hendi lokatöl- ur um framleiðslu ársins. Tölur geta því eitthvað breyst frá því sem hér verður sagt, þegar allar upplýs- ingar eru tiltækar. Samkvæmt framleiðslulögunum frá 1985 skal ákveða fyrirfram það magn afurða, sem hveijum fram- leiðenda er ábyrgt fullt verð fyrir. Skipting fullvirðisréttar í mjólk fyr- ir síðastliðið verðlagsár var þó ekki frágengin fyrr en verðlagsárið var meira en hálfnað. Var því erfitt fyrir einstaka bændur að aðlaga sig þeim fullvirðisrétti sem hveijum og einum var skammtaður. í haust var unnið að skiptingu fullvirðisréttar mjólkur fyrir yfirstandandi verð- lagsár og sauðfjárafurða fyrir verðlagsárið 1987-1988 og hafa til- kynningar þar um verið sendar framleiðendum. Mjólkurframleiðsla var mikil í upphafi ársins, en úr henni dró þegar fullvirðisrétti til mjólkur- framleiðslu hafði verið skipt á milli framleiðenda og einstökum bænd- um varð ljóst, hver réttur þeirra til fulls verðs væri í lítrum talinn. í lok nóvember var framleiðsla mjólkur frá ársbyrjun orðin 101,5 milljónir lítra á móti 107,2 milljónum 1985. Samdráttur milli ára nemur 5,31%. Gera má ráð fyrir að heildarfram- leiðsla ársins verði yfir 109 milljónir lítra á móti 115,9 milljónum lítra 1985. Á verðlagsárinu 1985-1986 var mjólkurframleiðsla tæplega 111,6 milljónir lítra. Á yfirstand- andi verðlagsári er bændum tryggt fullt verð fyrir 106 milljónir lítra af mjólk. Þróun framleiðslunnar fyrstu þijá mánuði þessa verðlags- árs sýnir, að mjólkurframleiðendur eru að aðlaga sig þeim aðstæðum, sem fyrir hendi eru. Framleiðsla kindakjöts á árinu 1986 er nálægt 12.900 tonnum á móti rúmlega 12.200 tonnum 1985. Nokkur fækkun varð á ásettu fé haustið 1985. Meðalfallþungi dilka á þessu hausti var 14,32 kg á móti 14,25 kg haustið 1985. Aukin kindakjötsframleiðsla á þessu hausti stafar því aðallega af fækkun §ár í haust. Enn eru ekki fyrir hendi skýrslur um ásetning nú. Ljóst er þó, að fækkun fjár er veru- leg, tæpast minni en 40 þúsund. Á fyrstu 11 mártuðum ársins jókst framleiðsla svínakjöts um 13,5% miðað við næsta ár á undan, en sala um 13,7%. Hrossakjöts- framleiðsla dróst saman um 8%, en sala innanlands minnkaði um 8,5%, nautakjötsframleiðsa jókst um 13,5%, en sala minnkaði um tæp- lega 1%. Upplýsingar um fram- leiðslu og sölu fuglakjöts eru óljósar, en birgðir'hafa aukist. MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 31. DESEMBER 1986 Eins og öllum er kunnugt fækk- aði ásettu sauðfé um rúm 20% frá hausti 1978 til hausts 1985. Enn varð mikil fækkun sauðfjár nú í haust. Á sama tíma hefur önnur kjötframleiðsla aukist verulega. Um þessi áramót eru sennilega til meiri birgðir kjöts í landinu en nokkru sinni fýrr. Á mörkuðum erlendis þarf að keppa við mjög vemdaða framleiðslu sem þar að auki er yfir- leitt til muna ódýrari en okkar framleiðsla vegna hagstæðari ytri skilyrða. Það er öllum til hagsbóta að komið verði á heildarstjóm inn- lendrar kjötframleiðslu, stjóm sem miði að því að tryggja framleiðend- um framleiðslukostnaðarverð fyrir vöm sína og neytendum góða vöm á kostnaðarverði. Framleiðsl.ustjóm sauðíjárafurða og mjólkur og skipting fullvirðis- réttar milli framleiðenda hafa mjög sett svip á alla umræðu um málefni landbúnaðar á síðustu ámm. Mjög lágt og sífellt lækkandi heimsmarkaðsverð á kjöti, vaxandi birgðir og minnkandi neysla gras- bítakjöts og lágt kornverð og því lágur framleiðslukostnaður „hvíts kjöts“, hefur veruleg áhrif á út- flutningsmöguleika okkar. Sam- dráttur í kindakjötsneyslu innanlands er mikið áfall fyrir íslenska bændur. Margir þeirra em því uggandi um afkomu