Morgunblaðið - 12.03.1987, Side 56
. ,r ............. ---------T^.-.v
56 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. MARZ 1987
t
Móðir okkar og tengdamóðir,
JÓNFRÍÐUR ÓLAFSDÓTTIR,
Álfhólsvegi 14, Kópavogi,
lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð 10. mars.
Jörundur Jónsson, Eygló Ragnarsdóttir,
Haraldur Jónsson, Guðríður Magnúsdóttir.
t
Eiginmaður minn,
VALDIMAR BJÖRNSON
frá Minnesota,
andaðist aö heimili sínu þriðjudaginn 10. mars sl.
Fyrir hönd ættingja,
Guðrún J. Björnson.
t
Móðir okkar, tengdamóðir og amma,
INGIBJÖRG JÓNASDÓTTIR,
Garðabraut 24,
Akranesi,
verður jarðsungin frá Akraneskirkju föstudaginn 13. mars kl. 11.30.
Helga Jóna Sveinsdóttir, Ásmundur Jónsson,
Sigurgeir Sveinsson, Erla Karlsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Eiginmaöur minn og faðir okkar,
HALLDÓR VALDEMARSSON,
Flötusiðu 6,
Akureyri,
verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju laugardaginn 14. mars kl.
13.30.
Bryndfs Magnúsdóttir,
Magnús Halldórsson,
Guðrún Valdís Halldórsdóttir,
Helga Kristfn Halldórsdóttir.
t
Dóttir min og móðir okkar,
JÓNINNA JÓNSDÓTTIR,
Skarðshlfð 10A,
Akureyri,
er lést 8. mars sl., verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju föstudag-
inn 13. mars kl. 13.30.
Blóm og kransar afþakkaöir en þeim sem vilja minnast hennar
er bent á Krabbameinsfélag íslands.
Jón Kristjánsson, Jóninna Karlsdóttir,
Karl Haraldsson, Haraldur Haraldsson.
+ Maðurinn minn, faöir, tengdafaðir og afi,
ELÍAS GUÐMUNDSSON,
Holtsgötu 2,
Sandgerði (Hraungerði),
verður jarðsunginn frá Hvalsneskirkju, laugardaginn 14. mars
kl. 14.00. Helga Ingibjartsdóttir,
Alda Elíasdóttir, Guðmundur Einarsson,
Sigurrós Petra, Ármann Baldursson
og barnabörn.
t
HAUKUR HALLDÓRSSON,
Hjarðarhaga 60,
sem lést sunnudaginn 8. mars, veröur jarðsunginn frá Neskirkju
föstudaginn 13. mars kl. 15.00.
Brynhildur Dale, Howard Dale,
Jón Hauksson, Svala Hauksdóttir,
Ólafur Jakobsson, Guðný Jónsdóttir
og barnabörn.
Anna Kristín Árna
dóttir — Minning
Fædd 7. apríl 1908
Dáin 8. mars 1987
í dag er til moldar borin frá Þjóð-
kirkjunni í Hafnarfirði fósturmóðir
mín, Anna Kristín Árnadóttir, Vest-
urbraut 10, Hafnarfirði. Anna
fæddist á Seyðisfirði 7. apríl 1908,
dóttir hjónanna Árna Stefánssonar
trésmiðs og konu hans, Jónínu Frið-
finnsdóttur. Anna var elst ellefu
systkina sem upp komust en þrjú
létust í æsku. Lengst bjó þessi stóra
fjölskylda á Gránufélagsgötu 11 á
Ákureyri.
Anna giftist ung Björgvini
Bjamasyni frá Sveinsstöðum í Hell-
isfírði. Reistu þau sér bú á Norð-
firði. Lengst af bjuggu þau í Lundi,
húsi sem þau byggðu sér þar og
fjölskyldan var lengst af kennd við.
Síðar fluttu þau til Hafnarfjarðar.
Björgvin var sjómaður lengst af
sinnar starfsævi. Oft var hann lang-
dvölum fjarri sínu heimili, ýmist á
vetrarvertíðum á Homafirði og
síðar við Faxaflóa, eða á síldveiðum
fyrir Norðurlandi. Oft mun hafa
verið erfítt hlutskipti um ástvininn
í fangbrögðum við óblíð náttúruöfl-
in. En með trú á góðan Guð tókst
Önnu að þreyja þorrann og góuna
og ávallt kom Björgvin heim að
úthaldi loknu.
Anna og Björgvin eignuðust þijú
böm. Þau eru Sigríður, fædd 30.
ágúst 1932, Guðmundur Bjarni,
fæddur 23. ágúst 1934, og Am-
björg Guðný, fædd 25. júlí 1945.
Áuk þeirra varð ég undirritaður
þeirrar gæfu aðnjótandi að fá að
alast upp sem eitt af bömum þess-
ara yndislegu hjóna. Móðir mín,
systir Önnu, hafði á þeim tíma sem
ég fæddist, ekki aðstæður til að
hafa mig hjá sér. Þama á heimili
Önnu og Björgvins, fæddist ég og
þama var ég allt til þess tíma að
ég fór til vinnu og náms utan
minnar heimabyggðar. Aldrei nokk-
um tíma fann ég annað en ég væri
eitt af bömum þeirra Önnu og
Minning:
Baldvin E. Þórð
*
arson, Isafirði
Fæddur 22. september 1897
Dáinn 9. febrúar 1987
Baldvin E. Þórðarson fæddist á
ísafírði 22. september 1897. For-
eldrar hans voru hjónin Jóhanna
Bjömsdóttir og Þórður Ásgeirsson.
