Morgunblaðið - 24.03.1987, Page 27

Morgunblaðið - 24.03.1987, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. MARZ 1987 27 Ólögleg efni í innfluttri mat- vöru flæða inn á markaðinn — segir Elín Hilmarsdóttir, matvælafræðiiignr ÓLÖGLEG efni í innfluttum vörutegundum eru algeng hér á landi og flæða óheft inn á mark- aðinn, að sögn Elínar Hilmars- dóttur, matvælaf ræðings hjá Félagi íslenskra iðnrekenda. „Efnanna er oftast getið utan á vörunni. Þau eru þá ef til vill lögleg í framleiðslulandinu, en ólögleg hér á landi og innlendum framleiðendum er því meinað að nota þau í framleiðslu sina." Félag íslenskra iðnrekenda í samvinnu við Neytendasamtökin hefur að undanförnu kannað merk- ingar drykkjarvöru og nýlega er könnun á sælgæti lokið. Fyrir- hugaðar eru sams konar kannanir á matvöru og ýmsum efnum til hreingerninga. I niðurstöðum könn- unarinnar á drykkjarvöru var hlutfall ófullnægjandi sýna 35,2% og mælst hefur verið til þess að 25 erlend sýni og 15 innlend verði fjarlægð af markaðnum ýmist vegna ónógra merkinga eða ólög- legra efna í drykkjunum. Varðandi sælgætið, var 31,8% sýnanna ófull- nægjandi. Elín sagði að vörurnar hefðu ekki verið efnagreindar að sinni Abyrgöar sjóður lög- manna greið- ir bætur í fyrsta sinni STJÓRN Lögmannafélags ís- lands hefur afgreitt fyrstu umsóknir um greiðslu úr ábyrgðasjóði lögmanna síðan sjóðurinn var stofnaður árið 1976. Fjórar umsóknir bárust sjóðnum vegna krafna á hendur lögmanni í Reykjavík sem var nýlega lýstur gjaldþrota. Þrjár þeirra hafa verið afgreiddar og að sögn Hafþórs Inga Jónssonar framkvæmdasljóra félagsins er búist við að sú fjórða verði af- greidd í næstu viku. Einn umsækjenda, Rúnar Þór Björnsson, hefur framselt sjóðnum kröfu sína á hendur lögmanninum. Rúnar varð fyrir slysi á skemmti- staðnum H-100 á Akureyri fyrir sjö árum þegar hann féll niður um lyftuop. Lögmaðurinn fékk skaða- bætur sem Rúnari höfðu verið dæmdar greiddar út með skulda- bréfum á sínu nafni og barst féð aldrei í hendur rétts eiganda. Rúnar gerði þá fjárnámsbeiðni í eigum skemmtistaðarins sem fógetaréttur á Akureyri vísaði frá. Abyrgðasjóðurinn greiddi Rúnari þá fjárhæð sem honum voru dæmd- ar í skaðabætur árið 1984 að viðbættum vöxtum, eða um 1,9 milljónir króna. „Eg er ánægður með að þessu máli skuli loksins vera lokið. Þó ég hefði kosið að málið hefði farið rétta leið í dóms- kerfínu er betri einn fugl í hendi en tveir í skógi," sagði Rúnar í samtali við blaðamann. Að sögn Hafþórs munu þeir sem sjóðurinn greiðir bætur framselja honum kröfur sínar á hendur við- komandi lögmanni. Höföar til .fólksíöllum starfsgreinum! þannig að ekki stoðaði fyrir yfír- mann Hollustuverndar ríkisins að afsaka sig með því að stofnunin hefði ekki rannsóknarstofu á sínum snærum. Ólöglegu efnanna var get- ið utan á umbúðunum. „Við viljum ekki birta lista opinberlega yfir þessar vörur að svo stöddu heldur tókum við það ráð að senda hann heilbrigðisráðuneytinu og Hollustu- verndinni til að sjá framvindu mála. Ef hinsvegar ekkert verður gert af hálfu hins opinbera, verðum við líklegast að birta listann.“ Elín sagði að í drykkjarvörum væru litarefni og rotvarnarefni í mörgum tilvikum ólögleg hér á landi og fengi fólk oft ofnæmi af völdum þeirra. Þá er mikið af sykur- lausum innfluttum vörutegundum á markaðnum hér sem inniha'ida ólög- leg sætuefni. íslendingum er bannað að framleiða úr sumum þessum sætuefnum á meðan ekkert er gert við því þótt þau flæði inn á markaðinn erlendis frá. Ólöglegt er til dæmis að nota „nutrasweet" í innlenda sælgætisframleiðslu en það efni er hinsvegar mjög algengt í innfluttu sælgæti og kemur hingað óheft á markaðinn," sagði Elín. Nyja eirnneiuiingstölvan frá IBM er sannkölluð hamhleypa! IBM PC XT286 er ný, geysidugleg einmenningstölva. Vinnslusnerpuna fær hún úr örgjörvanum Intel 80286 sem gerir hana allt að þrefalt fljótvirkari en fyrri gerðir PC XT tölva. Nýja tölvan er til mikils léttis við flókinn rekstur nútímafyrirtækja. Segja má að hún njóti sín best þegar mest ríður á að vinna fljótt og vel eftir margslungnum forsendum. Vinnsluminni er allt geymt á aðalborði tölvunnar. Það er ríflegt, alls 640 KB. Svo má auðvitað nýta tengiraufar undir minni ef þörfin stóreykst. Um er að ræða fimm 16-bita raufar og þrjár átta-bita. Með tölvunni kemur 20 MB fastur seguldiskur og disklingastöð fyrir 5,25 þumlunga, l,2ja MB disklinga. Af öðrum fylgieiningum PC XT286 má nefna stóran aflgjafa (157 vött); spjald fyrir rað- og samsíðatengingu; og rafhlöðudrifna klukku fyrir tíma og dagsetningu. >. Ymis viðbótarbúnaður er fáanlegur. Þar er vert að nefna aukið vinnsluminni í 8,6 MB. Einnig er mikilvægt að völ er á þrenns konar disklingastöðvum til viðbótar: 5,25 þumlunga fyrir 1,2 MB disklinga, 5,25 þumlunga fyrir 360 KB disklinga eða 3,5 þumlunga fyrir 720 KB disklinga. PC XT286 er að sjálfsögðu samhæfð öðrum IBM PC XT og AT tölvum. Hún er alltaf vanda sínum vaxin og gildir þá einu hvort hún er notuð sem stök einmenningstölva eða tengd öðrum vélum. Láttu einhvern af söluaðilum okkar kynna þér þessa bráðsnjöllu tölvu! Söluaðilar: VANDVIRKNIIHVIVETNA Gísli J. Johnsen Skrifstofubúnaður sf. Nýbýlavegi 16. Sími 641222 Örtölvutækni hf. Ármúla 38. Sími 687220 Skrifstofuvélar hf. Ottó A. Michelsen Hverfísgötu 33.Sími 20560 ARGUS/SÍA

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.