Morgunblaðið - 27.02.1987, Page 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. FEBRÚAR 1987
Vilja tryggja réttar-
stöðu raf orkunotenda
KJARTAN Jóhannsson (A.-Rn)
og fimm aðrir þingmenn lögðu í
gær fram í sameinuðu þingi til-
lögfu um rétt raforkunotenda.
Tillagan hljóðar svo: „Alþingi
ályktar að fela iðnaðarráðherra að
skipa nefnd til þess að gera tillögu
um samræmda uppbyggingu á
gjaldskrám og reglugerðum raf-
veitna í landinu með það að
markmiði að tryggja réttarstöðu
rafmagnsnotenda og sem eðlileg-
asta samsvönjn verðlagningar og
tilkostnaðar. í nefndina verði skip-
aður einn fulltrúi samkvæmt tiln-
efningu Sambands íslenskra
rafveitna, einn samkvæmt tilnefn-
ingu Neytendasamtakanna, einn
samkvæmt tilnefningu Alþýðusam-
bands íslands, einn samkvæmt
tilnefningu Vinnuveitendasam-
bands íslands og einn án tilnefning-
ar sem sé formaður nefndarinnar."
í greingerð flutningsmanna segir
síðan: „Tilgangur þessarar tillögu
er að fram fari samræming á gjald-
skrám rafveitna og reglugerðum
þeirra í þeim tilgangi að 1) tryggja
rétt og réttarstöðu raforkunotenda;
2) skilgreina eðlilegar skyldur raf-
veitnanna gagnvart raforkunotend-
um; 3) einfalda gildandi reglur og
gjaldskrár; 4) veita raforkunotend-
um val milli taxta og mælingarað-
ferða á raforkunotkun; 5) tryggja
eðlilega samsvörun milli taxtaupp-
byggingar í verðlagningu raforku
og tilkostnaðar við öflun hennar og
dreifingu; 6) stuðla að sem bestri
raforkunýtingu."
Flutningsmenn benda á, að
reglugerðir rafveitna hafi verið
samdar af rafveitunum sjálfum án
þess að samtök notenda hafí átt
þess kost að koma á framfæri sjón-
armiðum sínum eða athugasemdum
og núverandi reglugerðir beri þess
merki. Nauðsynlegt sé og tímabært
að á þessu verði breyting, m.a. með
tilliti til þess að rafveitur hafí einok-
unarrétt og því mjög sterka stöðu
í viðskiptum sínum við raforkunot-
endur, sem nú hafí nánast enga
leið til að ná rétti sínum sé á þá
hallað, nema fyrir dómstólum lands-
ins, en þangað sé kostnaðarsamt
og seinvirkt að leita.
Rökstuddur grunur segir Guðmundur J. Guðmundsson:
Losun úrgangsefna
50-70 mílur suð-
ur af Skarðsfjöru
Ráðstefna um varnir gegn mengun hafsins
Gunnar G. Schram (S.-Rn.)
mælti í gær fyrir þingsályktun-
artillögu um varnir gegn
mengun hafsins við ísland, þ.e.
um ráðstefnu hér á landi um
þetta efni, sem rikisstjórnin hafi
frumkvæði um og bjóði til
strandþjóðum við Norðaustur-
Atlantshaf. Guðmundur J.
Andstaða við afnám skyldusparnaðar;
Breyta og bæta
en ekki afnema
sögðu þingmenn úr verkalýðshreyfingu
Svavar Gestsson (Abl-Rvk.)
mælti í gær fyrir tillögu sinni til
þingsályktunar, þessefnis, að
ríkissjórnin Iáti semja - fyrir
næsta þing - „frumvarp til Iaga
um afnám skyldusparnaðar ung-
menna í einu lagi eða í áföngum".
Tillagan mætti mótrökum Guð-
mundar J. Guðmundssonar
(Abl.-Rvk.), Karls Steinar Guðna-
sonar (A.-Rn.) og fleiri þing-
manna.
