Morgunblaðið - 24.03.1987, Síða 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. MARZ 1987
ÚTVARP / SJÓNVARP
Hulduherinn
Sigurður G. Tómasson lék á als
oddi á fimmtugsafmæli gömlu
Sundhallarinnar, þessarar einu
sönnu, er haldið var uppá í gærmorg-
un uppúr klukkan 8.00 með kapp-
sundi fastagesta og íþrótta- og
tómstundaráðsmanna. Keppnin var
æsispennandi og afhenti Davíð borg-
arstjóri sigurvegurunum medalíur,
svo var kaffi. Já, margar góðar minn-
ingar á undirritaður frá gömlu góðu
Sundhöllinni, og vil ég nota hér tæki-
færið og senda gömlu samstarfsfólki
bestu afmæliskveðjur. Nú og þá er
það auðvitað Albertsmálið.
ÍParís
Fomkínverski spekingurinn Lao-
Tse segir í Bókinni um veginn: Þegar
menn óttast ekki það, sem þeir ættu
að óttast, mun hið skelfilegasta koma
yfir þá. Þessi orð leituðu á hugann
mitt í hringiðu Albertsmálsins er
hreinlega stútfyllti ljósvakamiðlana
liðna helgi. Þá leitaði hugurinn til
„fóstbróður" Alberts, Guðmundar
jaka, er sagði af sér trúnaðarstörfum
á meðan rannsökuð var hugsanleg
hlutdeild hans að Hafskipsmálinu.
Ríkir ekki friður í kringum Guðmund
jaka þessa dagana? — ég hefði nú
haldið það — og enn læðast spekiorð
Lao-Tse í orðabelginn: Sá er hygg-
inn, sem þekkir aðra; hinn er vitur,
sem þekkir sjálfan sig. Sá er sterk-
ur, sem sigrar aðra; hinn er mikil-
menni, sem sigrast á sjálfum sér.
Já, það má með sanni segja að
ljósvakamiðlamir hafi blómstrað mitt
í hringiðu Albertsmálsins, en því
miður er nú sannleikurinn sá að sum-
ir fréttamenn vakna fyrst til lífsins
er sprengjumar lýsa upp gráma
hversdagsins. Þó finnast ætíð menn
á borð við Guðjón Amgrímsson
fréttamann Stöðvar 2, er virðist eink-
ar naskur á mikilleik hversdagstil-
vemnnar. Guðjón sagði okkur til
dæmis frá því í fyrradag að Jón
Helgason landbúnaðarráðherra hefði
nýlega tryggt bændum 27 milljarða
króna tekjur næstu fjögur árin, er
þýðir áð hver fj'ögurra manna §öl-
skylda verður að neyta landbúnaðar-
vara fyrir 9.000 krónur á mánuði
næstu fjögur árin hvort sem henni
líkar betur eða verr. Stórfrétt, ekki
satt, þótt hún hafi horfið í moldryki
hins óvíga hulduhers. Ég var annars
að velta því fyrir mér hvort hersveit-
armenn hefðu verið að verki er
myndavélin hjá ríkissjónvarpinu tók
á rás mitt í viðtalinu við Albert, þá
hann kom af „ambassadorafundin-
um“ með Þorsteini, en um tíma sáu
sjónvarpsáhorfendur ekkert nema
gangstéttina. Að lokum náðu ríkis-
sjónvarpsmenn þó prýðilegri mynd
af hinum gljáfægða Mercedes Benz
er bar hershöfðingjann á brott til liðs-
könnunar. Hin þýskættaða glæsi-
kerra minnti mig á ágætan þýskan
framhaldsþátt er nýlega hóf göngu
sína á Stöð 2.
Baby
Þátturinn nefnist Kir Royale og
segir þar frá samskiptum frægs slúð-
urdálkahöfundar í Miinchen við
þotuliðið. Er býsna fróðlegt að fylgj-
ast með baráttu blaðamanns þessa,
er Baby nefnist, við fína fólkið er
hleður á hann gjöfum í þeirri von
að fá „gott veður“ í dálkinum. Gjaf-
imar eru ekki allar stórfenglegar,
en í síðasta þætti var þó einn pen-
ingafurstinn býsna stórtækur og
bauð Baby heila höll með því fororði
að furstinn mætti reisa þar einskon-
ar nýlendu fyrir lífsþreytta peninga-
fursta. Baby bítur á agnið, en þar
sem hann er góður og gegn kaþó-
likki er fyrst gengið til skrifta: Ég
hef drýgt synd faðir... segir Baby
um leið og hann réttir umslag með
vænni fúlgu yfir til skrifta-
föðurins . . . Við syndgum öll, viltu
kvittun ... segir Prestur. Baby: Nei,
nei! Prestur: Þú hefir gert kirkjunni
og samfélaginu mikið gagn, sonur
sæll, þér er fyrirgefið ... og svo hljóp
prestur fram kirkjuskipið.
