Morgunblaðið - 24.03.1987, Page 70
MORGUNBLADIÐ, f>RIf)JUDAGUR 24. MARZ 1987
r70
Vetrarvertíðin:
Sandgerði:
Ragnar GK fékk
16,5 tonn í netin
Sandgerði.
RAGNAR GK sem er 14 tonna
bátur fékk 16,5 tonn í netin í
Patreksfj örður:
Sæmilegur af li
^þrátt fyrir
leiðinlegt veður
Patreksfirði.
AFLI báta frá Patreksfirði í
síðustu viku var sæmilegur þrátt
fyrir leiðindaveður alla vikuna.
Sigurey BA landaði 85 tonnum
af blönduðum afla eftir 7 daga
veiðiferð, Patrekur landaði 85 tonn-
um í 4 löndunum, Vestri landaði
58 tonnum í 3 löndunum, Egill BA
landaði 40 tonnum í 3 löndunum,
Brimnes BA landaði 16 tonnum í 2
löndunum og Andri landaði 16 tonn-
um í 3 löndunum. Patrekur, Vestri
og Egill eru á netum en Brimnes
og Andri eru á línu. Mestur afli línu-
' bátanna er steinbítur.
Skelbáturinn Pjóla BA aflaði
sæmilega í vikunni. Afla bátsins er
ekið á Barðaströnd þar sem hann
er unninn hjá Flóka hf.
- Fréttaritari.
einum róðri í siðustu viku. Ragn-
ar varð að fara tvær ferðir til
lands með aflann þennan dag. í
síðustu viku var hann með 35,2
tonn sem er býsna gott á svo
lítinn bát. Heildaraflinn í síðustu
viku var 662 tonn og var netabát-
urinn Arney með mesta aflann
66.9 tonn í 4 sjóferðum.
Þrír bátar komu með loðnu í vik-
unni; Dagfari ÞH með 1156 tonn,
Pétur Jónsson RE með 757 tonn
og Öm KE með 363 tonn.
Næstu netabátar urðu: Sæborg
með 55,3 tonn, Bergþór með 53,2
tonn, Víðir II með 39,0 tonn, Hafn-
arberg með 35,5 tonn, Mummi með
28,2 tonn, Fagranes með 20,1 tonn
og Þorkell Ámason með 11,8 tonn.
Línubátamir Sigurður Bjamason
og Jón Gunnlaugs fóm tvær sjó-
ferðir, Sigurður Bjamason fékk
18.9 tonn og Jón Gunnlaugs 14,6
tonn. Afli dragnótabátanna; Bliki
með 16,2 tonn og Reykjaborg 6,3
tonn. Elliði sem er á trolli var með
37 tonn, Reynir með 18,8 tonn og
Geir Goði með 12,1 tonn.
Handfærabátamir sem em 25
fengu 21,2 tonn í vikunni.
- BB
Morgunblaðið/Sigurgeir
Aflaskipið Þórunn Sveinsdóttir, sem væntanlega fer yfir 1000 tonnin
I þessari viku.
V estmannaeyjar:
Þórunn Sveinsdótt-
ir komin með 925
tonn á vertíðinni
Morgtinblaðið/Kr.Ben.
Orn Traustason skipstjóri á Fengsæl landar fiskinum.
Vestmannaeyjum.
„ÞETTA verður dúndrandi
vertíð, allavega hefur þetta
gengið ljómandi vél hjá okkur
fram að þessu,“ sagði Sigurjón
Óskarsson skipstjóri á Þórunni
Sveinsdóttur VE í bryggjuspjalli
við fréttaritara Morgunblaðsins.
Sigurjón og skipshöfn hans voru
að landa 70 tonnum af góðum
þorski á laugardaginn og eru þá
komnir með 925 tonn að landi
frá áramótum. Frábært fiskirí
hjá þessum þekkta aflamanni, en
hann hefur níu sinnum orðið
aflakóngur Vestmannaeyja, þar
af átta ár í röð. Fyrst 1973 en
síðast 1982.
Sem dæmi um gott gengi Sigur-
jóns í vetur má taka síðustu viku.
Á mánudaginn landaði hann 22
tonnum og setti líka eitthvað í
gáma, daginn eftir landaði hann
30 tonnum, á fimmtudaginn 45
tonnum og á laugardaginn 70 tonn-
um. „Þetta er það besta sem við
höfum verið komnir með á þessum
tíma,“ sagði Sigurjón. „Við byijuð-
um á dragnót og fengum milli
130-140 tonn af langlúru. Síðan
tókum við netin og fengum gott
ufsaskot til að byija með en nú er
þetta púra þorskur. Það hefur verið
leiðinleg tíð í mars og það þarf orð-
ið alltaf að sækja fískinn dýpra og
dýpra. Það er eins og fiskurinn
gangi ekki lengur uppá grunnslóð-
ina.
~v Grindavík:
„Fjörufiskerí“ hjá bátunum
Grindavík.
ÞORSKURINN gaf sig til í
síðustu viku inn í víkum og vog-
um hjá trillunum og minni
netabátum eða „í fjörunni“ eins
og sjómennirnir kalla það.
Á sunnudaginn var Öm Trausta-
son skipstjóri á Fengsæl, 16 tonna
trillu, að landa 5 tonnum tveggja
nátta. Öm er eftirlitsmaður sjávar-
útvegsráðuneytisins en notar
sumarfríið til að fiska kvótann á
Fengsæl. Hann sagði að það væri
mjög algengt að eftirlitsmennirnir
notuðu sumarfríin sín til að taka
að sér ýmist loðnu- eða síldarbát.
eða jafnvel litlar trillur. „Á þennan
hátt komust við áfram í snertingu
við þau störf sem við annars eigum
að líta eftir og höfum við allir mjög
gott af því,“ sagði hann og brosti.