Þau hjónin eignuðust átta böm og
var Baldvin sjöunda barn þeirra og
það bamanna sem lengst lifði. Bald-
vin andaðist í Fjórðungssjúkrahús-
inu á ísafírði 9. febrúar sl. Útför
hans var gerð frá ísafjarðarkirkju
16. sama mánaðar.
Þann 9. desember 1950 kvæntist
Baldvin Maríu Jónsdóttur, hinni
mætustu konu og fyrirmyndar-
húsmóður. Hún andaðist þann 19.
marz 1978.
Ungur að ámm fór Baldvin að
vinna við fiskverkun hjá Ásgeirs-
verslun hér í bænum. Á árinu 1923
fór hann að vinna hjá Olíuverslun
íslands á ísafírði og vann þar til
ársins 1934, en þá var hann ráðinn
skrifstofumaður hjá Samvinnufé-
lagi Isfírðinga og þar vann hann
næstu fjögur árin.
í nóvember 1940 var Baldvin
ráðinn gjaldkeri hjá Sjúkrasamlagi
ísafjarðar og þar vann hann næstu
sjö árin, eða til ársins 1947 að hann
var ráðinn bæjargjaldkeri hjá ísa-
fjarðarkaupstað. Því mikilsverða
starfí gegndi hann svo í 15 ár. Á
árinu 1939 var Baldvin kosinn end-
urskoðandi hjá Kaupfélagi Isfírð-
inga og því starfi gegndi hann í
+
Maðurinn minn, faöir okkar, tengdafaðir og afi,
ÞÓRÐUR PÉTURSSON,
Blikabraut 5, Keflavík,
er lést 4. mars 1987, verður jarðsunginn frá Keflavíkurkirkju föstu-
daginn 13. mars kl. 14.00.
Inga Kristjánsdóttir,
Pótur Þórðarson, Birgitta Þórðarson,
Elín Þórðardóttir,
Kristján Þórðarson, Guðbjörg Samúelsdóttir,
Sigurjón Þórðarson, Guðfinna Arngrímsdóttir,
börn og barnabörn.
t
Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur hlýhug
og samúð við andlát og útför eiginkonu minnar, móður og ömmu,
MARGRÉTAR SIGRÍÐAR JÓNSDÓTTUR,
Safamýri 57.
Sérstakar þakkir færum við öllu starfsfólki á hjartadeild Land-
spítalans.
Alexander Stefánsson,
Esther Alexandersdóttir,
Margrét S. Alexanders.
+
Elskulegur eiginmaður minn, faöir, sonur, bróðir, tengdasonur,
frændi og mágur,
JÓNAS EWALD JÓNASSON,
Köldukinn 29, Hafnarfirði,
sem lóst af slysförum þann 1. mars, verður jarðsunginn frá Þjóö-
kirkjunni í Hafnarfirði föstudaginn 13. mars kl. 15.00.
Guðrún Jóhannsdóttir og dætur,
foreldrar, tengdaforeldrar,
systkin og frændsystkin.
+
Innilegar þakkir færum við öllum þeim er vottuðu okkur hlýhug
og samúð við andlát og útför eiginkonu minnar, móður okkar,
tengdamóður og ömmu,
ÓLÍNU KRISTÍNAR ÞORVALDSDÓTTUR,
Skúlagötu 68.
Sérlegar þakkir færum við forseta okkar, frú Vigdísi Finnbogadóttur,
fyrir sérlega mannúð með veru sinni.
Fyrir hönd aðstandenda,
Valur Sigurbjarnarson.
Björgvins og ég fann oft að þau
hreinlega mundu ekki annað en að
svo væri. Nú þegar þau eru bæði
horfín á vit æðri tilveru, en Björg-
vin iést 30. apríl 1976, vil ég þakka
allt það sem þessi yndislegu hjón
voru mér og fjölskyldu minni. Veri
elsku Anna mamma guði falin.
Árni Stefánsson Vilhjálmsson
20 ár. Hann var einn af stofnendum
Félags opinberra starfsmanna á
Isafírði og var þar í aðalstjóm sem
ritari í mörg ár.
Það var á árinu 1962 sem Bald-
vin hætti að vinna utan heimilis
síns. En þá fór hann að vinna heima
hjá sér við bókhald fyrir nokkur
smærri fyrirtæki og félög.
í byijun ársins 1977 veiktist hans
ágæta kona og í september sama
ár urðu þau að yfirgefa sitt fyrir-
myndarheimili og fluttust þá á
Elliheimilið hér í bænum.
Með bréfi dagsettu 2. október
1977 barst Byggingarsjóði Elli-
heimilis ísafjarðarkaupstaðar
ávísun að upphæð kr. 6.000.000 —
sex milljónir króna — og var upp-
hæðin gjöf frá þeim hjónunum
Maríu Jónsdóttur og Baldvin E.
Þórðarsyni. Að sjálfsögðu þökkuðu
þáverandi forsvarsmenn bæjarins
þeim hjónunum þann mikla höfð-
ingsskap og rausn sem þessi stóra
gjöf bar með sér.
Sá sem þessar fáu línur ritar
átti þess kost að kynnast Baldvin
E. Þórðarsyni til margra ára, mann-
kostum hans og fæmi í störfum.
Fyrir þau góðu kynni er ég mjög
þakklátur.
Jón Á. Jóhannsson
SLOMl>
HAFNARSTRÆTI 15.
Skreytingar við
hvert tækifæri
Opiðfrákl. 09—21 alla
daga nema sunnudaga
frá kl. 12—18.
Sími21330.