Morgunblaðið - 18.01.1987, Side 59
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 18. JANÚAR 1987
59
komnu látleysi sá mjög gáfaði og
gegnheiðarlegi stjómmálamaður
Eysteinn Jónsson. Honum til hægri
handar stóð öðlingurinn Sigtryggur
Klemensson, sem hvarf of ungur
af heimi, og aðallögfræðingur ráðu-
neytisins var Sigurður.
Ef til vill má hugsa sér að fjár-
málaráðuneytið hafi ekki verið
rómantískasti eða skáldlegasti
vinnustaður fyrir skrifstofublók og
undirtyllu eins og mig sem hafði
hugann við allt annað en landsins
gagn og nauðsynjar. Nú fínnst mér
þó að flestir dagar þar hafi borið
ævintýr í fanginu og höfundur
þeirra, aðalleikari og ljósameistari
var sá ótrúlegi lögmaður sem nú
fyllir átta tugi ára.
Ég ætla ekki að rekja ævi Sigurð-
ar eða embættisferil. Meginstað-
reyndir þeirra þátta eru öllum
tilkvæmar í persónusögulegum
uppsláttarritum lögfræðinga og
samtíðarmanna.
Upp af heitri blöndu blóðs úr
Húnaþingi og af Snæfellsnesi reis
hann á Ströndinni bláu þar sem
töfraklerkurinn séra Árni Þórarins-
son hélt um sprotann.
Ekki veit ég hót um ættir Sigurð-
ar, en hugsa mér móður hans
gædda skáldlegum gáfum og róm-
antískri sýn og föðurinn lífsþorsta
og jarðneskum krafti. Alltjent er
sonurinn síglóandi neisti á sveifl-
unni milli þeirra skauta.
Marglyndir menn hafa löngum
verið skáldum efni yrkis og um-
hugsunar og er líklega frægastur
þeirra eilífðarstúdentinn doktor
Fástus — hinn farsæli.
En svo heillandi sem Fástamir
og Vindhælis-Álfamir kunna að
vera á bókum er þó miklu skemmti-
legra að hitta þá í holdinu.
Sigurður er einn þessi töfrandi
og farsæli, marglyndi eilífðarstúd-
ent.
Sem lögmaður er hann löngu við-
urkenndur sem einhver hinn
gagnmenntaðasti og hæfasti á
ákveðnum sérsviðum fræðigreinar
sinnar.
Sem sagnfræðingur hefur hann
verið óragur að taka helgimyndir
af stalli og átt ferskleik og hug-
kvæman kjark til að setja fram
nýstárlegar kenningar, þótt ekki
standi allar á grunnpjökkuðum und-
irstöðum.
Og sem lífslistarmaður er hann
engum líkur. Ekki veit ég á hve
mörg hljóðfæri hann hefur leikið
sjálfum sér til unaðar og yndis og
vinum sínum til skemmtunar og
sálarbóta. Ferðagarpur hefur hann
verið hinn mesti og siglingamaður
um skeið.
Það lætur að líkum um slíkan
mann að hann hefur ekki ávallt
slegið lífsstreng sinn af setningi.
Sá sem þekkir þær Nautnina og
Gleðina, kynnist líka systur þeirra
Kvölinni.
í öllum margbreytileik Sigurðar
hefur mér samt þótt mest vert um
hans hlýja og mennska hjarta. Aldr-
ei veit ég hann í orði eða verki
hafa spyrnt fæti við föllnum manni
en rétt mörgum völtum styrka hönd
sína.
Lífsþorsti, eirðarleysi og óró for-
vitninnar fylgir hinum farsæla
stúdent. Hann eltir stundirnar, en
biður þær aldrei að dvelja sakir
fegurðar augnabliksins.
Megi hin eilífa óró Fástusar
fýlgja þér enn um sinn, fóstri minn.
Með þeirri kveðju óskum við Vigdís
þér og þínu fólki alls góðs á þessum
degi.
Sveinn Skorri Höskuldsson
Hraðlestrarnámskeið!
Vilt þú margfalda lestrarhraða þinn? Sé svo,
skaltu skrá þig á næsta hraðlestrarnámskeið,
sem hefst miðvikudaginn 28. janúar nk. kl.
18.00.
Á síðasta ári þreföiduðu nemendur Hrað-
lestrarskólans að meðaltali lestrarhraða
sinn.
Skráning öll kvöld kl. 20.00—22.00 í síma
611096.
Hraðlestrarskólinn
ÞYSKU KOSTAGRIPIRNIR
1987
ERU KOMNIR
Betur búnir en nokkru sinni f yrr
Verð frá kr. 455.000,-
V.W. Golf — mest seldi bíll í Evrópu
V.W. Jetta — írábœr fjölskyldubíll
IHHEKLAHF
1 i-augavegi 170-172 Simi 695500
Síðasti dagur
rýmingarsölun nar
Hálft vcrð á
heilum vörum
<
‘w
S
£
VÚRUHÚSIÐ E/Ð/STORG/