Morgunblaðið - 24.03.1987, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 24.03.1987, Qupperneq 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. MARZ1987 Jám og stál Myndlist Bragi Asgeirsson í vestri gangi Kjarvalsstaða getur að líta nokkra skúlptúra úr ryðfríu stáli og járni eftir hina ungu og efnilegu listakonu Hansinu Jensdóttur. Að meginstofni til eru þetta víravirkisskúlptúrar, en einnig eru á staðnum tvær myndir úr ryðfríu stáli, ásamt því að tveimur verk- um hefur verið bætt við, sem ekki eru á skrá, og var annað þeirra á hinni stóru „abstraktsýningu" í húsinu fyrir skömmu. Hér er um mjög vönduð og ein- læg vinnubrögð að ræða hjá listakonunni og fram kemur mikil hugkvæmni í samsetningu víra- virkisskúlptúra. En sá galli er á gjöf Njarðar, að myndimar njóta sín alls ekki á þessum stað né umhverfi, svo sem þær eru settar upp, því að hið steinhellulagða gólf gleypir þær bókstaflega með húð og hári, ef svo má að orði komast. Hér eru nefnilega á ferðinni langtum betri og sterkari verk en fram kemur í fljótu bragði, og hefðu þau trúlega notið sín margfalt betur í Nýlistasafninu eða Nor- ræna húsinu, sem búa yfir meiri sveigjanleika en Kjarvalsstaðir í núverandi formi, að ekki sé talað um lýsingarmöguleika. Einhvem veginn gmnar mig, að á listakonuna hafi runnið tvær grímur er hún sá upphaflegu út- komuna og því bætt áðumefndum tveim verkum við til að hressa upp á heildina. Þau njóta sín líka ólíkt betur, en gera það um leið enn meira áberandi hve hin njóta sín illa. Undantekningar em þó myndimar úr ryðfría stálinu, sem em vel gerðar og bera svip af menntun hennar sem gull- og silf- ursmiðs, sem hún fullnumaði sig í áður en hún lagði út í myndlist- arnám. Væntanlega lærir Hansína af reynslunni og býður næst upp á sýningu í umhverfi Hansína Jensdóttir og uppsetningu, sem hæfir mynd- unum og dregur sérkenni þeirra fram í stað þess að vinna gegn þeim. Doriana Chiarini AIDA Myndlist Bragi Ásgeirsson Einu sinni eða tvisvar hef ég vísast ritað um uppákomur í því fræga galleríi, er nefnist „Gangur- inn“ eða réttara sagt „The Corrid- or“ á fínu máli. Þar hanga að staðaldri uppi myndverk eftir vini og samhetja hins unga myndlistarmanns, Helga Þorgils Friðjónssonar, inn- lenda sem útlenda. Svo frægt er galleríið, að svissneski myndlistarmaðurinn Helmut Federle hefur gert mál- verk í nýflatarlist, er hann tileink- ar því, og hefur það ratað í virt útlend listtímarit í lit og á gljá- pappír. Eins og nafnið ber með sér, er galleríið í fordyri íbúðar listamannsins á Rekagranda 8, og þangað geta áhugasamir lagt leið sína, ef vill. Eiginlega var það meiningin að láta útlend tímarit að mestu eða alfarið um að geta sýninga á staðnum, enda virðist það einna helst rekið í því skyni að komast í þau. En á dögunum beið mín fallegt gult boðskort í afgreiðslu ritstjórnar blaðsins með tilmælum um að skoða myndlistarsýningu ítalskrar listakonu með hið tæl- andi nafn Doriana Chiarini. Væntingamar voru því miklar og ég eins og faraldur á staðinn, en þegar þangað kom, gat að líta fjórar myndir af fímm á gólfinu, — en þar höfðu þær hafnað vegna lélegra festinga á veggina. Upp- lýsingar um listakonuna voru og engar á staðnum, og þótti mér þetta hálf klént, sem einhverjum aðdáendum þessa sýningarforms þykir sjálfsagt nokkuð frakkt af listrýninum. Sjálfar