Morgunblaðið - 12.03.1987, Blaðsíða 53

Morgunblaðið - 12.03.1987, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. MARZ 1987 53 að vísu minnzt á „ný atvinnutæki- færi“ og að við stækkun „opnuðust möguleikar". Eins víst er, að „at- vinnutækifærin" bregðist og möguleikamir „lokist"! Drepið er á útflutning á ferskum fiski, laxaseið- um og öðrum afurðum laxeldis- stöðva. Er það ekki nokkuð langsótt að ekki megi gagn gera minna en 3000 m flugbraut þeirra hluta vegna? Auk þess eru forsendur fyr- ir slíkum útflutningi flugleiðis ærið hæpnar. Það kemur hins vegar á óvart, að greinarhöfundur minnist ekkert á ferðamannasæginn, sem ýmsir hafa séð í hillingum, ekkert á alla skyndibitastaðina og hótelin, sem rísa eiga í kjölfar flugvallar- stækkunar. Að mati dómbærra manna þarf varaflugvöllur fyrir venjulegt milli- landaflug „að vera minnst 2.287 m“. Svo telur nefnd, er flugmála- stjóm skipaði, sama kemur fram í greinargerð Hauks Haukssonar varaflugmálastjóra og nefndaráliti frá 25. júní 1985. Lengd flugbraut- arinnar er nú sem næst 2014 m, en hægt að lengja hana til norðurs um 290 m án verulegs kostnaðar og u.þ.b. 60 m til suðurs. Brautar- lengd yrði þá 2364 m fyrir lendingu norður eftir og 2264 m miðað við lendingu suður á við. Trúlega mætti þó enn betur gera, án tilfinnanlegs kostnaðar. Með 3000 m flugbraut er stefnt að gerð vallar, sem þjónað getur sem hernaðarmannvirki, og NATO, þ.e.a.s. Bandaríkin, eiga að greiða reikninginn. Hér á að uppfylla kröfu Bandaríkjastjómar frá árinu 1951 um varaflugvöll. Slíkt þjónar ekki hagsmunum íslendinga. Talað er um þijá kosti, sé völlur: inn lengdur fram á Skóga: í greinargerð bæjarstjómar virðist aðeins koma til álita að brúa Víkina, óhemju dýr framkvæmd. í öðm lagi hefur verið rætt um að taka núver- andi afrennsli Miklavatns, Víkina, af og fylla upp, en gera afrennsli sunnan hugsaðrar flugbrautar á Skógum. Þriðji kosturinn er að gera afrennsli norður úr vatninu um Borgarmýrar til sjávar, sem allir staðkunnugir munu þó telja frá- leita, síðari kostirnir, ekki sízt hinn seinni, mundi hafa í för með sér, að slíkur skurður mundi skjótt fyll- ast sökum sífellds „áhlaðanda norðan“, eins og kveðið var að orði um ós, er var að fomu á þessum slóðum. Báðar þessar „skurðað- gerðir", sem bæjarstjóm kennir við Olaf Pálsson verkfræðing fengu jafnvel engan hljómgmnn meðal bæjarstjómarmanna og var verk- fræðingnum ekki vandaðar kveðj- umar. Það er auðsætt, að nýtt afrennsli Miklavatns mundi valda gífurlegum breytingum landshátta og lífríkis fram um allan Skaga- flörð. Og óvíst er með öllu, hvaða afleiðingar slíkt kynni að hafa fyrir starfsemi tveggja veiðifélaga bænda, við Miklavatn og Sæmund- ará. Á Borgarsandi er sandtaka, sem allir Skagfirðingar njóta góðs af og raunar fleiri. Alls er óvíst, hvemig til mundi takast með sandnámið ef afrennsli Miklavatns væri veitt um Sandinn. í greinargerðinni segir: „Bæjar- stjóm Sauðárkróks hefur verið því algerlega sammála, að stuðla að því eftir fremsta megni, að um- ræddum varaflugvelli yrði valinn staður við Sauðárkrók." Þetta er rétt svo langt sem það nær. En það ríkir ekki einhugur nú um vallar- lengdina. Einn fulltrúi a.m.k. vill binda sig við þær kröfur, sem flug- málanefndin hefur talið nauðsyn- legar „til þess að flugvöllur teljist fullnægjandi varaflugvöllur fyrir stærri millilandaflugvélar", eins og segir í nefndaráliti, sem fyrr er til vfsað. Þá verður lengd brautar að vera minnst 2287 m. í greinargerð bæjarstjómar: „Þá er rétt að fram komi, að sýslunefnd Skagaíjarðarsýslu hefur lýst ein- dregnum stuðningi við hugmyndina um byggingu varaflugvallar." Spumingin er: Hvers konar vara- flugvallar? Það er látið óskýrt. Bókun sýslunefndar er á þessa lund og nefnd ályktun: „Sýslunefnd samþykkir að verða við ósk bæjarstjómar Sauðárkróks um samstarf í því mikla hagsmuna- máli bæjar og sýslu, að varaflugvelli fyrir millilandaflug verði valinn staður við Sauðárkrók, og felur sýsluráði að taka þátt í viðræðum við bæjarstjórn um þetta mál.“ Bókunin er dularfull sem véfrétt. Ég held, að enginn Skagfirðingur hafí mælt gegn lengingu, spurning- in er aðeins hversu mikil hún á að vera og hvaða stefnu hún á að taka, hve miklu skal til fórna. Ég þykist fara nærri um, að sýslunefndar- menn hafi litla fræðslu hlotið um þá valkosti, er til greina koma. Ályktunin er því léttvæg; málið var ekkert skýrt fyrir sýslunefndar- mönnum. Ymislegt er enn ósagt varðandi flugvallarmálin, en hér skal staðar numið. í greinargerð bæjarstjórnar Sauðárkróks er klykkt út með frómri ósk: „Ef um ágreining er að ræða á að leysa hann í kyrrþey milli aðila en ekki hlaupa í blöð með hvaðeina, sem fólki kann að mislíka." Ég tel hins vegar, að það sé eðlilegt og nauðsynlegt, að skipt- ar skoðanir í þessu máli séu kynntar alþjóð sem gerst, ekki hvað sízt vegna þess, hve margir virðast vilja sitja að hitunni að óreyndu. Það er ekki við hæfi að fara með veggjum, sigla beggja skauta byr. Höfundur er forstöðumaður við Héraðsskjalasafnið á Sauðár- króki. Útsala Útsala bifreiðaeigendur! Allt að 50% afsláttur á varahlutum og Civic 1974-1979 Accord 1977-1978 á Islandi Vatnagörðum 24, símar 38772 og 82086. HRINGDU, in skuldfœrð á greiðsluko rt a re i k n i n g þinn mánaöarlega SIMINN ER 691140 691141 Sonat 21/korus 45 borðlampi kr. 2.120 Hervik 105 cm rúm kr. 14.400 m. dýnu Uddebo spegill kr.3.790 Jalusi S-210 skápur heildarverð kr. 23.835 Hervik náttborð kr. 4.390 Boj 61 kommóða kr. 3.490 Lavendel sængurverasett kr. 1.595 •IKEA SVEFNHERBERGI • BJARTIR DAGAR OG BJARTAR NÆTUR Rúm í fjölbreyttu úrvali. Mikið úrval sængurfata. Húsi verslunarinnar, Kringlunni 7, 108 Reykjavík. Sími 686650
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.