Morgunblaðið - 18.01.1987, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 18. JANÚAR 1987
43
J
Kveðjuorð:
Þórdís Kristjánsdóttir
frá Hermundarfelli
Fædd 23. febrúar 1901
Dáin 14. desember 1986
„Dagar þíns lífs,
þínar sögur,
þín svör,
voru sjóir með hrynjandi trafi."
(E. Ben.)
það var einhvem veginn auðvelt að
fyrirgefa Þórdísi allt, því maður
vissi alltaf, að hjartað var viðkvæmt
og varmt, þó varirnar flytu ekki í
gælum.
Þórdís gat verið fádæma
skemmtileg, þegar hún vildi það við
hafa. Og frásagnargáfan var ein-
stök. Eg minnist margs, sem hún
sagði mér frá uppvaxtarárum
sínum fyrir norðan, og áranna á
Þórshöfn, Akureyri, í Kaupmanna-
höfn og víðar; minnist alls þess svo
lifandi eins og hefði gerst i gær.
Slíka frásagnargáfu eiga aðeins
skáld.
Það var synd, að Þórdís skrifaði
aldrei neitt. Hún hefði áreiðanlega
ekki staðið að baki bróður sínum,
hinum góðkunna og vinsæla rithöf-
undi Einari Kristjánssyni frá
Hermundarfelli.
Nú er Hjúkrunarskólinn ekki
lengur til í sinni gömlu góðu mynd.
Nú er hann orðinn að „hjúkrunar-
braut" innan Háskóla íslands.
Efláust er það allt gott og blessað.
Það hlaut vist að koma að því. Allt
stefnir að fullkomnun og fram-
þróun, og það er vel. En í mínum
huga og margra annarra, skyggir
það ekki á þá veröld, sem var. Og
ég veit, að það eru fleiri en ég, sem
finna mildan yl streyma að hjart-
anu, þegar þeir aka eða ganga
framhjá Hjúkrunarskólanum, og
eins og ósjálfrátt koma þá fram í
hugann orðin „Hús minninganna".
Já, eins og Grímur Thomsen sagði:
„Aldrei deyr, þótt alltjim þrotni,
endurminningin þess sem var.“
Blessuð sé minning Þórdísar
Kristjánsdóttur og allra þeirra
hinna gömlu samstarfsmanna.
Gróa Ásmundsdóttir
Hinn 22. des. sl. var lögð til
hinztu hvílu gömul og góð vinkona
mín, Þórdís Kristjánsdóttir frá Her-
mundarfelli í Þistilfirði.
Um 20 ára skeið vorum við
vinnufélagar á símavaktinni í
Hjúkrunarskólanum. Frá þessum
tíma er margs að minnast og margt
að þakka.
Þótt nú sé nokkuð langt frá því
við Þórdís áttum þar saman starfs-
vettvang, hefur mér við fráfall
hennar orðið tíðhugsað tii þeirra
ára — sérstaklega þeirra löngu
liðnu, fyrir um 25—26 árum. Þá
var mikill „stíll" yfír Hjúkrunar-
skólanum og kennslunni þar. Þá var
skólinn stórt heimili með 120—150
námsmeyjum, og allt í föstum
skorðum, undir styrkri stjóm frk.
Þorbjargar Jónsdóttur skólastjóra.
Sumum þótti aginn kannski stund-
um nokkuð strangur, en ég hefi
heyrt marga nema frá þeim tíma
segja nú: „Þetta voru yndisleg ár.“
Og ég held að það sé satt.
Starfsfólk skólans var þá yfirleitt
miðaldra og fullorðið og samtaka
um að vinna þessu stóra heimili
eftir sinni beztu getu, hver á sínu
sviði. Úr þessum hópi eru nú fímm
horfnir inn í eilífðina.
Eg minnist þeirra geðugu og
góðu saumakvenna Halldóru Karls-
dóttur og Jóhönnu Jónsdóttur. Ég
minnist umsjónarkonunnar Helgu
Jónsdóttur, sem lifði alveg fyrir
skólann; fyrir hreinlætið — og blóm-
in og allt. Ég minnist umsjónar-
mannsins og þúsundþjalasmiðsins
Jóns Sigurðssonar.
Og ég minnist nú síðast Þórdísar
minnar með alla brandarana og
sniðugheitin. Brandaramir gátu nú
stundum verið dálítið beizkir, en
Norðurverk
ræður fram-
kvæmdastjóra
TVEIR nýir framkvæmdastjórar
hafa verið ráðnir hjá Norður-
verki hf. í stað Franz Árnasonar,
sem tekið hefur við sem fram-
kvæmdastjóri Hitaveitu Akur-
eyrar.
Framkvæmdastjóramir em Páll
Sigurjónsson, sem áður var skrif-
stofustjóri fyrirtækisins, og Jónas
Sigurbjörnsson, tæknifræðingur.
Páll kemur til með að annast fjár-
mál og skrifstofurekstur en Jónas
verklegar framkvæmdir.
Að sögn Páls er unnið við að ljúka
framkvæmdum við Leiruveg yfír
Eyjafjörð þessa dagana, ennfremur
við Esso-planið við Hörgárbraut.
Wterkurog
kJ hagkvæmur
auglýsingamiðill!
, IBM SYSTEM/36
Ckkatök á atvinnurekstriniim
Tölva atvinnumanna.
Það er engin tilviljun hve mikið kveður að
IBM SYSTEM/36 í atvinnulífinu. Af fjöl-
mörgum notendum má nefna:
Iðnfyrirtæki, bæjarfélög, kaupfélög,
banka, heildsölur, smásölur, vél-
smiðjur og fyrirtæki i sjávarútvegi.
Alvörutölvuvæðing eða tölvuvæðing
til málamynda?
Ljóst er að í mjög náinni framtíð stóreykst
notkun á tölvum. Þróun hugbúnaðar
verður enn stórkostlegri en áður. Nauðsyn-
legt er að fyrirtæki séu viðbúin fram-
þróuninni og komi sér upp réttum vélbún-
aði í tæka tíð. Allt hálfkák er til óþurftar,
það getur reynst dýrkeypt síðar meir að
sitja uppi með óhentugan vélbúnað.
Að duga í samkeppninni.
Þegar fyrirtækið er vaxið upp úr einmenn-
ingstölvunni er ekki hyggilegt að leita
bráðabirgðalausnar. Sjálfsagt er að hefja
strax alvörutölvuvæðingu með IBM
SYSTEM/36. Þar tekur reynslan af öll
tvímæli.
IBM SYSTEM/36, árgerð 1987, er ný
fjölnotendavél með geysilega öflugum
örgjafa. Hún er tæknilega fullkomin,
auðveld í notkunog hagkvæm í rekstri
enda sérhönnuð til að veita þér óskatök á
atvinnurekstrinum.
Hringdu eða littu inn hjá okkur.
Þú ert aufúsugestur hjá IBM.
mmmmmm mmmmmmm^ tmmmm mmmm
VANDVIRKNI í HVÍVETNA
Skaftahlið 24 -105 Reykjavík • Sími 27700
ARGUS/SlA