sína og framtíð byggðarlaga sinna. Það er engum hollt, hvorki framleiðendum né þjóðfélaginu í heild, að fram- leiddar séu vömr sem ekki seljast nema fyrir brot af kostnaðarverði. Með framleiðslulögunum frá 1985 er stefnt að því að hætta útflutn- ingi landbúnaðarvara að mestu leyti. Hins vegar ná þær ráðstafan- ir, sem lögin gera ráð fyrir, aðeins skammt til að tryggja nýja tekjuöfl- un fyrir íbúa dreifbýlis í stað samdráttar í hefðbundnum búgrein- um. Núverandi ástand gerir þær kröfur til stjómvalda að mörkuð sé ákveðin avinnumálastefna fyrir dreifbýlið, stefna sem tryggi byggð í landinu og félagslega og efnahags- lega afkomu þess fólks sem byggir sveitir landsins nú og í framtíðinni. Verðlagsmál Hækkanir til bænda á þeim vör- um sem verðlagsnefnd verðleggur urðu litlar á árinu. Stöðugt verðlag rekstrarvara réði mestu um. Erfítt er um nákvæman samanburð vegna breytinga sem urðu við skiptingu verðlagsgrundvallarins milli bú- greina. Sem dæmi má taka að verð á einum lítra mjólkur hækkaði til bænda á árinu úr kr. 24,63 í kr. 26,05 eða um 5,8% og verð 1. fl. dilkakjöts úr kr. 170,92 í kr. 183,87 hvert kíló eða 7,6%. Verðlagsnefnd búvara ákveður ekki lengur verð þessara vara í heildsölu og smásölu. Á síðastliðnu sumri var verðlags- grundvöllur landbúnaðarvara endurskoðaður og honum skipt í tvo grundvelli, annan fyrir nautgripaaf- haust, eða 11.800 tonn, Ákvörðun þessi var studd samþykki stjórnar Stéttarsambands bænda og stjórnar Landssambands sauðQárbænda. Framleiðnisjóður tók ábyrgð á verði 800 tonna af kindakjöti með leigu eða kaupum á fullvirðisrétti og verðábyrgð á framleiðslu 1987. Með þessum ráðstöfunum er reynt að koma í veg fyrir að fullvirðisréttur einstakra bænda minnki að meðal- tali frá því sem samningar gerðu ráð fyrir að greitt yrði að fullu á þessu hausti Lokaorð Eins og fyrr er nefnt tel ég að lengja þurfi þann frest sem bænd- um er gefinn til að breyta búskapar- háttum, ef ekki á að verða veruleg byggðaröskun í landinu. I fram leiðslulögunum frá 1985 er ákveðið að tilgangur laganna sé „að innlend aðföng nýtist sem mest við fram- leislu búvara bæði með hliðsjón af framleiðsluöryggi og atvinnu“. Samkvæmt þessu ber stjómvöldum að stuðla að því, að afurðir þeirra dýra sem nýta fyrst og fremst inn- lent fóður geti haldið markaðshlut- deild sinni og þurfi ekki að víkja fyrir vörum sem fyrst og fremst nýta erlend aðföng. Frekari sam- dráttur í verðábyrgð á sauðQár- og nautgripaafurðum má alls ekki verða ef ekki eiga að verða stórslys byggðamálum. Skjót og markviss viðbótaraðstoð við nýbúgreinar svo sem loðdýrarækt getur aukið tekjur þeirra sem enn búa í sveitum, tryggt búsetu og aukið þjóðartekjur. En nýjar búgreinar þurfa fjármagn, leiðbeiningar og tíma ef þær eiga að bjarga sveitunum frá félagslegu og fjárhagslegu hmni. Víst er myndarlega unnið að ýmsum þess- um þáttum, en reynsla undanfar- inna missera sýnir þó að betur má ef duga skal. Kristján Ragnarsson Kristján Ragnarsson, formaður Landssam- bands ísl. útvegsmanna Arið, sem er að líða, hefur verið sjávarútveginum hagstætt. Aflabrögð hafa verið góð og em líkur á að heildaraflinn verði um 1640 þús. lestir, eða aðeins minni en á sl. ári, en þá var hann meiri en nokkm sinni fyrr eða 1680 þús. lestir. Áætlað er að aflinn skiptist þann- ig, borinn saman við aflann árið 1985: TAFLA 1 framleiðsluverðmæti sjávarútvegs- ins hafa valdið því að unnt reyndist að ná niður verðbólgunni og auka ráðstöfunartekjur fólks vemlega, þannig að kaupmáttur er nú sá hæsti sem verið hefur. Það virkar svolítið broslegt þegar stjómmálamennimir