Morgunblaðið - 27.02.1987, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 27.02.1987, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. FEBRÚAR 1987 27 Starfsmannafélag Borgarspítalans: Vilja sjálfstæði allra spítala „VIÐ viljum að allir spitalar í landinu hafi eigin sjálfsstjórn, en verði ekki settir undir stjórn ríkisspítalanna,“ sagði Sigrún Knútsdóttir, formaður starfs- mannafélags Borgarspitalans í samtali við Morgunblaðið í gær. Síðastliðinn miðvikudag var mis- hermt eftir Sigrúnu að það væri vilji starfsmanna spítalans að unnið verði að því að allir spítalar fari undir stjórn ríkisspítalanna og biðst Morgunblaðið velvirðingar á því. Þetta vill Starfsmannafélag Borg- arspítalans eindregið forðast og vill að hvert sjúkrahús fái að halda sjálfstæði sínu. Sigrún taldi fráleitt að hægt væri að miðstýra öllum sjúkrahúsum landsins frá Reykjavík svo hagkvæmni hlytist af. Námsstefna um fjölmiðla NÁMSSTEFNA um hlutverk og tilgang fjölmiðla í íslensku nútímaþjóðfélagi og áhrif þeirra á íslensk stjórnmál verður haldin í Odda á laugardaginn. Það er ritnefnd Samfélagstíðinda við félagsvísindadeild Háskóla ís- lands, sem gengst fyrir námsstefn- unni og verður Vilborg Guðnadóttir í forsvari fyrir henni. Námsstefnan hefst kl.l3:30. í stofu 101 í Odda. Þar fjallar Olafur Þ. Harðarsson lektor um áhrif fjöl- miðla á kosningahegðun, Þorbjöm Broddason dósent um fjölmiðla og ímynd stjómmálamannsins, Þórólf- ur Þórlindsson prófessor um auglýsingar og prófkjör.Olafur Ragnar Grímsson prófessor um tengsl fjölmiðla og flokkakerfis og Einar Sigurðsson framkvæmda- stjóri um hlutverk fjölmiðla f lýðræðisþjóðfélagi. Einnig verða fijálsar umræður. M (irjju nbluöið/ Björn Blöntlal Magnús Eyjólfsson með tvær af sfnum uppáhalds dúfum. Þessar kallar hann „pústara" og eru þær toppurinn í dag í dúfnaræktinni. En þessi tegund er allsérkennileg í vexti eins og sjá má. Njarðvík Sýning á dúfum KefUvfk. ÁHUGAMENN í dúfnarækt ætla að vera með sýningu á dúfum í Njarðvík um helgina og er búist við að um 100 dúfur verði á sýn- ingunni. Auk þess verða sýnd Mælsku- o g rökræðukeppni hjá málfreyjum MÆLSKU- og rökræðukeppni verður haldin í Gerðubergi laug- ardaginn 28. febrúar kl. 13.30. í keppninni mætast málfreyju- deildimar Björkin og Melkorka, báðar starfandi deildir í Reykjavík. Þetta er útsláttarkeppni deilda inn- an 111. ráðs Landssamtaka mál- freyja á íslandi. Keppnin er opin gestum. skrauthænsni og kynntar verða fóðurvörur. Að sýningu þessari stendur Bréf- dúfu og skrautdúfufélag Suður- nesja og sagði formaður þess, Magnús Eyjólfsson, að allar bestu dúfur landsins yrðu á sýningunni, sem haldin yrði í gamla Rammahús- inu á Bakkavegi 16 í Njarðvík, á laugardaginn og sunnudaginn frá kl. 13.00 til 19.00 báða dagana. - BB Leiðrétting RANGLEGA var farið með föður- nafn nýráðins forstjóra Sjúkrasam- lags Reykjavíkur í blaðinu í gær og er beðist velvirðingar á því. Nafn hans er Þorvaldur Lúðvíksson. Skúmur GK leggst að bryggju f Grindavík eftir róður dagsins með 7 tonn. Grindavík: Morgunblaðið/Kr.Bei.. Nýr Skúmur í smíð- um fyrir Fiskanes - Sá gamli fiskar þokkalega eftir strandið Dagbjartur Einarsson til vinstri og Birgir Smári skipstjóri til hægri í brúnni á Skúm GK. Grindavík. „JÚ ÞAÐ er rétt við vorum búnir að selja Skúm GK 22 sænskri skipasmíðastöð í Norð- ur-Svíþjóð upp í smíði á nýjum, þegar hann strandaði fyrir þrem vikum, með þeim fyrir- vara að leyfi fengist fyrir nýsmíði,“ sagði Dagbjartur Einarsson forsljóri Fiskaness við fréttaritara Morgunblaðs- ins um borð í Skúmnum GK eftir að hann kom úr róðri i fyrradag. Skúmur GK kom niður úr Njarðvíkurslippnum fyrir tveim vikum og hefur fiskað rúm 100 tonn síðan. Báturinn strandaði í innsiglingunni í Grindavík að morgni þriðjudagsins 3. febrúar eins og kunnugt er af fréttum. Dagbjartur sagði að hann hefði verið það svartsýnn að afskrifa bátinn í fjörunni, hvað þá að reikna með honum inn í reksturinn á vertíðinni, ef hann næðist út. Birgir Smári skipstjóri tók undir þessi orð og sagðist vilja koma á framfæri þökkum til allra sem höfðu aðstoðað við björgunina og eins lýsa ánægju sinni með vinnu- brögð starfsmanna Skipasmíða- stöðvarinnar í Njarðvíkum. „Mér finnst báturinn vera sá sami og fyrir strandið þó svo að um bráðabirgðaviðgerð sé að ræða,“ sagði Birgir Smári. Dag- bjartur sagði að nýji báturinn sem verið væri að smíða ætti að af- hendast 1. desember á þessu ári. „Hann er 34 metra langur og 8,75 metra breiður, samtals 193,5 tonna rækjuveiðabátur með öllum tækjum og útbúnaði til rækju- vinnslu og frystingar um borð. Hann á að kosta 142 milljónir króna samkvæmt nýjustu útreikn- ingum og fer sá gamli upp í kaupin en hann er 27 ára gamall og metinn á 24 milljónir króna. Strandið hefur ekki breytt þessu Björgvin Gunnarsson einn eig- anda Fiskaness heldur á teikn- ingu af nýja rækjuveiðiskipinu. dæmi neytt,“ sagði Dagbjartur að lokum. Kr.Ben.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.