Morgunblaðið - 24.03.1987, Síða 35

Morgunblaðið - 24.03.1987, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. MARZ 1987 35 Danmörk: Metár hjá inn- brotsþjóf- um 1986 Kaupmannahöfn. Frá Nils Jörgen Bruun, fréttaritara Morgunblaðsins. Árið 1986 var metár hjá inn- brotsþjófum í Danmörku. Að meðaltali var stolið jafnvirði 2,5 milljóna danskra króna (rúml. 14 millj. ísl. kr.) á dag. Um 220.000 innbrot. komust á skrár hjá dönskum tryggingarfé- lögum, 10% fleiri en 1985. Félögin greiddu 894 milljónir danskra króna (rúml. 5 milljarða ísl. kr.) í bætur, 13% meira en 1985. Fastíísnum Allt að 50 skip eru nú föst í ís á Eystrasalti, milli Svíþjóðar og Finnlands, og var meðfylgjandi mynd tekin af einu þeirra norðarlega i hafinu. I Helsingjabotni og Kyrjálabotni er víðast hvar meters þykkur lagnaðarís. Hefur ástandið ekki verið jafn slæmt á Eystrasalti 30 ár. Hvassir suð- austanvindar hafa valdið því að víða hefur ísinn pakkast upp og hefur ísbrjótum ekki tekizt að halda siglingaleiðum opnum. Júgóslavía: Hóta hervaldi til að verja völd kommúnistaflokksins Verkfallsólgan ognar flokknum og samstöðu þjóðarbrotanna Belgrað. AP. BRANKO Mikulic, forsætisráðherra Júgóslavíu, sagði á sunnu- dag, að hernum yrði beitt til að tryggja áframhaldandi völd kommúnistaflokksins ef þörf krefði. Mikil verkfallsólga, sú mesta frá stríðslokum, er nú víða í Júgóslavíu og óttast ráðamenn, að hún kunni að snúast upp í andóf gegn kommúnistaflokknum auk þess að auka á sundurlyndið nteðal þjóðanna, sem landið byggja. Mikulic lét þessi orð falla í við- tali við vestur-þýska fréttamenn en hann mun fara í opinbera heim- sókn til Vestur-Þýskalands á fimmtudag. Tanjug-fréttastofan júgóslavneska birti það einnig og hafði eftir Mikulic, að stjórnkerfið lægi undir árásum manna, sem vildu koma upp andkommúnískri stjórnarandstöðu. I fyrradag var það einnig haft eftir háttsettum hershöfðingja, að herinn gæti ekki lokað augunum fyrir því, sem væri að gerast í landinu, en myndi hins vegar ekkert aðhafast upp á eigin spýtur. Vestrænir stjórnarerindrekar segja, að hvortveggja yfirlýsingin sé viðvörun til almennings um að stjórnin ætli sér ekki sitja hjá ef óánægjan og ólgan í landinu fara úr böndunum. Opinberlega hefur verið frá því greint, að á tæpum mánuði hafi 11.000 menn á 80 vinnustöðum lagt niður vinnu eftir að Branko Mikulic, forsætisráðherra, til- kynnti, að launahækkanir hefðu verið stöðvaðar til að ná tökum á verðbólgunni, sem er um 90%. Auk launastöðvunarinnar var ákveðið að tengja launin afköstum eða framleiðslu en fyrir suma þýðir það allt að 50% launalækk- un. Þá var verð á rúmlega 500 neysluvörum, þ. á m. ýmsum nauðsynjavörum, hækkað veru- lega. Ólöglegar verkfallsaðgerðir eru ekki óalgengar í Júgóslavíu en yfirleitt standa þær ekki nema í nokkrar klukkustundir í senn. Svo hefur einnig verið að þessu sinni en þó eru þess nokkur dæmi nú, að menn hafi lagt niður vinnu í heila viku. Verst er ástandið í Króatíu þar sem ráðstöfunum stjórnarinnar hefur verið fylgt fast eftir og hefur löggæsla verið efld mjög í Zagreb, höfuðborg ríkisins og næststærstu borg Júgóslavíu. Heldur