myndimar vom nosturs- lega unnar grafíkmyndir, að mér sýndist í senn fíngerðar og kven- legar og hef ég einungis allgott af viðkynningunni af þeim að segja. En einhvemveginn get ég trútt um talað. Ég er of gamaldags til að kunna að meta þetta sýningar- form, sem er spánnýtt og fmm- legt, þ.e. að hengja upp myndir á vegg með því að klístra leir aftan á þær og kalla svo á fulltrúa fjöl- miðla til að þvælast um þær á gólfinu. En að sjálfsögðu þakka ég fyr- ir mig með virktum. Tónlist Jón Ásgeirsson Hrönn Hafliðadóttir og Þóra Fríða Sæmundsdóttir héldu tónleika í Gamla bíó sl. laugardag og fluttu söngverk eftir Gluck, Brahms, Schu- bert, Wagner, Strauss, Poncielli og Tchaikovsky. Tónleikamir hófust á aríu Orfeusar. Þrátt fýrir að Vínarbúar tækju þessari óperu illa í fyrstu, hefur þetta verk öðlast þá sérstöðu að vera nær eina óperan í gamla „bel canto“-stílnum, sem enn er flutt. Arían Che faro senza Euridice er meðal fallegustu atriða verksins. Á eftir aríu Orfeusar voru þijú lög eftir Brahms, Die Mainacht, O kúhler Wald og snilldarverkið Lieb- estreau. Rödd Hrannar á sérlega vel við ljóðalögin eftir Brahms en þó er eins og öndunartæknin sé henni ein- ________Tónlist Jón Ásgeirsson Óperan Aida hefur nú um skeið gengið fýrir fullu húsi og er sýningin enn jafn heillandi og undirritaður man hana frá frumsýningunni. Breytingar hafa síðan þá orðið í mannahaldi og einnig, að nú er texti óperunnar sýndur með ljósvarpa. Trúlega em fáir trúaðir á slíka ný- breytni en þar sem oft er mjög mikið um endurtekningar á texta og sú aðferð viðhöfð, að sleppa þeim, veld- ur textamyndin litlum tmflunum en vekur hins vegar athygli á einstaka mikilvægum orðum í söngtextanum. Það er sem sagt vel til fundið að texta ópemr á þennan máta. Þær breytingar sem orðið hafa í manna- haldi, er fyrst að telja, að Anna Júlíana Sveinsdóttir syngur Amneris og gerir það mjög vel, bæði hvað leik og söng snertir, t.d. í atriðinu þegar Amneris fær Aidu til að opin- bera ást sína á Radames, í túlkun hennar á angist Amneris er Radames vill ekki þýðast hana og síðast, er hún formælir prestunum fyrir grimmd þeirra. Eiður Á. Gunnarsson er önnur breytingin á söngliðinu í ópemnni, hann syngur hlutverk konungsins. Þetta er lítið hlutverk og gefur ekki mikið til átaka í söng. Eiður er reynd- ur söngvari og hefur sungið við ópemna í Aachen í mörg ár og mun hafa í hyggju að flytjast heim mjög fljótlega. Eiður söng sitt litla hlut- verk ágæta vel, en sú helgimynd, sem konungurinn á að vera, gefur lítið hver hemill, þegar hún syngur veikt. Rödd hefur hún mikla, sérlega fall- ega og trúlega einstæða ekta „contr- alt“ og feikna mikið tónsvið. Öndunarhemill sá sem hér er átt við, veldur því að víða vantar jafnvægi í styrk raddarinnar, sérstaklega í veik- um söng og bar nokkuð á því að stakir tónar og heilar laghendingar væm eins og án „stuðnings". Þegar svo er brotist yfír þessar hömlur verður tónunin oftlega all sterk mið- að við heildarsvip lagsins. Þama er eitthvað sem má bæta og þá er Hrönn Hafliðadóttir feikna góð söngkona. I Schubert-lögunum var röddin í betra jafnvægi, sérstaklega í Der Wander- er. í Wesendonk-lögunum eftir Wagner var söngur Hrannar góður og sömuleiðis túlkun ljóðanna en lög- in eftir Strauss vom með sama merki brennd og þau sem hún söng eftir Brahms og Schubert. annað svigrúm í