Morgunblaðið - 03.04.1987, Qupperneq 1
88 SÍÐUR B
STOFNAÐ 1913
78. tbl. 75. árg.
FÖSTUDAGUR 3. APRÍL 1987
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Reuter
Vigdís forseti í Finnlandi
Forseti Islands, frú Vigdís Finnbogadóttir, er nú í einkaheim-
sókn í Finnlandi. Hér sést hún í Helsinki ásamt Carl Öhman frá
Finnsku menningarmálastofnuninni. Sjá: Vigdís fagnar útgáfu
Islendingasagnanna á bls. 33
Verzlunarstríð í uppsiglingu?
Bretar boða harð-
ar ráðstafanir
gagnvart Japönum
Svíþjóð:
Segjast munu
hætta aðstoð
við Víetnam
- nema herliðið verði
flutt frá Kambódíu
Njósnamál í
Frakklandi:
Þrír sovézk-
ir sendiráðs-
menn reknir
París, Reuter.
FRANSKA stjórnin vísaði í
gær þremur sovézkum sendi-
starfsmönnum úr landi. Var
þeim gefið að sök að standa í
tengslum við njósnahring, sem
reynt hefði að komast yfir
leynilegar upplýsingar varð-
andi Ariane-eldflaugina.
Mönnunum þremur, sem haft
hafa aðsetur í París, var gert
að fara frá Frakklandi innan
viku.
í tilkynningu franska utanrík-
isráðuneytisins sagði, að Jean-
Bemard Raimond utanríkisráð-
herra hefði kallað sovézka
sendiherrann, Yakov Ryabov, á
sinn fund og tjáð honum ákvörð-
un sína um að vísa mönnunum
þremur burt „fyrir aðgerðir, sem
ekki væru í samræmi við stöðu
þeirra og störf sem sendistarfs-
manna.“
London, Reuter.
BREZKA stjórnin ákvað í gær að
grípa til mjög harðra ráðstafana
gegn Japönum í þeim tilgangi að
fá þá til að draga úr verndar-
stefnu sinni heima fyrir á sviði
viðskipta og verzlunar. Hyggst
stjórnin notfæra sér lagaheimild-
ir um að afturkalla starfsleyfi í
Bretlandi fyrir banka og trygg-
ingarfyrirtæki frá löndum, sem
selja skorður við aðgangi brezkra
fyrirtækja að heimamörkuðum
sínum.
Talsmaður brezka viðskiptaráðu-
neytisins sagði í gær, að þetta gæti
náð til 58 japanskra fyrirtækja í
Bretlandi. Talsmaðurinn tók það
fram, að aðeins 14 brezk fyrirtæki
störfuðu í Japan og einungis hluta-
bréf þriggja þeirra væru skráð í
kauphöllinni í Tókýó. „það eina, sem
við krefjumst, er sanngirni og sú
krafa hefur ekki verið tekin til
greina," sagði hann.
Gert er ráð fyrir, að Sir Geoffrey
Howe, utanríkisráðherra Bretlands,
ræði verzlunarviðskiptin við Japan á
fundi með utanríkisráðherrum Evr-
ópubandalagsins um helgina. Þar
hyggst hann gera grein fyrir þessum
ráðstöfunum brezku stjórnarinnar
nú gagnvart Japönum.
Athygli vekur, að þessar ráðstaf-
anir Breta eiga sér stað samtímis
því, sem fulltrúar stjórna Bandaríkj-
anna og Japans eiga að koma saman
til skyndifundar til að afstýra verzl-
unarstríði.
Stokkhólmi, Reuter.
SÆNSKA stjórnin hefur ákveðið,
að frá og með 1990 verði hætt
efnahagsstuðningi við Víetnama
ef þeir hafa þá ekki dregið burt
allt sitt herlið frá Kambódiu. Lena
Hjelm-Wallen, ráðherra þróunar-
hjálpar, skýrði frá þessu í gær.
„Kambódíumálið veldur miklum
erfíðleikum í samskiptum þjóðanna,"
segir í yfirlýsingu frá Hjelm-Wallen,
en þar kemur einnig fram, að
sænsku þróunarhjálpinni hefur verið
skipað að hefjast ekki handa við
nein verkefni í Víetnam ef ekki er
unnt að ljúka þeim fyrir árið 1990.
