Morgunblaðið - 03.04.1987, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 03.04.1987, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 3. APRÍL 1987 Morgunbladið/Júlíus Síðustu daga fyrir páska er mikið að gera í pökkunardeildum hjá Nóa — Sirius og Mónu. Páskaeggin vega fleiri tonn FRAMLEIÐSLAN á páskaeggj- um hjá sælgætisverksmiðjum hefur verið í fullum gangi frá því um áramót. Nói — Sirius framleiðir um 325 til 340 þús- und páskaegg í ár, sem er nokkur aukning frá í fyrra. Framleiðslan hjá Sælgætis- gerðinni Mónu er svipuð og á síðasta ári. „Páskaeggin eru á annan tug tonna að þyngd,“ sagði Sigurður Marínósson framkvæmdastjóri Mónu. „Við erum búnir að gjör- breyta súkkulaðinu í páskaeggj- unum því íslendingar vilja miklu minni sykur en áður. Það er svo mikil vakning hér á landi fyrir góðu mataræði." Hjá Mónu eru einnig framleidd sérstök páska- egg fyrir sykursjúka. Stærð eggjanna er allt frá 550 grömm- um og 31 sentimetrum að hæð með unga, niður í 23 gramma „lukkuegg", sem pökkuð eru í álpappír. „Við framleiðum sennilega um 325 til 340 þúsund páskaegg í ár, bæði stór og smá,“ sagði Sig- urður Sigurðsson framleiðslustjóri Nóa — Sirius. „Framleiðslan hófst þegar fyrsta vinnudag eftir jól og er í fullum gangi enn. Við munum búa til páskaegg fram á síðasta dag til að anna eftirspum sem fer vaxandi milli ára.“ Sykurinn í egginn mælist í tonnum en Nói — Sirius framleiðir ekki sérstaklega egg fyrir sykursjúka enn sem komið er. Stærstu eggin eru 630 gr., 35 sm að hæð, með unga en minnstu eggin eru 50 gr. Samningar undirritaðir við Kennarasamband íslands: Byijunarlaun hækka um níu þúsund krónur Morgunblaðið/Emilía Samningurinn handsalaður. Indriði H. Þorláksson, formaður Samn- inganefndar ríkisins, til vinstri og Valgeir Gestsson, formaður Kennarasambands íslands, til hægri. Einnig eru á myndinni Geir H. Haarde og Svanhildur Kaaber. Vildu skiptaá víni fyrir hass Keflavik. LÖGREGLAN í Keflavík handtók tvo ölvaða varnarliðsmenn á mið- vikudagskvöldið. Höfðu þeir verið að bjóða heimamönnum skipti á áfengi og hassi. Þeir voru líka grunaðir um meinta ölvun við akstur og voru hafðir í haldi þar til í gær, að þeim var sleppt. Mennirnir höfðu verið á körfu- boltaleik í Njarðvík fyrr um kvöldið og höfðu þá falast eftir þessum við- skiptum við nokkra áhorfendur. Eftir leikinn bönkuðu þeir upp á í húsi í Keflavík og vildu eiga viðskipti við húsráðanda. Hann var hins vegar ekki á þeim buxunum og hafði sam- band við lögregluna sem handtók mennina. Að sögn lögreglunnar voru varnarliðsmennirnir með fjórar 5 pela vodkaflöskur, sem þeir ætluðu að nota í þessum viðskiptaleiðangri. Málið er talið að fullu upplýst. B.B. Borgaraflokkurinn; Nítján hundruð manns hafa gengiö í f lokkinn NÍTJÁN hundruð manns hafa nú gengið í Borgaraflokkinn, samkvæmt upplýsingum Alberts Guðmundssonar efsta manns S- listans i Reykjavík. Albert sagði að um 1400 hefðu skráð sig í flokkinn á kosingaskrifstofu hans í Skeifunni, en um 500 manns úti á landi. Við höfum skipað nefnd til þess að gera formlega stofnskrá og verð- ur formaður hennar Jón Oddsson hæstaréttarlögmaður," sagði Al- bert. Hann sagði að stefnt væri að því að skipurit og stofnskrá yrðu tilbúin fyrir formlegan stofnfund flokksins, sem væri ákveðinn fljót- lega að loknum kosningum. „Við höfum ekki tíma til þess að halda stofnfund fyrr en eftir kosningar, vegna anna frambjóðenda,“ sagði Albert. TOGARINN Haukur frá Sand- gerði hefur landað afla sínum í Flugstöð Leifs Eiríkssonar: Gróður fyrir 5 milljónir BYGGINGARNEFND Flugstöðv- ar Leifs Eiríkssonar á Keflavík- urflugvelli hefur ákveðið að taka tilboði fyrirtækjanna Blómalist/ Gróðrarstöðin Lambhagi um gróður í flugstöðina. Þessi fyrir- tæki áttu lægsta tilboð í þetta verk, 4.957 þúsund krónur. Fimm fyrirtæki buðu í gróðurinn, og átti Blómaval næst lægsta tilboð- ið, 6.810 þúsund krónur. Sverrir Haukur Gunnlaugsson, formaður byggingarnefndarinnar, sagði að um væri að ræða kaup á tæplega 400 plöntum, runnum, botngróðri