Morgunblaðið - 24.03.1987, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. MARZ 1987
45
Afmæliskveðja:
Guðmundur Björns-
son, Akranesi
Heiðursmaðurinn Guðmundur
Bjömsson er 85 ára í dag. Vinir
hans og félagar samfagna honum
á þessum degi. Þeim mun ríkari
ástæða er til þess, þar sem hann
hefur með óbilandi þreki, atgervi
og trú á gildi góðs mannlífs staðið
af sér á síðustu árum alvarleg áföll
sem heilsa hans hefur orðið fyrir.
Og hann situr nú keikur í öndvegi
fjölskyldu og frænda sem heilsa
honum í tilefni dagsins.
Eg veit ég mæli fyrir munn
flestra að það er bæði gaman og
gott að hafa átt Guðmund að sam-
ferðamanni. Það er ekki síður
ánægjulegt fyrir okkur sem Guð-
mundur telur eflaust í hópi yngri
manna. Hann er óvenju glaðlyndur
maður, sívinnandi og vakinn yfir
velferð lands og lýðs. Guðmundur
er mannvinur góður, félagslyndur
með ágætum og hrókur alls fagnað-
ar á mannfundum. Hann er líka
einn þeirra íslendinga sem vegna
glæsileika og höfðingslundar vekja
aðdáun hvar sem þá ber að garði.
Aldamótamennirnir létu ekki að
sér hæða. Bjartsýni, trúmennska,
áræði, festa og fjör hefur einkennt
lífsstarf þessa fólks. Guðmundur
var strax frá uppvaxtarárum í liðs-
sveit og síðar í fylkingarbijósti
þessara baráttumanna sem helguðu
krafta sína og líf þeirri hugsjón að
bæta lífskjör fólksins í landinu og
fegra þjóðlífið. Að fylgja samvinnu-
stefnunni var því sjálfsagður hlutur
og hann skipaði sér í raðir fram-
sóknarmanna, sem völdu hann til
mikilvægra trúnaðarstarfa. Og enn
stendur hann dyggan vörð um
flokkinn og Tímann.
En Guðmundur er líka einn þeirra
vökulu manna sem hugsa um vel-
ferð og örlög fólks um víða veröld.
Ógnir tveggja heimsstyijalda fengu
mikið á hann og við höfum oft
rætt um vá hins vitfirrta vígbúnað-
arkapphlaups samtímans. Það er
heldur ekki í anda hans að horfa
uppá erlent heimsveldi hreiðra æ
betur um sig hér á landi og sjá
menn gera hermang að hugsjón.
Þótt við Guðmundur stöndum nú
í sitt hvorum stjórnmálaflokki fara
pólitísk viðhorf okkar saman að
flestu leyti og okkur rennur til rifja
sú ógæfa félagshyggjufólksins að
geta ekki staðið þétt saman í fylk-
ing gegn íhaldsöflunum.
Guðmundur Björnsson er Hún-
vetningur, fæddur í Núpsdalstungu
í Miðfirði þann 24. mars 1902.
Foreldrar hans voru Bjöm Jónsson
bóndi þar og Ásgerður Bjarnadótt-
ir. Guðmundur ólst upp í Núpsdals-
tungu í stórum systkinahópi. Þar
var mikið menningarheimili og búið
rausnarbúi á þeirra tíma mæli-
kvarða.
Guðmundi er heimabyggðin
ákaflega hugstæð. Honum var það
til að mynda mikið kappsmál að
Núpsdalstunga héldist í byggð þeg-
ar ljóst var að ættmennin myndu
ekki lengur hafa þar búfestu. Það
lætur áreiðanlega engan ósnortinn
að koma þangað heim eða ganga
upp öll Áusturárgljúfrin inn að
Kampsfossi eins og ég gerði eitt
sinn í fylgd með syni Guðmundar.
Guðmundur var þá að heilsa upp á
kunningja og vini vítt og breitt um
Miðfjörðinn, þar sem hann er au-
fúsugestur á hveijum bæ.
Hugur Guðmundar hneigðist
fljótt til mennta. Hann stundaði
nám í alþýðuskólanum á Hvamms-
tanga 1918—1919 og gagnfræða-
próf tók hann frá Flensborgarskóla
árið 1921. Að því búnu varð hann
um skeið farkennari í heimabyggð
sinni, sinnti um leið búinu og varð
frumkvöðull að menningar- og
framfaramálum sveitarinnar. En
þótt Guðmundur væri elskur að
átthögunum hvarf hann á braut til
frekara náms og nú í Kennaraskól-
ann og lauk kennaraprófí árið 1934.
