Morgunblaðið - 27.02.1987, Síða 20

Morgunblaðið - 27.02.1987, Síða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. FEBRÚAR 1987 Knuts Fryden- lund minnst HeUinki, frá Karli Blöndal, blaðamanni Morgunblaðsins. ANDLÁT Knuts Frydenlund, ut- anríkisráðherra Noregs, hefur Norðurlönd: • • Oryggis ráðamanna ekki gætt sem skyldi Stokkhólmi, Osló, Reuter. Á MORGUN, 28. febrúar, er liðið eitt ár frá þvi að Olof Palme, forsætisráð- herra Svíþjóðar, var drep- inn á götu í Stokkhólmi, er hann var á leið heim úr kvikmyndahúsi. Inge Reneborg, sem nýlega tók við rannsókn á morðinu á Palme, sagði í viðtali við Svenska Dagbladet í gær, að lögreglan hefði ekki hugmynd um hver hefði drepið Palme og að enginn sem taka mætti alvarlega, hefði lýst verkinu á hendur sér. Er þetta afdrátt- arlausasta yfirlýsing sem sænskur lögreglumaður hefur gefið frá sér til þessa. Þing Norðurlandaráðs stendur nú yfír í Helsinki í Finnlandi og benti Helsingin Sanomat, stærsta blað Finn- lands á það í leiðara í gær, að öryggisráðstafanir í sam- bandi við þingið hefðu ekki verið eins strangar og eðlilegt gæti talist. Margir helstu stjórnmálamenn á Norður- löndum hefðu mætt á fundinn, en aðeins hefðu verið gerðar sérstakar öiyggisráðstafanir vegna Ingvars Carlsson, for- sætisráðherra Svíþjóðar. Norðurlandaþjóðimar yrðu að horfast í augu við það, hvort sem þeim líkaði það betur eða verr, að gæta þyrfti öryggis ráðamanna. Slíkt væri ekki gert sem skyldi. sett svip á þing Norðurlanda- ráðs. Hans var minnst í gær- morgtm með því að forseti Norðurlandaráðs, Elsi Hete- mSki-Olander, hélt ræðu og því næst var einnar mínútu þögn í sal þingsins í Helsinki. „Fyrir skömmu var Knut Fryden- lund, utanríkisráðherra Noregs og staðgengill forsætisráðherra, meðal vor. Síðan höfum við fylgst með stríði hans með óhug. Fyrir klukku- stundu barst svo sú sorgarfregn að stríðinu væri lokið," sagði Hete- máki-Olander. Hún sagði að Frydenlund hefði notið virðingar allra og hans yrði sárt saknað. „Við kynntumst Frydenlund sem dugandi stjómmálamanni og hlýdd- um með ánægju á ræður hans í umræðum á þingi Norðurlandaráðs, nú síðasta þriðjudag." Frydenlund fékk heilablóðfall á Fomebu-flugvelli í Osló á miðviku- dag er hann kom frá Helsinki. Hér gegndi hann einnig störfum forsæt- isráðherra fyrir Gro Harlem Brundtland, sem er stödd í Japan á ráðstefnu alþjóðanefndar um umhverfísmál. Bmndtland er for- maður þessarar nefiidar. Gengi gjaldmiðla London, AP. BANDARÍKJADOLLAR lækkaði í gær, er það fréttist, að hagtölur janúarmánaðar í Bandaríkjunum hefðu reynzt óhagstæðari en vonir höfðu staðið til. Gullverð lækkaði. Síðdegis í gær kostaði brezka pundið 1,5410 dollara (1,5390) í London, en annars var gengi dollar- ans þannig, að fyrir hann fengust 1,8160 vestur-þýzk mörk (1,8280), 1,52975 svissneskir frankar (1,5375), 6,0475 franskir frankar (6,0775), 2,0535 hollenzk gyllini (2,0620), 1.291,75 ítalskar límr (1.297,50), 1,3316 kanadískir doll- arar (1,3300) og 153,00 jen (153,55). Gullverð lækkaði og kostaði hver únsa 405,00 dollara (405,70). Frydenlund fór til íslands { sína fyrstu opinberu heimsókn eftir að hann var utanrikisráðherra. Var hún í febrúar árið 1974. Ól.K.M. tók þessa mynd þegar Frydenlund, eiginkona hans, Grethe, og börnin þeirra þijú komu í Þjóðminjasafnið og hlýddu á skýringar Þórs Magnússonar, þjóðminja- varðar. Knut Frydenlund, utanríkisráðherra Noregs: Hófsamur maður og mikill mannasættir Ósló. AP, Reuter og Jan Erik Laure, fréttaritari Morgfunblaósins. KNUT Frydenlund, utanríkisráðherra Noregs, sem lést f gær af völdum heilablóðfalls, var meðal kunnustu stjórnmálamanna þar í landi og naut mikillar virðingar á alþjóðlegum vettvangi. Fáir eða engir landa hans höfðu jafn mikla þekkingu á utanrikismálum og eru menn sammála um, að rúm hans verði vandfyllt. Frydenlund, „slyngasti dipló- mat í Noregi" eins og stundum var sagt um hann, hafði starfað í norsku utanríkisþjónustunni í 35 ár, allt frá árinu 1952, og vantaði aðeins nokkra mánuði upp á að hafa verið utanríkisráðherra fyrir Verkamannaflokkinn í níu ár samtals. Frydenlund var ákafur stuðningsmaður Evrópubanda- lagsins og var í fararbroddi þeirra, sem börðust fyrir aðild að því í þjóðaratkvæðagreiðslunni árið 1972. Urðu það honum mikil von- brigði þegar Norðmenn höfnuðu henni en alla tíð síðan hélt hann hugmyndinni vakandi. Utanríkisráðherra varð Fryd- enlund árið 1973, þegar Verka- mannaflokkurinn var enn í sárum eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna, en honum tókst að lægja mestu