Morgunblaðið - 24.03.1987, Side 24
MORGÚNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. MARZ 1987
Doktor
í véla-
verkfræði
ÁSLAIJG Haraldsdóttir varði 27.
janúar sl. doktorsritgerð sína við
vélaverkfræðideild Michigan-há-
skóla í Bandaríkjunum. Ritgerð-
in ber titilinn „Hæfnibætur með
diffurkvóta-afturverkun í línu-
legum kerfum“ (Performance
improvement by derivative feed-
back in linear systems). Hún
fjallar um notkun PD-stýringa
til að bæta hæfni stýrikerfa með
tilliti til viðkvæmni þeirra fyrir
óvissu í kerfinu, en einnig er
sýnt hvemig PD-stýring eykur
svömn kerfa við tmflunum í
mælirásum.
Áslaug lauk BS-préfi í vélaverk-
fræði frá Háskóla íslands í júní
1980 og MS-prófi í sömu grein frá
Oklahoma State University. Henni
voru veittir margir styrkir til dokt-
orsnámsins. Auk þess veitti Michig-
an-háskóli henni viðurkenningar
fyrir góðan námsárangur í mars
1985 og 1986. Thor Thors-styrkinn
frá íslensk-ameríska félaginu hlaut
hún 1980-81.
Dr. Áslaug Haraldsdóttir
Áslaug er fædd í Reykjavík árið
1956. Foreldrar hennareru Harald-
ur Þórðarson, deildarstjóri tækni-
deildar SVR og María Á.
Guðmundsdóttir, deildarstjóri í fé-
lagsmálaráðuneytinu. Áslaug er
gift Alireza Behboud og eignuðust
þau son, Jónas, þann 6. febrúar sl.
Auk þess á Áslaug 11 ára dóttur,
Báru Yngvadóttur, sem býr hjá föð-
ur sínum á íslandi.
V erðj öfnunarsj óður f iskiðnaðarins:
Lögvernduð
eignaupptaka
- segir Heimir Fjelsted um greiðslur í sjóðinn
„LOGBUNDNAR greiðslur
rækjuframleiðenda í Verðjöfn-
unarsjóð fiskiðnaðarins, sem á
síðasta ári skiptu hundmðum
milljóna, rýra verulega afkomu
rækjuvinnslunnar og draga úr
sókn eftir sem hæstu verði á
mörkuðunum erlendis. Þetta fé
skilar sér ekki til viðkomandi
fyrirtækja aftur nema í litlum
mæli og því má flokka þetta und-
ir lögverndaða eignaupptöku,
sem ég tel að stangist á við
stjórnarskrána,“ sagði Heimir
Fjelsted, framkvæmdastjóri
Rækjuvinnslunar hf. á Skaga-
strönd í samtali við Morgun-
blaðið.
„Á síðasta ári voru teknar hundr-
uðir milljóna af rækjuvinnslu í
Verðjöfnunarsjóðinn og tugmilljónir
af einstökum verksmiðjum. Þetta á
sér stoð í lögum frá 1969 um Verð-
jöfnunarsjóð fiskiðnaðarins," sagði
Heimir. „Mér virðist þetta vera lög-
vemduð eignaupptaka, sem_ þó
stangast á við stjómarskrána. í 67.
grein hennar segir: „Eignarréttur-
inn er friðhelgur. Engan má skylda
til að láta af hendi eign sína nema
almenningsþörf krefji; þarf til þess
lagafyrirmæli og komi fullt verð
fyrir.“ Þessar greiðslur skila sér
ekki til baka til viðkomandi fyrir-
tækja nema að litlum hluta. Fyrir
nokkmm ámm hafði rækjuvinnslan
hf á Skagaströnd greitt 3 milljónir
í þennan sjóð, en fengið eina milljón
til baka.
Til hvers er maður að beijast
fyrir því að ná hæstu verði erlendis
hveiju sinni, þegar kúfurinn og
jafnframt ávinningurinn er tekinn
af á þennan hátt? I dag em tekin
12% af cif verði rækjunnar, sem
gæti verið að meðaltali um 480
krónur á kíló, eða 57,60 krónur.
Þetta fé mætti nota til uppbygging-
ar innan fyrirtækjanna og greiða
niður tap undanfarinna ára. Enn-
fremur mætti nota það til hækkunar
hréfnisverðs til sjómanna. Mun rétt-
ara væri að sjóðurinn yrði lagður
niður og menn taki áföllum, sveifl-
um í markaðsverði sjálfir. Þá er það
forkastanlegt að fulltrúar sjómanna
og útgerðarmanna geti komið í veg
fyrir að fiskiðnaðurinn leggi niður
eigin sjóð eins og raunin er. Því
má líkja þessu við það, að væri eitt-
hvert dagblað rekið með hagnaði,
að til kæmi einhver sjóður, sem
tæki kúfirin af hagnaðinum og
færði öðmm, sem rekin væm með
tapi. Þetta er auðvitað fásinna og
harður sosialismi í framkvæmd,"
sagði Heimir.
Klífa 7455 metra
hátt fjall í Nepal
Morgunblaðið/Þorkell
Anna Lára Friðriksdóttir og Torfi Hjaltason. Þau búast við að
ná tindi Gangapurna i Nepal í lok næsta mánaðar. Það yrði
hæsta fjall sem Islendingar hafa klifið.
FIMM félagar úr íslenska Alpa-
klúbbnum freista þess í næsta
mánuði að ná toppi hæsta fjalls
sem íslendingar hafa klifið.