Ur því lá leið hans á nýjar slóðir.
Strax sama ár og Guðmundur
lauk kennaraprófí fluttist hann til
Akraness og gerðist þar kennari.
Akranes varð heimili hans og
starfsvettvangur æ síðan. En ein-
mitt um þetta leyti, eða árið 1934,
varð Guðmundur þeirrar gæfu að-
njótandi að ganga að eiga óvenju-
lega mannkostakonu, Pálínu
Þorsteinsdóttur frá Stöðvarfírði.
Hefur sambúð þeirra fært þeim
báðum mikla hamingju, enda átt
því láni að fagna að eignast fímm
óvenjulega vel gerð böm: Gerði
Birnu, Ormar Þór, Bjöm Þorstein,
Ásgeir og Atla Frey. Þau hjónin
bjuggu sér fagurt heimili, þótt efn-
in væru ekki mikil í fyrstu, og reistu
að ég hygg á árunum í kringum
1950 af miklum myndarskap húsið
á Jaðarsbraut 9. Það hygg ég hafa
verið fyrir daga Sementsverksmiðj-
unnar eitt fegursta byggingarsvæði
í bæ á íslandi. Ber húsið á Jaðars-
braut vott um mikla snyrtimennsku
og smekkvísi.
Guðmundi þótti án efa mjög
vænt um kennslustarfið og stundaði
það af kostgæfni allttil ársins 1972.
Hann lét ekki við það sitja að sinna
fullri kennslu í bamaskólanum,
heldur sá hann um árabil um
íslenskukennslu í Iðnskólanum sem
fram fór á kvöldin. Ómældar
frístundir sínar helgaði hann svo
félagsmálastarfí, bæði virkri þátt-
töku í bæjarmálastarfi og Fram-
sóknarflokknum. Hann var um
árabil umboðsmaður Tímans og um
langt skeið umboðsmaður Al-
mennra trygginga á Akranesi sem
var annasamt starf.
Það eru ófáir æskumenn sem
hafa fengið að njóta hinna miklu
kennsluhæfíleika Guðmundar. Fjöl-
margir nemendur hans hafa lýst
gildi og gagnsemi þeirrar upp-
fræðslu sem þeir nutu hjá Guð-
mundi. Þeir báru mikla virðingu
fyrir honum og tóku hann sér til
fyrirmyndar. Mættu menn gjama
gefa því meiri gaum nú á síðustu
tímum hvers virði mikilhæf kenn-
arastétt er fyrir framtíð þessarar
þjóðar og meta stéttina að verðleik-
um.
Til vitnis um þá virðingu sem
Guðmundur naut meðal starfs-
bræðra sinna er að hann var kjörinn
heiðursfélagi Kennarafélags Vest-
urlands þegar hann lét af störfum.
Guðmundi hefur hlotist margvísleg-
ur annar heiður og ber þar hæst
að forseti Islands, Vigdís Finn-
bogadóttir, sæmdi Guðmund ridd-
arakrossi Hinnar íslensku fálkaorðu
fyrir störf að fræðslu- og félagsmál-
um.
Við Hrafnhildur færum Guð-
mundi sérstakar hamingjuóskir á
afmælisdaginn. Um leið flytjum við
honum, frú Pálínu og íjölskyldunni
allri bestu þakkir fyrir tryggð og
vináttu í tvo áratugi. Við höfum
verið hálfgerðir heimagangar á Jað-
arsbrautinni þennan tíma og ætíð
verið tekið af sömu rausn og hlýju,
nú síðast í vetur þegar við áttum
þess kost að vera ásamt fíölskvld-
unni viðstödd þegar afhjúpuð voru
listaverk af þeim hjónum, máluð
af Benedikt Gunnarssyni. Það sem
ég tók sérstaklega eftir þá sem
endranær var hve bamgóður Guð-
mundur er. Blíða hans og umhyggja
fyrir bamabömum og bamabama-
bömum er einstök og til eftirbreytni
eins og svo margt annað í fari
Guðmundar. Mín börn hafa notið
þess engu síður en um afkomendur
hans væri að ræða. Það sýnir betur
en flest annað mannkosti þess öð-
lings og stórhuga sem við hyllum
í dag.
Guðmundur er að heiman.