„Sænsk stjómvöld eru reiðubúin að
halda áfram aðstoð og samstarfi við
Víetnam-stjórn ef hún stendur við
yfírlýsingar sínar um að flytja herlið-
ið frá Kambódíu árið 1990 hið
síðasta," sagði ennfremur í yfirlýs-
ingunni.
Svíar hafa stutt Víetnama mest
allra vestrænna þjóða og veitt þeim
árlega fjárhagsaðstoð, sem nemur
300 milljónum skr.
Margaret Thatcher við heimkomuna:
Heimsóknin til Sovét-
ríkjanna árangursrík
London, Reuter.
MARGARET Thatcher, forsæt-
isráðherra Bretlands, sagði í
gær við heimkomuna frá Sov-
étríkjunum, að fimm daga
heimsókn sín og Sir Geoffreys
Howe utanríkisráðherra þang-
Reuter
PAFINN I CHILE
Jóhannes Páll páfi II þykir hafa sýnt mikla ein-
urð, er hann hvatti til þess í Chile í gær, að lýðræði
og mannréttindi yrðu innleidd á ný í landinu. Þar
hefur verið við völd einræðisstjórn Augusto Pinoc-
hets hershöfðingja allt frá árinu 1973. Mynd þessi
sýnir kirkjunnar menn heilsa páfa, er hann kom
til dómkirkjunnar í Santiago. Gert er ráð fyrir,
að heimsókn páfans til Chile standi í sex daga.
að hefði verið árangursrík.
Ljóst væri, að sovézkt þjóðfélag
stæði á vegamótum. Sagði hún,
að sér geðjaðist vel að Mikhail
S. Gorbachev Sovétleiðtoga og
að hún bæri virðingu fyrir hon-
um.
Er Thatcher var spurð að því,
hvað hún áliti um þróun mannrétt-
inda í Sovétríkjunum eftir heim-
sóknina þangað, kvaðst hún fagna'
því, að margir sovézkir andófs-
menn hefðu verið látnir lausir, en
bætti síðan við: „Mikið er þó ógert
á því sviði.“ Hún sagði jafnframt,
að ekki mætti búast við skyndi-
breytingum. Það væri hvorki
sanngjamt né eðlilegt að búast
við þvi, að breytingar gerðust allt
í einu í Sovétríkjunum.
Thatcher vildi ekki svara spurn-
ingum fréttamanna um, hvort
árangur Sovétfararinnar gæti
haft áhrif á ákvörðun hennar um,
hvenær þingkosningar færu fram
í Bretlandi, en sagði aðeins: „Ég
á miklu verki ólokið og þvf vonast
ég til að fá að halda áfram svo
lengi sem unnt er.“
Viðbrögð fjölmiðla í Bretlandi
við heimkomu Thatcher voru al-
mennt á þann veg, að heimsókn
hennar til Sovétríkjanna hefði
tekizt mjög vel, þrátt fyrir það
að henni hefði ekki tekizt að fá
ákveðin fyrir-
heit varðandi
afvopnun og
önnur mál,
sem efst væru
á baugi í
heimsmálun-
um. Ljóst
væri, að Sov-
étmenn gerðu sér nú grein fyrir
kröfum Vesturlanda um, að unnt
yrði að staðreyna það, að samn-
ingum um afvopnun yrði fylgt
eftir og jafnframt, að slíkir samn-
ingar yrðu að ná til skammdrægra
kjarnorkueldflauga og annarra
vopna.
Við nokkuð annan tón kvað í
Sovétríkjunum í gær. Þar sagði
Georgy Arbatov, sem sæti á í
iniðstjórn kommúnistaflokksins, í
viðtali við brezka sjónvarpsmenn,
að allt gæti endað í ragnarökum
kjarnorkustyijaldar, ef Sovét-
menn og Bandaríkjamenn fylgdu
hinni hörðu stefnu Thatcher varð-
andi kjarnorkuvopn. Stefna
hennar vekti skelfingu með fólki
í Sovétríkjunum. Sagðist Arbatov
álíta Reagan Bandaríkjaforseta
„framsýnni og raunnsærri" en
Thatcher, þar sem hann tryði á
kjarnorkuafvopnun, enda þótt að-
ferðir hans til þess að ná því
takmarki væru rangar.