Morgunblaðið - 18.01.1987, Blaðsíða 63

Morgunblaðið - 18.01.1987, Blaðsíða 63
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 18. JANÚAR 1987 63 Selfosskirkju afhent listaverk að gjöf Selfossi. í FYRSTU guðsþjónustu ársins í Selfosskirkju var afhent lista- verk að gjöf til kirkjunnar frá bæjarstjórn Selfoss og Hildi Hákonardóttur listakonu. Listaverkinu sem ber nafnið Sköpunin hefur verið komið fyrir í safnaðarheimili kirkjunnar. Það samanstendur af fjórum teppum og því fylgja fjórar teikningar. Teppin eru í íjórum litum, gulum .rauðum grænum og bláum, og tákna það lífafl sem býr að baki ljósinu. „Það sem vakti fyrir mér Steingrímur Ingvarsson afhendir Bjarna Dagssyni gjafabréf Iista- verksins. Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Gefendur og fulltrúar Selfosskirkju, frá vinstri: Bjarni Dagsson formaður safnaðarstjórnar, Sigríð- ur Jónsdóttir bæjarfulltrúi, séra Sigurður Sigurðarson, Hildur Hákonardóttir, Steingrímur Ingvars- son forseti bæjarstjórnar, Brynleifur Steingrímsson formaður bæjarráðs og Guðmundur Kr. Jónsson bæjarfulltrúi. þegar ég gerði þetta verk voru upphafsorð sköpunarsögunnar: Verði ljós,“ sagði Hildur Hákonar- dóttir í ávarpi við afhendinguna þegar hún lýsti verkinu. Teppun- um fylgja einnig fjórar teikningar af engli, drekum og ljóni og eru tákn fyrir heimshomin fjögur. Listaverkið Sköpunin var gert fyrir kirkjulistasýningu sem hald- in var um páskana 1983. Þeirri sýningu var ætlað að vekja menn til vitundar um að það er ekki síður í dag ástæða til að huga að listskreytingum í kirkjum. Það var Steingrímur Ingvars- son forseti bæjarstjómar sem afhenti gjafabréf að listaverkinu til Bjama Dagssonar formanns safnaðarstjómar. Af hálfu Hildar Hákonardóttur er um minningar- gjöf að ræða um föður hennar Hákon Guðmundsson fyirum skógræktarstjóra sem síðustu ár sín rækti mjög samband sitt við Selfosskirkju. Árið 1985 var stofnaður sjóður hjá Selfosskaupstað sem nefur það hlutverk að stuðla að uppsetn- ingu listaverka í og á byggingum á almannafæri. Gjöf sú sem hér um ræðir er gefin kirkjunni í til- efni 30 ára afmælis hennar á nýliðnu ári. Sig. Jóns. Jón Ólafsson Félag íslenzkra fiskmjölsframleiðenda: Jón Ólafsson framkvæmdastjóri FÉLAG íslenzkra fiskmjölsfram- leiðenda hefur opnað skrifstofu og ráðið framkvæmdastjóra. Það er Jón Ólafsson, fyrrum starfs- maður Landssambands íslenzkra útvegsmanna. Jón Ólafsson sagði í samtali við Morgunblaðið, að verksvið hans yrði fyrst og fremst upplýsingamiðl- un milli félaga, hagsmunabarátta og athuganir á mögulegri lækkun framleiðslukostnaðar og aukning afkasta. Hann nefndi í þessu barátt- una fyrir lækkuðu raforkuverði, olíu og tollum. Jón starfaði áður í fjögur ár hjá tæknideild LÍÚ og við útflutning á ferskum físki í gámum. Hann er vélstjóri að mennt og stundaði sjó- mennsku áður en hann réðst til starfa hjá LÍÚ. HRINGDU oq fáðu áskriftargjöldin skuldfaerð á greiðslukorta ITH ^tfín nnmnTiTrf.m rrnri SÍMINN ER 691140 691141 JHoTöUotiTatviö rythmahljóðfæri, og einieikskaflar eru skýrt afmarkaðir í