Baldur Óskarsson
Birting a fmælis- og
minningargreina
Athygli skal á því vakin, að greinar verða að berast með góðum
fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðvikudagsblaði að
berast síðdegis á mánudegi og hliðstætt er með greinar aðra daga.
í minningargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Ekki eru tek-
in til birtingar frumort ljóð um hinn látna. Leyfílegt er að birta ljóð
eftir þekkt skáld, 1—3 erindi og skal þá höfundar getið. Sama gildir
ef sálmur er birtur. Meginregla er sú, að minningargreinar birtist
undir fullu nafni höfundar.
Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins ero birtar
greinar um fólk sem er 70 ára eða eldra. Hins vegar ero birtar af-
mælisfréttir með mynd í dagbók um fólk sem er 50 ára eða eldra.
Mikil áhersla er á það lögð að handrit séu vel frá gengin, vélrituð
og með góðu línubili.
SKRIFSTOFA
NORRÆNU RÁÐHERRANEFNDARINNAR
óskar eftir að ráða
RÁÐUNAUT
á sviði efnahagsmála
Samvinna ríkisstjórna Norður-
landa fer fram á vettvangi
norrænu ráðherranefndarinnar.
Samvinnan snertir allflest svið
samfélagsins. Skrifstofan ann-
ast daglega framkvæmd þessa
samstarfs. Þar er unnið að und-
irbúningi verkefna og fram-
kvæmd þeirra ákvarðana, sem
teknar eru af meðlimum ráð-
herranefndarinnar og annarra
stofnana, sem heyra undir hana.
Sá sem gegnt hefur starfi ráðunaut-
ar á sviði ef nahagsmála (ekonomisk
politik) mun innan tíðar láta af störf-
um og er þvi staða hans auglýst
laustil umsóknar. Ráðunauturinn
mun m.a. vinna að undirbúningi
funda fjármálaráðherra Norður-
landa og norrænu embættismanna-
nefndarinnar. Þá mun viökomandi
einnig hafa umsjón með þeim verk-
efnum, sem unnið er að á þessu
sviöi og stýra starfi hinna ýmsu
vinnuhópa.
Honum kunna einnig aö veröa falin
önnur verkefni, til dæmis á sviði
iðnaðarmála.
Umsækjendur verða að búa yf ir við-
eigandi menntun og starfsreynslu
og er krafist reynslu af stjórnunar-
störfum innan einka- eða ríkisgeir-
ans. Starfið reynir bæði á hæfni
manna til að vinna sjálfstætt og
með öðrum. Að auki er þess krafist
að viökomandi hafi mjög gott vald
á dönsku, norsku eða sænsku.
Starfinu fylgja ferðalög innan Norö-
urlanda.
Ráöunauturinn mun starfa i Kaup-
mannahöfn.
Ráðið er til fjögurra ára og kemur
framlenging til greina að þeim tíma
liðnum. Ríkisstarfsmenn eiga rétt á
leyfi frá núverandi starfi. Skrifstofan
býður góð laun og hentuga starfs-
aðstöðu. Skrifstofan mun einnig
aöstoöa viö að útvega húsnæöi i
Kaupmannahöfn.
Umsóknarfresturrennurút 13. apríl
1987.
Nánari upplýsingar veita:
Seppo Suokko, deildarstjóri eða
Lennart Lindström, ráðunautur.
Mette Vestergaard og Harald Loss-
ius veita allar upplýsingar varðandi
kaup og kjör. Siminn i Kaupmanna-
höfnerOI 11 47 11.
Skriflegar umsóknir skal senda:
Nordiska ministerradet
Generalsekreteraren
Store-Strandstræde 18
DK-1255 Köbenhavn K.
Danmark.
Ás-tengi
TF
Allar gerðir
Tengið aldrei
stál-í-stál ^
StaíaioiigjQJxr
VESTURGOTU 16 SÍMAR 14680 ?1480
BUDERUS
potívatnslAsar
Höfum ávallt fyrirfiggjandi
pottvatnslása.
Leitið ekki langt yfir skammt.
VATNSVIRKINN/t
ARMÚU 21 - PÓSTHÓLf 8620 - 128 REYKJAVlK
SÍMAR VERSIUN 686455. SKRIFSTOf A 685966
Hann er kominn aft-
urog kostar aðeins
1 .B65stgr.
Mikið úrval af borðum
frá kr. 5.520 stgr.
BÚSTOFN
Sm.ðtuvngi 4. Kópavoqi s.mar 4S470 44S44.
V^terkurog
kJ hagkvæmur
auglýsingamióill!