túlkun en upphafínn virðuleika. Eins og fyrr sagði var óperan sú sama og á frumsýningunni því Ólöf Kolbrún Harðardóttir og Garðar sungu frábærlega vel, t.d. lokaatrið- ið, sem var tindrandi fagurt. Kristinn var og stórbrotinn, Viðar í mikilli framför, Katrín góð og kórinn einn- ig. Dansararnir vom góðir en dans- inn sem á að vera táknrænn fyrir helgun og sigurmögnun sverðs þess er Radames á að bera gegn óvinun- um, var að þessu sinni dansaður mjög fallega af Ingibjörgu A. Jóns- dóttur. Nokkrir hafa og komið við sögu í stjóm hljómsveitar og nú stóð Páll P. Pálsson og stýrði sýningunni af öryggi og festu. Hvað undirritaður man til samanburðar, þá er ekki frítt við að hraðinn sé ívið minni á ein- staka atriðum. Hljómsveitin var ekki eins góð og á fmmsýningunni, eink- um þar sem tónmálið er næstum einraddað og sérlega viðkvæmt. Þó skal geta þess sem vel var gert og það vom nokkrar strófur á óbó, sem á köflum hljómuðu fallega. Ópera er margslungið listform og hefur enn staðið af sér allar umbreyt- ingar og virðist verða því öflugri miðill sem fjölmiðlunin eflist. Það telja fróðir menn vera mest vegna þess að í leikhúsinu hafa tengslin á milli áheyrenda og flytjenda eflst til jafns við fírrð þá sem menn finna gjaman til í niðursoðinni og einhliða mötun íjölmiðlanna. Það munar því að persónur leikhússins em af holdi og blóði og lifa augnablikið með áheyrendum. Tvö síðustu verkefnin á efnis- skránni vom tvær aríur, sú fyrri úr La Gioconda, eftir Poncielli og kveðjuaría Jóhönnu af Örk, eftir Tchaikovsky. Þama var Hrönn í réttu hlutverki, þar sem stór rödd hennar fékk að njóta sín og hefði verið fróð- legt að heyra rödd hennar boma upp af hljómsveit í aríu Tchaikovskys. Djúpsviðið í rödd Hrannar er feikna fallegt en ef til vill of sterkt fyrir viðkvæman söng og sama má segja um hásviðið, sem býr yfír ótrúlegum krafti. Það er mikil freisting að ætla svo, að Hrönn hafí blátt áfram ekki fundið sitt svið, sem án efa má fínna í einhveijum ópemnum, eins og sann- aðist í Trúbadomnum. Þrátt fyrir að Hrönn hafí ekki að fullu getað ham- ið sína miklu rödd, vom tónleikamir í heild góðir og til þessa naut hún ágætrar aðstoðar Þóm Fríðu Sæ- mundsdóttur. Hrönn Hafliðadóttir Bandalag jafnaðarmanna: Framboð í tveimur kjördæmum LANDSFUNDUR Bandalags jafnaðarmanna var haldinn um helgina. Ákveðið var að bjóða fram lista til alþingis í tveimur kjördæmum, Reykjavík og Reykjanesi. Samþykkt var stjórnmálaályktun og stefnuskrá fyrir bandalagið og kosið var í 12 manna landsnefnd. í stjórnmálaályktuninni er lögð áhersla á, að skilið verði á milli löggjafarvalds og framkvæmda- valds og forsætisráðherra verði kjörinn beinni kosningu. Skilið verði á milli dómsvalds og framkvæmda- valds. Efnt verði til þjófundar um nýja stjórnarskrá. Valdið verði fært heim í hérað með stofnun fylkja. Allir kjósendur í landinu hafí jafnan atkvæðisrétt. Vinnustaðafélögum verði leyfð að taka að sér réttindi og skyldur stéttafélaga. Allir sé jafnir fyrir lögum og eigi rétt á ókeypis lögfræðiaðstoð. Æðstu embættismenn ríkisins séu skipaðir eða kosnirJ.il Qögurra ára í senn. Ábyrgð þingmanna gagn- vart kjósendum verði skilgreind í stjórnarskrá. Þingmenn skulu sitja þing út kjörtímabilið fyrir þann flokk sem þeir eru kosnir eða víkja af þingi og ber þá að kalla til vara- menn. • Yfímefnd verðlagsráðs