Ólafur M.
Jóhannesson
Ríkissj ónvarpið:
Poppkorn
■■■■ Klukkan hálf-
1 Q30 átta í kvöld
A Uhefst þátturinn
Poppkom í ríkissjónvarp-
inu, en þar em tónlistar-
myndbönd kynnt og leikin
fyrir áhorfendur.
Fyrir skömmu var skipt
um umsjónarmenn þáttar-
ins og em það þeir Ragnar
Halldórsson og Guðmund-
ur Bjami Harðarson, sem
hafa þáttinn með höndum.
Um leið og þeir tóku við
var þáttunum fjölgað, en
framvegis verða þeir tveir
í viku — á þriðjudags- og
föstudagskvöldum.
Þeir félagar hafa tekið
upp ýmsa nýbreytni til þess
að lífga upp á þáttinn og
forða honum frá ládeyðu
og lágkúm. Má nefna að
nú verður mánaðarlega
valinn sérstakur vinsælda-
listi Poppkoms og fer það
þannig fram að skömmu
fyrir mánaðamót verður
birt skrá yfir myndbönd
þau er sýnd hafa verið í
mánuðinum. Síðan taka
áhorfendur sig til og skrifa
fimm uppáhaldsmyndbönd-
in niður á blað og senda
Guðmundur Bjarni Harðarson og Ragnar Halldórsson.
Poppkomi án frekari um-
svifa, en það er til húsa
hjá Sjónvarpinu,
Laugavegi 176,
105 Reykjavík.
í lok hvers þriðjudags-
þáttar verður varpað fram
einni hæfilega léttri popp-
spumingu. Enn þurfa
áhorfendur að draga fram
frímerkin, en úr réttum
lausnum verða dregnir þrír
vinningshafar, sem munu
fá sína hljómplötuna hver
í verðlaun.
/ím
UTVARP
©
ÞRIÐJUDAGUR
24. mars
6.45 Veðurfregnir. Bæn.
7.00 Fréttir.
7.03 Morgunvaktin — Jón
Baldvin Halldórsson og Jón
Guóni Kristjánsson. Fréttir
eru sagðar kl. 7.30 og 8.00
og veöurfregnir kl. 8.15. Til-
kynningar eru lesnar kl.
7.25, 7.55 og 8.25. Guð-
mundur Sæmundsson talar
um daglegt mál kl. 7.20.
9.00 Fréttir. Tilkynningar.
9.05 Morgunstund barn-
anna: „Mamma í upp-
sveiflu" eftir Ármann Kr.
Einarsson. Höfundur les
(17).
9.20 Morguntrimm. Lesið úr
forystugreinum dagblað-
anna. Tónleikar.
10.00 Fréttir. Tilkynningar.
10.10 Veöurfregnir.
10.30 Ég man þá tíð. Her-
mann Ragnar Stefánsson
kynnir lög frá liðnum árum.
11.00 Fréttir. Tilkynningar.
11.05 Samhljómur. Umsjón
Þórarinn Stefánsson.
12.00 Dagskrá. Tilkynningar.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Veðurfregnir. Tilkynn-
ingar. Tónleikar.
13.30 ( dagsins önn — Hvað
segir læknirinn?
Umsjón: Lilja Guðmunds-
dóttir.
14.00 Miödegissagan: „Áfram
veginn“, sagan um Stefán
íslandi. Indriði G. Þorsteins-
son skráði. Sigríður Schiöth
les (22).
14.30 Tónlistarmaður vikunn-
ar.
15.00 Fréttir. Tilkynningar.
Tónleikar.
15.20 Landpósturinn. Frá
Vesturlandi. Umsjón: Ásþór
Ragnarsson.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
16.05 Dagbókin — Jóhanna
Hafliðadóttir.
Dagskrá.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Barnaútvarpið.
17.00 Fréttir. Tilkynningar.
17.05 Síðdegistónleikar.
a. Kim Sjöberg og Lars
Hannibal leika á fiðlur tónlist
eftir Paganini, Hándel og
Villa-Lobos.
b. Frederica von Stade
syngur aríur eftir Rossini,
Thomas, Massenet og Off-
enbach.
17.40 Torgið — Neytenda- og
umhverfismál. Umsjón:
Steinunn Helga Lárusdóttir.
Tilkynningar.
18.05 Torgið, framhald.
Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir.
19.30 Tilkynningar. Daglegt
mál. Endurtekinn þáttur frá
morgni sem Guðmundur
Sæmundsson flytur.
19.35 Menntun og stjórnmál.
Páll Skúlason prófessor flyt-
ur fyrra erindi sitt.
20.00 Frá finnska útvarpinu.
Finnski strengjakvartettinn
leikur Kvartett í e-moll op.