em að þakka sér, að með stjóm efnahagsmála hafí tekist að ná verðbólgunni niður og aðgerðir þeirra hafi aukið ráð- stöfunartekjur fólks. Með sama hætti er óréttmætt að saka þá um minnkandi ráðstöfunartekjur þegar illa aflast og verðfall verður á afurð- um okkar. Oll okkar velferð er undir sjávarútveginum komin eins og dæmin sanna svo vel nú. Með þessu er ég ekki að gera lítið úr ákvörðun- um stjómmálamanna, sem að sjálfsögðu skipta miklu máli, eins og t.d. varðandi stjómun fiskveiða og fjárfestingu í sjávarútvegi og öðmm atvinnugreinum. Það er alveg ljóst, að við væram ekki að tala um hagnað í sjávarút,- vegi, ef ekki hefði verið um skyn- samlega stjómun á fiskveiðum okkar að ræða undanfarin ár. Með sama hætti má segja að nýting fiskiskipastólsins hafi haft afger- andi áhrif og að ekki hefur verið bætt við flotann. Miðað við allar þær óvinsælu takmarkanir sem em á fiskveiðum okkar virðist fiski- skipaflotinn geta veitt mun meiri afla en okkur leyfist að veiða nú. Mikils er um vert, að sú víðtæka samstaða, sem náðst hefur milli stjórnvalda og sjávarútvegsins um þessi mikilvægu málefni megi hald- ast þegar ný ríkisstjóm tekur við völdum eftir nokkra mánuði. Vemleg aukning var á árinu á sölu á ferskum fiski erlendis og munu alls hafa verið seldar um 90 þús. lestir. Alls fengust um 4,6 milljarðar króna fyrir þennan físk eða um 51 króna fyrir hvert kfló að meðaltali, en árið áður fengust 2,2 milljarðar fyrir 68 þús. lestir eða 32 krónur fyrir hvert kfló. Þessi mikla verðhækkun hefur ýtt mjög undir sölu á ferskum fiski og skap- að aukna samkeppni um fiskinn við fiskvinnsluna. A sama tíma háir vöntun á starfsfólki fiskvinnslunni að vinna meira af fiskinum hér heima. Svo virðist að fiskneysla fari víða vaxandi og skilningur fólks aukist á því að fiskur sé heilsufæða. Á sama tíma fer framboð víða minnk- andi vegna ofveiði á fískistofnum eins og t.d. í Norðursjó. Þetta á að sýna okkur hve nauðsynlegt er, að við gætum hófs í sókn okkar í fiski- stofnana svo við getum á hveijum tíma haft eðlilegt framboð af físki, sem við fáum hátt verð fyrir. urðir og hinn fyrir sauðfjárafurðir. 1986 1985 Samkomulag varð í verðlagsnefnd Þorskur 350.000 323.000 um 12,74% hækkunarþörf sauð- Annar botnfiskur 268.000 262.000 fjárafurða umfram almennar verð- Loðna 900.000 994.000 lagshækkanir. Fulltrúar framleið- Síld 65.000 49.000 enda ákváðu að fresta þessari Rækja 34.000 25.000 hækkun til 1. september 1987. í Hörpudiskur 15.000 17.000 beinum tengslum við þá ákvörðun Humar 2.500 2.400 var samið um óbreytta verðábyrgð Annað 5.500 7.600 fyrir kindakjöt haustið 1987 frá því sem samið var um fyrir síðastliðið 1.640.000 1.680.000 Þrátt fyrir að aflinn sé álíka mikill og árið_ 1985 er hann mun verðmætari. Áætlað er að útflutn- ingsverðmæti sjávarvömfram- leiðslu þessa árs verði 32,3 milljarðar á móti 24,0 milljörðum króna á árinu 1985. Þetta gerist þrátt fyrir að verð á dollara í ísl. krónum er nú 4% lægra en á sama tíma og í fyrra og gengi á sterlings- pundi 3% lægra. Gengi þessara útflutningsmynta ráða mestu um tekjur sjávarútvegsins. Af þessu má sjá að sjávarútveg- urinn hefur tekið á sig allar innlend- ar hækkanir án þess að fá þær bættar með breytingu á gengi og skilað þjóðarbúinu vemlegri verð- mætisaukningu. Áætlað er að sjávarvömframleiðslan hækki í verði um 22,5% milli ára óg aukist að magni um 10%. Þessi auknu Verð á frystum fiski, saltfiski, rækju og hörpudiski hefur hækkað vemlega á árinu og allt bendir til þess að núverandi verð haldist á næsta ári. Hinsvegar hefur verð á mjöli og lýsi lækkað og er