Morgunblaðið - 03.04.1987, Blaðsíða 60

Morgunblaðið - 03.04.1987, Blaðsíða 60
60 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 3. APRÍL 1987 fclk í fréttum Moreau á fullri ferð Franska leikkona, Jeanne More- au, sem á sér marga aðdáendur á Islandi, nálgasc nú sextugt, en lætur engan bilbug á sér finna. Hún hefur nýlokið við að leika í kvik- mynd sem heitir „Kraftaverkið" og fjailar um mann er lamast og held- ur til heilsulindanna við Lourdes, í Frakklandi til að leita sér lækninga. Reuter Góðum gesti fagnað Margaret Thatcher, forsætisráðherra Bretlands, var vel fagnað er hún kom til borgarinnar Tbilisi, í ferð sinni til Sovétríkjanna. Þessi ungi maður, er smellti kossi á kinn hennar, var í móttökunefnd þeirri er mætti á flugvöllinn til að taka á móti hinum góðu gestum. Geof- frey Howe, utanríkisráðherra Bretlands, stendur að baki Thatcher og fylgist brosmildur með. íslenskur listamaður í Bandaríkjunum: Dýrindis djásn á uppboði Hertogynjan af Windsor, sem lést á síðasta ári, átti mjög mikið af skargripum og hafa þeir, í gær og í dag, verið á uppboði í Genf hjá Sotheby’s fyrirtækinu. Flestir skartgripanna 200 eru gjafir frá eiginmanni hennar, hertoganum af Windsor, fyrrum Játvarði VIII Englandskonungi og er talið að þeir muni seljast fyrir um 7,5 millj- ónir dollara (um 300 millj. ísl.kr.). Andvirði skartgripanna rennur til Pasteur stofnunarinnar í París, er vinnur að rannsóknum á sviði lækn- isfræði. Djásnin eru hönnuð af ýrnsum frægum skartgripasmiðum og á flestum þeirra eru áletranir sem ekki var vitað um fyrr en nú er þau voru sett á uppboðið og er sagt að sagnfræðingar muni koma til með að velta fyrir sér merkingu þeirra. Meðal skartgripanna er armband með mörgum krossum, cr hinn frægi Cartier hannaði fyrir hertog- ynjuna og ber hver hinna gimstein- um skrýddu krossa áletrun. Einn þeirra sem á stcndur „Guð haldi sinni verndarhendi yfir konungin- um, Wallisar vegna“ (God Save the King for Wallis) gaf Játvarður, þáverandi konungur, frú Wallis Simpson, síðar hertogynju af Windsor, eftir að gerð hafði verið tilraun til að ráða hann af dögum árið 1936. Akrafjall, heimþrá og grj ót ~~ _ R.'Utrr. Rouler Gimsteinum prýdd næla er virt er á 90.000-120. Armbandið góða. 000 dollara (3,6-4,8 milljónir ísl.kr.). AP mynd Hertogahjónin af Windsor eftir brúðkaup þeirra í júní 1937. Frá Jóni Ásgeiri Sigurðssyni, fréttaritara Morgunhlaðsins í Bandaríkjunum. VIGNIR Jóhannsson myndlist- armaður frá Akranesi hefur búið í Bandarikjunum í nokkur ár. Hann stundaði framhaldsnám í grafík á Rhode Island, bjó siðan í New York um skeið og dvelur núna í New Mexico. Vignir verð- ur með sex einkasýningar á þessu ári, þar á meðal í Gallerí Borg i Reykjavík í apríl. Hann hefur þegar sýnt í New Haven og New York, en síðan taka við New Mexico, Reykjavík, Helsinki og loks Los Angeles í nóvember. Auk þess tekur Vignir þátt í sam- sýningum í Washington og New Mexico. Vignir sýnir málverk, kolateikningar og skúlptúr. Við hittum hann að máli á sýning- unni í New Haven. Vorið 1986 fór Vignir til New Mexiko að ræða við eigendur Si- doni listamiðstöðvarinnar í Santa Fe, honum leist vel á sig og féllst á að halda þar sýningu í apríl næst- komandi. Samningurinn fól í sér að listamiðstöðin kostaði dvöl hans í New Mexiko síðastliðinn vetur og útvegaði honum vinnuaðstöðu í Santa Fe. „Þeir eru með verkstæði sem ég get gengið í eftir þörfum. Það kemur sér vel fyrir mig, því að þótt ég hafi haft næga aðstöðu til að mála, hefur mig skort aðstöðu fyrir mína skúlptúra. Þetta hjálpar mér mjög mikið.“ — Gera mörg gallerí þetta, að kosta listamenn í tiltekinn tima? „Já, já. Flest meiriháttar gallerí gera það. Þau taka að sér ákveðinn fjölda af myndlistarfólki og sjá því fyrir lifibrauði. Þetta er beggja hagur, því að listamaðurinn getur þá framleitt það sem hann vill sjálf- ur en galleríið fær verk á sýningu." Það sem Vignir sýndi í New Haven og New York var unnið að mestu á árinu 1986 og núna eftir áramótin. „Ég er að fara meira og meira út í skúlptúra," segir Vignir. Hann hafði farið daginn fyrir sýn- ingu út í grjótnám í New Haven, valið sér góða steina og unnið við að koma þeim fyrir og lita þá um nóttina. — Hefurðu unnið skúlptúra á þennan hátt áður? „Ég var 1982 með sýningu í Los Angeles og þá fór ég út í gijótnámu og valdi mér eitt tonn af steinum. Það var afgreitt af vörubíl inn í sýningarsalinn og ég vann úr því þar. Þar málaði ég steinana en hérna nuddaði ég lit í þá. Sjáðu til, liturinn er í sjálfu sér ekkert annað en mulið gijót, þannig að þetta er sami efniviður, annarsvegar hrár og hinsvegar unninn." — Hvað ertu að segja með þessum myndverkum? „Ég er yfírleitt að tala um tilfinn- ingar — mínar og annarra. Hvað það er sem heijar á fólk. Mér finnst það meginatriði í myndum að þær séu sjónrænt sterkar, grípi mann og segi manni eitthvað. Tilgangur- inn er að segja það með myndinni sem aðrir ná að skynja og höfðar til þeirra." — Þú ert með sex sýningar í ár, þýðir það að þú sért „búinn að finna þig“? „Nei, ég hugsa að það sé meira það að fólk sem maður hefur kynnst Leikkonan Jane Fonda, sem komin er vel á fimmtugs- aldur, segist aldrei hafa verið í betra formi en einmitt nú og eftir myndinni að dæma getur það vel staðist. Hún er nýbúin að senda frá sér nýja bók þar sém hún leiðir lesendur í allan sannleik, að eigin sögn, um það hvað þeir geti gert til að líta betur út og láta sér líða vel. Æfingamar eru ekki jafn strangar og í fyrri bók Fonda enda segist hún sjálf hafa ofgert sér með matarkúrum og æfingum. Sem sagt allt er rúmlega fertugum fært'. Allt er rúmlega fer- tugum fært!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.