Fjallið sem um ræðir er í Nepal
og nefnist Gangapurna. Það er
7455 metra hátt. Gangapurna
var klifið í fyrsta sinni árið
1962 og aðeins tíu hópar hafa
komist á tindinn svo vitað sé.
Þetta er í fyrsta skipti sem
islenskir aðilar skipuleggja
leiðangur til Himmalaya-fjalla.
Að sögn Torfa Hjaltasonar er
hér um að ræða meðlimi sama
hóps og kleif fjallið Huascaran í
Perú fyrir tveimur ámm. „Undir-
búningur leiðangurs íjallgöngu-
manna hefst í raun með leit að
fjalli sem hentar getu þeirra. Eft-
ir komuna frá Perú fómm við að
leita að fjalli í Himalaya sem
væri eðlilegt framhald af þeim
sem við höfum áður klifið," sagði
Torfi. „Gangapurna var eitt um
það bil tíu fjalla sem við öfluðum
okkur nákvæmra upplýsinga um
til þess að geta áttað okkur á því
hvert þeirra hentaði hópnum.“
Hann sagði að við skipulagn-
ingu leiðangursins hefðu þau
notið aðstoðar fjallgöngumanns
sem er búsettur í Nepal. Hann
hefur haft milligöngu um samn-
inga við þarlend stjómvöld.
Nauðsynlegt er að „panta“ eftir-
sótt fjöll með fyrirvara og gi-eiða
leyfisgjald áður en lagt er af stað.
í Nepal munu leiðangursmenn
ráða 50-60 burðar og aðstoðar-
menn sem fylgja hópnum að
rótum fjallsins.
í leiðangrinum taka þátt tíu
manns. Þau munu halda hópinn
þar til komið er að Gangapuma
en þá verður hópnum tvískipt.
Fjórir leiðangursmenn ætla að
ganga um fjalllendi í nágrenni
Gangapuma, á meðan félagar
þeirra klífa toppinn. Guðmundur
Pétursson leiðangurstjóri hyggst
ganga upp að snjólínu sem er í
5500 metra hæð, en bíða þar
meðan fimmmenningamir reyna
við háfjallið. Þau gera ráð fyrir
að það taki sex daga að ná tindin-
um.
„Ferðin hefst með flugi til
Kathmandu höfuðborgar Nepal,“
sagði Anna Lára Friðriksdóttir.
„Þar ætlum við að kaupa vistir
til fararinnar og halda síðan með
rútu til borgarinnar Pohkara. í
Pohkara bætast burðarmenn og
aðstoðarmenn í hópinn og leiðang-
urinn byijar. Við byijum á því að
ganga langan dal sem liggur upp
að Gangapurna. Sú gönguferð
tekur sennilega viku því um tor-
færu er að fara. Við enda leiðar-
innar setjum við upp bækistöðvar.
Áður en ráðist er í sjálfa fjall-
gönguna er síðan ætlunin að klífa
nokkur Qöll í nágrenninu sem eru
5500-6500 metra há, til þess að
æfa okkur," sagði hún.
Anna sagði að stærsta vanda-
málið við fjallgöngu í þessari hæð
væri að aðlagast súrefnisleysi.
Líkaminn gæti aukið framleiðslu
rauðu blóðkornanna sem flytja
súrefni en til þess þyrfti æfingu.
Þessari aðlögun fylgir gjarna
svimi og vanlíðan.
Gangan á háfjallið á að hefjast
í síðustu viku aprílmánaðar. Þá
verða settar upp búðir í 5500
metra hæð, þaðan sem fimmmen-
ingamir leggja upp. Takist þeim
ekki að komast á tindinn í fyrstu
tilraun af einhveijum ástæðum
eru þau staðráðin í að reyna aft-
ur. Eru því 12 dagar í áætluninni
fráteknir fyrir þennan hluta leið-
angursins.
Á meðan fimmmenningarnir
klífa tindinn, munu fjórar konur
í hópnum fara í 20 daga göngu-
ferð í kringum fjallið. í þeirri ferð
verður farið yfir fjöll og fímindi
og meðal annars kannað fjöl-
skrúðugt plöntu og dýralíf í
Himmalaya.
Torfi sagði að við undirbúning
ferðarinnar hefði hópurinn notið
velvildar fyrirtækja og einkaaðila,
þeirra á meðal em Útilíf, Domus,
Amarflug, Tjaldborg, Henson og
Bmnabótafélag Islands.
Ú-beygjur bannaðar
MorgunblaðidV GÓI
Borgarráð hefur samþykkt samkvæmt tillögu umferðardeildar borgarinnar að banna U-beygjur á
Reykjanesbraut. Eftirleiðis er bannað að taka U-beygju á gatnamótum Reykjanesbrautar og Bústaðar-
vegar, Smiðjuvegar, Stekkjarbakka og Breiðholtsbrautar.
Hafnarfjörður:
Ný æskylýðs-
miðstöð keypt
BÆJARSTJÓRN Hafnarfjarð-
ar hefur keypt hluta húsnæðis
við Strandgötu 1 til 3, Skip-
hól, fyrir æskulýðsmiðstöð.
Að sögn Guðmundar Áma Stef-
ánssonar bæjarstjóra er reiknað
með að starfsemin geti hafist um
mitt ár. Keyptur verður búnaður
og húsgögn gerð þannig úr garði
að þau hæfi ungu fólki. Æskulýð-
smiðstöðin verður að hluta til á
annarri og þriðju hæð hússins á
rúmum 445 fremetrum. Kaupverðið
er 9,9 millj.