Morgunblaðið - 12.03.1987, Síða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. MARZ 1987
Ásjónur
Myndlist
Bragi Ásgeirsson
Menn hafa leikið sér að því
að búa til hinar margvísleg-
ustu formanir, er tengjast
ásjónum manna, frá örófi alda.
Tengdist það í flestum tilvik-
um trúarhneigð og þörf
frummannsins til að tjá sig og
til vemdar gegn illum vættum.
Er tímar liðu varð þetta að
hreinni listgrein og með því
skemmtilegasta, sem undirrit-
aður veit, er að reika um sali
þjóðháttasafna og virða fyrir
sér slíka hluti. Hér er fjöl-
breytnin og hugkvæmnin svo
ótrúleg, að hver salur býður
upp á óvæntar upplifanir er
gagntaka sérhvem sem telst
gæddur votti formtilfínningar.
Listamenn tuttugustu aldar
hafa sótt stíft í smiðju hinna
fmmstæðu snillinga, sem á
engan hátt vom að rembast
við að búa til það, sem við
skilgreinum með hugtakinu
list, þeir vom einfaldlega rekn-
ir áfram af þörf og handverkið
ásamt formtilfínningunni þró-
aðist um tugþúsundir ára.
Og það er einmitt þörfín,
sem rekur nútímamanninn til
að skapa list, en formtilfinning
hans er ekki jafn eðlisiæg og
rík og forfeðranna og því er
þeim svo hollt að leita á vit
uppmnaleikans. Þetta hafa
mestu myndlistarsnillingar
aldarinnar gert og hefur það
verið liður í formarannsóknum
þeirra svo og á innri lífæðum
skapandi hvata.
Einn af þeim, sem hafa leit-
að á þessi mið í listsköpun
sinni, er Sverrir Ólafsson,
sem um þessar mundir sýnir
nokkra skúlptúra er byggjast
á andlistformum í Gallerí
Grjóti á Skólavörðustíg og
stendur sýningin til 22. mars.
Sverrir vakti fyrst vemlega
athygli er hann sýndi í eystri
gangi Kjarvalsstaða fyrir fjór-
um ámm eða svo. Það var
mikið sprell og fjör í þeirri
sýningu og hann bætti um
betur á sýningu í Listasafni
alþýðu fyrir hálfu öðm ári.
A sýningunni í Gallerí Gijóti
em einungis tólf skúlptúrar,
sem gerandinn vinnur í hina
ýmsu tegundir málma, stál,
brons og pottjám og málar
hann á suma myndverkin af
mikilli litagleði. Hér er „Und-
anhaldið“ (3) vafalítið heilleg-
asta verkið. En það era
myndimar, sem unnar em í
pottjám, sem vöktu langsam-
lega mestu athygli mína að
þessu sinni. Hér koma fram
meiri alvara og festa og mark-
vissari vinnubrögð en áður.
Vil ég sérstaklega nefna
myndimar „Einskonar bros“
(4), „Frammaðurinn“ (7) og
„Svona er tunglið“ (9).
í þeim myndum fínnst mér
Sverrir Ólafsson ótvíræðast
staðfesta hæfileika sína á sviði
skúlptúrlistarinnar.
Sverrir Ólafsson með skúlptúrverk.
28911
Grettisgata. 2ja herb. V. 1500 þ.
Ásbraut. Rúmg. 2ja herb. Tilboð.
Lindargata. Góð 4ra herb. efri
hæð í tvíb. Sérinng. V. 1900 þ.
Hverfisgata. V. 1050 þ.
Einstaklingsíbúðir
Laugarnesvegur. V. 900 þ.
Tryggvagata.45fm íb. V. 1700þ.
2ja herb. íb. viö:
Álfaskeið Hf. V. 1600 þ.
Vallartröð Kóp. Góð 2ja herb.
íb. V. 2100 þ.
Krummahólar + bilsk. V. 2000 þ.
Hraunbæ. Góð 3ja herb. V. 2,8
m.
Kóngsbakki. Góð 3ja herb. á
2. h. Tilboð.
Miklabraut. 3ja herb. V. 2,3 m.
Vesturbær. 3ja herb. V. 1700 þ.
Einiberg Hf. 2ja-3ja herb. V. 2,2
Skerjafjörður. Snotur 4ra herb.
