Morgunblaðið - 12.03.1987, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. MARZ 1987
35
Aurskriður íPerú
íbúar borgarinnar Santa Eulalia, f Perú, leita í braki á götu einni eftir að aurskriða féll yfír borgina.
Mikið hefur rignt á hálendum svæðum í Perú að undanfömu og seint á mánudagskvöld rofnuðu nokkrar
stíflur gerðar úr jarðvegi, í hálendinu u.þ.b. 40 km. fyrir austan höfuðborgina Lima. Vatnið fossaði niður
fjallshlíðamar, bar með sér leðju og steinhnullunga og steyptist síðan yfír nokkrar borgir. Óttast er að
. margir hafí látið lífíð í þessum hamfömm og ljóst er að mikið eignatjón hefur orðið.
Frakkland:
Krafa um ógildingu
dóms yfir Abdallah
Paris, AP.
LÖGMAÐUR George Ibrahim Abdallah, líbanska hryðjuverkamanns-
ins sem dæmdur var til lífstíðarfangelsisvistar nýlega í París fyrir
aðild að tveimur morðum og áform um hið þriðja, hefur sent dóms-
málaráðherra Frakklands bréf, þar sem hann fer fram á dómurinn
verði gerður ógildur.
Ástæða þessarar beiðni er að
fyrrverandi lögmaður Abdallah,
Jean-Paul Mazurier, staðfesti það í
franska sjónvarpinu sl. fostudag að
hann hefði gengið til liðs við frönsku
leyniþjónustuna í ágúst 1984 og
látið henni í té upplýsingar allan
þann tíma sem hann var lögmaður
Abdallah. Jacques Verges, er verið
hefur lögmaður Abdallah eftir að
Mazurier lét af þeim störfum, segir
í bréfi sínu að þetta sé í fyrsta sinn
sem ríkisvaldið beiti slíkum lúa-
brögðum og sendi til ákærðs aðila,
leyniþjónustumann dulbúinn sem
lögmann.
í þessari viku kemur út í Frakk-
landi bók sem skrifuð er í samvinnu
við Mazurier og fjallar um hið tvö-
falda hlutverk hans sem lögmanns
og njósnara og ástæður þess að
hann fór að vinna fyrir leyniþjón-
ustuna.
Bandaríkin:
Babbitt vill
verða forseti
Skýrsla um mannrétt-
indabrot í E1 Salvador
San Salvador, Reutcr.
BANDARÍSK mannréttindasamtök greina frá því í skýrslu, sem
gefin var út í San Salvador á þriðjudag, að öryggissveitir í E1 Salva-
dor pynti iðulega pólitíska fanga. Mannréttindanefnd lögfræðinga
sagði að þrátt fyrir tilraunir til að bæta dómskerfið í landinu væri
ástandið með þeim hætti að mál níu pólitískra fanga af hveijum tíu
kæmi aldrei fyrir rétt. Rúmlega þúsund pólitískir fangar sitja nú inni
dauðsveitir við vegi í E1 Salvador,
en fórnarlömbum hefur fækkað úr
eitt hundrað í um tíu á mánuði,"
segir í skýrslunni.
Manchester, New Hampshire, Reuter.
Babbitt, fyrrum ríkisstjóri í Arizona, lýsti yfir því á þriðjudag að
hann hygðist sækjast eftir því að verða útnefndur frambjóðandi
demókrataflokksins við forsetakosningarnar 1988.
Babbitt, sem er 49 ára, er annar
maðurinn, sem ákveður að sækjast
eftir útnefningu demókrataflokks-
ins vegna forsetakosninganna.
Fyrstur til þess varð Richard Gep-'
hardt, fulltrúadeildarmaður frá
Missouri. Talið er líklegt að fleiri
eigi eftir að sækjast eftir hnossinu
og hafa helzt verið nefndir í því
sambandi Gary Hart, öldungadeild-
armaður frá Colorado, sem kepptist
um útnefningu flokksins við Walter
Mondale 1984, Joseph Biden, öld-
ungadeildarmaður frá Delaware,
blökkumannaleiðtoginn Jesse Jack-
son, og Michael Dukakis, ríkisstjóri
í Massachusetts.
í E1 Salvador.
í skýrslunni, sem nefnist „Úr
öskunni", sagði að næstum öllum
konum, sem settar hefðu verið í
fangelsi, hefði verið nauðgað eða
tilraun gerð til að nauðga þeim.
Engir starfsmenn öryggissveitanna
hafa verið dregnir fyrir rétt þrátt
fyrir órækar sannanir um að þeir
hafi átt aðild að pólitískum morðum
og menn handteknir þótt fátt sann-
aði sekt þeirra, að því er segir í
skýrslunni.
„Kerfið, sem nú er við lýði virð-
ist aðeins þolandi ef það er borið
saman við voðaverk fortíðarinnar,"
segir í skýrslunni og er þar viður-
kennt að mannréttindabrotum hafí
fækkað síðan í upphafi þessa ára-
tugar.
Stjóm E1 Salvador hefur ekkert
viljað um skýrsluna segja. Talsmað-
ur bandaríska sendiráðsins kvaðst
ekkert vilja láta hafa eftir sér um
skýrsluna því að hann hefði ekki
lesið hana.
í skýrslunni segir að öryggis-
sveitir í E1 Salvador beiti fóm-
arlömb sín ýmsum aðferðum,
barsmíðum, aftökuhótunum, bindu
fyrir augu þeirra og gæfu raflost.
í yfirheyrslum væri reynt að koma
í veg fyrir að ummerki um pynting-
ar sæjust á líkama fómarlambsins.
„Enn má fínna illa útleikin lík eftir
Reuter
Öflug gagnageymsla
PEUGEOT 205 - Verð frá kr.:
PEUGEOT 309 - Verð frá kr.:
PEUGEOT 505 - Verð frá kr.:
318.700,-
403.600,-
606.300.-
PEUGEOT309, BÍLL ARSINS í DANMÖRKU
(Verð miðað við 1/3 1987.)
Við bjóðum
velkominn til íslands nýjan glœsilegan
fulltrúa frá Peugeot, PEUGEOT 309.
309 fœr mjög góðar viðtökur í
Evrópu og hefur þegar verið valinn
bíll ársins í Danmörku.
Hárnákvœm vinnubrögð, (því 309
er að mestu settur saman
af vélmennum), tryggja há gœði.
309 er 5 dyra framhjóladrifinn og með
fjöðrun í Peugeot gœðaflokki.
Það ásamt eyðslugrönnum vélum
og lágri bilanatíðni gera 309 að
bíl fyrir íslenskar aðstœður.
BÍLAR TIL AFGREIÐSLU STRAX
Tæknimaður hjá Eastmann Kodak-fyrirtækinu kannar gæði nýs
tölvudisks, sem fyrirtækið framleiðir. Á diskinum eru á 15 þús-
und gagnaraufar á hverri þvermálstommu. Geymslugeta disks-
ins eru 6,8 milfjarðar bita, en það jafngildir þvi að hann geti
geymt allt ritmál, sem koma mætti fyrir á stafla af A-4-ritvélar-
örkum, sem væri á hæð við 92 hæða hús.
VIKINGUR SF
Furuvöllum 11, Akureyri
JÖFUR HF
Nýbýlavegi 2 • Sími 42600
ÞÓRHILDUR/SÍA