Morgunblaðið - 27.02.1987, Side 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. FEBRÚAR 1987
Stiörnu-
speki
Umsjón: Gunnlaugur
Guðmundsson
* „Ágæti stjömuspekingur. Ég
myndi gjaman vilja fá að vita
hvað stjömumar segja um
persónuleika minn og annað
í sambandi við mig. Ég er
fædd 24.7. 1931 á milli kl.
7—9 að morgni. Ég tel mig
nokkuð sterkt Ljón. Hvaða
merki passa mér best og
hvaða mánuður? Með fyrir-
ffam þökk.“
Svar:
Þú hefur Sól og Júpíter sam-
an í Ljóni, einnig Merkúr,
Tungl í Sporðdreka, Venus í
Krabba og Mars í Meyju.
Rísandi er líkast til í Meyju
og Naut á Miðhimni.
Hreyfanleiki
Júpíter á Sólina táknar að
Ljónseiginleikamir þenjast
út, ef svo má að orði kom-
ast, og verða sterkari en ella.
Þú hefur sterka þörf fyrir að
víkka sjóndeildarhring þinn
og getur það m.a. birst í
áhuga á ferðalögum og þörf
fyrir hreyfingu og tilbreyt-
ingu. Þú ert ekki manneskja
sem getur setið kyrr og búið
við mikla vanabindingu.
Tilfinningarík
Tungl í Sporðdreka og Venus
í Krabba táknar að tilfinning-
ar þínar eru djúpar og
sterkar. Þú ert næm á fólk,
ert ágætur sálfræðingur og
finnur til með öðrum. Vemd-
ar- og umhyggjutilfínningar
þínar em sterkar.
Opinogdul
Ljónið og Sporðdrekinn eru
að mörgu leyti ólík merki.
Annað er opið en hitt er dult.
Þú ert því þrátt fyrir opið og
hlýtt Ljónið dul og varkár á
tilfinningasviðinu. Að vissu
leyti vilt þú bæði vera í sviðs-
Ijósinu og úr því.
Frelsi og ábyrgÖ
Önnur staða er heldur ein-
kennileg í korti þínu. Það er
Úranus og Satúmus á Ven-
us. Það táknar að þú hefur
sterka ábyrgðarkennd en vilt
samt sem áður vera ftjáls og
óháð, og þarft á töluverðri
spennu að halda í samskipt-
um þínum við aðra. Sambönd
þín geta því orðið mótsagna-
kennd og misjöfn.
Samviskusöm
Mars í Meyju táknar að þú
ert dugleg og samviskusöm
í vinnu, ert nákvæm og átt
til að vera smámunasöm. Þú
vilt leysa verk þín vel af hendi
og átt auðvelt með að taka
til hendini.
ÁkveÖin
Þegar á heildina er litið má
segja að þú sért sterkur per-
sónuleiki. Þú ert ákveðin og
ráðrík, vilt amk. stjóma
sjálfri þér, ef ekki öðrum.
Þú ert tilfinningarík og næm,
opin, einlæg og hlý.
Framkvcemda-
maöur
Það er ekki gott að segja
t hvaða merki á best við. Sum
eru góð til að skemmta sér
með, önnur til að vinna með
o.s.frv. Ég tel að tilfínninga-
ríkt en jafnframt jákvætt fólk
eigi best við þig. Hvað varðar
maka er algengt að konur
laðist að mönnum sem svipar
til Sólar þeirra og Mars. Sam-
kvæmt því þarf maður þinn
að vera sterkur og duglegur
persónuleiki, kannski einna
helst sjálfstæður fram-
kvæmdamaður.
OrÖlaus
Ég get ekki svarað hvaða
ákveðinn mánuður á best við.
Til eru ákveðnar kenningar
sem segja að ár einstaklings-
ins byiji í sama mánuði og
Rísandi merki, í þínu tiiviki
í kringum september. En
hvort það er betri mánuður
en aðrir get ég ekkert sagt
um.
