Morgunblaðið - 27.02.1987, Page 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. FEBRÚAR 1987
ÚTVARP / SJÓNVARP
Einn,
tveir .
Þátturinn í takt við tímann var
að þessu sinni tekinn upp í
ónefndri heilsuræktarstöð þar sem
stjórnendurnir leiddu fram ýmsa
heilsuræktarforkólfa og kynntu þá
möguleika er almenningur hefur á
að stæla líkamann. í baksýn hoppaði
svo ungt og frískt og að sjálfsögðu
sætt fólk af slíkum ákafa að ég efa
að slík þjálfun henti venjulegu fólki.
Þá hefði ég nú kosið að myndavélam-
ar hefðu spannað víðara svið í
þættinum og sýnt meðal annars hinar
frábæru skokkbrautir er Reykjavík-
urborg hefír látið leggja í Elliðaár-
dalnum og ekki var minnst á hin
ágætu lyftingatæki er prýða ýmsar
heilsuræktarstöðvar og hvað um
homaboltann og ýmsar aðrar nýjung-
ar er bjóðast áhugasömu líkamsrækt-
arfólki? Hvað um það þá skiptir mestu
máli að fólk hafí ánægju af líkams-
ræktinni og að allt fari vel. Hér leita
á hugann ummæli eins viðmælanda
Ólafs Haukssonar, Hjördísar Magn-
úsdóttur, en hún hefír nýlokið
háskólaprófí á sviði endurhæfíngar-
íþróttaþjálfunar í Bandaríkjunum. Ég
ræddi þetta mál reyndar við Hjördísi
og tjáði hún mér að sér fyndist ekki
nægilega fagmannlega staðið að
líkamsþjálfun hér á landi, einkum
leikfíminni og að það sárvantaði staði
þar sen venjulegt fólk gæti áhættu-
laust stundað líkamsrækt jafnvel í
því skyni að laga ýmis líkamleg mein.
Annars er kannski ekki nema von
að þættimir í takt við tímann verði
fremur veigalitlir. Látum á ummæli
Ólafs Haukssonar er kvaddi þáttinn
á dramatískan hátt síðastliðið mið-
vikudagskveld en þau áhrínsorð er
að fínna í viðtali er DV átti við Ólaf
síðastliðinn laugardag. DV: Þættimir
í takt við tímann hafa fengið slaka
dóma. Stafar það að einhveiju leyti
af því að menn sjá yfirbragð auglýs-
inga ámörgu af því sem þar er Qallað
um? ÓH: Eg held að það sé ekki.
Fólk hefur alltaf mismunandi skoðan-
ir á sjónvarpsefni. Ég er fyrstur til
að viðurkenna að þættimir hafa verið
misjaöiir . . . Það sem mestu hefír
valdið er að ráðið hefur verið til
starfa mikið af óvönu fólki og ég er
þar á meðal, þótt ég sé vanur blaða-
mennsku. Það hefur mjög mikið verið
sparað til þessara þátta . . . Mér
finnst það í raun og vem móðgun
við sjónvarpsáhorfendur að bjóða
þeim upp á svo til eingöngu óvant
og reynslulítið fólk. Þessir þættir eru
helstu föstu þættimir í sjónvarpinu á
þessum vetri. Þeim er ætlað að höfða
til almennings og eiga að vera toppur-
inn á reglulegri innlendri dagskrár-
gerð. Óhjákvæmilega hlýtur
reynsluleysið og spamaðurinn að
koma niður á þáttunum.
Svo mörg voru þau orð og Ólafur
Hauksson lætur ekki hér staðar num-
ið í gagnrýni sinni heldur hvetur til
að sjónvarpið verði gert sjálfstæðara
en nú er þannig að hið ágæta starfs-
fólk njóti sín. ÓH: . . . eftir að hafa
kynnst þessari stofnun í nokkra mán-
uði verð ég æ sannfærðari um að
útvarpsráð hefur gífurlega lamandi
áhrif. Ég spái því að ef engu verður
breytt um yfírstjóm ríkisútvarpsins
deyi það hreinlega. Það dagar uppi
eins og einhver risaeðla. Og hinni
hörðu atlögu útvarpsráðs vegna hinn-
ar meintu auglýsingamennsku svarar
Ólafur svo: Ég held að þetta sé bara
andieg hægðatregða hjá ákveðnum
mönnum í útvarpsráði og þar er
fremstur í flokki Markús A. Einars-
son. Samþykktin stafar af mistúlkun
þessara manna á útvarpslögunum.
