Morgunblaðið - 24.03.1987, Side 61
V
>
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. MARZ 1987
61
Minning:
Ingibjörg E. Levy
Fædd 2. janúar 1906
Dáin 18. janúar 1987
„Þú áttir öruggt hjarta
og íslenskt þor í bylinn
og útsýn yfir lífið
sem oft er lítið skilin.
Ef lífið sorg þér sendi
þú sýndir engum harminn
en heitt var inn við hjartað
ef horft var inn í barminn."
(Friðrik Hansen.)
I þessum ljóðlínum er margt sem
minnir mig á Ingibjörgu Levy. Hún
var fædd að Ósum á Vatnsnesi 2.
janúar 1906, dóttir hjónanna Agnar
Guðmundsdóttur og Eggerts Levy
hreppstjóra, ein af 8 börnum þeirra
hjóna. Þar ólst hún upp á fjölmennu
myndarheimili, þar sem allir urðu
að leggja sitt af mörkum í lífsbar-
áttunni sem á þeim trhum var hörð.
Veturinn 1925—6 stundaði hún
nám í Kvennaskólanum á Blöndu-
ósi, en það var nánast eina námið
sem um var að ræða fyrir stúlkur
á þessum árum.
Ingibjörg giftist Hirti Eiríkssyni,
hæfileikaríkum dugnaðarmanni frá
Hvammstanga, og þangað fluttist
hún. Ekki voru þau rík af veraldleg-
um efnum en þau áttu sterka trú
á framtíðina. I sameiningu byggðu
þau upp myndarlegt heimili ásamt
velaverkstæði, sem Hjörtur starf-
rækti. Oft mun vinnudagurinn hafa
verið langur á þessum árum. Ingi-
björg eyddi ekki kröftum sínum í
hlaup eða óþarfa hávaða, en gekk
þeim mun ákveðnari að því verki
sem hún tók sér fyrir hendur hveiju
sinni.
Það var árið 1963 sem ég byij-
aði að vinna hjá Eggerti, syni
Ingibjargar, og var ég upp frá því
heimagangur á heimilinu í nokkur
ár og tók hún mér alltaf sem væri
ég einn af fjölskyldunni.
Mér eru ógleymanlegar margar
stundii' frá þeim árum, þegar húsið
var fullt af samstilltri gleði fjöl-
skyldunnai'. En alvara og miskunn-
arleysi lífsins er oft nær en menn
grunar.
„Því meðan hjörtun sofa býst sorgin heiman
að, og sorgin gleymir engum.“
(Tómas Guðmundsson.)
Sorgin gleymdi ekki Ingibjörgu.
Þann 11. febrúar 1965 misstu þau
hjón tvo syni sína í sjóinn, Hrein,
28 ára, og Skúla Hún, nýorðinn 20
ára, er bátur sem Hreinn átti fórst
í aftakaveðri fyrir vestan land á
leið frá Hvammstanga til Grinda-
víkur.
Harm sinn bar Ingibjörg með
einstakri stillingu þó að slíkur miss-
ir skilji alltaf eftir sár sem aldrei
ná að gróa.
Eftirlifandi börn Ingibjargar eru:
Perla, fædd 3. maí 1938, búsett á
Eskifirði; Eggert Heimir, fæddur
13. ágúst 1939, búsettur í
Reykjavík; Eiríkur Haukur, fæddur
19. janúar 1941,- búsettur í
Reykjavík, og Hilmar, fæddur 9.
desember 1948, búsettur á
Hvammstanga.
Að leiðarlokum kveð ég þessa
sæmdarkonu með orðum skáldsins:
„Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.“
(V.Br.)
Asbjörn Guðmundsson
Kveðjuorð:
Jóhann Kr. Þorsteins-
son trésmiður
Þann 27. febrúar sl. andaðist í
Landspítalanum Jóhann Kristinn
Þorsteinsson trésmiður, Eggjavegi
3, Reykjavík.
Jóhann fæddist þ. 30. ágúst 1927
á Skerseyri við Hafnarfjörð. For-
eldrar hans voru Þorsteinn Brynj-
ólfsson og Sólborg Guðjónsdóttir.
Ungur að árum kvæntist Jóhann
Gestheiði Árnadóttur, sem látin er
fyrir mörgum árum. Þau eignuðust
tvo sonu. Annar lést ungur, en hinn,
Þorsteinn Jóhannsson, er búsettur
á Selfossi.
Kynni okkar Jóhanns urðu með
þeim hætti að mann vantaði til
breytinga á húsi Rauða krossins við
Oldugötu og var ég beðinn, að mig
minnir af Ingólfi bróður Jóhanns,
að vinna með honum á téðum stað,
sem og ég gerði. Með okkur tókst
ágætis samvinna. Hélt ég kunn-
ingsskap við Jóhann það sem eftir
var ævi hans. Gott var að vinna
með Jóhanni, því maðurinn var með
afbrigðum skemmtilegur og ennþá
betri heim að sækja.
Mér er minnisstætt eitt sinn er
ég var í heimsókn ásamt tveimur
öði-um, að á annan klukkutíma
reytti hann látlaust af sér brandar-
ana og nærstaddir veltust um áf
hlátri.
Eitt sinn sátum við tveir saman
á heimili Jóhanns vestur undir Ána-
naustum. Mér finnst eins og gengið
sé um gólf, en sé engan, gekk svo
til um hríð, er ég minnist á þetta
við Jóhann, sem svarar: ert þú þá
svona? Ég varð að játa það. Mér
varð þá ljóst að hann varð margs
vísari en almennt gerist. Jóhann lét
þess getið að í hvert sinn, sem vín
væri um hönd haft í húsi þessu,
gerði framliðinn drengur vart við
sig með þessum hætti.
