Morgunblaðið - 12.03.1987, Síða 44
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. MARZ 1987
44
Lagmetisiðjan Garði hf. Grindavík:
Framleiðir kavíar fyr-
ir Frakklandsmarkað
Grindavík.
HAFIN er framleiðsla á kavíar
úr söltuðum grásleppuhrognum
fyrir Frakklandsmarkað hjá
Lagmetisiðjunni Garða hf. í
Grindavik undir vörumerkinu
„Royale“.
Að sögn Einars Lárussonar verk-
smiðjustjóra hóf fyrirtækið söltun
á grásleppuhrognum á síðastliðnu
ári auk þess sem keypt voru söltuð
hrogn víða að. „Eftir tilraunastarf-
semi í samvinnu við aðila á
Akranesi, Vigni Jónsson, sem stað-
ið hefur yfir í 6 mánuði með
Frakklandsmarkað fyrir augum, er
framleiðslan nú komin í gang. 011
framleiðslan hefur þegar verið seld
fyrirfram en það er útflutnings-
fyrirtækið Triton í Reykjavík sem
annast markaðssetningu í Frakk-
landi. í fyrsta áfanga eða næsta
mánuðinn er reiknað með að fram-
leiða um 300.000 glös en vélasam-
stæða sem hönnuð er sérstaklega
fyrir þessa framleiðslu er alsjálfvirk
og getur framleitt um 20.000 glös
á dag á fullum afköstum. Fyrirtæk-
ið er tilbúið til að kaupa öll grá-
sleppuhrogn sem til falla á
Suðumesjum á komandi vertíð.
Ljóst er að þessi nýja framleiðslu-
lína mun brúa dauða tímann frá
áramótum þar til rækjuvertíð hefst
hjá bátunum en nú er unnið á hálf-
um afköstum úr frosinni rælq'u sem
keypt er víðsvegar að af landinu,"
sagði Einar að lokum.
Kr. Ben.
Glösunum er pakkað í sérstakar umbúðir fyrir Frakklandsmarkað.
Húsnæði Lagmetisiðjunnar Garða hf. í Grindavik.
Séð yfir nýju kavíarframleiðslulínuna.
raðauglýsingar — raðauglýsingar — raðauglýsingar
Sunnlendingar
Sjálfstæðisflokkurinn opnar skrifstofu i Sjálfstæðishúsinu Selfossi
frá og með föstudeginum 13. mars og verður hún opin frá kl. 14.00
til kl. 19.00 og kl. 20.00 til kl. 22.00 alla virka daga fyrst um sinn.
Kjördæmisráð
Reykjaneskjördæmi
Aðalfundur kjördæmisráðs Sjálfstæðls-
ffokksins í Reykjaneskjördæmi verður
haldinn i Sjálfstæðishúsinu, Hamraborg 1,
Kópavogi, laugardaginn 14. mars 1987 og
hefst kl. 9.00 fyrir hádegi.
Fundarefni:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Breyting á lögum kjördæmisráðs.
3. Alþingiskosningarnar.
Frummælándi Matthías Á. Mathiesen,
utanrikisráðherra.
Stjórn kjördæmisráðs.
Landsfélag um þjóðlega náttúruvernd
og stangveiði með flugu.
Opið hús fimmtudaginn 12.03 kl. 20.00 í
Veiðiseli. Gestur kvöldsins, Lenn Batista,
sýnir þurrflugur og þurrflugugerð.
Laugardaginn 14.03 opið hús í Smiðjukaffi
í Kópavogi kl. 14.00. Erindi: Sigurður Páls-
son. Veiðisvæðakynning og kynning á veiði-
vörum.
Flensborgarar íkapp-
ræðum á Stefnisfundi
Reykjaneskjördæmi
Kosningaskrifstofa kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins, í Reykjanes-
kjördæmi er í Sjálfstæðishúsinu, Strandgötu 29, Hafnarfirði. Fyrst
um sinn er skrifstofan opin kl. 17.00 til 19.00 mánudaga til föstudaga
og kl. 10.00 til 12.00 laugardaga. Simi 91-651055.
Húsnefnd.
Stefnir, félag ungra
sjálfstæðismanna i
Hafnarfirði, boðar til
hádegisverðarfund-
ar nk. laugardag,
14. mars i veitinga-
húsinu A. Hansen
kl. 12.00.
Til gamans verður
kapprætt um það
hvort leggja eigi nið-
ur félagsstarf f
skólum. Ræöuliðin skipa vaskir piltar úr Flensborgarskóla.
Matarverð aðeins kr. 350. Allir velkomnir.
Stjómin.
Stjórn Kjördæmisráðs.
fundir
FLUGMÁLASTJÓRN
Flugmenn
— flugáhugamenn
Flugmálastjórn, Flugbjörgunarsveitin í
Reykjavík, Vélflugfélag íslands og Öryggis-
nefnd FÍA halda reglulegan flugöryggismála-
fund sinn fimmtudaginn 12. mars á Hótel
Loftleiðum og hefst hann kl. 20.00. Þessi fund-
ur verður í umsjá Flugvirkjafélags íslands.
Fundarefni: Fræðsluerindi, fyrirspurnir og
myndasýning. Allir velkomnir.
Fundarboðendur.
Bflarfrá Þýskalandi
Hafir þú hug á að flytja inn notaðan bíl frá
Þýskalandi, þá tek ég að mér að finna réttan
bíl og koma honum í skip.
Davíð S. Ólafsson,
Eilbekerweg 14,
2000 Hamborg 76,
sími: 9049-40-2009654.
Loftpressur og
ámoksturstæki
Óskum eftir að kaupa góða dregna loft-
pressu (diesel) og aðra ca 160 cupic loft-
pressu á traktor.
Einnig ámoskturstæki með 1,7-2 tonna lyfti-
getu, tvívirk.
Upplýsingar í síma 687787.