Þeir horfa á íþróttamanninn Jón Pál
og vandræðast yfír honum en hefði
þá ekki á sömu forsendum átt að
reka Bjama Felixson fyrir að sýna
íþróttamenn sem hlaupa um völlinn
með auglýsingar framan á sér.
Sannarlega sér Ólafur ríkisfjöl-
miðlana í nýstárlegu ljósi hvað sem
segja má um viðhorf hans til auglýs-
ingamennsku á öldum Ijósvakans, en
þau orka nú tvímælis, í það minnsta
sú fullyrðing að sjónvarpið sé . . .
búðargluggi þjóðarinnar.
Ólafur M.
Jóhannesson
Stöð tvö:
Á heimleið
■H Myndin gerist
00 35 árið 1953 og
Pete Panakos
heldur upp á það að 35 ára
striti og spamaði er lokið.
í þessu 35 ár hefur hann
unnið í sveita síns andlits
með það eitt fýrir augum
að geta heimsótt heima-
þorp sitt, Geritsas í Grikk-
landi. Það er ört skálað
fyrir Grikklandi í ouzo, en
draumur Petes er að vera
álitinn „palakari" — glæsi-
menni, við komuna þangað.
Sonur hans, Chris, er
ekki eins ákafur og faðir
hans og lýsir því reyndar
yfir að hann sé ekki grískur
heldur bandarískur og að
hann vildi mun frekar fara
í sumarbúðir heldur en að
eyða sumrinu í Spörtu. Að
lokum lætur hann undan
og þeir halda til Grikk-
lands.
Þegar þeir koma til
þorpsins fá þeir reyndar
báðir viðtökur, sem „palak-
ari“ sæmir og Pete þakkar
fyrir sig með því að ausa
um sig gjöfum og aka vin-
um sínum í glæsikerru
sinni, en margir þorpsbúa
hafa ekki einu sinni séð bíl
áður. Spartverjarnir eru
hins vegar ekki hrifnir af
þessum stælum í karli, en
eru þess hrifnari af Chris,
sem á augabragði samlag-
ast grískum háttum. Pete
verður að vonum svekktur
vegna þessarar höfnunar,
en allt er gott sem endar
vel og það gerir þessi mynd
líka.
Rás 2:
A næturvakt
■■■■ í kvöld verða
OOOO þeir félagar
^ ö Vignir Sveins-
son og Þorgeir Ástvaldsson
að venju á næturvakt rásar
2. Þeir spila létta tónlist
úr öllum áttum, jafnt nýj-
ustu dægurlögin sem „elli-
smelli" og kappkosta að
fínna eitthvað við hæfi
allra næturhrafna.
Hlustendur eiga þess
kost að senda kveðjur hvert
á land sem er, eða að koma
á framfæri óskalögum.
Næturvaktin stendur til
klukkan þijú eftir mið-
nætti.
UTVARP
FOSTUDAGUR
27.janúar
6.45 Veðurfregnir. Bæn.
7.00 Fréttir.
7.03 Morgunvaktin.
Jón Baldvin Halldórsson,
Sturla Sigurjónsson og Lára
Marteinsdóttir. Fréttir eru
sagðar kl. 7.30 og 8.00 og
veðurfregnir kl. 8.15. Til-
kynningar eru lesnar kl.
7.25, 7.55 og 8.25. Erlingur
Siguröarson talar um dag-
legt mál kl. 7.20.
9.00 Fréttir.
9.03Morgunstund barnanna:
Kristín Helgadóttir les tvær
sögur úr bókinni „Mamma,
segöur mér sögu", „Ljónið
sem fékk tannpínu" og
„Fúsi forvitni".
9.20 Morguntrimm. Tilkynn-
ingar.