Svavar Gestsson sagði m.a. að
frumvarp um afnám skylduspam-
aðar yrði að byggja á þeirri for-
sendu að ráðstöfunarfé Byggingar-
sjóðs ríkisins skerðist ekki vegna
þeirrar ákvörðunar. Ef skyldu-
spamaði verður fram haldið, sagði
Svavar efnislega, ætti frekar að
binda hann húsnæðisspamaðar-
reikningum en húsnæðislánakerf-
inu sem slíku.
Guðmundur J. Guðmundsson
og Karl Steinar Guðnason töldu
hinsvegar skylduspamað ung-
menna af hinu góða; skylduspam-
aður væri ui't uppistaðan í getu
ungs fólks til að komast yfír eigið
húsnæði. Hinsvegar mætti breyta
gildandi fyrirkomulagi, í ljósi
reynslu, og stórherða innheimtu.
Magnús H. Magnússon (A.-Sl.)
tók í sama streng. Hann sagði að
afnám skyiduspamaðar myndi
óhjákvæmilega rýra útlánagetu
húsnæðislánakerfísins og sparnað í
eigu ungmenna.
Alexander Stefánsson, félags-
málaráðherra, sagði innistæður á
skylduspamaðarreikningum ung-
menna (16-26 ára) vera 1 milljarð
708 m.kr. ogþað munaði um minna.
Hann boðaði frumvarp til að styrkja
þessa spamaðarleið, m.a. um herð-
ingu innheimtu.
Ólafur Þ. Þórðarson (F.-Vf.)
taldi skylduspamað ganga á stjóm-
arskrárákvæði um ráðstöfunarrétt
fólks á eigin fjármunum. Húnsæðis-
stofnun hafí og brugðist að tvennu
lejrti: 1) Með röngum verðtrygging-
arútreikningi og 2) með því að
afnema forgangsrétt sparenda til
lána (fyrsta íbúð).
Blaöburöarfólk
óskast!
11 r ^
AUSTURBÆR
■^ff
Þingholtsstræti o.fl. Sóleyjargata
Meðalholt Laufásvegur 2-57
Miðbær II
Jltargiiatfrliifeife
Guðmundsson (Abl.-Rvk.) lýsti
yfir stuðningi við tillöguna, sem
og fleiri þingmenn. Guðmundur
kvað rökstuddan grun um að
ókunnugt skip hafi í tvígang los-
að úrgangsefni á um 2000 m.
dýpi 50 til 70 sjómílur suður af
Skarðsfjöru.
Alexander Stefánsson, félags-
málaráðherra, Guðmundur J.
Guðmundsson (Abl.-Rvik.), Tryggvi
Gunnarsson (S.-Al.) og Guðrún
Agnarsdóttir (Kl.-Rvk.) lýstu yfír
stuðningi við tillöguna. Tillagan
felur ríkisstjóminni, verði hún sam-
þykkt, að efna til ráðstefnu um
vamir gegn mengun hafsins við
ísland og annars staðar í Norðaust-
ur-Atlantshafí, þar sem sérstaklega
verði fjallað um þá hættu sem físki-
stofnum á þessu sæði er búin af
mengunarvöldum.
Guðmundur J. Guðmundsson
vakti máls á því, sem fyrr segir,
að rökstuddur grunur stæði til þess
að einhverskonar úrgangsefni hafí
verið losuð í sjó hér við land, 50 -
70 mflur suður af Skarðsfjöru.
Svipmynd frá þingi: Friðjón Þórðarson (S.-Vl.) og Pálmi Jónsson,
formaður fjárveitinganefndar, (S.-Nv.).
Ný þingmál:
Tillaga um óbreytt-
ar prestskosningar
í gær lagði Ragnar Arnalds
(Abl.-Nv) fram tillögu um að
vísa frumvarpi, sem fjallar um
breytta tilhögun um skipun
presta í embætti (afnám prests-
kosninga nemi fjórðungur
atkvæðisbærra sóknarbarna
óski eftir) til ríkisstjórnarinn-
ar. Tillaga af þessari gerð er
þingleg leið til að vísa málum
frá.
í gær vóru og lögð fram nokk-
ur ný þingmál:
Norrænn umhverfisvemdar-
samningur: Gunnar G. Schram
og fleiri þingmenn Sjálfstæðis-
flokks flytja tillögu þessefnis að
ríkisstjónin undirbúi aðild íslands
að Norræna umhverfísvemdar-
samningnum, sem gerður var 19.
febrúar 1974 og hefur þegar tek-
ið gildi milli Noregs, Svíþjóðar,
Danmerkur og Finnlands.