öld- umar og endurskipuleggja stefnu stjómarinnar í utanríkismálum. Gegndi hann embættinu til ársins 1981 þegar borgaraflokkamir komust til valda en er minnihluta- stjóm Verkamannaflokksins tók við í maf í fyrra þótti það sjálf- sagt mál, að Frydenlund skipaði það enn á ný. Frydenlund var maður hófsam- ur og því stóðu stundum spjótin á honiu.1 jafnt frá hægri sem vinstri, jafnvel frá hans eigin flokksmönnum. Þótti sumum sem hann hefði ekki nógu mikið sam- starf við bandamenn Norðmanna en aðrir sökuðu hann um að hleypa bandarískum kjamorku- vopnum inn fyrir norska lögsögu. Þegar Frydenlund féll frá gegndi hann forsætisráðherra- embættinu í fiarvem Gro Harlem Brundlandt, sem var í Tókýó á vegum Náttúmvemdarráðs SÞ, en hún var væntanleg heim í dag. Munu þá hefjast umræður um eftirmann hans og em þrír menn taldir koma helst til greina. Em það þeir Johan Jörgen Holst, vam- armálaráðherra, Thorvald Stolt- enberg, formaður Verkamanna- flokksins í Ósló, og Ame Amesen, sendiherra í Peking. Sem stendur hallast menn að því, að Stolten- berg verði fyrir valinu en hann var náinn vinur Frydenlunds og er líkur honum um margt, mikill mannasættir. Ame Amesen kann þó að reynast harður keppinautur því að líklegra er talið, að stjómar- andstaðan, meirihluti þingsins, muni styðja hann. Knut Frydenlund hafði mikil og góð samskipti við ísiendinga og til íslands fór hann í sína fyrstu opinbem heimsókn eftir að hann varð utanríkisráðherra, f febrúar árið 1974. Hann hafði góðan skilning á stefnu íslendinga í öryggismálum og öllum er kunn- ur stuðningur hans við fslensku þjóðina í deiiunni um 200 mílum- ar. Undirmenn Reagans gagnrýndir í Tower-skýrslunni: Regan harðlega gagnrýndur og af sögn hans spáð Washington, AP. Reuter. TOWER-nefndm sagði í skýrslu sinni að vopnasölumálið væri hin mesta ráðgáta og að illmögulegt væri að ráða hana. Nefndin gagn- rýndi þó harkalega hlutverk helztu valdamanna i Hvita húsinu og sagði að undirmenn Ronalds Reagan, forseta, hefðu þjónað honum Ola. Búist er við afsögn Donalds Regan, starfsmannastjóra, i kjölfar birtingar skýrslunnar, en í henni er hann harðlega gagnrýndur. Nefndin komst að þeirri niður- stöðu að enginn bæri meiri ábyrgð á þeirri ringulreið, sem ríkt hefði Hvíta húsinu eftir að upp komst um vopnasölumálið. Hann hefði gert þau mistök að undirbúa ekki áætlun um hvemig á málum skyldi haldið ef upp um vopnasöluna kæm- ist. Nefndin sagði að Regan hefði haft mikil afskipti af öryggismálum og setið nær alla fundi um vopna- sölumálið. Hinn viljasterki starfs- mannastjóri hefði haldið uppi meiri aga í Hvíta hússins en nokkur for- veri hans og því hefði hann átt að hafa betri röð og reglu á vopnasölu- málinu. Tower-nefndin gagnrýndi John Poindexter, fyrmrn öryggisráðgjafa Bandaríkjaforseta, harkalega. Nefndin segir að Poindexter, sem sagði af sér þegar vopnasölumálið komst í hámæli, hefði gert „átakan- leg og hörmuleg mistök" hvað snerti peningagreiðslur til contra- skæruliða i Nicaragua. Gögn, sem nefndin komst yfír, bentu til þess að hann hefði vitað um greiðslum- ar, en „augljóslega ekki gért sér grein fyrir eða ákveðið að hafa að engu hina alvarlegu lagalegu og pólitísku áhættu, sem þeim væri samfara. Það var embættisleg skylda hans að kanna málið eða skýra forsetanum frá því, en hann gerði hvorugt," sagði í skýrslunni. Loks segir um Poindexter að hann hafi gert tilraunir til að leyna upplýsingum um vopnasölumálið fyrir starfsmönnum Þjóðarörygg- isráðsins. Einnig hefði hann sjálfur reynt „oftar en einu sinni“ að villa Reuter Donald Regan, starfsmannastjóri í Hvita húsinu, (t.h.) klappar fyrir Ronald Reagan, forseta, eftir ræðu, sem forsetinn hélt í Hvita húsinu í fyrradag. Talið er að Regan neyðist til að segja af sér í kjölfar birtingar Tower-skýrslunnar, þar sem hann er gagnrýndur harðlega vegna vopnasölumálsins. um fyrir George Shultz, utanríkis- ráðherra. Þá hefði hann haft það hlutverk að skrifa skýrslur um marga lykilfundi um vopnasölumál- ið en allar fundargerðir væm týndar. Shultz er gagnrýndur í skýrsl- unni, og einnig Caspar Weinberger, vamarmálaráðherra. Þeir „reyndu að halda sér utan við málið og vem- duðu ekki forseta sinn“ eins og þeim hefði borið skylda til. Shultz hefði sérstaklega óskað eftir því að vera ekki upplýstur um atriði máls- ins, nema þau vörðuðu ráðuneyt hans sérstaklega og Weinbergei hefði haft aðgang að smáatriðun vopnasölumálsins, án þess þó ac skýra forsetanum frá þeim. Oliver North, nánasti samstarfs

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.