Morgunblaðið - 27.02.1987, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. FEBRÚAR 1987
19
Búnaðarþing:
Tillaga um útfærslu
á sjávarhelgi jarða
Eðlilegt að hún verði færð út í sömu hlutföUum
o g landhelgi íslands, segir flutningsmaður
TILLAGA um útfærslu á sjávarhelgi jarða, í þeim tilgangi að
tryggja bændum betur aðgang að þeim hlunnindum sem fylgja
sjávaijörðum og auðvelda þeim nýtingu þessara hlunninda, liggur
fyrir búnaðarþingi. Flutningsmaður tillögunnar, Egill Bjarnason
ráðunautur á Sauðárkróki, telur eðlilegt að sjávarhelgin verði
færð út í sömu hlutföllum og landhelgi íslands á undanförnum
árum.
Egill flytur einnig tillögu um
að skorað verði á Stofnlánadeild
landbúnaðarins að lána bændum,
sem hætt hafa hefðbundinni bú-
vöruframleiðslu, fé til kaupa á
fískibátum og til að skapa aðstöðu
til saltfískverkunar. Telur Egill
að smábátakaup séu hagstæð
fjárfesting miðað við margar aðr-
ar nýgreinar sem bændum er bent
á og framlög veitt til.
í rökstuðningi Egils fyrir tillögu
sinni um útfærslu á sjávarhelgi
jarða kemur fram að bændum
hefur meðal annars verið bent á
að mæta samdrætti í hefðbund-
inni búvöruframleiðslu með meiri
og betri nýtingu hlunninda til
lands og sjávar. Hins vegar liggi
fyrir að sjávarhelgi jarða sé mjög
þröng, eða aðeins 115 metrar frá
stórstraumsfjörumáli, og reynsla
síðari ára hafi sýnt að erfitt geti
verið fyrir bændur að nýta ýmis
hlunnindi sem þó liggi skammt
frá landi. Sérstaklega eru nefnd
vandamál við grásleppuveiðar
vegna ásóknar frá nærliggjandi
þéttbýlisstöðum, sem einnig er
talin geta spillt fyrir æðarrækt.
Telur Egill að útfærsla á sjávar-
helgi jarða yrði nokkur trygging
fyrir því að hægt sé að benda
bændum á nýtingu hlunninda sem
raunhæfan kost í stað hefðbund-
innar búvöruframleiðslu.
Skilar 70-80 milljónum
króna til baka fil bænda
- segir Egill Jónsson um tillögn sína um niður-
fellingu framleiðendagjaids til Stofnlánadeildar
EGILL Jónsson alþingismaður og búnaðarþingsfulltrúi Iýsti þvi yfir
á búnaðarþingi í gær að hann væri að ganga frá frumvarpi til breyt-
inga á lögunum um Stofnlánadeild landbúnaðarins og gerði þar
meðal annars tillögu um að gjald framleiðenda t Stofnlánadeildina
yrði fellt niður. Reiknaði hann i
á Alþingi í næstu viku.
Framleiðendagjaldið er 1% af
búvöruverði til bænda og sagði
Egill að niðurfelling þess myndi
hækka hlutfall launa í búvöruverð-
inu um 3% og skila 70—80 milljón-
um króna til baka til bænda. Egill
sagði að staðan væri það góð hjá
Stofnlánadeild að óþarfí væri að
að frumvarpið yrði lagt fram
láta þessa peninga renna þangað.
Það væri grundvallarmisskilningur
að þeir rynnu til að greiða niður
vexti af lánum til bænda.
Hjörtur E. Þórarinsson, fulltrúi
Búnaðarfélagsins í stjóm Stofn-
lánadeildar, efaðist um ágæti
þessarar breytingar fyrir bændur.
Morgunblaðið/Bjami
Fulltrúar á búnaðarþingi, f.v.: Guttormur V. Þormar í Geita-
gerði, Jón Ólafsson í Geldingaholti, Erlingur Amórsson á Þverá
og Jóhann Helgason í Leirhöfn.
Jón Hólm Stefánsson Glúfri, Sigurður Þórólfsson Innri-Fagra-
dal, Tómas Gunnar Sæmundsson Hrútatungu og Stefán Halldórs-
son Hlöðum.
Búnaðar-
þing verði
boðað til
hátíðar-
fundar
STJÓRN Búnaðarfélags ís-
lands beinir því til búnaðar-
þings, hvort ekki þyki
tilhlýðilegt að búnaðarþing
komi saman til hátíðarfundar
í tilefni 150 ára afmælis Bún-
aðarfélagsins. Fundurinn
yrði haldinn í ágúst í sumar,
um það leyti sem landbúnað-
arsýningin BÚ ’87 verður
opnuð.
í erindi sínu til búnaðarþings
um þetta efni leggur stjóm Bún-
aðarfélagsins til að kosin verði
milliþinganefnd til að undirbúa
ályktun aukaþingsins „um eitt-
hvert það málefni íslensks
landbúnaðar sem hátt ber um
þessar mundir.“
Auk þessa máls vom reikn-
ingar Búnaðarfélagsins lagðir
fram, erindi Egils Bjarnasonar
um tryggingar í landbúnaði og
erindi Gunnars Sæmundssonar
um upplýsinga- og kynningar-
herferð á gildi íslensks land-
búnaðar. Lagði Gunnar
Sæmundsson til að stjóm Bún-
aðarfélagsins verði falið að leita
eftir samstarfi við Stéttarsam-
band bænda um að skipuleggja
upplýsinga- og kynningarher-
ferð.
Nú hafa 30 mál verið lögð
fram á búnaðarþingi. Fyrsta
málið var afgreitt frá búnaðar-
þingi í gær. Þar var ályktað á
móti lagafrumvarpi Jóns Magn-
ússonar og Bessíar Jóhanns-
dóttur um niðurfellingu
jöfnunargjalds á kartöflur.
Hátíðar-
samkomaí
Háskóla-
bíói
79 kandídatar
brautskráðir
HÁTÍÐARSAMKOMA verður
haldin í Háskólabíói laugar-
daginn 28. febrúar kl. 14.00.
Þar verður lýst kjöri heiðurs-
doktora jafnframt því sem
kandídatar verða brautskráð-
ir. Að þessu sinni verða 79
kandídatar brautskráðir.
Athöfnin hefst með því að
Gunnar Guðbjömsson syngur
einsöng við undirleik Guðbjarg-
ar Sigurjónsdóttur. Dr. Páll
Skúlason, forseti heimspeki-
deildar, lýsir kjöri heiðursdokt-
ora og afhendir doktorsbréf.
Háskólarektor, dr. Sigmundur
Guðbjamason, ávarpar kandíd-
ata og síðan afhenda deildarfor-
setar prófskírteini. Að lokum
syngur Háskólakórinn nokkur
lög undir stjóm Árna Harðar-
sonar.
Nóg pláss — meira aö
segja fyrirmig!
Léttur og lipur
í bænum!
Eyöir næstum
engu!
Þægilegur í snattiö,
hægt aö leggja
hvarsemer! .
Iburðarmikill, vandaður
. ogfallegur! j
BILABORG HF
Smiðshöfða 23sími 6812 99
Skutlan frá Lancia kostar nú frá aöeins 266 þúsund krónum.
gengisskr. 14.1.87