nú lægra en um langt skeið. Háir þetta mjög afkomu loðnuveiða og loðnuvinnslu. Mjög mikið hefur verið rætt um aukið frelsi við verðlagningu á fiski til vinnslu, þar sem verð ráðist af framboði og eftirspurn. Tilraun hef- ur verið gerð með fijálsa verðlagn- ingu á loðnu og hafa allir aðilar talið það hafa gefist vel. Það hefur m.a. leitt til þess að engin loðna hefur farið óunnin úr landi, en í _______________________________19 fyrrahaust vom seldar 26 þús. lest- ir erlendis. Vegna hinnar auknu eftirspumar eftir fiski hafa fulltrúar sjómanna og útvegsmanna talið eðliiegt að reyna aukið fijálsræði í ákvörðun fiskverðs m.a. vegna þeirra fisk- markaða sem munu taka til starfa í Reykjavík og Hafnarfírði fyrri hluta árs. Fulltrúar fiskvinnslunnar óttast hinsvegar að fijálst fískverð muni leiða til hærra fískverðs, en hið hefðbundna verðákvörðunar- kerfi muni ákveða. Eg tel að í þessu efni verði að taka nokkra áhættu ef menn í raun meina eitthvað með því að auka fijálsræði á þessu sviði. Lækkun á olíu hefur skipt físk- veiðiflotann miklu máli svo og þjóðarbúið allt. Mikil óvissa ríkir nú um, hvort olíuframleiðsluríkjun- um muni takast að knýja fram verðhækkun og virðist sem þeim hafí þegar tekist það, að hluta til. Tekjur sjómanna hafa verið mjög góðar á árinu og em nú hlutfails- lega hærri en annarra stétta, og hærri en þær hafa verið um fjölda ára þrátt fyrir það virðist þegar þetta er ritað stefna í veraleg átök með verkfallsaðgerðum í upphafi næsta árs. Utvegsmenn fagna því, hve vel hefur tekist að bæta afkomu sjó- manna og vildu fegnir gera enn betur. Þeir bera hinsvegar ábyrgð á greiðslu útgerðarkostnaðar, vaxta og afborgana af Iánum og ætla ekki að víkjast undan þeirri ábyrgð, með kjarasamningum sem gerir þeim ókleift að standa við skuld- bindingar sínar. Horfur em á að aflabrögð verði góð á næsta ári og að við fáum hátt verð fyrir fískafurðir okkar. Það er því illt í efni ef við spillum góðum árangri með innbyrðis átök- um í byijun næsta árs. Jóhann J. Olafsson formaður Verzlunar- ráðs Islands Enn einu sinni stöndum við á tímamótum. Árið 1986 er að hverfa í móðu aldanna, ár sem tal- að er um, að hafí verið hagstætt atvinnuvegum þjóðarinnar. Við þessi áramót getum við glaðst yfír því, að hagstæð ytri skilyrði þjóðar- búsins hafa hjálpað okkur að taka á helstu efnahagsvandamálum, svo sem verðbólgu og erlendri skulda- söfnun, á sama tíma og kaupmáttur hefur almennt vaxið og hinum lægstlaunuðu hafa verið veittar sér- stakar kjarabætur. En við þurfum að hafa andvara á okkur, án þess að ég vilji hvetja til neinnar svartsýni. Sú gæfa sem fylgt hefur okkur á árinu 1986 getur snúist. Verð á olíu kann að hækka á ný og erfiðleikar geta komið upp á fiskmörkuðum. Til langframa getum við alls ekki reitt okkur á, að hagstæð ytri skilyrði verði ávallt til að efla íslenskt at- vinnulíf. Því þarf að vinna áfram að ýmsum framfaramálum. Við þurfum enn að treysta innviðina til að standast þau vetrarveður, sem ávallt geta skollið á. Örar breytingar Á undanförnum ámm hafa orðið snögg umskipti í atvinnulífí okkar. Verðbólgan hefur ekki einungis komist í skaplegt horf, heldur em skilyrði til atvinnurekstrar allt önn- ur en var fyrir nokkmm ámm. Verðmyndun hefur verið gefin fijáls, samkeppni hefur aukist, gjaldeyrisviðskiptin hafa færst í fijálslegra horf og bylting hefur orðið á fjármagnsmarkaði. Þessar breytingar hafa orðið án þess að um þær hafi verið ákaft deilt í þjóð- félaginu. Ef til vill vegna þess, hversu mikfll friður hefur verið um þessar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.