Morgunblaðið - 24.03.1987, Page 1
88 SIÐUR B
STOFNAÐ 1913
69. tbl. 75. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 24. MARZ 1987
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Júgóslavía:
Landslýður var-
aður við andóf i
Belgrad, Reuter, AP.
FORSÍÐUR júgóslavneskra dag-
blaða voru í gær lagðar undir
viðtal við Branko Mikulic, for-
sætisráðherra landsins. Sagði
hann að öllum ráðum, þar með
talið hervaldi, yrði beitt ef andóf
og verkföll ógnuðu veldi komm-
únistaflokksins.
Fjögur stærstu dagblöðin, sem
gefin eru út í Belgrad, birtu við-
Pakistan:
51 ferst í
loftárás
Pesawar, Pakistan, Reuter, AP.
HERÞOTUR frá Afganistan
gerðu í gær loftárásir á bæinn
Teri Mangal í Pakistan skammt
frá landamærum ríkjanna
tveggja. 51 maður fórst og 105
særðust.
Flestir þeirra sem fórust voru af-
ganskir flóttamenn. Um 10.000
manns búa í Teri Mangal sem er um
fimm kílómetra frá landamærunum.
Heimildarmaður Reuter-fréttastof-
unnar í Kurram, skammt vestur af
borginni Pesawar, sagði að fjórar
afganskar herþotur hefðu tvívegis
gert árásir á Teri Mangal. Taldi hann
líklegt að tala látinna ætti eftir að
hækka þar eð miklar skemmdir hefðu
orðið á byggingum og því hætt við
að fleiri lík væri að finna í rústum
þeirra.
Stjórnvöld í Afganistan skýrðu
ekki frá árásunum. Afganskar her-
þotur gerðu tvívegis loftárásir á
landamærabæi í síðasta mánuði og
sögðu yfirvöld í Pakistan að 90
manns hefðu fallið í þeim og 250
særst. Stjórnin í Kabúl, höfuðborg
Afganistan, vísaði þessum ásökunum
á bug og sagði fréttir þessar lið í
áróðursherferð vestrænna fjölmiðla
til að spilla fyrir friðarviðræðum í
Afganistan.
talið við forsætisráðherrann auk
þess sem rætt var við Milan Deljavic
hershöfðingja. Sagði Deljavic að
herinn gæti ekki leitt stjómmála-
ástandið í landinu hjá sér.
Viðtalið við Branko Mikulic birt-
ist fyrst í vestur-þýska tímaritinu
Der Spiegel. Ræddi hann einkum
efnahagsástandið í landinu en verð-
bólga og „frysting“ launa hefur leitt
til verkfalla víða um landið auk
þess sem flokksmenn hafa gagn-
rýnt ráðamenn í Belgrad og krafist
róttækra breytinga. Mikulic sagði
„ákveðin öfl“ hafa krafist þess að
tekið yrði upp fjölflokkakerfi. Sagði
hann kröfur þessar miða að því að
grafa undan stjórn kommúnista-
flokksins og að „andófsmenriirnir"
hefðu notið aðstoðar erlends ríkis.
Hann lét þess hins vegar ógetið
hvert það ríki væri.
Samkvæmt opinberum tölum
hafa 11.000 verkamenn lagt niður
störf í 80 verkföllum víða um land
frá 26. febrúar til að mótmæla efna-
hagsaðgerðum stjórnarinnar.
Verðbólga er tæp 100 prósent í
Júgóslavíu og 17 prósent vinnu-
færra eru atvinnulausir.
Sjá nánar um ástandið í Júgó-
slavíu á bls. 34.
Reuter
Willy Brandt segir af sér formennsku
WILLY Brandt sagði í gær af sér
sem formaður vestur-þýska Jafn-
aðarmannaflokksins (SPD).
Johannes Rau, kanslaraefni
flokksins í síðustu þingkosning-
um, tilkynnti um afsögn hans og
sagði að eftirmaður hans yrði
kjörinn á þingi flokksins í sumar.
Heimildarmenn innan flokksins
sögðu að boðað yrði til sérstaks
þings í þessu skyni þann 16. júní.
Að sögn vestur-þýska sjónvarps-
ins (ARD) hefur þegar verið
ákveðið að Hans Jochen Vogel,
formaður þingflokksins, taki við
af Brandt. Flokksmenn höfðu deilt
á Brandt eftir að hann útnefndi
Margaritu Mathiopoulos, sem er
grískættuð, til embættis blaðafull-
trúa. Hafði ákvörðun þessi
einkum verið gagnrýnd vegna
reynsluleysis hennar á vettvangi
stjómmála auk þess sem hún er
ekki skráður flokksmaður. í gær
tilkynnti Margarita Mathiopoulos
að hún sæktist ekki eftir því starfi.
Myndin var tekin að afloknum
fundi hennar og Willys Brandt.
Sjá „Brandt leiddi þjóð
sína ...“ á bls. 32.
Háttsettur sovéskur embættismaður:
Líklega ekki samið um
Evrópuflaugar á árinu
Moskvu, Washington, Genf, Reuter, AP.