9.35 Lesiö úrforustugreinum
dagblaðanna.
9.45 Þingfréttir.
10.00 Fréttir.
10.10 Veðurfregnir.
10.30 Ljáðu mér eyra. Um-
sjón: Málmfriður Sigurðar-
dóttir. (Frá Akureyri.)
11.00 Fréttir.
11.03 Samhljómur. Umsjón:
Sigurður Einarsson.
12.00 Dagskrá. Tilkynningar.
12.20 Fréttir.
12.45 Veðurfregnir. Tilkynn-
ingar. Tónleikar.
14.00 Miðdegissagan: „Áfram
veginn", sagan um Stefán
Islandi. Indriöi G. Þorsteins-
son skráði. Sigríöur Schiöth
les (5).
14.30 Nýtt undir nálinni. Elin
Kristinsdóttir kynnir lög af
nýjum hljómplötum.
15.00 Fréttir. Tilkynningar.
Tónleikar.
15.20 Landpósturinn.
Lesið úr forustugreinum
landsmálablaða.
16.00 Fréttir. Dagskrá.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Barnaútvarpiö.
17.00 Fréttir.
17.03 Siðdegistónleikar.
a. „Hans og Gréta", forleik-
ur eftir Engelbrecht
Humperdinck. Hallé-hljóm-
sveitin leikur; Maurice
Handford stjórnar.
b. Spænsk svíta eftir Manu-
el de Falla. Maria Kliegel
og Ludger Maxsein leika á
selló og pianó.
c. „Grande Sonate brillante"
op. 102 eftir Anton Diabelli.
Pepe Romero og Silhelm
Hellweg leika á gítar og
pianó.
17.40 Torgið — Viöburðir
helgarinnar
Umsjón: Þorgeir Ólafsson.
Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir.
19.30 Tilkynningar.
Daglegt mál
Endurtekinn þáttur frá
morgni sem Eriingur Sigurð-
arson flytur. (Frá Akureyri.)
19.45 Þingmál
Umsjón: Atli Rúnar Hall-
dórsson.
20.00 Lög unga fólksins.
Valtýr Björn Valtýsson kynn-
ir.
20.40 Kvöldvaka.
a. Úr Mímisbrunni. Þáttur
íslenskunema við Háskóla
íslands. „Maður og kona",
af aðalpersónum f skáld-
sögu Jóns Thoroddsens.
SJÓNVARP
Tf
FÖSTUDAGUR
27. febrúar
18.00 Nilli Hólmgeirsson —
Fimmti þáttur
Þýskur teiknimyndaflokkur
gerður eftir kunnri barna-
sögu eftir Selmu Lagerlöf
um ævintýraferð dreng-
hnokka í gæsahópi. Þýð-
andi Jóhanna Þráinsdóttir.
18.25 Stundin okkar — Endur-
sýning
Endursýndur þáttur frá 22.
febrúar.
19.06 Á döfinni
Umsjón: Anna Hinriksdóttir.
19.10 Þingsiá
Umsjón. Ólafur Sigurðsson.
19.25 Fréttaágrip á táknmáli
19.30 Spítalalíf
(M*A*S*H) Tuttugasti þátt-
ur. Bandarískur gaman-
myndaflokkur sem gerist á
neyðarsjúkrastöö banda-
ríska hersins í Kóreustríö-
inu. Aðalhlutverk: Alan
Alda. Þýðandi Kristmann
Eiðsson.
20.00 Fréttir og veöur
20.35 Auglýsingarogdagskrá
20.40 Unglingarnir í frumskóg-
inum
Efni frá Breiðóvision '87,
skiðaæfingar í Skálafelli og
rabb við færeyskar stúlkur
á íslandi. Umsjón: Örn Þórð-
arson.
21.10 MikeHammer—Fimmti
þáttur
Bandarískur sakamála-
myndaflokkur gerður eftir
sögum Mickey Spillane um
einkaspæjarann Mike Ham-
mer. Aöalhlutverk: Stacy
Keach. Þýðandi Stefán Jök-
ulsson.
22.00 Kastljós
Þáttur um innlend málefni.