í þríb. Laus fljótlega.
Háaleitisbraut. 4ra herb. Allt
sér. V. 3,3 m.
Laugarnesvegur. 4ra herb. 120
fm. Tilboö.
Kópav. Góð 4ra herb. íb. ásamt
bílsk. Laus strax. V. 3200 þ.
Lítil matvöruverslun í Vesturb.
Matvöruverslun í Austurb.
Höfum fjársterkan kaupanda
að 3ja-4ra herb. íb. i Austurb.,
t.d. Selás. Sérinng. æskil.
í smðum 4ra-5 herb.b.
v/Hvammabraut Hf.
Fokh. einbhús á Seltjn.
Teikn. á skrifst.
Einbýlishús.
Bræðraborgarstígur. Vandað
hús 220 fm. Stór eignarlóð.
Lindargata. 150 fm einb. Sér-
lóð. V. 2,7 m.
Bauganes. Norskt hús ásamt
bílsk. Verð 2,3 m.
Höfum nokkrar bújarðir til sölu.
Aðst. til smábátaútgerðar.
Vantar: Iðnaðarhúsn. 450-500
fm á Stór-Reykjavíkursvæðinu.
Mætti vera á 2-3 hæðum.
Vantar allar stærðir og gerðir
eigna á skrá. Skoðum og verð-
metum samdægurs.
m BústnAir
UUH FASTEIGNASALA
Klapparstíg 26, sími 28911.
Helgi Hákon Jónsson hs. 20318
Friðbert Njálsson 12488.
_^\pglýsinga-
síminn er 2 24 80
685009
685988
Laufásvegur. 2ja herb. rumg.
íb. á jarðhæð í góðu steinhúsi (nýrri
hlutinn). íb. snýr öll i suður. Sérinng.
Ákv. sala. Afh. eftir ca 3 mán. Verð 2 millj.
Hraunbær. 3ja herb. íb. í góðu
ástandi á 2. hæð. Aukaherb. á jarö-
hæö. Verð 2,8 millj.
Valshólar. 3ja herb. nýl. vönduö
endaíb. á efstu hæö. Bílskréttur.
Þvottah. innaf eldhúsi. Æskil. skipti á
stærri eign. Verð 3,3 millj.
Kambsvegur. 3ja-4ra herb. 80
fm risib. í þríbhúsi. Verö 2200 þús.
Hólahverfi. 3ja herb. íb. í góöu
ástandi í lyftuhúsi. Suöursv. Bflskýli.
Mögul. skipti á stærri eign. Verö 2,8 m.
Fornhagi. 4ra herb. 95 fm kjíb. í
góöu steinhúsi. Tvöf. gler. Björt íb.
Gott fyrirkomul. Verö 3,2-3,3 millj.
Snorrabraut. 4ra herb. 110 fm
íb. á 2. hæö. Sérinng. Eign i góöu
ástandi. Verð 2950 þús.
Vesturbær. 4ra herb. íb.
í frábæru ástandi á efstu hæö í
sambýlishúsi. Rúmg. herb.,
vandaö tróv. Suöursv. Mikiö út-
sýni. Mögul. skipti á stærri eign.
Verö 4,5 millj.
Fiskakvísl. 4ra herb. 127 fm íb.
á 1. hæö. 15 fm herb. ó jaröhæö. Innb.
stór bílsk. á jaröhæð. Eignin er ekki
fullb. en íbhæf. Ákv. sala. Verö 4,3 millj.
Breiðvangur Hf. 4ra-s herb.
íb. á 2. hæð. Sérþvottahús innaf eld-
húsi. Bilsk. Verð 4,0 millj. Skipti æskil.
á eldra húsi í Hafnarf.
Rauðalækur. 140 fm
hæö í fjórbhúsi. Tvennar svalir.
Nýtt gler. Endurn. innr. Þvotta-
hús innaf eldhúsi. Verö 4,5 millj.
Kjarrmóar. Parhús á tveimur
hæðum. Ca 130 fm. Bllskróttur. Fullb.
hús. með vönduðum innr. Parket á
gólfum. Til afh. strax. Verð 4,7 millj.
Selbrekka Kóp. Raöhús á
tveimur hæöum meö stórum innb. bflsk.