36 nr. 1 eftir Erkki Melartin.
20.30 í dagsins önn — Réttar-
staöa og félagsleg þjón-
usta. Umsjón: Hjördis
Hjartardóttir. (Áður útvarp-
að 3. f.m.)
21.00 Létt tónlist
21.30 Útvarpssagan: „Truntu-
sól“ eftir Sigurð Þór Guð-
jónsson
Karl Ágúst Úlfsson les (3).
22.00 Fréttir. Dagskrá morg-
undagsins.
22.15 Veðurfregnir.
22.20 Lestur Passiusálma.
SJÓNVARP
jO.
ÞRIÐJUDAGUR
24. mars
18.00 Villispætaogvinirhans
Tiundi þáttur. Bandarískur
teiknimyndaflokkur. Þýð-
andi: Ragnar Ólafsson.
18.20 Fjölskyldan á Fiðrildaey
Sautjándi þáttur. Ástralskur
framhaldsmyndaflokkur fyrir
börn og unglinga um ævin-
týri á Suöurhafseyju.
Þýðandi: Gunnar Þorsteins-
son.
18.50 íslenskt mál
17. Um orðtök sem tengjast
búskap. Umsjón: Helgi J.
Halldórsson.
19.00 Sómafólk - (George
and Mildred)
20. Hin gömlu kynni. Bresk-
ur gamanmyndaflokkur.
Þýðandi: Ólöf Pétursdóttir.
19.25 Fréttaágrip á táknmáli
19.30 Poppkorn
Umsjón: Guðmundur Bjarni
Haröarson og Ragnar Hall-
dórsson.
20.00 Fréttir og veður
20.30 Auglýsingarogdagskrá
20.35 Svarti turninn
(The Black Tower). Fjórði
þáttur. Breskur framhalds-
myndaflokkur í sex þáttum,
gerður eftir sakamálasögu
P.D. James. Roy Marsden
leikur Adam Dalgliesh lög-
regluforingja. Þýðandi:
Kristrún Þórðardóttir.
21.30 Vestræn veröld
(Triumph of the West). 3.
Hjarta Vesturlanda. Nýr
heimildaflokkur í þrettán
þáttum frá breska sjónvarp-
inu (BBC). Fjallaö er um
sögu og einkenni vestrænn-
ar menningar og útbreiöslu
hennar um alla heims-
byggðina. Umsjónarmaður
er John Roberts sagnfræð-
ingur. Þýðandi og þulur:
Óskar Ingimarsson.
22.20 Kastljós
Þáttur um erlend málefni.
Umsjónarmaður: Sturla Sig-
urjónsson.
22.50 Fréttir í dagskrárlok.
b
STOD-2
ÞRIÐJUDAGUR
24. mars
17.00 Hin heilaga ritning
(Sacred Hearts). Bresk sjón-
varpskvikmynd frá 1984
skrifuð og leikstýrö af Bar-
bara Rennie. Gamansöm
mynd um tilvonandi nunnu,
sem fær bakþanka þegar
sjóndeildarhringur hennar
víkkar.
18.30 Myndrokk.
18.45 Fréttahornið. Fréttatími
barna og unglinga. Umsjón-
armaður er Sverrir Guðjóns-
son.
19.05 Viðkvæma vofan.
Teikhimynd.
19.30 Fréttir.
20.00 í návígi. Yfirheyrslu- og
umræðuþáttur í umsjón
fréttamanna Stöðvar 2.
20.40 Matreiöslumeistarinn.
Matreiðsluþættir Ara Garö-
ars Georgssonar vöktu
verðskuldaöa athygli á
síöasta ári. Nú er Ari mætt-
ur aftur í eldhús Stöðvar 2
og hyggst kenna áhorfend-
um matargeröarlist.
21.05 Afleiðing höfnunar
(Nobodys Child).
Bandarísk kvikmynd. Mynd
þessi er byggð á sannri
sögu um Marie Balter. Saga
ungrar konu sem tókst að
yfirstíga hið óyfirstíganlega.
Beitt ofbeldi, sett á hæli og
fleira álika, snýr hún mar-
tröð þeirri sem hún lifði i
sigur með gífurlegu hug-
rekki á áhrifaríkan hátt.
22.35 NBA-körfuboltinn. Um-
sjónarmaður er Heimir
Karlsson.
00.05 Heimsmeistarinn að
tafli. Fimmta skák milli unga
snillingsins Nigel Short og
heimsmeistarans Gary
Kasparov
00.30 Dagskrárlok.
Andrés Björnsson les 31.
sálm.
22.30 Ævintýri H.C. Ander-
sens. Umsjón: Keld Gall
Jörgensen. Halldóra Jóns-
dóttir þýddi og les ásamt
Kristjáni Franklín Magnús.