22.30 Seinni fréttir
22.40 Gegnum járntjaldið
(Torn Curtain) Bandarísk
bíómynd frá 1966. Leik-
stjóri: Alfred Hitchcock.
Aðalhlutverk: Paul Newman
og Julie Andrews. Banda-
rískur vísindamaður leitar
hælis í Austur-Þýskalandi
eftir að hugmyndum hans
um gagnflaugakerfi hefur
verið hafnað. Hann tekur
upp samvinnu við þýska
starfsbræður en leyniþjón-
ustan í Berlín grunar þó
útlendinginn um græsku.
Þýðandi Kristmann Eiðsson.
00.40 Dagskrárlok
Q
0,
STOD2
FÖSTUDAGUR
27. febrúar
§17.00 Óþverraverk (Foul
Play). Bandarísk spennu-
mynd með gamanívafi. Með
aöalhlutverk fara Goldie
Hawn, Chevy Chase og
Dudley Moore.
19.00 Hardy-gengið. Teikni-
mynd.
19.30 Fréttir.
20.00 Opin lína. Áhorfendum
Stöðvar 2 gefst kostur á að
hringja í síma 673888 og
bera upp spurningar. A
föstudögum stjórnar Helgi
Hjörvar þættinum og fjallar
um mál unglinga. Rætt
verður við poppstjörnur,
unglinga, æskulýösforkólfa
o.s.frv.
20.16 Um viða veröld. Frétta-
skýringaþáttur í umsjón
Þóris Guðmundssonar.
§20.35 Sigri fagnað (A
Time To Triumph). Sjón-
varpsmynd frá CBS er
greinir frá óvæntum atvikum
í lífi hjóna nokkurra. Eigin-
konan gerist atvinnuher-
maður til að sjá fjölskyldunni
farborða, en eiginmaðurinn
er eftir heima og annast
börn og buru. Aðalhlutverk:
Patty Duke og Joseph Bo-
logna.
§22.10 Benny Hill. Breskur
gamanþáttur.
§22.35 Á heimleið (My Pal-
akari).
Bandarísk bíómynd með
Telly Savalas og Michael
Constantine í aðalhlutverk-
um. Pete Panakos (Telly
Savalas) hefur eytt 35 árum
í að öngla saman fyrir ferð
til heimabæjar síns í Grikk-
landi. Þessi langþráði
draumur verður að veruleika
en þorpsbúar eru ekki mjög
hrifnir af bandarískum
lífsmáta hans.
§00.05 (sland (lceland).
Bandarísk dans- og söngva-
mynd frá árinu 1942 með
John Payne og skauta-
drottningunni Sonju Heine í
aðalhlutverkum. Myndin
gerist i Reykjavík á stríðsár-
unum. Landgönguliöi úr
flotanum verður ástfanginn
af Reykjavíkurmær, en rekur
sig á að innlendar siðvenjur
mæla hreint ekki með
skyndikynnuml
01.20 Myndrokk.
03.00 Dagskrárlok.
Umsjón: Jón Karl Helgason.
Lesari með honum: Sigríður
Rögnvaldsdóttir.
b. Ömmusaga. Þorsteinn
Matthíasson flytur frum-
saminn söguþátt.
c. Úr Haröarrímum. Svein-
björn Beinteinsson kveður
úr frumortum rímnaflokki.
21.30 Sígild dægurlög.
22.00 Fréttir. Dagskrá morg-
undagsins. Orð kvöldsins.
22.15 Veöurfregnir.
22.20 Lestur Passíusálma.
Andrés Björnsson les 11.
sálm.
22.30 Hljómplöturabb Þor-
steins Hannessonar.
23.10 Andvaka. Þáttur í umsjá
Pálma Matthíassonar. (Frá
Akureyri.)
24.00 Fréttir.
00.10 Næturstund í dúr
og moll með Knúti R. Magn-
ússyni.
1.00 Dagskrárlok.
Næturútvarp á rás 2 til kl.
3.00.
&
FOSTUDAGUR
27. febrúar
9.00 Morgunþáttur i umsjá
Kolbrúnar Halldórsdóttur og
Kristjáns Sigurjónssonar.
