Morgunblaðið - 24.03.1987, Blaðsíða 63
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. MARZ 1987
63
Alþingi:
Júlía Dóra Black.
Viðurkenning
fyrir frábæran
námsárangur
Frá því hefur verið sagt hér á
síðunni þegar íslendingar við
nám í Bandaríkjunum hafa fengið
viðurkenningar fyrir frábæran
námsárangur með þeim hætti að
þei’rra hefur verið getið í uppsláttar-
riti yfir framúrskarandi námsmenn.
í þessu riti, „Who’s Who Among
American High School Students",
er um 13.500 námsmanna á fyrsta
og seinasta ári „High School" get-
ið, sem skara þykja fram úr
samstúdentum sínum á ýmsum
sviðum, svo sem í námi, félagsmál-
um, íþróttum og fleiru. Bókin
kemur út árlega og þykir það mik-
il heiður að komast í hana, auk
þess sem að það kann að koma sér
vel seinna meir þegar sótt er um
háskólavist eða starf.
Talið er að alls komist um 6%
námsmanna í téð rit, en hitt er fá-
tíðara að menn komist þar á blað
tvisvar. Er einungis um hálft pró-
sent, sem kemst svo langt. Fyrir
skömmu barst Morgunblaðinu
fregn af stúlku, af íslensku bergi
brotin, sem fékk þessa viðurkenn-
ingu, en hún heitir Júlía Dóra Black.
Júlía Dóra er dóttir hjónanna Sjafn-
ar Jónmundsdóttur Black og David
C. Black, en þau búa í Roebling í
New Jersey-fylki.
Sá litli virðist á báðum áttum.
Ungur nemur,
gamall temur
Eitthvað er móðirin að segja
afkvæmi sínu til en sá litli virð-
ist á báðum áttum. Þessi skemmti-
legu amerísku dýr eru ýmist nefnd
sléttuhundar eða jarðíkomar. Þau
eru sögð félagslynd mjög og fara
um í stórum hópum. Fýrir þá sem
hafa áhuga á dýrafræði skal tekið
fram að sléttuhundarnir eru af
íkornaætt sem á latínu nefnist
Cynomys.
Viltu í nef ið?
ÞÞAÐ hefur löngum tíðkast hér á íslandi að bjóða kunn-
ingjum og vinum í nefið á á góðri stund. Þessi mynd
var tekin við þinglok á dögunum. Ekki er annað að sjá en
vel fari með þeim Guðmundi J. og Salóme Þorkelsdóttur,
enda er það sjálfsagt gæðaneftóbak sem Jakinn lumar á.
Þetta er eflaust fínasta tóbak
Fáðu þér í nefið
Ól.K.M.
Já, það svíkur ekki, neftóbakið
MIÐSTÖÐIN
SÍMI: 54845
• GUFA • POTTUR
• UÓS • TÆKI
• VEGGJA TENNIS
Mánudaga og miðvlku-
daga kl. 19 er lótt og
góð Eróbikk fyrir byrj-
endur. Mánudaga,
miðvikudaga og föstu-
daga kl. 20 er Eróbikk
fyrir þá sem eru lengra
komnir.
Kennari:HREFNA
ÍÞRÓTTAKENNARI
ERÓBIKK
Oriðjudaga og fimmtu-
daga kl. 18.10 er góð
teikfiml fyrir konur á
öllum aldri
Hressandi og styrkj-
andi auk góðrar tónlist-
ar á góðum tíma.
ÞriAjudaga og fimmtu-
daga kl 19 og laugar-
daga kl. 13 er Eróbikk
fyrir þær sem eru
lengra komnar
HJÚKRUNARFRÆÐINGUR
25-60 ára
Hressir karlatímar á mánudögum og miö-
vikudögum kl 12 í hádeglnu. GóAar
magaæfingar, teygjur og þrekæfingar.
ÞriAjudaga og fimmtu-
daga kl. 20 eru hress-
andi og skemmtileglr
tímar. Engin hopp.
ÁTAK [ MEGRUN
Persónuleg ráðgjöf fyr-
ir þær sem vilja grenna
sig mikiA. Engin hopp
Kennari: ELLEN
HJÚKRUNARFRÆÐINGUR
Kennari: ÁRNÝ
Breiðholtsbúar athugið!!
Það er aðeins sjö mínútna akstur úr Breíð-
holtinu í Þrekmiðstööina
Skráning og upplýsingar
í síma 54845