(Áður útvarpað 8. f.m.)
23.25 Islensk tónlist.
24.00 Fréttir. Dagskrárlok.
Ú*
ÞRIÐJUDAGUR
24. mars
00.10 Næturútvarp. Hallgrim-
urGröndal stendurvaktina.
6.00 I bítið. Rósa Guðný
Þórsdóttir léttir mönnum
morgunverkin, segir m.a. frá
veðri, færð og samgöngum
og kynnir notalega tónlist í
morgunsárið.
9.05 Morgunþáttur i umsjá
Kolbrúnar Halldórsdóttur og
Sigurðar Þórs Salvarssonar.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Á milli mála. Leifur
Hauksson kynnir létt lög við
vinnuna og spjallar við
hlustendur. Afmæliskveöj-
ur, bréf frá hlustendum o.fl.,
o.fl.
16.05 Hringiðan. Umsjón:
Broddi Broddason og Mar-
grét Blöndal. Síðdegisút-
varp rásar 2, fréttatengt efni
og tónlist.
19.00 Kvöldfréttir.
19.30 Nú er lag. Gunnar Salv-
arsson kynnir gömu! og ný
úrvalslög.
21.00 Tilbrigði. Endurtekinn
þáttur frá laugardagssið-
degi i umsjá Hönnu G.
Siguröardóttir.
22.05 Heitr krásir úr köldu
striöi. Magnús Þór Jónsson
og Trausti Jónsson dusta
rykið af gömlum 78 snún-
inga plötum Ríkisútvarps-
ins.
00.10 Næturútvarp. Andrea
Guömundsdóttir stendur
vaktina.
Fréttir kl. 7.00, 8.00, 9.00,
10.00, 11.00, 15.00, 16.00,
17.00, 18.00, 22.00 og
24.00.
SYÆÐISUTVARP
AKUREYRI
18.00-19.00 Svæðisútvarp
fyrir Akureyri og nágrenni —
FM 96,5
Trönur. Umsjón. Finnur
Magnús Gunnlaugsson.
Fjallað um menningarlif og
mannlif almennt á Akureyri
og í nærsveitum.
989
BYLGJAN
ÞRIÐJUDAGUR
24. mars
07.00—09.00 Á fætur með
Sigurði G. Tómassyni. Létt
tónlist með morgunkaffinu.
Sigurður lítur yfir blöðin og
spjallar við hlustendur og
gesti.
Fréttir kl. 7.00, 8.00 og
9.00.
09.00—12.00 Páll Þorsteins-
son á léttum nótum. Palli
leikur uppáhaldslögin ykkar.
Afmæliskveðjur, matarupp-
skriftir og spjall til hádegis.
Síminn er 61 11 11.
Fréttir kl. 10.00, 11.00 og
12.00.
12.00—14.00 Á hádegismark-
aði með Jóhönnu Harðar-
dóttur. Fréttapakkinn.
Jóhanna og fréttamenn
Bylgjunnar fylgjast með því
sem helst er i fréttum,
spjalla við fólk og segja frá.
Flóamarkaðurinn er á dag-
skrá eftir kl. 13.00.
Fréttir kl. 13.00 og 14.00.
14.00—17.00 Pétur Steinn á
réttri bylgjulengd. Pétur spil-
ar síðdegispoppið og spjalí-
ar við hlustendur' og
tónlistarmenn. Forstjóra-
popp eftir kl. 15.00.
Fréttir kl. 15.00, 16.00 og
17.00.
17.00—19.00 Ásta R. Jóhann-
esdóttir í Reykjavík síðdeg-
is. Ásta leikur tónlist, lítur
yfir fréttirnár og spjallar við
fólkið sem kemur við sögu.
Fréttir kl. 18.00.
19.00—20.00 Tónlist með
léttum takti.
20.00—21.00 Vinsældalisti
Bylgjunnar. Helgi Rúnar
Óskarsson kynnir 10 vin-
sælustu lög vikunnar.
21.00—23.00 Ásgeir Tómas-
son á þriðjudagskvöldi.
Ásgeir leikur rokktónlist úr
ýmsum áttum.
23.00—24.00 Vökulok. Þægi-
leg tónlist og fréttatengt efni
í umsjá Elínar Hirst frétta-
manns. Fréttir kl. 23.00.
24.00—07.00 Næturdagskrá
Bylgjunnar. Tónlist og upp-
lýsingar um veður og flug-
' samgöngur. Fréttirkl. 3.00
ALFA
KiiftUeg átvarptttM,
FM 102,9
ÞRIÐJUDAGUR
24. mars
8.00 Morgunstund: Guðs
orð og bæn.
8.15 Tónlist.
13.00 Tónlistarþáttur með
lestri úr Ritningunni.
16.00 Dagskrárlok.