Meðal efnis: Óskalög hlust-
enda á landsbyggðinni og
getraun.
12.00 Hádegisútvarp með
fréttum og léttri tónlist í
umsjá Gunnlaugs Sigfús-
sonar.
13.00 Bót í máli. Margrét
Blöndal les bréf frá hlust-
endum og kynnir óskalög
þeirra.
15.00 Sprettur. Þorsteinn G.
Gunnarsson kynnir tónlist
úr ýmsum áttum og kannar
hvað er á seyöi um helgina.
17.00 Fjör á'föstudegi með
Bjarna Degi Jónssyni.
18.00 Hlé.
20.00 Kvöldvaktin - Andrea
Jónsdóttir.
23.00 Á næturvakt með Vigni
Sveinssyni og Þorgeiri Ást-
valdssyni.
3.00 Dagskrárlok.
Fréttir eru sagðar kl. 9.00,
10.00, 11.00, 12.20, 15.00,
16.00 og 17.00.
SVÆÐISÚTVARP
REYKJAVÍK
SVÆÐISÚTVARP VIRKA
DAGA VIKUNNAR
17.30-18.30 Svæðisútvarp
fyrir Reykjavík og nágrenni
- FM 90,1
AKUREYRI
18.00-19.00 Svæðisútvarp
fyrir Akureyri og nágrenni —
FM 96,5
Föstudagsrabb. Inga Eydal
rabbar við hlustendur og les
kveðjur frá þeim, leikur létta
tónlist og greinir frá helstu
viðburðum helgarinnar.
BYLGJAN
FOSTUDAGUR
27. febrúar
07.00—09.00 Á fætur með
Siguröi G. Tómassyni. Létt
tónlist með morgunkaffinu.
Sigurður lítur yfir blöðin og
spjallar við hlustendur og
gesti.
Fréttir kl. 7.00, 8.00 og
9.00.
09.00—12.00 Páll Þorsteins-
son á léttum nótum. Föstu-
dagspoppiö allsráöandi,
bein lína til hlustenda, af-
mæliskveðjur, kveðjur til
brúðhjóna og matarupp-
skriftir.
Fréttir kl. 10.00, 11.00 og
12.00.
12.00—14.00 Á hádegismark-
aði með Jóhönnu Harðar-
dóttur. Fréttapakkinn.
Jóhanna og fréttamenn
Bylgjunnar fylgjast með þvi
sem helst er í fréttum, segja
frá og spjalla við fólk.
Fréttir kl. 13.00 og 14.00.
14.00—16.00 Pétur Steinn á
réttri bylgjulengd. Péturspil-
ar síðdegispoppiö og spjall-
ar við hlustendur og
tónlistarmenn.
Fréttir kl. 15.00, 16.00 og
17.00.
17.00—19.00 Hallgrímur
Thorsteinsson í Reykjavík
sfðdegis. Þægileg tónlist
hjá Hallgrími, hann lítur yfir
fréttirnar og spjallar við fólk
sem kemur við sögu.
Fréttir kl. 18.00.
19.00—22.00 Þorsteinn J. Vil-
hjálmsson. Þorsteinn leikur
tónlist úr ýmsum áttum og
kannar hvað næturlífið hefur
upp á aö bjóöa.
22.00—03.00 Jón Axel Ólafs-
son. Þessi síhressi nátt-
hrafn Bylgjunnar kemur
okkur í helgarstuð með
góðri tónlist. Spennandi
Ipikur með góðum verðlaun-
um.
03.00—08.00 Næturdagskrá
Bylgjunnar. Haraldur Gísla-
son leikur tónlist fyrir þá
sem fara seint f háttinn og
hina sem fara snemma á
fætur.
ALFA
Kristilef itvtrptitM.
FM 102,9
FÖSTUDAGUR
27. febrúar
13.00 Tónlistarþáttur með
lestri úr Ritningunni.
16.00 Hlé.
21.00 Ljóskorn. Stjórnendur:
Alfons Hannesson og Eiöur
Aðalgeirsson.
24.00 Á réttum nótum. Tón
listarþáttur.
4.00 Dagskrárlok.