sjávarút- vegsins verði lögð niður og fískverð verði gefíð frjálst. Ríkisbankar verði seldir almenningshlutafélögum og gjaldeyrisverslun gefín fijáls. Verð- myndunarkerfi og uppbygging íslensks landbúnaðar verði breytt í þágu neytenda og bænda. Tengsl menntastofnana og atvinnulífs verði efld og atvinnuvegimir fái fímm fulltrúa í háskólaráði. Höfuðstóll lána byggðasjóðs ríkisins verði lækkaður sem nemur mismun á hækkun launa og lán- skjaravísitölu. Lánasjóður íslenskra námsmanna verði gert kleyft að veita lán til fullrar framfærslu námsmanna, sem séu að fullu end- urgreidd en án vaxta. Framiög ríkisins til menningarmála verði stóraukin og frelsi fjölmiðla eflt, m.a. með því -að ieggja niður pólitískt kjörið útvarpsráð. Öldruðu fóiki, ellilífeyrisþegum og öryrkjum, verði gert kleyft að halda sjálfstæði sínu og mannlegri reisn, og nýta starfsorku sína. Greiðslur frá Tryggingastofnun ríkisins til aldraðra og öryrkja verði í formi launa sem tryggi að viðkom- andi geti lifað mannsæmandi lífi og ekki verði litið á þessar greiðslur sem ölmusu. Þær verði óháðar at- vinnutekjum upp að meðaltekjum í landinu og verði óháðar greiðslum lífeyrissjóða. Skóladagur verði samfelldur og aðstaða og kjör kennara bætt. Framlög og stuðningur ríkisins við samtök áhugafólks og sérfræðinga er starfa að forvömum, fræðslu og RÍKISMAT sjávarafurða hefur nú komið á fót vinnumiðlun fyrir þá starfsmenn, sem sagt var upp um áramót, á fimmta tug manna. Uppsagnirnar koma til vegna þess, að ferskfiskmat er ekki lengur í höndum Ríkismatsins. Að sögn Sigurðar Gunnarssonar, starfsmanns Ríkismatsins, hefur nokkur hluti fískmatsmanna fengið fasta vinnu hjá öðrum, nokkur Ijöldi meðferð vímuefnaneytenda og að- standenda þeirra verði stóraukin. Málefni fólks með geðræna sjúk- dóma verði sérstaklega tekin til endurskoðunar og framlög ríkisins til þeirra aukin. Stutt við málstað friðahreyfínga og kröfuna um kjarnorkuvopnalaus svæði svo og alhliða afvopnun. Við óbreyttar aðstæður styður Banda- lag jafnaðarmanna aðild íslands að Nato en telur að tími sé kominn til að endurskoða vamarsamninginn við Bandaríkin. Fylgt verði mark- hefur enga vinnu fengið og ein- hveijir hafa verið í lausamennsku. Sigurður sagði, að illa hefði gengið að koma þessum mönnum fyrir inn- an ríkisgeirans og því væri aðkall- andi að útvega þeim vinnu. Mest aðkallandi væri það á Akureyri, Akranesi, í Reykjavík, á Snæfells- nesi og í Vestmannaeyjum. Þetta væru menn með mikla starfsreynslu og vanir því að vinan sjálfstætt. miðum blandaðs hagkerfís um aukinn hagvöxt og bætt lífskjör landsmanna, þar sem sífellt er leit- ast við að sætta hagrænar og félagslegar aðgerðir. í landsnefnd Bandalags jafnaðar- manna voiu kjörin: Alfreð Guð- mundsson, Anna Kristjánsdóttir, Georg Georgsson, Guðmundur Jónsson, Gunnar Þór Jónsson, Helgi Schiöth, Jónína ívarsdóttir, Ólafur Ólafsson, Þorgils Axelsson, Þor- steinn Hákonarson, Þorsteinn Már Jónsson og Öm S. Jónsson. Vinnumiðlun stofnunarinanr hefði því verið sett á laggimar í sam- vinnu starfsmannafélagsins og stjórnenda stofnunarinanr. og von- uðust menn til að geta leyst úr þessum vandkvæðum á farsælan hátt, þar sem alltaf væri sárt að þurfa að segja starfsfólki upp, kannski eftir áralanga þjónustu. Ríkismatið stofnar vinnumiðlun
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.