Hmngnir GK kom með mestan
afla að landi yfír vikuna 102 tonn.
Næstir vom Hrafn GK og Hrafn
Sveinbjarnarson III GK með 87
tonn hvor. Sem dæmi um aflann
hjá trillunum þá kom Gullfari GK
sem er 11 tonna trilla með 3 manna
áhöfn með 37 tonn yfir vikuna.
Stóm bátamir em flestir komnir
að vestan enda datt fiskeríið þar
niður. Trollbátar hafa verið í þokka-
legu fiskeríi en línubátar átt erfið-
ara með að komast á sjó vegna
brælu. Loðnuhrognatöku var hætt
síðastliðinn laugardag en þá hafði
verið tekið á móti 3660 tonnum af
loðnuúrgangi. Bátarnir munu landa
afgangnum af kvótanum í bræðslu
nú á næstu dögum.
Tæp 300 tonn af saltfíski fóm í
vikunni og eins losnuðu stöðvamar
við ufsa og þorskhrogn til Svíþjóðar
með MS Amarfelli sem lestaði í
Njarðvíkurhöfn um helgina.
- Kr.Ben.
Við verðum nú að sækja þetta
út á 150-250 faðma dýpi, þetta
hefur þróast á þennan veg undan-
farin ár og maður veit satt að segja
ekki hvar þetta endar. Hér fyrr á
öldinni var fiskurinn við bæjardyrn-
ar. Langafi minn á Eyrarbakka,
sem reri á árabát, komst í vaðandi
fisk þegar hann kom út úr innsigl-
ingunni og varð að sussa á strákana
sína: Hafið ekki hátt svo þið fælið
ekki fiskana. Nú, um 70 ámm síðar,
þurfum við að fara allt út á 250
faðmana til þess að fá fisk,“ sagði
Siguijón Óskarsson.
Sigurður Georgsson, skipstjóri á
Suðurey, sem verið hefur aflakóng-
ur síðustu þijár vertíðir, var með
ágætan afla í síðustu viku, rúmlega
100 tonn af þorski. Gullborgin var
með 60 tonn og Sólborg 67 tonn.
Hjá öðmm var aflinn minni og hjá
sumum var ekkert að gagni. Gandí
er enn á dragnótinni og landaði
tvívegis 20 tonnum í vikunni.
*/ / • m ’ ' .1 "ý
Sigurjón Óskarsson skipstjóri á
Þórunni Sveinsdóttur VE.
Tvær togaralandanir vom í vik-
unni. Breki með 157 tonn ogBergey
með 115 tonnn. Klakkur hefur leg-
ið inni í viku vegna bilunar í rafal
og Sindri er enn í klössun í Þýska-
landi, væntanlegur heim um
mánaðamótin. Senn fer Vest-
mannaey í stórklössun til Póllands
og Breki fer í vélarskipti til Dan-
merkur seinni partinn í apríl.
Afli var frekar tregur hjá troll-
bátum. Annars er orðið vemlega
erfitt að fá uppgefnar aflatölur
báta, það gerir gámaútflutningur-
inn. Nær útilokað er að birta
aflaskýrslur svo áreiðanlegar séu,
líkt og tíðkaðist hér fyrr á ámm.
- hkj.
Keflavík:
Agætur afli þrátt fyrir
að gæftir væru stirðar
KefUvfk.
AGÆTISAFLI barst á land í
Keflavík í síðustu viku þrátt
fyrir að gæftir væru stirðar.
Heildaraflinn í vikunni var lið-
lega 780 tonn sem er 80
tonnum meira en vikuna þar á
undan.
Hrafn Sveinbjamarson GK
sem er á netum var með mestan
afla 80,5 tonn í 5 sjóferðum.
Færabátamir fengu einn góðan
dag og þá fengu Kópur 1850
kíló og Guðrún IS 1600 kíló.
Næstu bátar urðu Skagaröst
KE með 74,4 tonn, Búrfell KE
með 58,1 tonn, Höfrungur II GK
með 54,8 tonn, Oddgeir ÞH með
49,6 tonn, Skarfur GK með 48,8
tonn, Stafnes með 44,1 tonn og
Happasæll með 42,6 tonn. Allir
em þessir bátar á netum. Bcði
KE sem er á línu fór aðeins eina
sjóferð og var afli hans 17,6 tonn.
- BB
Afli netabáta
hefur g-Iæðst
fföfn, Homafirði.
FYRRI hluta marsmánaðar var
afli netabáta frá Höfn frekar rýr
en hefur glæðst í síðustu viku. Hjá
fiskiðjuveri KASK var landað 732
tonnum, hjá HOV-fiskverkun var
landað 108 tonnum og hjá Hrelli
í gáma til útflutnings var landað
70 tonnum.
Aflahæstu bátar eru nú Skinney
433 tonn, Vísir 392 tonn, Hvanney
352 tonn, Erlingur 320 tonn, Skógey
316 tonn, Freyr 311 tonn og Stein-
unn 310 tonn. Togarinn Þórhallur
Daníelsson hefur landað 725 tonnum,
sömuleiðis hafa litlu trillumar fiskað
vel á handfæri þegar gefið hefur.
- AE