Morgunblaðið - 24.03.1987, Page 72

Morgunblaðið - 24.03.1987, Page 72
Tillögur nefndar: Orkuverð dýr- ustu hita- . —5/eitna lækk- að um 20% Selfossi. LOKATILLÖGUR til lausnar á vanda dýrustu hitaveitna lands- ins verða teknar fyrir í ríkis- stjórninni í dag. Þar er gort ráð fyrir að orkuverð hitaveitnanna lækki um 20%. Steingrímur Hermannsson for- sætisráðherra sagði í umræðum á aðalfundi miðstjómar Framsóknar- flokksins, sem fram fór á Selfossi um helgina, að lokatillögur væru væntanlegar frá nefnd og miðuðu þær að því að lækka orkuverð frá dýrustu 'hitaveitum landsins um 20%. Hann sagði að ekki yrði lagð- ur skattur á ódýrari veitur til að jafna hitunarkostnað á landinu. Til- lögumar um þetta mál fælu í sér skuldbreytingar og lengingu á lán- um veitnanna. Þessar tillögur yrðu síðan kynntar í lok vikunnar. — Sig. Jóns. "^Vertíöin: Þórunn Sveins- dóttir VE nálg- ast 1.000 tonna markið AFLASKIPIÐ Þórunn Sveins- dóttir frá Vestmannaeyjum er aflahæst á yfirstandandi vertíð. Afii bátsins var kominn í 925 tonn um helgina, og má búast . við að hann fari yfir 1.000 tonna ^•Nwarkið einhvern næstu daga. Siguijón Óskarsson, skipstjóri á Þómnni Sveinsdóttur, varð níu sinnum aflakóngur Vestmannaeyja á ámnum 1973 til 1982, þar af átta ár í röð. Má búast við að hann endurheimti titilinn í ár. Hann sagði í samtali við fréttaritara Morgun- blaðsins í Vestmannaeyjum: „Þetta verður dúndrandi vertíð, a.m.k. hef- ur þetta gengið ljómandi vel hjá okkur.“ Sigurjón sagði að þessi afli væri sá besti sem hann hefði nokk- um tímann verið kominn með á þessum tíma. Sjá fréttir af vetrarvertíðinni á blaðsíðu 70. Barn beið banaá Klapparstíg ÞRIGGJA ára gamall drengur heið bana í slysi á Klapparstíg síðdegis í gær. Atburðurinn var tiikynntur til lögreglunnar um klukkan 18.20. Drengurinn mun hafa lent undir hurð. Tildrög slyssins vom að öðm leyti ekki kunn í gærkvöldi, en Rannsóknarlögregla ríkisins vann ^ð rannsókn þess. UNG og óþekkt söngkona, Halla Margrét Arnadóttir, söng sigurlag Valgeirs Guð- jónssonar, „Hægt og hljótt“, í undanúrslitum söngva- keppni sjónvarpsstöðva í gær og mun hún syngja það sama lag í Brussel í Belgiu þann 9. mai nk. Halla Margrét sagði í samtali við Morgun- blaðið eftir sigurinn í gær að hún stundaði söngnám, væri á þriðja ári í Söngskól- anum í Reykjavík og snerist hennar áhugi fyrst og fremst um söng og hefði gert um langa hríð. „Satt best að segja hafði ég algjörlega útilokað sigur í keppninni enda hafði ég um nóg annað að hugsa. Ég var að undirbúa mig fyrir sérstakt próf í skólanum sem ég tók í gærmorgun og svo vinn ég full- an vinnudag á skrifstofu með náminu. Mér ieið ágætlega að hafa um eitthvað annað að hugsa en einmitt söngvakeppn- ina þótt þetta hafi verið mjög gaman og spennandi allan tímann.“ Halla Margrét sagðist ekki vita hvernig Valgeir hefði „upp- götvað“ sig. Hann vildi ekki segja sér það og hún vildi helst ekkert um það vita. Sjálf sagð- ist hún hafa verið mjög ánægð með lagið, en átti ekki von á Morgunblaðið/Einar Falur. Valgeir Guðjónsson og Halla Margrét Árnadóttir fagna sigri í gærkvöldi. „Yrði ánægður með 15. sætið í Belgíu“ - segir Valgeir Guðjónsson, höfundur „Hægl og hljótt“ framhaldi. Halla Margrét vildi ekkert segja um sigur í Belgíu — hún ætlaði bara að syngja lagið sitt og reyna að gera það vel. Valgeir Guðjónsson sagðist hafa búið lagið til heima hjá sér — einn í svefnherberginu sínu — í fyrra. „Þetta var bara eitt af þessum lögum sem varð til allt í einu, alls ekki gert sérstaklega fyrir söngvakeppn- ina. Það var sem sagt mjög hægt og hljótt í kringum þessa lagasmíð. Mér fannst þetta lag geta unnið keppnina eins og hvað annað. Ég vildi fá nýtt andlit fram á sjónarsviðið og var að leita þegar mér var bent á Höllu Margréti til að syngja lagið mitt.