hverju lagi. Þó fær Gene næg tækifæri til að sýna hæfnina á gítarinn, t.d. í leiknum lögum eins og Gene Jumps The Blues og Gene’s Guit- ar Blues. Þar heyrist og að hann er með hörku jasssveit með sér og góða einleikara. Segja má að lög eins og I Could Make You Love Me og I Wonder What the Poor Folks Are Doing séu dæmigerð fyrir Gene, afslöpp- uð með ljúfri sveiflu og góðum einleiksköflum á gítarinn. Léttur ádeilutexti í síðara laginu eykur svo á ánægjuna. Seinni árin hefur Gene fram- fleytt sér með skransölu, farinn að heilsu. Hann á þó betra skilið, en svona er tískan, í blúsnum sem og öðru. Blús með sveiflu Blús Árni Matthíasson Blúsinn og jassinn eiga sér sameiginlegar rætur, og innan blúsins hefur ávallt verið mikið um flytjendur sem flutt hafa jassaðan blús, blús með sveiflu. Á sama hátt hafa verið til flytj- endur innan jassins sem lagt hafa stund á blúsaðan jass. Nöfn þeirra sem stundað hafa jassaðan blús eru legíó, en fremst- an í flokki má nefna meistarann sjálfan, Aaron T-Bone Walker, sem valdi sér gjaman jassmenn sem meðspilara. Eina skilyrðið var að þeir gætu spilað blús. A síðasta ári komu út tvær plöt- ur með tveimur sem teljast verða meðal þeirra bestu í jassaða blúsn- um, þeim Connie Curtis „Pee Wee“ Crayton og Eugene Floyd Phillips. Pee Wee Crayton Platan með Pee Wee heitir ein- faldlega Memorial Album, og er út gefin í tilefni dauða hans árið 1985. Pee Wee fæddist í Texas 1914, og var því 71 árs er hann lést. Pee Wee hefur sinn innblástur víða að, en gítarleikinn hefur hann frá hinum goðsagnakennda Charlie Christianog T-Bone Walk- er, sem hann kynntist reyndar eitthvað persónulega. Pee Wee leggur þó megináherslu á að hann hafí tæknina frá John Collins, en sá lék með Nat King Cole í eina tfð. Hjá Collins hafí hann lært að nota fjóra fíngur við plokkið, í stað þriggja líkt og T-Bone. Tónlistin á plötunni er öll í sveiflustíl og ber mikið á góðum gítarleik Craytons. Einna best heyrist hve góður hann var í leiknu lögunum Texas Hop, Walk- ing With Crayton og Mojo Blues, en söngurinn er líka góður, reynd- ar stórskemmtilegur í Califomia Women, þar sem raddsetningin kemur nokkuð á óvart. Góð lög eru líka Blues For My Babe og AU Or Nothing At All. Sjálfsagt hefði Pee Wee orðið einn af þeim stóru ef hann hefði verið fæddur í Missisippi eða Chicago. Connie Curtis „Pee Wee“ Crayton Eugene Phillips í sveiflu. Gene Phillips Gene Phillips fæddist í St. Lou- is 1915. Hann starfaði með ýmsum, en sótti fyrirmyndir sínar til sveiflublúsins, þess sem menn kalla jass í dag. Um 1930 voru stærstir Big Joe Tumer, Jimmy Rushing, Louis Jordan, Count Basie og Duke Ellington. 1941 hóf Gene að spila með Mills bræðrum á órafmagnaðan gítar og hélt því í tvö ár. Eftir það starfaði hann mest með eigin hljómsveit, The Rythm Aces, þar til hann tók upp sitt síðasta lag 1953. Hinn afslappaði sveiflustíll hans naut ekki lengur hylli, menn hlustuðu nú meira á Chicagoblús- inn. Tónlistin er með miklum jass- áhrifum, gítarinn er notaður sem
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.