Nokkrum dögum fyrir andlát
Jóhanns heimsótti ég hann og átti
hann þá eifitt um mál, svo var af
honum dregið, en ekki var á honum
að sjá að hann óttaðist dauðann.
Ég sendi aðstandendum Jóhanns
mínar beztu samúðarkveðjur. Bless-
uð sé minning hans.
Eyvindur Friðgeirsson
Aftur til Oz sýnd
í Bíóhöllinni
Framhald af Galdrakarlinum í Oz
Tónabíó
sýnir
myndina
„Tölvan“
TÓNABÍÓ hefur hafið sýn-
ingar á myndinni „Tölvan“.
Með aðalhlutverk í myndinni
fara Timothy Bottoms, De-
ana Jurgens og John Pliillip
Law. Leikstjóri er John G.
Thomas.
Myndin fjallar um Casey Cain
sem hefur alla tíð verið heyrnar-
laus og lifir í sínum þögla heimi.
Hann hefur góða vinnu þar sem
hann á góða félaga en hann á
sitt leyndarmál — honum hefur
tekist að smíða tölvu sem getur
heyrt og talað fyrir hann. Stórt
tölvufyrirtæki sér gróða í upp-
fínningu hans og svífst einskis
til að ná henni til sín. En Casey
kynnistungri konu, Marciu, sem
er talkennari og heimur hans
gjörbreytist í kjölfar þess, segir
í frétt kvikmyndahússins.
BÍÓHÖLLIN hefur hafið sýning-
ar á Walt Disney-myndinni Aftur
til Oz, en það er framhald af
myndinni Galdrakarlinn frá Oz.
Með aðalhlutverkið fer Fairuza
Balk, sem leikur Dorothy litlu.
í frétt frá kvikmyndahúsinu seg-
ir að þetta sé ævintýramynd sem
fjalli um Dorothy, sem sífellt
dreymir um landið sem vinir hennar
búa í. Hún hefur hugboð um að
vinir hennar þar séu í einhverri
klípu. Hún kemst til landsins, en
þar er margt breytt frá því hún var
þar síðast. Nýir valdhafar eru
komnir til sögunnar og er þar helst-
ur Nómakóngur, sem breytir öllum
í skartgripi sem hann nær á vald
sitt. Meðal þeirra eru ýmsir vinir
Dorothy.
t
Þakka hlýhug og samúð við andlát og útför mannsins míns,
ÓLAFS ÞÓRARINSSONAR.
Sérstaklega vil ég þakka Siguröi Ólafssyni söngvara.
Fyrir mína hönd, barna, tengdabarna, barnabarna og barnabarna
barna,
Birna Norðdahl.
t
Alúðarþakkir fyrir auðsýnda samúð við fráfall sonar mins, bróður
okkar og mágs,
HALLDÓRS GÍSLA ODDSSONAR,
skipstjóra,
Háaleitisbraut 44.
Áslaug Guðjónsdóttir,
Bjarni Oddsson, Elsa Friðjónsdóttir,
Guðjón Oddsson, Gfslfna Kristjánsdóttir.
t
Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur hlýhug
og samúð við andlát og útför föður okkar, tengdaföður og afa
ÓLAFS ORMSSONAR
og heiðruðu minningu hans á einn eða annan hátt.
Ormur Ólafsson, Alfa Guðmundsdóttir,
Sólveig Ólafsdóttir, Guðjón Jónsson,
Guðrún Ólafsdóttir, Björgvin Þorsteinsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Sérstakt þakklæti færum við starfsfólki Landspítalans, deild 12
A og öllum þeim er vottuðu okkur hlýhug og samúð við andlát
og útför sambýlismanns míns, sonar okkar, föður og mágs
EINARS ÍSFELD KRISTJÁNSSONAR,
Bleikjukvfsl 3.
íris Arthúrsdóttir,
Sif Ásmundsdóttir,
Kristján Benediktsson,
Ólöf Isfeld Kristjánsdóttir,
Ólöf ísfeld Einarsdóttir,
Kristján Haukur Einarsson.
Rafn Kristjánsson,
Hrafnhildur Þorgrfmsdóttir,
Margrét Kristjánsdóttir,
John E. Duncombe,
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og
útför
JAKOBS GÍSLASONAR,
fv. orkumálastjóra.
Sérstaklega þökkum við starfsfólki Borgarspítalans fyrir alúðlega
umönnun í veikindum hans.
Sigrfður Ásmundsdóttir,
Gfsli Jakobsson, Johanne Jakobsson,
Jakob Jakobsson, Moira Jakobsson,
Ásmundur Jakobsson,
Aðalbjörg Jakobsdóttir, Hallgrímur B. Geirsson,
Steinunn Jakobsdóttir.
+
Innilegar þakkir fyrir sérstakan hlýhug og samúð við andlát og
útför eiginmanns míns, föður, tengdafööur og afa
GÍSLA ANDRÉSSONAR,
hreppstjóra,
Hálsi, Kjós.
Ingibjörg Jónsdóttir,
Guðmundur Gíslason, Nfna Björnsdóttir,
Jón Gfslason, Sólrún Þórarinsdóttir,
Halldór Gfslason, Vilborg Sigurðardóttir,
Guðrún Gísladóttir, Sigurður Runólfsson,
Andrés Freyr Gfslason, Inga Anna Gunnarsdóttir,
Hjörtur Gíslason, Guðrún Ingadóttir,
Gfsli Örn Gfslason,
Ágústa Gfsladóttir,
Sigrfður Kristfn Gfsladóttir
og barnabörn.