Morgunblaðið - 12.03.1987, Síða 3
b
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. MARZ 1987
3
Kaupmannahöfn:
Islensk
málverk
á uppboði
MÁLVERK eftir Gunnlaug
Blöndal var selt fyrir rúmlega
152 þúsund íslenskra króna á
uppboði hjá Ame Bruun Ras-
mussen í Kaupmannahöfn í
gær.
Málverkið var í sýningarskrá
metið á 15 til 20 þús. danskar
krónur, sem jafngildir 84.573.00
til 112.764.00 ísl. kr. en var sleg-
ið nýjum eiganda í ísl. kr. 152.231.
Tvö önnur málverk eftir íslenska
listamenn, þá Jón Stefánsson og
Jón Þorleifsson, verða boðin upp
á síðari degi uppboðsins í dag. Fjallalandslag með á eftir Gunnlaug Blöndal sem selt var á uppboðinu í Kaupmannahöfn í gær.
Skagafjörður:
Grásleppu-
karlar ása
út netum
Skagafirði.
EKKl er hægt að segja annað en
að veturinn hafi verið dásamlega
hagstæður. Nú eru tún byijuð að
grænka, brum sjást á tijám og
grænir toppar sjást á túnum.
Mér er sagt að klakinn sé sama
og enginn í jörðu og sumstaðar ekki
til. Farið er að setja kartöflur niður -
til spírunar. Ekki veit ég til að farið
sé að setja niður þó umtal sé tölu-
vert um það. Vegimir eru eins og á
sumardegi en þó eru byijaðar að
koma holur eftir mikla umferð. Vitan-
lega er hrossum beitt nema einstaka
eldishross sem alin eru. Rauðmaga-
veiði hefur verið góð og nú eru
grásleppukarlar að ása út netum
sínum. Annars hefur sjóveiði lítið
verið stunduð í Skagafírði þar sem
af er og togarar aflað misjafnlega.
Björn í Bæ
Utvarpsumræður á Alþingi í kvöld:
Þrír ræðumenn frá
hverjum þingflokki
Stefnt að þinglausnum næsta fimmtudag
ÞIN GFLOKKARNIR hafa hver um
sig tilnefnt þijá menn til að tala
í almennu stjórnmálaumræðunum
á Alþingi í kvöld. Hver flokkur fær
samtals þijátíu mínútur til umráða
og verða umferðirnar þijár, tíu
mínútur í hverri. Röðin verður
þessi: Framsóknarflokkur, Al-
þýðuflokkur, Sjálfstæðisflokkur,
Alþýðubandalag og Samtök um
kvennalista. Umræðurnar hefjast
kl. 20:00.
Ræðumenn Framsóknarflokks
verða Alexander Stefánsson, félags-
málaráðherra, Jón Helgason,
dómsmálaráðherra, og Steingrímur
Hermannsson, forsætisráðherra.
Ræðumenn Alþýðuflokks verða Jón
Baldvin Hannibalsson, Guðmundur
Einarsson og Kjartan Jóhannsson.
Ræðumenn Sjálfstæðisflokks verða
Þorsteinn Pálsson, fjármálaráðherra,
Ólafur G. Einarsson og Friðrik Soph-
usson. Ræðumenn Alþýðubandalags
verða Ragnar Amalds, Guðrún
Helgadóttir og Steingrímur J. Sigfús-
son. Fyrir Samtök um Kvennalista
tala Sigríður Dúna Kristmundsdóttir,
Guðrún Agnarsdóttir og Kristín
Halldórsdóttir.
Stutt er nú eftir af þingtímanum,
enda hafa kosningar verið ákveðnar
25. apríl n.k. Stefnt er að þinglausn-
um fímmtudaginn 19. mars.
Hæstarettardómur:
Víxilréttur helst
þótt víxill sé útgef-
inn eftir gjalddaga
FYRIR Hæstarétti hefur fallið
dómur sem sýnir að víxill, sem
hefur verið samþykktur, heldur
víxilrétti gagnvart samþykkjanda
enda þótt útgefandi hafi verið
annar en samþykkjandi ætlaði og
víxillinn hafi bæði verið gefinn
út og framseldur eftir gjalddaga
og afsagnardag.
Málið snerist um víxil sem fyrir-
tækið Bifreiðar og Landbúnaðarvélar
samþykkti, en á víxileyðublað vant-
Borgarráð:
• •
Oryggismál olíu-
tanka kannað
SAMÞYKKT hefur verið í borgar-
ráði að kanna ástand og öryggis-
mál allra olíutanka í borginni.
Siguijón Pétursson fulltrúi Al-
þýðubandalagsins í borgarráði lagði
fram tillögu um að: „Borgarráð sam-
þykkir að fela borgarverkfræðingi að
láta kanna nú þegar ástand og örygg-
ismál allra olíutanka í borginni og
skila niðurstöðum til borgarráðs inn-
an tveggja mánaða. Þá samþykkir
borgarráð að krefjast þess af Lands-
virkjun, að nú þegar verði gengið frá
fullnægjandi öryggisráðstöfunum við
olíutanka hennar í Elliðaárdal."
Borgarráð samþykkti fyrri hluta
tillögunnar en síðari hluta hennar var
frestað.
aði nafn útgefanda. I niðurstöðum
undirréttar segir að í ritun sam-
þykkisins hafi falist heimild til handa
fínnska fyrirtækinu Tuulilasimyynti
Raimo Rapeli Oy, sem síðar varð
fyrirtækið Suomen Tuulilasimyynti
Öy, til að rita nafn útgefanda og
neyta síðan víxilréttar á hendur Bif-
reiðum og Landbúnarvélum sem
samþykkjanda. Þessa heimild not-
færði hið finnska fyrirtæki sér. Með
ritun útgefanda á víxileyðublaðið
hafí orðið til lögformlegur víxill.
Finnska fyrirtækið hafí síðan öðlast
rétt, samkvæmt vixlinum, á hendur
Bifreiða og Landbúnaðarvéla með
framsali frá útgefanda. Þótt víxillinn
hafí verið framseldur eftir gjalddaga
hafí það framsal fullt gildi að víxil-
rétti.
Þá segir í niðurstöðum undirréttar
að víxiil sé formslqal og þegar málið
hafí verið höfðað hafí víxillinn upp-
fyllt öll formskilyrði víxillaga. Því
skipti það ekki máli um gildi víxilsins
að hann hafi ekki verið undirritaður
af útgefanda á gjalddaga. Bifreiðum
og Landbúnaðarvélum var því gert
að greiða víxilskuldina og hefur
Hæstiréttur nú staðfest þann dóm.
Dóminn kváðu upp hæstaréttar-
dómaramir Magnús Thoroddsen,
Guðrún Erlendsdóttir og Halldór
Þorbjömsson. Lögmaður fínnska fyr-
irtækisins var Hákon Ámason hrl.,
en lögmaður Bifreiða og Landbúnað-
arvéla var dr. Gunnlaugur Þórðarson
hrl.
SNJÓÞVEGNU
gallabuxur úr svörtu deni
Einnig mikio úrval af ödrum
KARNABÆR
Austurstræti 22. unglingadeild. La
Dl
Laugavegi 66