“ Aðspurður um á hvaða sæti hann stefndi í Brussel sagðist Valgeir gera sig ánægðan með 15. sætið. „Ef ég fengi 15. sætið í Belgíu, værum við íslendingar á upp- leið — ekki satt. Var ekki Gleðibankinn í því sextánda í Osló?“ Sjá fréttir, umsögn og myndir á bls. 39. Óskar Albert eftir lausn frá ráðheiraembætti í dag? Búizt við óbreyttri skipan framboðslistans í Reykjavík, ef svo verður LÍKLEGT má telja, að Albert Guðmundsson, iðnaðarráðherra, óski eftir því að verða leystur frá ráðherrastörfum í dag. Kem- ur sú ákvörðun ráðherrans í kjölfar fundar hans með Þor- steini Pálssyni, formanni Sjálf- stæðisflokksins, sl. sunnudag um þær athugasemdir, sem skatt- rannsóknarstjóri hefur gert við skattaframtal Alberts. Stjórn Fulltrúaráðs Sjálfstæðisfélag- anna í Reykjavík kemur saman til fundar í dag. Búizt er við, að niðurstaða þess fundar verði sú, að framboðslistinn í Reykjavík verði óbreyttur svo framarlega sem iðnaðarráðherra biðjist lausnar frá ráðherraembætti, en Albert Guðmundsson skipar efsta sæti listans. Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins er Þorsteinn Pálsson sammála þeirri málsmeðferð. Morgunblaðið hefur heimildir fyrir því, að Albert Guðmundsson hafi ekki tekið endanlega ákvörðun um að óska eftir lausn frá ráð- herraembætti í dag. Lokaákvörðun hans mun byggjast mjög á því, hvort stjórn Fulltrúaráðs Sjálfstæð- isfélaganna ákveður að boða til nýs fulltrúaráðsfundar um skipan fram- boðslistans. Verði það gert gæti það orðið til þess að breyta afstöðu ráð- herrans og leiða til harðari átaka. Búast n . i v'ið því, að skiptar skoð- anir verði mnan stjórnar Fulltrúa- ráðsins, en heimildarmenn Morgunblaðsins telja fullvíst, að stuðningur formanns Sjálfstæðis- flokksins við óbreytta skipan listans og þar með að Albert Guðmundsson skipi efsta sæti hans, þrátt fyrir væntanlega afsögn hans úr ráð- herraembætti, verði til þess, að ekki komi til almenns fulltrúaráðs- fundar um skipan listans. Verði niðurstaða stjórnar full- trúaráðsins á þennan veg má gera ráð fyrir, að ósk Alberts Guðmunds- sonar um lausn frá ráðherraemb- ætti komi til afgreiðslu á fundi þingflokks Sjálfstæðisflokksins kl. 16.00 í dag og mundi iðnaðarráð- herra þá fá formlega lausn frá embætti í kvöld eða í fyrramálið. • Jafnframt mun þingflokkurinn þá taka afstöðu til þess, hver taki við iðnaðarráðuneytinu í stað Alberts. Þar sem skammt er til kosninga er gert ráð fyrir, að einhver núver- andi ráðherra Sjálfstæðisflokksins taki að sér að gegna embættinu til loka kjörtíniabils. Albert Guðmundsson kom til landsins síðdegis á laugardag af fundi iðnaðarráðherra Norðurlanda í Kaupmannahöfn. Hann átti fund með Þorsteini Pálssyni kl. 10.00 á sunnudagsmorgun en síðdegis á sunnudag héldu stuðningsmenn Al- berts almennan en lokaðan fund, sem skýrt er frá annars staðar í Morgunblaðinu í dag. Ráðherrarnir tveir ræddust við á ný eftir hádegi í gær og jafnframt mun Þorsteinn Pálsson hafa gert Steingrími Her- mannssyni, forsætisráðherra, grein fyrir málinu laust fyrir hádegi í gær. Sjá frásögn af fundi stuðnings- manna Alberts Guðmundsson- ar á bls. 31.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.