og tijám. Stærstu trén væru 5—6 metra há pálmatré. Blómakerin verða keypt hjá Blómavali. SAMNINGAR voru undirritaðir seinnihluta gærdagsins milli Kennarasambands Islands og ríkisvaldsins og eru þeir sambæri- legir þeim samningum, sem gerðir voru við Hið íslenska kenn- arafélag í byijun vikunnar. Samningurinn nær til um þrjú þúsund kennara og skólastjórn- enda í grunn- og framhaldsskól- um landsins. „Miðað við allar aðstæður er ég ánægður með þennan samning," sagði Valgeir Gestsson, formaður Kennarasambands íslands, í samtali við Morgunblaðið. „Við náðum því, sem við settum okkur í upphafi við- Njarðvík í þremur síðustu veiði- ferðum vegna deilu um hafnar- aðstöðu. Að sögn Eyþórs Jónssonar, útgerðarstjóra Hauks verður svo áfram þar til skýring- ar hafa fengist. „Hingað til höfum við aðeins fengið útúr- snúninga, sem við sættum okkur ekki við,“ sagði Eyþór ennfrem- ur. Að sögn Eyþórs var togarinn Sveinn Jónsson, sem er frá öðru útgerðarfyrirtæki, við bryggjuna þegar Haukur var að koma inn til löndunar í byijun marsmánaðar. Útgerðarmaður togarans neitaði að láta færa hann, þannig að Haukur kæmist að bryggjunni. Þá hefðu þeir snúið skipinu til Njarðvíkur, þar sem landað hefði verið úr því. Magnús Magnússon, formaður hafnarnefndar í Sandgerði, vildi ekki tjá sig um þetta mál, en sagði að unnið væri að lausn deitunnar. INNLENT ræðna í febrúar, að ná upp launum byijenda og það tókst nokkuð vel, þó allir fái hækkun, en þeir eldri minni til að byija með. Ymis önnur mál náðust einnig fram, eins og það að nú verður sama kennsluskylda á öllu grunnskólastiginu, en þar var einnar kennslustundar munur áður. Framhalds- og endurmenntun verð- ur metin betur til launa en var áður og samningnum fylgir sérstök bókun um endurskoðun alls launakerfis stéttarinnar fyrir næsta haust og ef það næst ekki um það samkomulag eru möguleikar á að segja samningn- um upp í byijun næsta árs,“ sagði hann ennfremur. Valgeir sagði að samkvæmt samningnum hækkuðu byijunarlaun strax um rúm níu þúsund krónur á mánuði, hækkuðu úr 32.850 krónur í 42 þúsund krónur. Samningurinn gildir frá 1. febrúar í ár til ársloka FASTEIGNIN Aðalstræti 100 á Patreksfirði var nýlega slegin Stofnlánadeild landbúnaðarins á 5 milljónir á nauðungaruppboði. Brunabótamat hússins er um 43 milijónir kr. Húsið var í eigu Mat- vælavinnslunnar hf. á Patreks- firði, sem hefur rekið í því rækjuvinnslu og kjötvinnslu, en var byggt fyrir nokkrum árum af Kaupfélagi Vesturbarðstrend- inga sem sláturhús. Kaupfélagið seldi Matvælavinnsl- unni sláturhúsið á árinu 1985, en 1988. Sömu áfangahækkanir eru í samningnum og samist hefur um á almennum vinnumarkaði. Gert er Hraðfrystihús Patreksfjarðar hf og kaupfélagið eru stærstu hluthafarnir í því fyrirtæki. Fyrir rúmu ári var talið að 40—50 milljóna króna skuld- ir hvíldu á húsinu. Stærsti kröfuhaf- inn var Stofnlánadeild landbúnaðar- ins, tæpar 22 milljónir kr., og var hún aðaluppboðsbeiðandinn. Byggðasjóður átti einnig kröfu í hú- sið, einnig Samvinnutryggingar, SÍS, Mjólkursamsalan í Reykjavík, Lands- banki íslands og fleiri. Þá átti Kaupfélag Vesturbarðstrendinga að minnsta kosti 12 milljóna kr. kröfu í húsið á 11. veðrétti. Krafa Stofnl- ráð fyrir að almenn atkvæðagreiðsla fari fram um samninginn 8. og 9. apríl næstkomandi. ánadeildar er á 1. veðrétti, og tapa því aðrir kröfuhafar öllum sínum kröfum, nema þeim takist að inn- heimta þær hjá hlutafélaginu, sem mun vera að mestu eignalaust, eða upphaflegum skuldara. Auglýst hefur verið uppboð á verslunarhúsi Kaupfélags Vestur- barðstrendinga á Patreksfirði. Leifur Kr. Jóhannesson, fram- kvæmdastjóri Stofnlánadeildarinnar, segir að ekki sé búið að ákveða hvað gert verði við húsið. Það mál yrði ekki athugað fyrr en eignayfirtakan væri formlega frágengin. Sandgerði: Deilt um hafnaraðstöðu Sandgerði. Patreksfj örður: „Sláturhúsið“ sleg- ið Stofnlánadeild Slegið á 5 milljónir, brunabótamat 43 milljónir kr.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.