Bann við innflutningi - Oson-
lag: Ásta R. Jóhannesdóttir
(F.-Rvk) og þingmenn úr öllum
þingflokkum flytja áskorunartil-
lögu á ríkisstjónina um að banna
innflutning og notkun þeirra efna
sem vísindamenn telja að valdi
eyðingu ósonlagsins sem hjúpar
jörðina.
Skógræktin flytji að HaU-
ormsstað: Guðrún Tryggvadóttir
og fleiri framsóknarþingmenn
flytja tillögu um að landbúnaðar-
ráðherra flytji höfuðstöðvar
Skógræktar ríkisins að Hallorms-
stað.
Samningar lögreglumanna:
Fram hefur verið lagt stjómar-
frumvarp, þessenis, að heimilt sé
að lækka eða fella niður skaða-
bótafjárhæð vegna tjóns sem
lögreglumenn valda við skyldu-
störf og eru af völdum mistaka
eða vanrækslu. Frumvarp þetta
tengist sérkjarasamningum við
Landssamband lögreglumanna.
Sjálfvirkur sími um land allt:
Stóraukið gildi sím-
ans sem öryggistækis
Afnotagjald hækkaði um 1,7% á 42 mánuðum
Verð á teljaraskrefum lækkaði um 2,3%
Afnotagjald síma hefur aðeins
hækkað um 1,7% frá 1. ágúst
1983 eða í rúma 42 mánuði, sagði
Matthias Bjarnason, samgöngu-
ráðherra, í svari við fyrirspum-
um um póst og síma frá Þórarni
Siguijónssyni (F.-Sl.). Frá 1.
ágúst 1983 hefur verð á hveiju
teljaraskerfi hins vegar lækkað
úr kr. 1,35 í kr, 1,32 eða um 2,3%.
MÞMGI
Skrefatalning
Ráðherra sagði, spurður um
skrefatalningu, að dagtaxta hafí
verið breytt úr 60 sekúndum í skrefí
og kvöld- og helgartaxta úr 120
sekúndum í skrefí í 360 sekúndur
allan sólarhringinn. Jafnframt hafi
afslætti á nætur- og helgartaxta
verðir breytt úr 50% í 33% miðað
við dagtaxta. Á undanfömum árum
hafa og fjölmargar lækkanir komið
til á töxtum milli einstakra staða.
Aukinni símanotkun
mætt með nýjum búnaði
Á undanfömum ámm hafa verið
settar upp sjálfvirkar símstöðvar
af nýrri og fullkomnari tegund,
svokallaðar stafrænar símstöðvar:
þ.e. í Reykjavík, á Keflavíkurflug-
velli, á Hvolsvallarsvæði og
Húsavíkursvæði. Stöðvar af þessu
tagi verða settar upp fyrir Egils-
staðasvæði og Borgamessvæði í ár.
Á höfuðborgarsvæðinu hafa verið
lagið ljósleiðarar sem flutt geta
mikinn fjölda símrása samtímis. Á
síðasta ári var lagður ljósleiðara-
strengur milli Reylqavíkur, Selfoss
og Hvolsvallar og verður hann tek-
inn í notkun bráðlega. Á þessu ári
verður lagður fyrri áfangi ljósleið-
arasambands milli Reykjavíkur og
Akureyrar. Verklok em áætluð á
næsta ári.
Þessar framkvæmdir vóm og em
nauðsynlegar til að mæta auknu
álagi.
Síminn öryggistæki
í ágúst 1986 véku síðustu hand-
virku símamir fyrir sjálvirkum. Þar
með náði sólarhringsþjónusta til
allra símnotenda.
Niðurfelling aðflutningsgjalda og
söluskatts af framkvæmdaefni fyrir
sjálfvirkar símstöðvar flýtti upp-
byggingu sjálfvirka kerfísins.
Það ásamt tilkomu sjálfvirka far-
símakerfísins, sem opnað var í júlí
1986, hefur stóraukið gildi símans
sem öryggistækis.