SOVÉSKUR sérfræðingur hefur
sagt að tilboð Bandarikjastjórnar
um útrýmingu meðaldrægra
kjarnorkuflauga í Evrópu sé
blekking ein. Viktor Karpov, for-
stöðumaður afvopnunardeildar
Frumlegar
tannlækn-
ingar
Berlínarbúinn
Bernhard Kacz-
inski sýnir hér
hvernig hann gerir
við tennur sínar
sjálfur. Kaczinski,
sem starfar sem
leigubílstjóri,
komst að þeirri nið-
urstöðu að tann-
læknum hætti til að
draga tennur of.
fljótt úr sjúklingum
sínum. Þvi brá hann
á það ráð að gerast
eigin læknir og hef-
ur frá því sært
meinsemdirnar út
með aðstoð högg-
borvélar. Holurnar
fyllir hann með lími
og kveðst hann ekki
hafa fengið
tannpínu undanfar-
in sex ár.
Reuter
sovéska utanríkisráðuneytisins,
kveðst efast um að samningur
varðandi Evrópuflaugarnar
verði undirritaður í ár. Banda-
rískir embættismenn vísuðu
ásökunum Sovétmanna á bug i
gær og sögðu yfirlýsingar sem
þessar gamalkunnugt áróðurs-
bragð þeirra.
Viktor Karpov, sem í eina tíð var
aðalsamningamaður Sovétstjórnar-
innar í Genf, sagði í viðtali við
Izvestia á sunnudag að flest benti
til þess að Bandaríkjastjóm vildi
ekki ná samkomulagi um Evrópu-
flaugarnar. Sagði hann að „núll-
lausnin" svonefnda um útrýmingu
meðaldrægra flauga hefði frá upp-
hafi verið blekking ein. Ronald
Reagan Bandaríkjaforseti setti
hugmyndina um „núll-lausnina“
fyrst fram árið 1981. Mikhail
Gorbachev féllst í raun á hana í
síðasta mánuði þegar hann lýsti því
yfir að ráðamenn í Kreml væru
reiðubúnir til að semja sérstaklega
um útrýmingu meðaldrægra flauga.
Karpov kvað samningamenn
Bandarikjastjórnar í Genf hafa lagt
til að flaugum af gerðinni Pershing
II yrði breytt á þann veg að þeim
mætti beita sem skammdrægum
kjarnorkuvopnum og væri því ekki
gert ráð fyrir brottflutningi þeirra.
Þá sagði hann Bandaríkjamenn
hafa lagt til að stýriflaugar í Evr-
ópu yrðu fluttar um borð í skip og
kafbáta.
Marlin Fitzwater, talsmaður
Ronalds Reagan Bandaríkjaforseta,
vísaði þessum ásökunum á bug í
gær. Aðspurður sagði hann stjórn-
ina taka ummæli Karpovs alvarlega
en bætti við að Sovétstjórnin hefði
oft gripið til sambærilegra yfirlýs-
inga í viðræðum um afvopnunar-
mál. Sagði hann að bandarískir
embættismenn væru enn vongóðir
um að unnt væri að ná samkomu-
lagi um meðaldrægar kjarnorku-
flaugar.
í gær voru fjögur ár liðin frá því
að Reagan Bandaríkjaforseti kynnti
geimvarnaráætlun stjórnar sinnar.
Af þessu tilefni ítrekaði hann að
áfram yrði unnið að þróun og smíði
geimvopna. Tass-fréttastofan so-
véska fordæmdi í gær áætlunina
og sagði tilgang hennar vera þann
að tryggja hernaðarlega yfirburði.
Líbanon:
Waite sag’ður njósnari
Beirút. AP, Reuter.
SAMTÖK sem nefnast „Bylting-
arsamtök réttlætisins" halda
Terry Waite, sendimanni ensku
biskupakirkjunnar, í gíslingu í
Líbanon. Utvarpið í Teheran
skýrði frá þessu í gær en samtök-
in, sem eru hliðholl írönum,
halda tveimur Bandarílgamönn-
um og Frakka gislum í Beirút.
í frétt útvarpsins sagði að Terry
Waite hefði verið handtekinn vegna
þess að hann hefði stundað njósnir.
I síðasta mánuði sökuðu samtökin
Waite um að hafa haft senditæki
innan klæða til auðvelda banda-
rískum hersveitum að finna gíslana.
Samtök sem nefnast „Jihad"
(Heilagt stríð) sögðu í gær að
Bandaríkjamaður sem samtökin
hafa í haldi væri fársjúkur og dauð-
vona ef hann kæmist ekki undir
læknishendur. Buðust þau til að
leysa hann úr haldi gegn því að
Bandaríkjastjóm beitti sér fyrir því
að 100 föngum í ísrael yrði sleppt.
„Byltingarsamtök réttlætisins"
halda Jean-Louis Normandin í
gíslingu og höfðu hótað að taka
hann af lífi í dag, þriðjudag. í gær
barst fréttastofu í Beirút myndband
þar sem Normandin sagði að aftöku
hans hefði öðru sinni verið frestað.