GARPUR
W! | ^
X-9
Aftur í þorpl /yf k
1
iGOiiiir
TOMMI OG JENNI
AF WERX>H4Fa
KETVZ SVOHA
sráa ey/eu?
» ■ ióoi/ n
"771T 1 IUoKM m rTTrm~'Ár- —mp
^olitio ,
UPPFyRlRMER
ompA jólareikn-
JNGAi'JANOAR. .
FERDINAND
277*
SMAI-ULK
WE SHOULP BE GRATEFUL
THAT WE'RE LIVING AT
THIS POINT IN MISTORV
Á ég að segja þér nokkuð,
Magga?
Við ættum að vera þakk-
iátar fyrir að lifa á þessum
tíma sögunnar.
Hvaða tími er það, herra? Gullöld falleinkunna!
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Á opnu borði má finna tvær
leiðir til að vinna fjögur hjörtu
í eftirfarandi spili. Kemurðu
auga á þær?
Suður gefur; NS á hættu.
Norður
♦ K1083
V2
♦ 9742
♦ G765
Vestur
♦ DG9
V 8765
♦ 10
+ ÁK432
Austur
♦ 76542
VG4
♦ DG
♦ 108
Suður
♦ Á
VÁKD1093
♦ ÁK63
♦ D9
Vestur Norður Austur Suður
— — — 2 lauf
Pass 2 tíglar Pass 2 hjörtu
Pass 2 grönd Pass 3 tíglar
Pass 4 tíglar Pass 4 hjörtu
Pass Pass Pass
Eftir alkröfuopnun suðurs
þróast sagnir eðlilega upp í fjög-
ur hjörtu. Vestur hefur leikinn
með því að taka ÁK í laufi og
spila svo litlu laufí. Við gefum
okkur að sagnhafi falli ekki í
þá gryfju að stinga upp lauf-
gosa. Austur trompar með
hjartagosa og suður yfirtromp-
ar.
Spilið er leikur einn ef tígull-
inn skiptist 3-2. En til að verjast
4-1-legunni gerir sagnhafi best
í því að taka aðeins þrisvar
tromp, spaðaás, og spila svo ÁK
í tígli. Falli liturinn er hægt að
taka síðasta trompið af vestri
og sækja tfunda slaginn á tígul.
En eins og liturinn brotnar
er vestri boðið upp á að stinga
tígulhámann. Hann græðir hins
vegar lítið á því, þar sem hann
neyðist til að spila svörtum lit
og gefa sagnhafa þar með tvo
slagi, annan á spaðakóng og
hinn á laufgosa.
Svo vestur fleygir laufi. En
það er skammgóður vermir, því
honum er einfaldlega kastað inn
í næsta slag á tromp! Tromp-
þristurinn er blessunarlega
(fyrir sagnhafa) lægri en fímrn-
an.
Hin vinningsleiðin — sem er
fremur hæpin við spilaborðið —
er að taka öll trompin, spaðaás
og spila svo litlum tígli. Þá lend-
ir vömin í svipaðri klemmu.
SKAK
Umsjón Margeir
Pétursson
Á Ólympíumótinu í Dubai
kom þessi staða upp í skák al-
þjóðlegu - meistaranna Utut
Adianto, Indónesíu, sem hafði
hvítt og átti leik, og Klaus Bisc-
hoff, V-Þýskalandi.
35. Rd5! og svartur gafst upp.
Hann á ekkert betra en 35. —
Ke8, 36. Rxe7 (36. Dh81 - Df8
er lakara) Hxd4 37. Hxd4 —
Kxe7 og með skiptamun yfir er
endataflið auðunnið. Utut
Adianto kom á óvart hér á
Reykjavíkurmótinu í febrúar og
í Dubai tryggði hann sér stór-
meistaratitil. Eina tapskák hans
var gegn Jóni L. Ámasyni.