Morgunblaðið - 24.03.1987, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. MARZ 1987
5
erlendis
Góð tungumálakunnátta getur hjálpað þér alls staðar: í
skólanum, vinnunni, starfsumsókninni, ferðalaginu, bók-
lestri, bíói, tómstundum o.fl. o.fl. —.
Besta fermingargjöfm:
Dvöl I Englandi eða^ýf^?’and‘
Gjafaskírteim h)a Utsyn
England
King’s School of English er viður-
kennd stofnun, sem rekur fjóra
skóla, sem bjóöa enskunámskeið við
allra haefi á suðurströnd Englands:
Bournemouth, Wimborne og
London.
King’s í Bournemouth:
Aðalnámskeið:
24 kennslustundir á viku, lágmarks-
aldur 16 ára, frá mánaöarnámskeiö-
um upp í ár. Kennt á 6 stigum i
12—17 manna bekkjum. Einnig hald-
in sumarnámskeiö meö 20 kennslu-
stundum á viku. Skemmtana-,
íþrótta- og strandlíf.
King’s College f Bournemouth:
Meiri kennsla og framhaldsnám-
skeið:
30 kennslustundir á viku, 17 ára og
eldri, í 2—10 vikur, 8—10 í bekk.
Undirstaöa æskileg. Viðskiptaenska
og tölvuþjálfun. Einnig þrjú 3ja mán-
aða námskeið í stjórnun.
King’s Wimborne:
Aldur 10—16 ára, 20 kennslustundir,
sambland af kennslu, íþróttum og
leikjum, skemmtikvöldum og skoð-
unarferðum, 2—8 vikur eða lengur.
Wimborne er notaleg lítil borg 16 km
frá suðurströndinni.
King's i London:
Skólinn er í Beckenham í suð-austur
London. Margvísleg námskeið t.d.
30 tíma kennsluvika, einnig sum-
arnámskeiö 16 og 24 tíma, skemmt-
ana- og fyrirlestrahald. 25 mín.
lestarferð inn í miöborg Lundúna.
Lánum myndbönd um King’s.
Nýtt námskeið:
„Professional English Course”
37 tímar á viku fyrir fólk í viðskipta-
og atvinnulífinu. Lágmarksaldur:
20 ára.
II
Frakkland
Institut de Francais,
Ville-Franche-sur-Mer
Skólinn er staðsettur á hinni fögru
suðurströnd Frakklands, skammt frá
Nice, Cannes og Monte Carlo. Kennt
er á 7 mismunandi stigum, 6—10
nemendur í hóp og er lágmarksaldur
21 árs. Kennt er í óvenjulega glæsi-
legum húsakynnum og dvalist i
íbúðum á vegum skólans. Skólinn
er rómaöur fyrir umhverfi, aðbúnað
og kennsluaöferðir. Einnig fleiri skólar.
II
Ítalía
Dante Alighieri, Florens
Skólinn er með aðalstöövar í Flor-
ens, borg fornrar menningar, lista
og hátízku. Staðsettur í miðborginni
í miöaldahöll skammt frá Ponte
Vecchio með útsýni yfir Arno-fljótið.
Kennd er ítalska á fimm mismunandi
námskeiðum, þar sem fléttað er inn
í kennslu i bókmenntum, listum og
sögu. Dvalist á heimilum eða í ibúð-
um, sem skólinn sér um að útvega.
Einnig boðið upp á námskeið í Róma-
borg og Siena.
Spánn
Malaca Instituto, Malaga,
Costa del Sol
Námskeið í spænskri tungu og
menningu með dvöl á sólarströnd,
vetur eða sumar. Skólinn er stað-
settur í fögru úthverfi Malaga,
skammt frá ströndinni og býður upp
á margvísleg námskeið við allra
hæfi. Heimsóknir á söfn og sögu-
staöi.
Costa del Sol þarf vart að kynna,
en hér er gullið tækifæri til að kynn-
ast tungu, þjóð og menningu.
Þýzkaland
Humboldt Institut
í Ratzenried-höllinni
í þýsku Ölpunum
Ratzenried er rómuö fyrir nátt-
úrufegurð og fer kennsla fram í
fornum kastala. Velja má um heima-
vist eða dvöl á einkaheimilum. Boðið
er upp á námskeiö, sem eru fyrir
byrjendur og þá, sem lengra eru
komnir, og kennt í 10 manna hópum.
( frístundum má iðka margvíslegar
íþróttir, m.a. fjallgöngur og siglingar.
Vikulegar kynnisferðir og á veturna
skíöaferðir.
Nýtt: Námskeið fyrir unglinga
10-16 ára.
Bandaríkin
ELS-enskunámskeiðin eru haldin í
23 borgum viðsvegar um Bandarikin,
t.d. i New York, Boston, Philadelph-
ia, San Francisco, Denver, Seattle
og Washington DC. Það er völ á
enskukennslu á níu mismunandi
stigum og dvalist á stúdentagörðum.
Einnig eru haldin námskeiö sérstak-
lega sniðin fyrir fólk í viöskiptaheim-
inum og stjórnendur fyrirtækja.
Kannið málin!
Feröaskrifstofan
ÚTSÝN
Austurstræti 17,
sími 26611 og 23638.
Með FIAT UNO sanna ítalskir hönnuðir rækilega hæfni sína. Hér fara
saman glæsilegt útlit og framtíðar tækni, mikil hagkvæmni og hámarks
notagildi.
Pað er ekki að ástæðulausu að FIATUNO ereinnmestseldi bíll-
inn í Evrópu. Hann er einfaldlega einstakur, þegar tekið er tillit til
aksturseiginleika, útlits, öryggis, þæginda, og síðast en ekki síst, hvað
þú færö mikiö fyrir peningana.
Skelltu þér strax í reynsluakstur. Eftir það veistu nákvæmlega hvað
verið er að tala um.
Umboðið Skeifunni 8 s. 91-68 88 50
essemm sIa b