Á neöri hæð er góö einstaklingsíb.
Húsiö er' til afh. í júni. Ákv. sala.
Brekkutangi Mos. 300 tm
raöhús á tveimur hæöum auk kj. Innb.
bílsk. Séríb. í kj.
Skemmuvegur. 200 fm
bjart húsn. á jarðh. Engar áhv.
veöskuldir. Afh. eftir 3-4 mán.
Ákv. sala. Frábær staðsetn.
Vefnaðarvörubúð. versi. er
staös. í fjölm. íbhverfi. öruggt leigu-
húsn. Góöur lager. Viöróöanlegt verö.
KjöreignVf
Ármúla 21.
Dan. V.S. Wiium lögfr.
Ólafur Guómundsaon söluatjóri.
Norrænar ljósmyndir 85
styrkja stöðu ljósmyndalistar-
innar með tilliti til annarra
greina myndlistarinnar með
því að kynna listræna ljós-
myndun frá sem flestum
sjónarhomum.
Þetta er athyglisverð og fal-
leg sýning og hefði skilyrðis-
laust átt að vera sett upp í
heild sinni hér, þótt það sé í
sjáifu sér þakkarvert, að Nor-
ræna húsið gefi okkur kost á
að sjá brot af henni frekar en
ekkert. Þó er vafamál, hvort
það sé rétt stefna, því að með
því er hún slitin úr samhengi.
Þetta hefur skeð áður og
með sama árangri og því em
það vinsamleg tilmæli, að
Norræna húsið reyni í framtíð-
inni að forðast að kynna slíkar
útþynningar stærri sýningar-
heilda.
Af sýningarskrá sést einnig,
að heilmargt ágætra ljós-
mynda vantar og svo era
einnig athyglisverð verk á sýn-
ingunni, sem ekki em í
skránni.
Hefði hér farið betur, að
allar myndimar í skránni hefðu
ratað hingað, því að það hefði
gert sýninguna ólíkt heillegri,
bæta svo við fleimm, eftir því
sem tök vom á.
Varla er rétt í ljósi þessara
staðreynda að fara út í alvar-
legan samanburð á gæðum
ljósmyndanna, en mér þótti
áberandi, hve Finnar koma
sterkt frá henni og þá em
myndir Guðmundar Ingólfs-
sonar með því stílhreinasta,
sem ég hef séð frá hans hendi.
En ég vil öðm fremur vekja
athygli á líflegri sýningu og
biðja um slíkar sýningar í heild
sinni í framtíðinni.
Gróskumiklu listalífí
Reykjavíkurborgar er tak-
markaður sómi sýndur með
slíkum vinnubrögðum, sem
væm þó meir en réttlætanleg
væri um dreifbýlið að ræða.
En hér vekur slík sýning
Iöngun hjá manni til að sjá
meira og gremju yfir því að
vera meinað það.
Myndlist
Bragi Ásgeirsson
Listræn ljósmyndun frá sem
flestum sjónarhomum er
markmið sýningar, sem nú
stendur yfír í anddyri Norræna
hússins. Mér sýnist þetta vera
farandsýning, er fari um öll
Norðurlöndin, sern aðild eiga
að sýningunni, íslandi, Dan-
mörku, Finnlandi, Noreg og
Svíþjóð, hin veglega sýningar-
skrá gefur það ótvírætt til
kynna. Auk þess em ekki nema
57 myndir á sýningunni héma
af 350, sem uppmnalega vom
valdar á sýninguna af Gert
Gartmund, sem í þeim tilgangi
ferðaðist um öll Norðurlönd
ásamt Esther Nyholm.
En fmmkvæði að sýning-
unni átti Finn Thrane, for-
stöðumaður ljósmyndasafnsins
í fataverksmiðju Brandts í
Óðinsvéum, sem er hluti lista-
miðstöðvar, sem var opnuð
hinn 1. janúar síðastliðinn. Hér
er sem sagt komið enn eitt
dæmi um það, að fyrirtæki
styrki skipandi listir, sem fer
mjög í vöxt á Norðurlöndum
og er algengt víða um heim.
Sýningunni er ætlað að
Eisinita-safnið eftir Matti Saanio, Finnlandi.