hefur dregið úr verk- föllunum síðustu daga en flestir búast við, að þau aukist aftur um mánaðamótin þegar launþegar fá launaumslögin í hendur með minni pening en áður þrátt fyrir óðaverðbólguna. Júgóslavía samanstendur af sex sjálfstjórnarlýðveldum og tveimur héruðum að auki og enn sem komið er hefur óánægjan beinst að yfirvöldunum á hveijum stað en síður að alríkisstjórninni. Hætt er þó við, að ástandið auki Símamynd/AP Verkamenn í vefjariðnaði í Belgrað á fundi þar sem ákveðið var að fara i verkfall til að mótmæla lágum launum. enn á deilurnar innan stjórnarinn- ar, sem á við ærinn vanda að stríða fyrir, óvild og tortryggni milli iðnvædds norðurhlutans og vanþróaðs suðurhlutans svo ekki sé minnst á ágreininginn milli þjóðarbrotanna. Eru nokkur þeirra stærst, Serbar, Króatar, Svartfellingar og Slóvenar, en einnig má nefna til Sígauna, Al- bani, Rúmena, Rúþena, Úkraínu- menn, Slóvaka, Tékka, ítali og Þjóðveija. Þegar Branko Mikulic, kunnur harðlínukommúnisti, tók við stjórnartaumunum í maí í fyrra greip hann strax til strangra efna- hagsráðstafana í glímunni við verðbólguna. Var þá talið, að hann nyti mikils stuðnings innan flokksins um land allt en nú hafa ríkisstjórnir í nokkrum sjálfstjórn- arlýðveldanna skorað á hann að afturkalla launastöðvunina. Er það einsdæmi í kommúnískri sögu Júgóslavíu og boðar ekkert gott fyrir Mikulic. Almenningur í Júgóslavíu lítur ekki framtíðina björtum augum og getur líklega tekið undir með Zagreb-blaðinu Vjesnik, sem sagði fyrir nokkrum dögum: „Ástandið meðal þjóðarinnar gef- ur ekki fyrirheit um betri tíð og blóm í haga ... miklu fremur líkist það aðsteðjandi stórviðri." Gaddafi hótar að setja upp kjarna- flaugar New York. Reuter. MUAMMAR Gaddafi Libyti- leiðtogi hótaði í gær að setja upp sovéskar kjarnaflaugar meðfram ströndum lands síns, ef Bandaríkin gerðu aftur árás á Libyu. „Libysk stjórnvöld munu þá lýsa yfir, að landið sé komm- únískt, sækja um inngöngu í Varsjárbandalagið og setja upp sovéskar kjarnaflaugar við Miðjarðarhafsströnd lands- ins,“ sagði Gaddafi fyrir milli- göngu túlks í viðtali við fréttamann bandarísku sjón- varpsstöðvarinnar NBC. Viðtalið við Gaddafi fór fram í tjaldi hans og var leið- toginn klæddur leðursamfest- ingi. Hann sagði, að valdajafn- vægið á Miðjarðarhafssvæðinu mundi kollvarpast, léti hann verða af fyrrnefndum hótun- um sínum. „Verði Libya kommúnískt land, þá verður ekki aftur snú- ið,“ sagði hann. „Bandaríkjamenn vita, að áframhaldandi árásir þeirra gætu leitt til þess, að Libya gengi Sovétmönnum og bandamönnum þeirra á hönd, og það mundi kollvarpa valda- jafnvæginu í þessum heims- hluta,“ sagði Gaddafi. Libya hefur áður hótað að ganga í Varsjárbandaiagið, en NBC sagði, að þetta væri í fyrsta sinn, sem Gaddafi hefði hótað að setja upp sovéskar kjarnaflaugar í landinu. Muammar Gaddafi IgTROOPER Traustur beaar mest á revnir. ISUZU Traustur þegar mest á reynir. Nýr og stórendurbættur, glæsilegur TROOPER. Væntanlegur í apríl. mmr[ Opið virka daga 9—18. Laugardaga 13—17. BiLVANGURse HÖFÐABAKK A 9 SÍMI 687300

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.